Morgunblaðið - 30.08.2009, Side 29

Morgunblaðið - 30.08.2009, Side 29
29 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 2009 Nú stendur yfir gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár. Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsemi á árinu 2010. Meðal markmiða styrkveitinga er að styrkja og efna til samstarfs við félagasamtök, fyrirtæki og einstaklinga um uppbyggilega starfsemi og þjónustu í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda. Styrkir eru m.a. veittir til verkefna á sviði eftirtalinna málaflokka: • félags- og velferðarmála • menntamála - grunnskólar/leikskólar • íþrótta- og æskulýðsmála • mannréttindamála • menningarmála Vakin er athygli á því að reglur um styrkveitingar er að finna á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/styrkir. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um áherslur borgarinnar í einstökum málaflokkum. Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem nálgast má á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/styrkir. Eyðublöðum þessum skal skilað rafrænt ásamt fylgigögnum, eða, ef þess er ekki kostur, í Ráðhús Reykjavíkur, merktum Reykjavíkurborg – styrkumsókn. Umsóknarfrestur er til 1. október nk. og eru einungis teknar til greina umsóknir sem berast innan tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem reglur Reykjavíkurborgar kveða á um. Viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á. Þá eru styrkir alla jafna hvorki veittir til kaupa á húsnæði né til greiðslu fasteignagjalda. Umsóknir verða metnar með hliðsjón af eftirfarandi: • markmiðum sem lýst er og hvort líklegt sé að þeim verði náð • hvort verk- og tímaáætlun sé raunhæf • hvort unnt sé að meta framvindu verksins • hvort skilagreinar og fyrri verkefni sem styrk hafa hlotið uppfylli lágmarkskröfur • væntanlegum árangri og ávinningi fyrir umrædda starfsemi • fjárhagsáætlun og greinargerð um aðra fjármögnun sem einnig skal fylgja umsókn Styrkumsókn felur í sér að umsækjendur undirgangast ákvæði reglna Reykjavíkurborgar um styrki. Gert er ráð fyrir að úthlutun nefnda og ráða verði lokið í árslok 2009. Styrkir Reykjavíkurborgar Fyrirspurnir og óskir um nánari upplýsingar má senda á netfangið styrkir@reykjavik.is www.reykjavik.is/styrkir SÆNSKI fasteignarisinn Ikea rek- ur sjö verslanir í Kína. Verslunin í Beijing nýtur töluverðrar hylli heimamanna, sem koma þangað á frídögum með allri fjölskyldunni og verja þar löngum stundum. Því mið- ur koma þó ekki allir til að versla. Verslunin er fremur eins og eins konar skemmtigarður fjölskyld- unnar, þar sem fólk ráfar um, fær sér að borða og leggur sig svo í eitt- hvert sýningarrúmanna. Bandaríska dagblaðið Los Angel- es Times sagði á dögunum frá áhyggjum Ikea-manna vegna við- skiptanna í Kína. Þeir höfðu vonast til að Kínverjar tækju Ikea opnum örmum. Það gekk vissulega eftir. Þar sem Ikea er verslun höfðu eig- endurnir hins vegar reiknað með að vinsældirnar yrðu til þess að þeir seldu gríðarlegt magn af vöru. Það hefur ekki gerst, þótt verslunin sé full alla daga og yfirfull um helgar. Los Angeles Times vitnar í fjöl- skylduföðurinn Zhang Xin, sem fór með eiginkonu, son og móður í ljúfa fjölskylduferð eina helgina. Ekki í Forboðnu borgina eða að múrnum mikla, heldur í Ikea. Ástæða þess að Ikea varð fyrir valinu var ekki sú að eitthvað vant- aði til heimilisins, heldur að þar var mengunin ekki að plaga þau og veit- ingahúsið býður upp á ódýran og góðan mat. Zhang Xin og fjölskylda eru í hópi þúsunda Beijing-búa, sem flykkjast í Ikea um helgar til að leggja sig í þægilegum rúmum og sófum, jafnvel breiða yfir sig sængur, eða stilla sér upp í myndatöku í fallegri útstill- ingu. Fjölmargir koma eingöngu til að njóta þess að vera í svalanum sem loftkælingin tryggir. Andrúmsloftið í Ikea er afslapp- aðra en í öðrum stórverslunum Kína. Los Angeles Times hefur eftir gesti, að öryggisverðir verslunarinnar skipti sér ekkert af því þótt fólk taki upp myndavélar, eða að börnin hoppi uppi í rúmum. Þá fettir heldur enginn fingur út í þótt fólk nýti sér fríar áfyllingar í gosglösin oftar en einu sinni. Og það nýtir fólk sér svikalaust. Upplifa, ekki kaupa Þótt fjölmargir komi aðeins í Ikea til að hafa það notalegt, þá eru þeir líka margir, sem eru hæstánægðir með að eiga þess kost að kaupa ódýran og nýtískulegan varning til heimilisins. Hin nýja millistétt Kína kærir sig ekki um þunglamalegan húsgagnastílinn, sem eldra efnafólk hefur tamið sér. Einn viðmælenda Los Angeles Times, hin 25 ára Lizzy Hou, segir Kínverja vilja vera nú- tímalega og Ikea sé táknmynd nú- tímalegs lífsstíls. Hún bætir reyndar við: „Fólk vill ekki endilega kaupa þann lífsstíl, en það vill upplifa hann.“ Og þar stendur hnífurinn í kúnni; margir ætla sér alls ekki að kaupa neitt. En það er ekki þar með sagt að heimsóknir þeirra nýtist ekki Ikea, þótt á annan hátt sé. Los Ang- eles Times segir t.d. af hinni 36 ára Bai Yaling, sem ók í hálfa aðra klukkustund til Ikea, til að njóta þar skemmtunar á heitum sumardegi. Hún tók 7 ára son og tvær unglings- frænkur með. Fyrst fengu þau sér pylsur og ís og svo hvíldu þau sig í svefnherbergisdeildinni. Bai spark- aði af sér sandölunum og kom sér vel fyrir. Og hikaði ekki við að skella sér í hlutverk sölumanns og segja öðr- um gestum frá ágæti dýnunnar sem hún lá á: „Hún er mjúk og á mjög hagstæðu verði.“ Eftir hvíldina gekk Bai um versl- unina og tók myndir af syninum og frænkunum. Því næst fóru þau á veitingastaðinn og borðuðu kvöld- mat. „Við ætluðum aldrei að kaupa neitt í dag, bara borða og hvílast.“ Um alla verslun eru gestir, sem hafa komið sér fyrir í mjúkum hæg- indastól eða sófa með bók í hönd og standa ekki upp fyrr en eftir drykk- langa lestrarstund. Varist eftirlíkingar! Stjórnendur Ikea binda miklar vonir við að allir þessir gestir muni að lokum verða viðskiptavinir. Þess vegna er engum vísað frá þótt hann fái sér blund í einu rúmanna, eða sitji lengi við lestur í hægindastól. Bandaríska verslanakeðjan Wal- Mart og sú franska Carrefour glímdu við svipaðan vanda þegar þær fóru fyrst inn á kínverskan markað, en nú versla Kínverjar þar af miklum móð. Annar vandi ergir stjórnendur öllu meira. Dæmi eru um að gestir komi með trésmiði með sér í versl- anir Ikea, vopnaðir tommustokk og taki mál af húsgögnum, með það í huga að smíða eftirlíkingar á heimili sín. Einn viðmælenda Los Angeles Times segist hafa keypt sjónvarps- borð og sófa annars staðar, sem hafi verið alveg eins og húsgögn sem fást í Ikea. „Af hverju ætti ég að eyða miklum peningum hér, ef ég get fengið hlutina ódýrari annars stað- ar?“ Þótt stjórnendur Ikea bindi vissu- lega vonir við að gestirnir fari að versla, þá láta enn margir sér heim- sóknir nægja. Og taka þá myndir, eins og á öðrum ferðamannastöðum. Los Angeles Times vitnar í blogg- síðu heimamanns, sem tók fjölda mynda í versluninni. Yfir ljósmynd- unum á síðu hans stendur: „Ég þarf ekki að kaupa þetta, af því að ég tók myndir.“ rsv@mbl.is Skemmti- garðurinn hjá Ikea í Kína Síðdegislúr Þreyttir gestir Ikea í Beijing fá sér lúr í einum sófanum. Þeir eru hins vegar ekki líklegir til að kaupa sófann og taka hann með sér heim. Nashyrningar Indverski nashyrningurinn Bandhu dafnar vel í dýragarði í San Diego. Bandhu kom í heiminn 18. maí sl. og var hinn hraustlegasti, 68 kíló að þyngd. Hann hefur bætt á sig svo um munar og er nú 454 kíló. Hann er fyrsta afkvæmi móður sinnar, Jatri. Hins vegar hafa 58 aðrir nas- hyrningar litið dagsins ljós í dýragarðinum á 31 ári. Reuters Bandhu dafnar vel

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.