Morgunblaðið - 30.08.2009, Page 33
33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 2009
2009
Eignir
Tekjur: 568.915 kr. Útgjöld: 870.446 kr.
Skuldir
Húsnæði: 35.000.000 kr.
Bíll 1: 2.500.000 kr.
Bíll 2: 500.000 kr.
Alls: 38.000.000 kr.
Íbúðalánasjóður: 21.707.926 kr.
Lífeyrissjóður: 12.748.899 kr.
Bílalán: 4.536.900 kr.
Námslán: 6.902.700 kr.
Alls: 45.896.425 kr.
Mínusrekstur: 301.531 kr.
10,8% 14%
Neysla
2008 2009
Matur og drykkur 81.807 93.661
Hreinlætisv.,snyrting,snyrtiv. 15.967 18.001
Föt og skór 33.696 43.664
Heilbrigðisþjónusta og lyf 13.238 15.119
Ritföng, bækur og tónlist 7.453 8.886
Annað 10.000 15.000
Alls: 162.161 194.331
2008 2009
Frístundah. + skólamatur 16.500 16.500
Leikskóli, 9 tíma vistun 22.459 31.155
Alls: 38.959 47.655
?? %Ferðalög
19,8%
Börnin 22,3%
Tekjur: 568.915 kr.
Útgjöld: 870.446 kr.
148%
10% 17,6%
Tómstundir
og íþróttir 11,4%
2008 2009
Ballett eldra barn 2.800 3.133
Tónlistarskóli eldra barn 6.667 7.500
Sumarnámskeið eldra barn 4.667 5.500
2x líkamsræktarkort foreldra 10.100 10.256
Tómstundir foreldra 5.200 6.400
Alls: 29.434 32.789
(Ákveðið var að horfa fram hjá ferðakostnaði enda
ljóst að ferðavenjur hafa breyst svo mikið á undan-
förnummisserum að erfitt yrði að bera saman þennan
lið milli ára. Í stað árlegra sólarlandaferða hafa komið
fjölskylduferðir innanlands og utanlandsferðir sem
farnar voru í fyrra voru keyptar á mjög misháu gengi.) Gr
af
ík
:M
or
gu
nb
la
ði
ð/
E
lín
E
st
he
r
En hvaða usla hafa verðlags-, vísitölu-
og gengisbreytingar í raun gert í heim-
ilisbókhaldi meðalbarnafjölskyldunnar í
hverjum mánuði? Bergþóra Njála Guð-
mundsdóttir rýndi í margvíslegar tölur
til að finna svar við þessari spurningu og fór yfir stöðuna hjá
tilbúinni vísitölufjölskyldu – annars vegar eins og hún var fyrir
ári og hins vegar eins og hún blasir við henni í dag. Og ekki
þurfti að reikna lengi til að uppgötva að þar væri á ferðinni
dæmi sem getur varla gengið upp.
ekki gengið upp
kjavík og eiga tvö börn, annað á
m grunnskóla. Bæði eru þau há-
n sem slík, karlinn er sérfræðingur
orga bæði 4% í séreignalífeyr-
kjuskerðingu frá í fyrra vegna sam-
tillit til hækkunar á skattprósentu
em og vaxta- og barnabóta.
miðsvæðis í Reykjavík síðsumars
til þess 77% lán, annars vegar hjá
óði. Þá keyptu þau sér nýjan fjöl-
nir. Þau lögðu til kaupanna eina
n kaupsamning um afgang kaup-
kuldlaust.
ám að baki skulda þau námslán
phaf afborgana skuldaði hann um
R-lán, sem veitt voru á tímabilinu
sínum árlega til Lánasjóðsins.
m hægt var að nálgast þær hjá
staklingum í sambærilegri stöðu
reiða frá Félagi íslenskra bifreiða-
slukannanir Hagstofunnar.
að út frá vísitölu íbúðaverðs á höf-
hún var síðsumars 2006 þegar
millitíðinni og var aftur farin að
o deilt um hvort þeir kaupsamn-
endurspegli í raun verð á íbúða-
i og raun ber nú vitni.
Eins og sjá má náðu endar alls ekki saman hjá fjöl-
skyldunni okkar þegar um þetta leyti í fyrra. Gengi
krónunnar hafði jú hrunið um tugi prósenta á fyrri
hluta árs 2008 sem jók greiðslur af gengistryggða
bílaláninu töluvert á síðasta ári auk verulegra hækk-
ana sem urðu á verðlagi og verðtryggðum lánum í
kjölfarið. Gera verður því ráð fyrir að mismunurinn,
um 122 þúsund á mánuði, hafi farið af sparifé
hjónanna og/eða safnast upp sem skuld á yfirdrátt-
arreikningi þeirra.
Staðan hefur hins vegar versnað til muna í dag, ári
síðar, svo mikið raunar að mínusrekstur fjölskyld-
unnar hefur aukist um heil 148% og var hann nú ær-
inn fyrir. Eftir hækkanir á afborgunum lána, vörum,
þjónustu og ýmiss konar sköttum er mánaðarlegur
mínus upp á tæp 302 þúsund króna æpandi vitni um
að fjölskyldan hefur ekki með nokkru móti efni á því
lífi sem hún lifði fyrir réttu ári.
Hér er gengið út frá þeim lífsstíl og þeim fjárfest-
ingum sem sérfræðingar og tölur bera vitni um að
hafi verið algeng þegar góðærið svokallaða var og
hét. Vissulega er þó eyðsla meðalfjölskyldu fremur
afstæð í þessu samhengi. Einhverjum kann að þykja
vel í lagt með suma kostnaðarliði á meðan aðrir
sakna e.t.v. einhvers. Þannig er í þessu dæmi gert
ráð fyrir að hvorugt hjónanna reyki en ætla má að
kostnaður við að reykja einn pakka á dag sé um 310
þúsund á ári á núverandi verðlagi eða tæpar 26 þús-
und krónur á mánuði.
Ekki er heldur gert ráð fyrir kostnaði við ferða-
lög, hvorki innan- né utanlands, enda ljóst að ferða-
kostnaður hefur breyst það mikið milli ára að erfitt
yrði að bera slíkt saman. Þær utanferðir sem farnar
voru í fyrra voru aukinheldur keyptar á afar mis-
jöfnu gengi, enda tvennt ólíkt hvort pakkaferðin var
keypt í febrúar í fyrra eða síðsumars. Með hliðsjón af
viðvarandi mínusrekstri fjölskyldunnar er vandséð
hvernig buddan hefði átt að leyfa munað á borð við
ferðalög.
Þá er ekki gert ráð fyrir kostnaði vegna t.d. skíða-
iðkunar, sem þó hefur færst mjög í aukana hjá ís-
lenskum fjölskyldum undanfarna vetur.
Sennilega hefur kaldur veruleikinn neytt flestar
fjölskyldur í þessari stöðu til að breyta lífsstíl sínum
til muna frá því sem áður var. Kannski hefur fata-
reikningurinn verið lækkaður með því að fá notaðar
spjarir frá ættingjum og vinum fyrir börnin – eða
ferðum á skyndibitastaði verið fækkað. Kannski eru
hjónin löngu búin að leggja öðrum bílnum. En hvort
slíkar aðgerðir duga til að gera heimilisbókhald fjöl-
skyldunnar bærilegt eða yfirstíganlegt má hver og
einn dæma fyrir sig. ben@mbl.is
Bullandi mínus
mánuðum saman