Morgunblaðið - 30.08.2009, Side 36

Morgunblaðið - 30.08.2009, Side 36
36 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 2009 Komduogskoðaðuþaðnýjasta í hönnun ogtækniheyrnatækja. Ellisif Katrín Björnsdóttir heyrnarfræðingur verður með fyrirlestur: Hvað er til ráða ef einhver nákominn þér á við heyrnarskerðingu að etja? Fyrirlesturinn verður haldinn kl 11:00 , 14:00 og 17:00 Gestum fyrirlestranna er boðið upp á að skrá sig í fría heyrnarmælingu Opið hús þriðjudaginn 1. sep. kl. 10-18 í Hlíðasmára 11 be by ReSound eru vart greinanleg í eyrunum Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur - heyrn.isHeyrnarþjónustan Tímapantanir 534 9600 ALÞJÓÐAGJALD- EYRISSJÓÐURINN (AGS) hefur mikil áhrif á Íslandi í dag. AGS er banki sem setur mjög ströng skilyrði fyrir þeim lánum sem hann veit- ir. Þessi skilyrði eiga hug og hjarta AGS því sjóðurinn leggur mikið á sig til að farið sé eftir skilyrðunum. Oft eru lánin það stór að ómögu- legt er að endurgreiða þau. Því virðist sem sjálf endurgreiðsla lán- anna sé ekki mesta áhyggjuefni AGS. Það sem skiptir þá höfuðmáli er að hafa áhrif á stefnu stjórn- valda. Ég vona að menn skilji að þetta er harla óvenjuleg framkoma hjá lánastofnun. Þar sem mér hef- ur enn ekki tekist að finna samn- inginn sem valdhafar Íslands skrif- uðu undir verður maður að styðjast við þekkta afrekaskrá AGS. Kröfur AGS eru yfirleitt eft- irfarandi: Fjálst og óheft flæði fjármagns yfir landamæri. Við tókum ómakið af AGS með EES-samningnum 1994 við ESB. Kreppurnar í Asíu, Rússlandi og núna á Vesturlöndum hófust þannig. Fyrst kemur mikið af erlendu fjármagni inn í landið. Mikil hækkun verður á fast- eignaverði og gjaldmiðlinum. Þar á eftir kemur til mikil lántaka hjá öllum aðilum innanlands. Síðan, í miðri veislunni, gerist það eins og hendi sé veifað, að fjármagnið hverfur aftur heim til sín. Þá hryn- ur allt hagkerfið því endur- fjármögnun skulda verður ómögu- leg og gjaldþrot verður niðurstaðan. Þetta er margend- urtekið og klikkar aldrei. Krafa um markaðsvæðingu, sem þeir kalla frjálsa og er þá reynt að vísa til Adam Smith. Gamli Skotinn þyrfti sjálfsagt áfallahjálp í dag ef hann sæi þessa klámvæðingu á kenningum sínum. AGS vill óheft viðskipti, enga tolla og þess háttar. Vanda- málið er að oft er um einstefnufrelsi að ræða, mörg þriðja heims lönd fá ekki að selja vörur sínar á Vesturlöndum. Þess í stað er dælt inn vörum frá eigendum AGS, jafnvel þó fram- leiða mætti slíka vöru í heimalandinu. Við- komandi þjóð verður því háð dýrum inn- flutningi og fjarlægist enn frekar sjálfsþurftarbúskap. Þá skulum við kanna þá þætti sem á eftir að fullgera hér á landi. AGS krefst þess ætíð að stýrivextir séu háir. Það gera þeir á þeirri for- sendu að verðbólga verði ekki of mikil hjá örmagna þjóðum. Reynd- ar er mikilvæg undantekning, það eru Bandaríkin. Þar eru stýrivextir lágir, núna innan við 1%, sjálfsagt til að örva atvinnulífið. Í Indónesíu á sínum tima fór AGS með stýri- vextina í 80%. Þessi hávaxtastefna hefur ætíð haft í för með sér fjöldagjaldþrot fyrirtækja og heim- ila í viðkomandi löndum (margend- urtekið og klikkar ekki). Þetta er núna að gerast á Íslandi. Síðan bætist verðtrygging lána við, hjá Íslendingum, sem hvati sem flýtir öllu ferlinu. Strangar kröfur koma frá AGS um ríkisfjármál. Þeir hafa skipað öllum löndum að skera niður rík- isútgjöld til að ná hallalausum fjár- lögum. Undantekningin er aftur Bandaríkin sem fer yfir á kortinu til að efla atvinnulífið og minnka atvinnuleysi. Seðlabanki þeirra prentar bara dollara fyrir þá, sem verðbólgan étur síðan upp með tíð og tíma. Vandamál okkar er að við þurfum að framleiða til að eignast dollara til að greiða erlendu lánin. Til að sem mestur afgangur verði til að kaupa dollara verður að minnka öll ríkisútgjöld. Þessi stefna AGS hefur valdið miklum niðurskurði í heilbrigðis-, mennta- og félagsmálum. Laun almennings hafa lækkað verulega. Yfirleitt skreppur miðstétt úr 60-70% niður í 20%. Fátækt eykst að sama skapi. AGS kemur með eða styður kröfuna um einkavæðingu. Heil- brigðis- og menntakerfið, járn- brautir, flugfélög, olíuvinnsla, orku- vinnsla, vatnsveita, rafmagn og fleira. Niðurstaðan er oftast sú að þjónusta minnkar og verður það dýr að notkun einstaklinga ræðst af efnahag. Þegar um er að ræða auðlindir sem þjóðir hafa byggt af- komu sína á, eins og olíu o.þ.h., þá verður viðkomandi þjóð algjörlega berskjölduð því hún hefur engin tök á því að afla sér tekna til að greiða skuldir sínar hjá AGS. Elexír AGS virkar einhvern veg- inn svona: Fyrst er að koma á mik- illi skuldsetningu. Háir stýrivextir sem setja heimili og fyrirtæki á hausinn. Mikill niðurskurður sem veldur miklu atvinnuleysi. Mikill niðurskurður á launum og öllum bótum frá hinu opinbera. Einka- væðing sem eykur kostnað ein- staklingsins við nauðþurftir til dag- legs lífs. Yfirskuldsett kynslóð sem lifir við kjör sem hún hefur aldrei kynnst áður og er til í að selja eig- ur sínar upp í skuldir. Sala á auð- lindum landsins og þar með mögu- leikanum á því að endurgreiða lán AGS. Þar með verður þjóðin að fá lán fyrir láninu, gott dæmi um þetta er Argentína. AGS er kominn inn á gafl hjá okkur. Til að lágmarka skaðann þurfum við að skuldsetja okkur sem minnst. Framleiða sem mest og greiða skuldirnar. Halda í auð- lindirnar hvað sem það kostar. Látum ekki neyða okkur til að brjóta Mannréttindasáttmála SÞ þar sem kveðið er á um rétt ein- staklinga til atvinnu, frelsi til að velja sér atvinnu og rétt á mann- sæmandi lífsskilyrðum þrátt fyrir skort á atvinnu, skort sem viðkom- andi ber enga ábyrgð á. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn klikkar ekki Eftir Gunnar Skúla Ármannsson » Þar sem mér hefur enn ekki tekist að finna samninginn sem valdhafar Íslands skrif- uðu undir verður maður að styðjast við þekkta afrekaskrá AGS. Gunnar Skúli Ármannsson Höfundur er læknir. BÚSÁHALDA- BYLTING, alþing- iskosningar og stjórnarskipti fyrr á þessu ári færðu þjóð- inni von um trúverð- uga stefnu burt úr brimgarði banka- hruns og vonleysis. Færðu þjóðinni von um Nýtt Ísland. Betra Ísland. Von sem m.a. uppfærði hugsjónir um skárri veröld og betra samfélag. Uppfærði drauminn um betra og fegurra mannlíf. Rifrildið um Icesave í sumar bendir til þess að draumurinn sé að hverfast í martröð. Málefnið mörgum augljóslega ofviða, inn- an þings og utan, þingmönnum, fjölmiðlafólki, greinarhöfundum, bloggurum, sbr. þrotlaust sund- urlyndið, þrasið og skuggalegar skapsveiflur ósköp orðbragðs, grát og grátklökkva, reiði og gnístran tanna ef ekki dansar veröld eins og rökþrota vill. Svik þingmanna Borgarahreyf- ingar við stefnu og hreyfingu, amen á eftir Icesave. Svik játuð upphátt um miðjan dag með drottinhollustu við hættulegasta öfugmæli heimsins sem á ís- lensku er samtals þrjú orð: til- gangurinn helgar meðalið. Svik sem auðvitað þýða samstundis afsögn þessara þingmanna. Borg- arahreyfingin er rúin trausti þar til því réttlæti er fullnægt. Rangfærslur, rakalausar upp- hrópanir og útúrsnúningar um ESB-samstarfið hafa bætt gráu ofan á svart. Einar Kr. Guðfinns- son, þingmaður og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, sér til dæmis óvænt ástæðu til þess í grein sinni í Mbl. 6. ág. sl. að rangtúlka óhemju ítarlega nýleg orð sjávarútvegsráðherra Spán- ar. Ráðherrann dirfðist sem sagt að segja það forréttindi Íslend- inga að engum leyfist enn að eiga meirihluta í íslensku sjáv- arútvegsfyrirtæki nema framvísa íslensku ríkisfangi. Einar afflytur þessa kunnu staðreynd með al- kunnum gapuxahætti íslenskra kvótagreifa – sem eins og alþjóð veit þykir öll vínber súr nema þeir eigi þau sjálfir, greifarnir. Gúttóslagur Bjarna, formanns Sjálfstæðisflokks, í Mbl. í morg- un 10. ág. 09, er ekki síst vitn- isburður um hve brýnt er að þjóðin losi sig úr fjötrum fólks og flokka sem lýsa drottinhollustu við öfugmæli. Losi sig úr fjötrum fólks og flokka sem þvælast fyrir skynsamlegri úrlausn brýnustu þjóðmála, svíkja og skemma í þeim æðsta tilgangi að halda eða ná völdum. Dagljóst er að í okk- ar nágrannlöndum myndi hik- laust teljast vítavert og hafa al- varleg eftirmál í för með sér ef æðstu forystumenn þjóðar og þjóðarbús myndu þumbast svona endalaust opinberlega um ábyrgð ríkisvaldsins á lágmarks- innstæðutryggingum skv. EES- samningnum; sú ábyrgð hefur legið fyrir í fjórtán ár og út á þá ábyrgð stunduð víðtæk viðskipti. Engin furða þó að spurt sé góð- látlega bæði hér og erlendis: Má ekki færa umræðuna á hærra plan? Icesave og ESB-umsókn marka saman slóð til nýrrar framtíðar. Marka veg til víðtæk- ara nánara samráðs og samstarfs Íslands og Evrópu. Þessu fylgja augljóslega aukin er- lend samskipti, mest og best við okkar nán- ustu vina- og við- skiptaþjóðir; og ber að fagna ef Íslendingar ætla sér áfram til jafns við þessar þjóðir um hagsæld og vel- ferð. Eins ber að fagna því að Íslandi er nú um það bil mörkuð trúverð- ug stefna. Trúverðug sigling. Mörkuð stefna, endurreisn til sjálfshjálpar með auknu samráði og samstarfi við nágrannaþjóðir. Fái þjóðin hrist af sér slæma stjórnmálmenn, slæma stjórn- endur og ábyrgðarlaus vinnubrögð má vænta mikils ávinnings af þeirri siglingu, ekki síst aukinnar víðsýni og þroska. Í sumarbyrjun kom út nýtt greina- og ritgerðasafn um þjóð- mál, bók samnefnd þessu grein- arkorni, þar segir m.a. í grein sem ber heitið Ættjarðaróð: „Ný sjálf- stæðisbarátta er sjálfkrafa hafin hérlendis í kjölfar efnahagshruns. Þessu gera sér allir grein fyrir sem sjá vilja mál og málefni eins og þau eru í raun og sann … Ný sjálfstæðisbarátta snýst ekki eins og sú fyrri um sjálfstæði og full- veldi frá né undan fjötrum erlends valds. Snýst heldur ekki um ein- angrun lands og þjóðar, versta kost alls ef á annað borð á að tryggja eins og kostur er sjálf- stæði og fullveldi smáþjóðar, sbr. utanríkisstefnu Íslands frá stofnun lýðveldisins. Ný sjálfstæðisbarátta snýst um samráð og samstarf. Snýst um að verja sjálfstæði og fullveldi Ís- lands og íslenskrar þjóðar, í sam- ráði og samstarfi með öðrum þjóð- um, sem fullgildir þátttakendur í veröld og umheimi. Ný sjálfstæð- isbarátta snýst um erlend sam- skipti, um fundi og fundargerðir, valkosti og lausnir, um vinnslu og miðlun upplýsinga, skýrslugerð og ákvarðanatöku, um áætlanagerð og framkvæmd áætlana, um eft- irlit … snýst um besta kost smá- þjóðar í ótryggri veröld … besta kost sem innsta kjarna hugsjónar og sáttmála er þessi: samráð og samstarf á vettvangi jafnræðis frjálsra fullvalda þjóða um sameig- inlega hagsmuni. Ný sjálfstæðisbarátta snýst um þekkingu og menntun, hugsjónir og gildismat, vit og framgöngu, markmið og verkefni þjóðar sem aftur hefur lært nauðsyn þess að sníða sér stakk eftir vexti. Góð til- tekt gulls ígildi. Þjóðmálaumræða sumarið 2009 sýnir hve tiltekt í kjöl-far búsáhaldabyltu, kosninga og stjórnarskipta er komin stutt eins og við sjálf, götuna fram eftir veg. Víkingar og skáld Eftir Jónas Gunnar Einarsson Jónas Gunnar Einaesson » Fái þjóðin hrist af sér slæma stjórn- málamenn, slæma stjórnendur og ábyrgð- arlaus vinnubrögð má vænta mikils af þeirri siglingu … Höfundur er rithöfundur. ÁSKRIFTASÍMI 569 1100 AUGLÝSINGASÍMI 569 1100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.