Morgunblaðið - 30.08.2009, Síða 51
Minningar 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 2009
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
✝
Hjartans þakkir til allra er sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar elskulega sonar,
föður, tengdaföður, bróður, mágs, frænda og afa,
ERLARS JÓNS KRISTJÁNSSONAR,
Árnatúni 4,
Stykkishólmi.
Auður Júlíusdóttir,
Auður Bergþóra Erlarsdóttir, Albert Steingrímsson,
Katrín Eva Erlarsdóttir, Vignir Örn Oddgeirsson,
Jónína K. Kristjánsdóttir, Bernt H. Sigurðsson,
Kristján J. Kristjánsson, Svandís Einarsdóttir,
Þóra M. Halldórsdóttir
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
vináttu, samúð og hlýhug við andlát og útför
SIGURJÓNS ÞORVALDSSONAR,
Miðtúni 42,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni 2.
Ólafía Sigurðardóttir Bergmann,
Sigurður Bjartmar Sigurjónsson, Sesselja Gísladóttir,
Gísli Geir Sigurjónsson, Herborg Sjöfn Óskarsdóttir,
Þorvaldur B. Sigurjónsson, Dagný Hildur Leifsdóttir,
Brynja Sigurjónsdóttir, Kjartan Jónsson,
Freyja Sigurjónsdóttir, Róbert Leadon,
Rúnar Sigurjónsson, Anna Elín Óskarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem
minntust elskulegs föður míns, tengdaföður, afa
okkar og langafa,
GUÐMUNDAR SVAVARS JÓNSSONAR
fyrrum hafrannsóknarmanns,
Laugarvatni.
Sérstakar þakkir færum við Söngkór Miðdalskirkju
og Kvenfélagi Laugdæla.
Megi allt gott vera með ykkur öllum.
Hafþór Birgir Guðmundsson, Sigríður V. Bragadóttir,
Bragi Dór, Guðmundur Sveinn,
Árni Páll og Sigurður Orri Hafþórssynir,
makar þeirra og börn.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
KARLS BÓASSONAR
fyrrv. lögreglumanns,
Rjúpnasölum 14,
Kópavogi,
sem lést á líknardeild Landspítala Landakoti laugardaginn 25. júlí.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar Landspítala Landa-
koti, deild L-5, fyrir frábæra umönnun, Lögreglukór Reykjavíkur og
Lögreglunni í Reykjavík fyrir veitta aðstoð.
Halldóra Jóna Stefánsdóttir,
Emil Brynjar Karlsson, Sigrún Sigtryggsdóttir,
Anna Sigríður Karlsdóttir, Bjarni Rúnar Þórðarson,
Örn Karlsson, Siriworraluck Boonsart,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar,
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GRÓU BJARNADÓTTUR,
Skipalóni 8,
áður Hringbraut 50,
Hafnarfirði.
Sigurður Guðjónsson,
Bjarni Sigurðsson, Rut Sigurðardóttir,
Guðjón Ágúst Sigurðsson, Herborg Friðriksdóttir,
Elín Sigurðardóttir, Steingrímur Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Björgvin Ólafsson
✝ Björgvin Ólafs-son fæddist á
Efri-Steinsmýri í Með-
allandi 3. júní 1922.
Hann lést á heimili
sínu á Kleppsvegi 62 í
Reykjavík 16. ágúst
síðastliðinn. Foreldrar
hans voru: Anna Bjarnadóttir, f. á Geir-
landi á Síðu 14. maí 1898, d. 14. ágúst
1935, og Ólafur Ólafsson, bóndi á Efri-
Steinsmýri, f. í Fagurhlíð í Landbroti 31.
okt. 1880, d. 24. okt. 1923. Systkini
hans voru Steinunn tvíburasystir, d. 29.
okt. 1992, og hálfbróðir, sammæðra,
Sigurður Sveinsson, f. 15. apríl 1931, d.
13. feb. 2006.
Björgvin kvæntist hinn 30. apríl 1947
Guðfinnu Guðlaugsdóttur, f. í Vík í Mýr-
dal 22. ágúst 1923, d. 30. mars 1998.
Foreldrar hennar voru Guðlaug Matt-
hildur Jakobsdóttir, f. í Suðurvík í Mýr-
dal 24. ágúst 1892, d. 6. feb. 1938, og
Guðlaugur Gunnar Jónsson, f. á Suður-
Fossi í Mýrdal 8. feb. 1894, d. 24. apríl
1984. Börn Guðfinnu og Björgvins eru:
1) Guðlaugur, f. 18. okt. 1944, d. 29.
sept. 1958. 2) Anna Ólöf hjúkr-
unarfræðingur, f. 18. ágúst 1946, sam-
býlismaður Jón R. Eyjólfsson. Anna á
tvö börn og tvö barnabörn. 3) Oddný
Hrönn bókasafnsfræðingur, f. 28. jan-
úar 1949, gift Gunnari Magnúsi Grön-
dal, þau eiga þrjú börn og tvö barna-
börn. 4) Bryndís Dagný þroskaþjálfi, f.
4. okt. 1950, gift Guðbrandi Þorvalds-
syni, þau eiga þrjú börn og fjögur
barnabörn. 5) Guðmundur Már for-
stöðumaður, f. 22. janúar 1955, kvænt-
ur Júlíönu Þorvaldsdóttur, þau eiga þrjú
börn og tvö barnabörn. 6) Davíð Þór
lögfræðingur, f. 9. apríl 1956, kvæntur
Svölu Ólafsdóttur, þau eiga fjögur börn.
7) Guðlaug þroskaþjálfi, f. 4. júní 1958,
gift Halldóri Halldórssyni, þau eiga þrjú
börn. Áður hafði Björgvin eignast son-
inn Jón Stefán húsasmið, f. 30. maí
1943, kvæntur Ingibjörgu H. Kristjáns-
dóttur, þau eiga þrjú börn og sjö barna-
börn. Systursonur Björgvins er Ólafur
Arnars, f. 21. sept. 1946, d. 27. júní
1998, ólst að nokkru leyti upp hjá
Björgvini og Guðfinnu. Ekkja Ólafs er El-
ín Stella Gunnarsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur. Börn þeirra eru fjögur og barna-
börn sjö. Við lát Björgvins eru
barnabörn hans 21 að tölu og langafa-
börnin 17.
Eftir tveggja ára farskólanám naut
Björgvin tilsagnar Eyjólfs Eyjólfssonar á
Hnausum í Meðallandi. Eftir það sótti
hann skóla á Laugarvatni um tveggja
vetra skeið og lauk þar gagnfræðaprófi
með glæsilegum vitnisburði árið 1940.
Björgvin hélt síðan til Reykjavíkur og
átti heima þar alla tíð síðan. Hann starf-
aði m.a. fyrir breska herinn á stríðs-
árunum og vann almenna verkamanna-
vinnu til ársins 1948. Þá réðst hann
sem vagnstjóri til Strætisvagna Reykja-
víkur. Hann gerði hlé á því starfi 1960 til
1974 og vann þá fyrst hjá Ölgerð Egils
Skallagrímssonar og síðar hjá Lands-
símanum. 1974 hóf hann akstur stræt-
isvagna á ný og starfaði síðan óslitið hjá
SVR uns hann lét af störfum vegna ald-
urs 1992. Síðustu árin meðan heilsan
leyfði tók Björgvin virkan þátt í sjálf-
boðastarfi á sviði kærleiksþjónustu í
Áskirkjusöfnuði í Reykjavík.
Útför Ólafs fór fram í kyrrþey 22.
ágúst og var hann lagður til hinstu hvílu
við hlið konu sinnar, Guðfinnu, og son-
ars síns Guðlaugs í Víkurkirkjugarði í
Mýrdal.
Meira: mbl.is/minningar
Minningar á mbl.is
Jón Steinarr
Árnason
✝ Jón SteinarrÁrnason fæddist
á Finnsstöðum í Eiða-
þinghá 13. desember
1932. Hann lést 31.
júlí sl.
Útför Jóns hefur
farið fram í kyrrþey.
Meira: mbl.is/minningar
gangsraðaðist öðruvísi þegar fram
liðu stundir og hann varð þess
áskynja að lífið sem er líkt skýi er
sést um stutta stund en hverfur, svo
gæti verið um það bil að hverfa í
hans tilviki. Efnisleg gæði og frama-
pot urðu afar léttvæg í huga hans
miðað við ástúð og kærleika sem
bæði var hægt að miðla af og með-
taka á afar gefandi hátt. Samveru-
stundir okkar enduðum við ávallt
með að kvaka saman til miskunn-
sams, gæskuríks Guðs. Stundum
lagðist hjúpur þess friðar yfir okkur
sem er æðri öllum skilningi og hljóð-
ir nutum við þessarar undursamlegu
reynslu. Spurningunni með stóra H-
inu, „Hvers vegna?“, fengum við
ekki svar við.
Grétari fannst hlutskipti sitt erf-
iðara að einu leyti en öllu öðru. Það
að fá ekki að elska konu sína og dæt-
ur með þeim kærleika sem hann
hafði auðgast svo ríkulega af á síð-
ustu misserum. Eitt sem hann var
afar vakandi yfir var að fylgjast með
nokkru af því unga fólki sem var
venslað honum og leitaði hann færis
að eiga stund með þeim til að hvetja
þau til að setja sér fyrr en seinna
markmið í lífinu til að stefna að.
Hann þekkti það lögmál að hafi ung-
mennin ekki markmið fyrir stafni þá
er hætt við að lífsfley þeirra strandi,
mikill tími fari í að koma sér af
strandstað og að stundum laskist
fleyið jafnvel svo mikið að allt þurfi
að endurbyggja frá grunni. Ávextir
þessarar umhyggju eru merkjanleg-
ir í lífi nokkurra.
Þessi einstaki vinur sem kvaddi
mig síðast þegar við hittumst með
þessum orðum: „Gaukur minn, nú er
ég þreyttur“, hefur nú öðlast hvíld.
Hans kæru eiginkonu, sem á ein-
stakan hátt hefur axlað þyngri byrð-
ar með meiri hugprýði og æðruleysi
en hægt er að skilja, ásamt dætrum
þeirra og öðrum aðstandendum
samhryggist ég með þennan mikla
missi og bið þess að sá sem á gnótt
friðar og huggunar umvefji þau á
þessum sorgartíma.
Sverrir Gaukur Ármannsson.
Við fráfall Grétars Más er höggvið
stórt skarð í sundfélagshóp sund-
deildar Breiðabliks UBK frá árun-
um ’73-’77. Hópurinn brallaði mikið
saman, í lauginni, í heita pottinum og
á viðburðum tengdum sundinu.
Þetta var náinn hópur, eins og stór
systkinahópur, sem tryggilega var
gætt af foreldrum Grétars, þeim
Gyðu og Sigurði. Þau hjón voru al-
gjörir frumkvöðlar á sviði foreldra
sem þeytast út og suður á íþrótta-
viðburði barna sinna. Þetta þekktist
varla í þá daga og litum við krakk-
arnir á þau sem fósturforeldra okk-
ar. Fyrir vikið kynntumst við fjöl-
skyldu Grétars mun meira en
annarra, en yngsta systir hans, Mar-
grét María, var líka mjög efnileg
sundkona. Foreldrar Grétars mættu
á öll sundmót, hvar sem þau voru
haldin, þau voru með okkur í öllum
æfingabúðum og fóru með okkur til
útlanda. Þetta sýnir þá hlýju og alúð
sem Grétar ólst upp við sem skilaði
sér í öðlingspilti.
Grétar var mjög hlýr og innilegur,
sanngjarn og reyndist alltaf best
þegar eitthvað bjátaði á. Það vermir
manni um hjartarætur að skoða 35
ára gamlar myndir sem skyndilega
virðast eins og teknar hafi verið í
gær og rifja upp yndislegar stundir
sem við sundfélagskrakkarnir áttum
með Grétari.
Viðmótið var alltaf einlægt þegar
við hittumst. Það veitti mér mikla
gleði að fá að fagna 50 ára afmæli
Grétars í apríl sl. með fjölskyldu og
vinum. Þá trúði ég svo sannarlega að
hann ætti eftir að halda upp á mörg
afmæli í framtíðinni.
Dætur, eiginkona, fjölskylda og
vinir Grétars syrgja góðan dreng.
Elsku Margrét María, Hildur, Krist-
ín og Dóra. Orð mega sín lítils á
stundum sem þessari. Ég vona að
þið finnið styrk í trúnni til að auð-
velda ykkur að takast á við framtíð-
ina án ykkar elskulega föður og eig-
inmanns.
Margrét Rósa Grímsdóttir.
Fleiri minningargreinar um Grét-
ar Má Sigurðsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minn-
ingargreinar ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að ber-
ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánu-
degi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að útför hefur farið
fram, eftir tiltekinn skilafrests eða ef útförin hefur verið gerð í kyrrþey, eru
birtar á vefnum, www.mbl.is/minningar. Æviágrip með þeim greinum verður
birt í blaðinu og vísað í greinar á vefnum.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en
3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Engin lengdarmörk eru á
greinum sem birtast á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar