Morgunblaðið - 30.09.2009, Side 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2009
Kjartan Gunnar Kjartanssonblaðamaður skrifar kjallara-
grein um fjölmiðla í DV í gær. Kjart-
an Gunnar víkur í upphafi sérstak-
lega að umræðum að undanförnu
um Morgunblaðið og segir:
Afskiptasemifjölmiðla af
ritstjóraskiptum
á Morgunblaðinu
er fáránleg fyrir
margra hluta
sakir. Í fyrsta lagi
ráða eigendur
Morgunblaðsins
því hver ritstýrir
blaðinu. Enginn
fjölmiðill ræskti
sig þegar Jón Trausti Reynisson tók
við ritstjórn DV af Sigurjóni M. Eg-
ilssyni, eða þegar Þorsteinn Pálsson
hætti á Fréttablaðinu.“
Og blaðamaðurinn heldur áfram: „Eigendur Morgunblaðsins
ráða einnig á hvaða forsendum þeir
ráða ritstjóra og raunar hjákátlegur
heilaspuni að reyna að greina þær
forsendur í faglegar, rekstrarlegar
eða pólitískar.“
Enn segir hann:„Í þriðja lagi er eignarhald og
tilheyrandi ráðningarréttur eigenda
Morgunblaðsins tæplega meiri at-
laga að frjálsri fjölmiðlun hér á landi
en eignarhald Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar á Baugs/Samfylkingarmiðl-
um á undangengnum árum.“
Kjartan Gunnar lýsir einnig þeirriskoðun sinni að hlutleysi sé ekki
til í blaðamennsku. Hann telur eng-
an fjölmiðil hlutlausan en fjölmiðlar
séu misjafnlega heiðarlegir og nefn-
ir umfjöllun þeirra um Evrópusam-
bandsmál þessu til staðfestingar.
Skrif Kjartans Gunnars Kjartans-sonar voru ekki hlutlaus en þau
voru heiðarleg. Og þau voru umfram
allt afar umhugsunarverð fyrir ýmsa
fjölmiðla í ljósi umræðunnar sem þeir
hafa staðið fyrir að undanförnu.
Kjartan Gunnar
Kjartansson
Umræðan um Morgunblaðið
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 7 skýjað Lúxemborg 17 skýjað Algarve 25 léttskýjað
Bolungarvík 6 léttskýjað Brussel 17 skýjað Madríd 19 skýjað
Akureyri 7 alskýjað Dublin 15 skýjað Barcelona 24 léttskýjað
Egilsstaðir 7 skýjað Glasgow 15 skýjað Mallorca 24 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 8 skýjað London 20 léttskýjað Róm 26 léttskýjað
Nuuk 5 skúrir París 21 heiðskírt Aþena 22 léttskýjað
Þórshöfn 8 léttskýjað Amsterdam 15 skýjað Winnipeg 6 léttskýjað
Ósló 11 heiðskírt Hamborg 13 skýjað Montreal 14 skúrir
Kaupmannahöfn 12 léttskýjað Berlín 13 skýjað New York 18 léttskýjað
Stokkhólmur 10 heiðskírt Vín 20 léttskýjað Chicago 10 alskýjað
Helsinki 6 skýjað Moskva 12 skúrir Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
30. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4.11 3,1 10.20 1,2 16.29 3,4 22.45 1,0 7:35 19:01
ÍSAFJÖRÐUR 0.09 0,7 6.12 1,6 12.18 0,7 18.25 1,9 7:42 19:05
SIGLUFJÖRÐUR 2.06 0,5 8.28 1,1 14.18 0,6 20.22 1,2 7:25 18:47
DJÚPIVOGUR 1.07 1,6 7.20 0,7 13.44 1,8 19.52 0,8 7:05 18:30
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á fimmtudag
Fremur hæg breytileg átt. Skýj-
að með köflum og él á stöku
stað. Hiti 0 til 6 stig, mildast
við suðurströndina, en víða
frost til landsins.
Á föstudag
Vaxandi austan og norðaustan
átt og snjókoma, en slydda við
suður- og suðvesturströndina.
Víðast 10-15 m/s um hádegi,
en hægari norðaustanlands.
Hiti um og yfir frostmarki.
Á laugardag
Norðlæg átt. Él norðan- og
austantil, en annars fremur
bjart. Heldur kólnandi veður.
Á sunnudag
Útlit fyrir hægviðri. Víða dálítil
él og kalt í veðri.
Á mánudag
Austlæg átt með hlýnandi veðri
og vætu.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Dregur smám saman úr vindi
þegar líður á daginn. Hæg
norðlæg eða breytileg átt og
allvíða dálítil él í kvöld. Hiti 0
til 7 stig að deginum, en víð-
ast næturfrost inn til lands-
ins.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
FRESTUR til að skila leigutilboðum
vegna auglýsingar dómsmálaráðu-
neytis um hentugt húsnæði undir
fangelsi rennur út á morgun. Að sögn
Guðmundar Hannessonar, forstöðu-
manns ráðgjafarsviðs Ríkiskaupa, hef-
ur „hellingur“ fyrirspurna borist en
fjöldi tilboða ekki verið tekinn saman.
Meðal þess sem kemur fram í
svörum við fyrirspurnum er að hús-
næðið verði að vera í nálægð við
Litla-Hraun þar sem ekki eru til
staðar nógu margir menntaðir
fangaverðir á öðrum stöðum lands-
ins. Einnig að sama yfirstjórn verði
yfir báðum fangelsum og starfsmenn
af Litla-Hrauni nýttir að einhverju
leyti við „nýja einingu Litla-
Hrauns.“
Deildarstjórar Litla-Hrauns munu
þannig sinna bókhaldi, starfs-
mannahaldi, varðskrám og öllu
öðru sem tengist stjórnun.
Húsnæðið þarf að rúma 16-26 ein-
staklinga í einstaklings- og/eða
tveggja manna herbergjum. Leigu-
tími er til tveggja ára með möguleika
á framlengingu. Ekki kemur til
greina að gerður verði lengri leigu-
samningur í upphafi.
Í kjölfar þess að frestur rennur út
verða tilboðin skoðuð en Guðmundur
gat ekki sagt til um það hvenær þeim
yrði svarað.
„Hellingur“ af fyrirspurnum barst
Frestur til að skila tilboðum um
hentugt fangelsi rennur út á morgun
Morgunblaðið/Ómar
Lás og slá Ráðgert er að nýja fang-
elsið verði eining við Litla-Hraun.
Eftir Jón Sigurðsson
Blönduós | Grunnskólinn á Blönduósi
og fræðsluskrifstofa Austur-
Húnavatnssýslu hlutu í byrjun sum-
ars Foreldraverðlaun samtakanna
Heimilis og skóla og m.a. af því til-
efni heimsóttu menntamálaráðherra
Katrín Jakobsdóttir og fulltrúar
Heimilis og skóla Grunnskólann.
Verðlaunin voru veitt fyrir verk-
efnið „tökum höndum saman“ sem
gengur út á það að láta nemendum í
unglingadeild sem eiga við einhver
vandamál í skóla að stríða, líða vel í
skólanum. Þórhalla Guðbjartsdóttir
skólastjóri og Guðjón E. Ólafsson
fræðslustjóri kynntu verkefnið fyrir
gestunum.
Þórhalla Guðbjartsdóttir sagði að
þetta verkefni hefði ekki neina sér-
staka fyrirmynd heldur hefði þróast
smátt og smátt í það sem það væri í
dag. Markmiðið var að við værum
ekki stöðugt að segja nemandanum
nú eða foreldri hvað þau ættu að
gera heldur ynnu allir saman að því
að finna lausnir. Ekki eru komnar
neinar mælanlegar niðurstöður úr
þessu starfi en Guðjón fræðslustjóri
og Þórhalla skólastjóri voru ekki í
vafa um gildi þessa starfs og vitnuðu
í nokkur ummæli nemenda sem
gengið hafa í gegnum þetta ferli. Til
dæmis sagði einn nemandinn „Verk-
efnið hjálpar manni. Maður stendur
sig betur og fær annað viðhorf til
skólans. Mæli með þessu. Maður sér
að fullt af fólki hefur væntingar til
manns.“
Verkefni sem hjálpar
Skólinn á Blönduósi hlaut Foreldraverð-
laun Heimilis og skóla fyrir árið 2009
Skóli Þórhalla Guðbjartsdóttir skólastjóri, Katrín Jakobsdóttir, Sjöfn Þórð-
ardóttir, formaður Heimilis og skóla, og Guðjón E. Ólafsson fræðslustjóri.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson