Morgunblaðið - 30.09.2009, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 30.09.2009, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2009 BYGGÐ Á METSÖLUBÓK STIEG LARSSON FRÁ LEIKSTJÓRA QUENTIN TARANTINO KEMUR HANS MAGNAÐASTA, VILLTASTA OG STÓRKOSTLEGASTA ÆVINTÝRI TIL ÞESSA. Yfir 50.000 manns í aðsókn! NÆST S ÍÐASTI SÝNING ARDAG UR! SÝND Í SMÁRABÍÓI Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Jennifer‘s Body kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára Bionicle (ísl. tal) kl. 6 LEYFÐ The Ugly Truth kl. 8 B.i. 14 ára The Final Destination kl. 10 B.i. 16 ára STÚLKA N SEM L ÉK SÉR AÐ ELD INUM FRUMSÝ ND 2. O KTÓBER FORSAL A Í FULL UM GAN GI Á MI DI.IS HHHHH “ein eftirminnilegasta mynd ársins og ein sú skemmtilegasta” S.V. - MBL Íslens kt tal SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI Blóðugur spennutryllir frá handritshöfundi Juno Hin sjóðheita Megan Fox leikur kynþokkafulla og vinsæla menntaskólastelpu sem vill aðeins óþekka stráka! Með Amanda Seyfried (úr Mamma Mia). SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI Ekki fyrir viðkvæma „Afskaplega undarleg, gríðarlega óvenjuleg og skringilega fullkomin!“ - Damon Wise, Empire „Frammistaða Dafoe og Gainsbourg er óttalaus og flokkast sem hetjudáð.... Ég get ekki hætt að hugsa um þessa mynd. Þetta er alvöru kvikmynd og hún yfirgefur huga minn ekki. Von Trier hefur náð til mín og komið mér úr jafnvægi.“ - Roger Ebert Uppáhalds BIONICLE®-hetjurnar vakna til lífsins í þessari nýju og spennandi mynd650kr. HHHH „Verður vafalaust titluð meistarverk...“ – H.S., Mbl Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum The Ugly Truth kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i.14 ára Halloween 2 kl. 8 - 10:20 750 kr. B.i.16 ára Beyond Reasonable Doubt kl. 5:45 - 8 - 10:20 750 kr. B.i.16 ára Inglorious Bastards kl. 9 750 kr. B.i.16 ára Stranglega bönnuð börnum innan 16 ára HÖRKUSPENNANDI MYND UM METNAÐARFULLAN BLAÐAMANN SEM TEKUR Á SIG SÖK Í MORÐMÁLI TIL ÞESS EINS AÐ UPPLJÓSTRA UM HINN SVIKULA SAKSÓKNARA MARTIN HUNTER (MICHEAL DOUGLAS) SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í REGNBOGANUM Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga Þú færð 5% endurgreitt í Háskólabíó The Ugly Truth kl. 5:45 - 8 - 10:20 LEYFÐ Antichrist kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.18 ára Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 B.i.16 ára Sólskinsdrengurinn kl. 5:45 - 8 - 10:15 LEYFÐ BRESKA skáldkonan Sophie Kinsella er þekkt- ust fyrir bækur sínar um kaupalkann Becky Bloomwood en fyrsta bók- in í þeirri seríu varð ný- lega að Hollywood- kvikmynd. Twenties Girl er nýjasta bók Kinsella og rataði beint á metsölulist- ann í Bretlandi líkt og fyrri bækur hennar. Hér er Becky Bloomwood víðsfjarri og ný kvenhetja í aðalhlutverki. Kostir Kinsella sem höfundar felast í leik- andi léttum stíl og vel heppnuðu samspili fyndni og rómantíkur. Hún er afþreyingar- höfundur sem bregst lesendum sínum yfir- leitt ekki. Lesendahópur hennar er að stór- um hluta ungar konur og þær eru einnig í aðalhlutverki í bókum hennar. Þetta eru geð- þekkar kvenpersónur sem eru nokkuð leit- andi í lífinu og lenda fyrir misskilning í alls kyns kúnstugum uppákomum en allt fer vit- anlega einstaklega vel að lokum. Aðalpersónan í Twenties Girl er Lara sem á við mótlæti að stríða því kærasti hennar hefur sagt henni upp og hún vill allt til vinna að ná honum aftur. Einn daginn fær Lara mjög svo óvænta heimsókn þegar andi gam- allar frænku birtist henni og fer að hafa veruleg áhrif á líf hennar. Milli Löru og draugsins myndast afar sérstakt samband því þetta er í meira lagi lífsglaður draugur. Það er vandi að skrifa góða draugasögu og Kinsella ræður ekki fullkomlega við það verkefni. Frásagnir af uppátækjum draugs- ins verða endurtekningarsamar og þreyt- andi. Það er eins og höfundur hafi komist í þrot með efnið um miðbik bókar en ákveðið af tómri þrjósku að halda áfram. Stíllinn höktir á alltof mörgum stöðum og fyndnin missir yfirleitt marks. Kinsella hefur alltaf gert betur en í þessari bók sem hlýtur að teljast hennar lakasta. Bragðdauf draugasaga Twenties Girl eftir Sophie Kinsella. Bantam Press gefur út. 432 bls. Kilja. Kolbrún Bergþórsdóttir ERLENDAR BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. The Girl Who Played With Fire – Stieg Larsson 2. The Lost Symbol – Dan Brown 3. The Associate – John Grisham 4. Why Iceland? – Ásgeir Jónsson 5. Meltdown Iceland – Roger Boyes 6. Paths of Glory – Jeffrey Archer 7. Nation – Terry Pratchett 8. Torn Apart – James Patterson 9. Eclipse – Stephenie Meyer 10. True Detectives – Jonathan Kellerman Eymundsson 1. The Lost Symbol – Dan Brown 2. The Last Song – Nicholas Sparks 3. The Help – Kathryn Stockett 4. Alex Cross’s Trial – James Patt- erson og Richard dilallo 5. South of Broad – Pat Conroy 6. Spartan Gold – Clive Cussler 7. The White Queen – Philippa Gregory 8. Dead and Gone – Charlaine Harris 9, The Girl Who Played With Fire – Stieg Larsson 10. A Gate At The Stairs – Lorrie Moore The New York Times 1. Someone Special – Sheila O’Flanagan 2. Angels and Demons – Dan Brown 3. Devil May Care – Sebastian Faulks 4. The Return – Victoria Hislop 5. Secrets – Freya North 6. Deadly Intent – Lynda La Plante 7. Don’t Look Twice – Andrew Gross 8. This Charming Man – Marian Keyes 9. The Business – Martina Cole 10. Guilty Pleasures – Tasmina Perry Waterstone’s Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is TVÆR miklar bækur hafa komið út á undanförnum árum sem báð- ar segja sögu indversks almenn- ings og fyrir vikið borga og um leið landsins. Annars vegar er það Sacred Games eftir Vikram Chandra og hins vegar The Pea- cock Throne eftir Sujit Saraf. Í fyrrnefndu bókinni er söguhetjan lögreglumaður í Mumbai sem glímir við gegnspillt þjóðfélag og í þeirri síðari er sama upp á ten- ingnum, en nú er söguhetjan alls- laus tesölumaður. Chandni Chowk er markaðs- hverfi í gömlu Delhí sem á rætur aftur til átjándu aldar ef ekki lengra aftur í tímann. Þar ægir öllu saman, fólk er af ýmsum trú- flokkum og ættbálkum sem býr þar í sátt og samlyndi, verslanir selja allt milli himins og jarðar. Flestir lepja dauðann úr skel að því Vesturlandabúum finnst, menn hafa í sig og á en lítið meira en það; tesölumaðurinn Gopal Pandey, sem rekið hefur sama te- básinn frá unglingsaldri, á ekkert nema tegræjurnar sínar og smá pening til að kaupa ódýran mat og láta raka sig. Hann á sér ekki einu sinni svefnstað, því hann sefur í kryddgeymslu, er þar einskonar næturvörður og hefur verið svo um hríð. Örlagatímar í sögu þjóðar Sagan hefst 31. október 1984, dag sem hefst eins og aðrir dagar, en þegar Indira Gandhi er myrt af lífvörðum sínum kemur í ljós að undir sléttu og felldu yfirborði er gríðarleg spenna og eins og hendi sé veifað hefjast blóðsúthellingar og átök sem eiga eftir að breyta lífi allra í Chandni Chowk og ekki síst tesölumannsins. Svo vindur sögunni fram næstu árin að Pandey þvælist úr einu at- vikinu af öðru, alltaf leiksoppur örlaganna og handbendi manna sem vilja nota hann til að komast til valda sjálfir. Fjórtán árum eftir atvikin hörmulegu situr Pandey svo á fundi með forsætisráðherra Indlands og eygir mikil völd og áhrif. The Peacock Throne er býsna mikil bók, ríflega 750 síður og í henni eru sagðar margar sögur af ólíku fólki; meðal sögupersóna eru betlarar og bófar, vændiskonur, stjórnmálamenn, rakarar, prestar og kaupmenn, en örlög Gopal Pandey hnýta hana saman. Saraf hefur verið gagnrýndur fyrir það í heimalandi sínu að gera of mikið úr spillingu og óáran í indversku samfélagi, en myndin sem hann dregur upp virkar býsna trúverðug og þó hann sé að greina frá erfiðum tíma í sögu landsins þá missir hann ekki sjón- ar á hinu spaugilega; margt sem hann lýsir er óborganlega fyndið en annað óbærilega sorglegt. Gopal Pandey er þannig óláns- kjáni sem verður vélabrögðum að bráð en kemst alltaf klakklaust úr hremmingunum – sá sem býst ekki við neinu af lífinu verður ekki fyrir vonbrigðum. Forvitnilegar bækur: Hvernig er kífið í Chandni Chowk? Saga af ólánskjána Wikipedia Markaður Ys og þys í óreiðunni í Chandni Chowk á Indlandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.