Morgunblaðið - 30.09.2009, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2009
BÓNORÐIÐ
THE PROPOSAL
SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA
H
AF ÞES-
M
AÐ SJÁ
Ð ALLRA
ST
GUM
HAFI.”
BYGGÐ Á
SANNSÖGU-
LEGUM
ATBURÐUM
ÓHUGNALEG MYND
ÞAR SEM ÓÚTSKÝRÐIR
HLUTIR ÁTTU SÉR STAÐ
Í GÖMLU ÚTFARAR-
HEIMILI
SUMA HLUTI ER EKKI
HÆGT AÐ ÚTSKÝRA
ATH. ALLS EKKI FYRIR
VIÐKVÆMA
SÝND Í KRINGLUNNI, OG SELFOSSII
eftir William Shakespeare
All’s
Well
That
Ends
Well
frumsýnt 1. október í 2009 SAMbíóin Kringlunni kl. 18.00
National Theatre, London.
Frá sviði á hvíta tjaldið, HÁSKERPA OG 5.1 HLJÓÐ!
BEIN BÍÓÚTSENDING
kynntu þér málið á http://ntlive.sambio.is
SÝND Í ÁLFABAKKA
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN AÐ... kl. 8 L
HAUNTING IN CONNECTICUT kl. 8 - 10:10 16
KARLAR SEM HATA KONUR kl. 10:10 Í síðasta sinn 16
INGLOURIOUS BASTERDS kl. 10:10 16
BANDSLAM kl. 8 L
BEYOND A REASONABLE DOUBT kl. 10:10 16
kl. 6 - 8 L
kl. 8 12
kl. 6 L
kl. 8 16
Meðal kvikmynda á RIFFvar kanadíska heimild-armyndin Rip, A Remix
Manifesto eftir Brett Gaylor. Hún
fjallaði að stórum hluta um tónlist-
armanninn og lífefnafræðinginn
Greg Gillis sem smíðar tónlist úr
tónlist annarra, þ.e. hann setur
saman lög úr bútum úr annarra lög-
um – í laginu „Play Your Part (Pt.
1)“, sem er opnunarlag síðustu
plötu hans, Feed the Animals, notar
hann þannig tuttugu og fimm lag-
búta til að búa til eitt lag sem er
tæpar fimm mínútur.
Bútarnir, sem sumir eru ekkinema 20-30 sekúndur, koma
úr ýmsum áttum; Roy Orbison
bregður fyrir og OutKast, The
Spencer Davis Group, Pete Towns-
hend, Twisted Sister, Huey Lewis
and the News, Ludacris, Jurassic 5,
Rage Against the Machine, Edwin
Starr, Sinéad O’Connor og Jay-Z
svo dæmi séu tekin.
Í myndinni segir Gaylor frá Gills,án þess þó að við verðum margs
vísari um hann, en þó fæst góð inn-
sýn inn í margt það sem hann er að
gera, til að mynda það hvernig
hann vinnur sem er ævintýralegt í
meira lagi. Þungamiðja myndar-
innar er þó hvernig höfundar-
réttarlög séu komin á það stig að
þau hindri eðlilega þróun í list-
sköpun, þ.e. að höfundarrétturinn
sé iðulega kominn í hendur fyr-
irtækja sem séu síðan í eigu ann-
arra fyrirtækja og svo eiga risa-
fyrirtæki allt klabbið. Fyrir vikið
myndi það kosta listamann eins og
Girl Talk milljónir í höfundarrétt-
argreiðslum að smíða eitt lag með
þeim hætti sem hann gerir.
Gaylor setur fram í myndinnifjögur lögmál; menning bygg-
ist ævinlega á fortíðinni, fortíðin
reynir að ráða framtíðinni, frelsi
okkar í framtíðinni minnkar sífellt
og að það sé nauðsynlegt að tak-
marka stjórn fortíðarinnar til að
skapa frjálst samfélag. Hann rök-
styður þessi lögmál býsna vel og
þótt röksemdafærslan sé stundum
heldur þunnildisleg þá kemur hann
því vel til skila að skemmtanaiðn-
aðurinn sé bæði óskilvikur og óhag-
kvæmur og að vandi listamanna fel-
ist frekar í kerfislægum göllum en
því að fólk sé að sækja sér tónlist,
kvikmyndir eða bækur á netinu.
Menn hafa löngum deilt umsmalamennsku í tónlist og
þær raddir háværar sem kalla það
stuld þegar listamaður tekur bút úr
öðru lagi og fléttar saman við sitt.
Við höfum dæmi um slíkan kryt hér
á landi (Sigurjón Kjartansson gegn
Quarashi vegna Stick ’em up), en
það flækir málið enn frekar þegar
menn eru farnir að ganga eins
langt og Girl Talk gerir, þar sem
ekkert í laginu er frá honum sjálf-
um komið; allt er unnið upp úr efni
frá öðrum.
Álíka deiluefni blasir við í öðr-um listgreinum, ritlist og
myndlist; er hægt að kalla eitthvað
nýtt sem smíðað er úr gömlu? Ef
ég tek til handargagns þar sem
aðrir hafa skrifað / málað / spilað
/ sungið og smíða úr því nýtt verk
á ég höfundarréttinn að því eða
þeir, nú eða fyrirtæki sem þeir
unnu hjá einu sinni? Hverjum á ég
að borga? Og hvað ef ég fæ ekkert
fyrir verkið?
Þessum spurningum er ekkisvarað í myndinni sem hér er
gerð að umtalsefni og heldur ekki
hvort ekki sé eðlismunur á því þeg-
ar listamaður tekur upp tækni frá
þeim sem á undan eru gengnir,
stælir afturábak sóló Hendrix í
Castles Made of Sand eða tekur upp
sfuimato-tækni Da Vinci í La Gio-
conda / Mona Lisa, eða þegar hann
notar Hendrix-sólóið nótu fyrir
nótu í önnur lög eða setur andlitið
af Lisu Gherardini inn á allar
myndir sínar.
Allt er nú sem orðið nýtt …
Smaladrengur Bandaríski tónlistarmaðurinn / klippilistamaðurinn Gregg Gillis sem tók sér nafnið Girl Talk.
AF LISTUM
Árni Matthíasson
» Skemmtanaiðnaður-inn er óskilvirkur og
óhagkvæmur og vandi
listamanna felst frekar í
kerfislægum göllum en
því að fólk sé að sækja
sér tónlist, kvikmyndir
eða bækur á netinu.
MEÐLIMIR Raz-
orlight vilja að
Noel Gallagher
framleiði næstu
plötu þeirra. Rokk-
ararnir eru miklir
aðdáendur fyrr-
verandi Oasis-
liðans og vilja
gjarnan vinna með
honum. Þeir telja
að hann gæti komið með nýtt hljóð á
plötu þeirra.
„Það væri áhugavert að sjá sóló-
plötu frá Noel, hann er með betri
rödd en bróðir hans, Liam. Kannski
ættum við að fá Noel til að framleiða
næstu Razorlight-plötu. Við erum að
leita að framleiðanda og þurfum trú-
verðugleika,“ sagði Bjorn Sten Agr-
en gítarleikari Razorlight.
Noel hætti í Oasis í síðasta mánuði
eftir harkalegt rifrildi við bróður
sinn Liam og þar með endaði sextán
ára ferill bandsins.
Nýlega var sagt frá því að Noel
ætlaði að ganga til liðs við Kasabian
á komandi tónleikaferðalagi bands-
ins. Hann mun einnig taka upp lag
með hljómsveitinni í framtíðinni.
Razorlight
vill Noel
Noel Gallagher
SÖNGVARI
hljómsveitarinnar
The Limp Bizkit,
Fred Durst, hefur
skilið við konu sína
eftir aðeins þriggja
mánaða hjóna-
band.
Hann tilkynnti
um skilnað sinn og
Estherar Nazarov
á Twitter-síðu sinni. „Fyrir ykkur
sem málið varðar staðfesti ég að
Esther og ég höfum ákveðið að fara
hvort í sína áttina og við þökkum
ykkur fyrir stuðninginn,“ skrifaði
Durst á síðuna um skilnaðinn. Þau
giftu sig óvænt í Las Vegas í júlí og
tilkynnti Durst einnig um hjóna-
bandið á Twitter-síðunni.
Skilinn eftir
þrjá mánuði
Fred Durst