Morgunblaðið - 30.09.2009, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 30.09.2009, Blaðsíða 27
Menning 27FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2009 Það er ekki nóg að vera mús-íkalskur. Tónlistarmaðursem heldur tónleika meðklassískri tónlist verður líka að hafa tækni. Þetta sannaðist á tónleikum pólsku hjónanna Pawel og Ag- nieszka Panasiuk, sem hafa verið búsett hér í áratug. Tónleikarnir voru í Salnum í Kópavogi og hófust á svítu kvikmyndatónverka eftir Schnittke, upphaflega fyrir fiðlu og píanó. Agnieszka spilaði sérlega fal- lega á píanóið, hver tónn var mót- aður af alúð og vandvirkni. Sömu sögu er ekki að segja um sellóleik Pawels, sem var alltof oft óhreinn. Hann má vissulega eiga að hann spilaði af innlifun og næmri tilfinn- ingu fyrir ólíkri stemningu hvers kafla, en það var ekki nóg. Tæknin var ekki fyrir hendi og því tókst Pa- wel sjaldnast að koma tónlistinni til skila á fullnægjandi hátt. Svipaða sögu er að segja um flest annað á dagskránni, hvort sem það var Adagio og Allegro eftir Schu- mann, Gitarre eftir Moszkowski, At the Fountain eftir Davidoff eða ann- að. Píanóleikurinn var góður en Pawel hafði lítið vald á tóni sellósins, sem var mjór, grunnur og ekki í fók- us. Tónlistin komst því aldrei á flug á tónleikunum. Fáein einleiksverk fyrir sitthvort hljóðfærið voru á dagskránni. Mild und (Meistens) Leise fyrir selló eftir Þorkel Sigurbjörnsson kom ekki vel út, Pawel náði aldrei tökum á fín- legum blæbrigðum sem segja svo margt. Fyrir bragðið var túlkunin aðeins merkingarlaus óskapnaður. Einleiksverk fyrir píanó eftir Chopin, Ballaða nr. 2 var aftur á móti fallega spiluð, með syngjandi hljómfegurð og prýðilega útfærðum dramatískum átökum. Agnieszka flutti líka etýður op. 39 nr. 3 og 8 fyrir píanó eftir Rakman- inoff. Þær voru ekki nægilega skýrt leiknar til að teljast viðunandi. En rólega etýðan nr. 2 var forkunn- arfögur, túlkunin einkenndist af dul- úð og draumkenndum trega sem var einkar seiðandi. Það var frábær spilamennska og án efa hápunktur tónleikanna. Komst ekki á flug Salurinn í Kópavogi Kammertónleikar bbnnn Pawel og Agnieszka Panasiuk fluttu verk eftir Schumann, Schnittke, Chop- in, Rakmaninoff, Þorkel Sigurbjörnsson og fleiri. Þriðjudagur 22. september. JÓNAS SEN TÓNLIST BANDALAG þýðenda og túlka er fimm ára í dag, Af því tilefni verður haldið opið málþing um þýðingar og túlkun í sal Þjóð- minjasafns Íslands við Suð- urgötu frá kl. 13-17. Þar verða reifuð ýmis atriði sem lúta að starfsvettvangi félagsmanna, s.s. gæði bókmenntaþýðinga, þýðingarminni og túlkun í al- þjóðlegu umhverfi. Seinni hluti þingsins verður helgaður menntun og ráðningu þýðenda ef til Evrópusam- bandsaðildar kemur. Yfirmaður útvistunarmála hjá þýðingamiðstöð Evrópusambandsins kynnir starfsemi miðstöðvarinnar. Allir eru velkomnir. Hugvísindi Þot þingar um þýð- ingar á afmæli sínu Formaðurinn Rún- ar Helgi Vignisson. TÓNLEIKAR í hádegistón- leikaröðinni Ljáðu okkur eyra verða í Fríkirkjunni í Reykja- vík í hádeginu í dag. Tónleik- arnir standa í um það bil hálf- tíma og hefjast kl. 12.15. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Tónleikaröðin Ljáðu mér eyra er sérstök að því leyti að ekki er gefið upp fyrirfram hvaða listamenn koma fram hverju sinni. Allir eru þeir þó í hópi okkar fremstu tónlistarmanna, söngvarar jafnt sem hljóðfæra- leikarar. Listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar er Gerrit Schuil píanóleikari. Tónlist Ljáðu okkur eyra í Fríkirkjunni í dag Gerrit Schuil LISTAVIKA hefst í Bókasafni Seltjarnarness á morgun kl. 17 og stendur hún í tíu daga. Ás- gerður Halldórsdóttir bæj- arstjóri setur vikuna. Heið- ursgestur vikunnar verður Yrsa Sigurðardóttir sem les úr nýju óprentuðu verki. Gunnar Kvaran og Selma Guðmunds- dóttir leika saman á selló og pí- anó. Opnuð verður myndlist- arsýning þriggja listamanna, Kristínar Gunnlaugsdóttur, Messíönu Tóm- asdóttur og Rögnu Ingimundardóttur sem allar hafa borið titilinn bæjarlistamenn á Seltjarn- arnesi. Margt fleira verður í boði til upplyftingar. Listir Listavika í Bóka- safninu á Nesinu Yrsa Sigurðardóttir Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is „BING Crosby var eins og hver ann- ar veiðimaður sem ég hafði kynnst. Ég skynjaði ekki að hann væri neitt merkilegri en aðrir enda kom hann ekki þannig fram,“ segir Axel Gísla- son. Margir sem sáu heimildamynd Bubba Morthens, Áin – Ættbálk- urinn á bakkanum, sem sýnd var í Ríkissjónvarpinu í liðinni viku, hafa talað um brot úr fjörutíu ára göml- um bandarískum veiðiþætti þar sem sýnt var hvar Axel fylgir Crosby og félaga hans við veiðar á Nessvæðinu í Laxá í Aðaldal. „Jú, þetta hefur vakið athygli, margir hafa haft samband vegna þessa þáttar síðustu daga,“ segir Axel og hlær. „Það var mjög gaman að taka þátt í þessu. Þótt Bing Crosby birtist í þættinum sem frægur maður hafði hann gaman af stangveiði en hafði aldrei átt við svona stóra fiska. Heima í Bandaríkjunum var hann fyrst og fremst að fást við silung.“ Átta manna tæknilið var við upp- tökur hér í eina viku, en þátturinn hét American Sportsman og var á dagskrá ABC-stöðvarinnar. „Stærsti laxinn sem við veiddum í þessum túr var mikið notaður í myndinni,“segir Axel. „Tökumenn- irnir voru inni í bíl þegar hann tók á Skriðuflúð en laxinn rauk um stórt svæði og stökk mörgum sinnum. Þeir náðu stórum hluta af þessum stökkum og þau eru notuð fyrir marga aðra fiska í myndinni. Þegar tökum var lokið var Bing laus í einn dag og ég bauð honum með mér upp í Mývatnssveit að veiða urriða. Við fórum upp að Helluvaði og vorum þar allan dag- inn, það var mjög gaman að veiða með honum þar. Hann sagði margoft að þetta væri líkara því sem hann þekkti í veiði – bara fallegra.“ Axel var 24 ára gamall þegar hann fylgdi Crosby við Laxá. Hann segist hafa veitt í ánni með föður sínum síð- an hann var tíu ára gamall. Her- móður Guðmundsson, bóndi í Nesi, falaðist eftir honum í leiðsögn, sem Axel sinnti af og til í tvö sumur. Áhorfendur hafa haft orð á því að hann virðist mjög afslappaður í ná- vist stórstjörnunnar. Bing samdi lag um Laxá „Þetta var hálfgert ævintýri og spilaðist allt nokkuð eðlilega af fingrum fram,“ segir hann. „Ég var meira en til í að taka þátt í þessu. Þegar maður tekur að sér að leið- beina í veiði snýst það mikið um hvar er líklegra en annars staðar að bera niður, hverju á að kasta og hvernig. Enginn texti var lagður upp í hendur okkar heldur látið spilast áfram og það gekk furðuvel.“ Það vakti athygli að Bing söng lag um Laxá, þar sem hann dásamar ána og land miðnætursólarinnar. „Ég man alveg hvernig það bar til,“ segir Axel. „Einhvern tímann undir lok dags var hlé. Þá labbaði Bing frá hópnum en hafði gleymt að slökkva á upptökutækinu. Við gátum því heyrt þegar hann var að semja lagið og textann. Hann var með ein- hverja grunnlaglínu og var að reyna útfærslur og texta. Þegar Bing kom aftur var lagið tilbúið og hann söng það fyrir okkur, en við sögðum hon- um ekki fyrr en eftir á að við værum þegar búnir að heyra það!“ Fyrir tveimur árum kom sonur Crosbys, Harry, til veiða í Laxá og var Axel þá með honum dagpart við ána og fylgdi honum síðan um Mý- vatnssveit, þar sem faðir hans veiddi. Þar veiddi Crosby yngri þó bara fallegar ljósmyndir. Axel Gíslason fylgdi Bing Crosby við veiðar í Laxá í Aðaldal fyrir 40 árum „Þetta var hálf- gert ævintýri“ Morgunblaðið/Golli Axel og veiðihjól Crosbys „Þegar hann fór gaf hann mér veiðihjólið sem hann notaði allan tímann. Ég notaði það í tuttugu ár,“ segir Axel Gíslason. Tónleikar Sinfóníuhljóm-sveitar æskunnar vöktuávallt mikla athygli þeg-ar Paul Zukovsky stjórn- aði henni um árið. Nú hefur nýr vettvangur verið skapaður fyrir efnilega tónlistarnemendur að tak- ast á við krefjandi sinfónísk verk. Heitir hann Ungsveit Sinfón- íuhljómsveitar Íslands. Fyrstu tónleikar sveitarinnar voru haldnir á laugardaginn og viðfangsefnið ekkert smáræði: Fimmta sinfónían eftir Sjostakóvitsj. Mikið hefur verið ritað um þetta verk, enda tilurð þess sérstök. Það bar undirtitilinn „Viðbrögð Sov- étlistamanns við réttmætri gagn- rýni“, en gagnrýnin var leiðari í Prövdu sem hét „Tað í stað tón- listar“. Leiðarinn fjallaði um óp- eruna Lafði Macbeth frá Mtsensk, sem er um lögregluríki og er ádeila á ógnarstjórn Stalíns. Í leiðara Prövdu stóð: „ Hlustandinn er yfirkominn … af gruggugu tónaflóði. Brot úr laglínum, vísar að tónhendingum drukkna, flýja og drukkna aftur í drunum, gnístri og skrækjum. Að fylgjast með þessari „tónlist“ er erfitt, að muna hana er ómögulegt.“ Ólíkt óperunni vakti Sinfónían ánægju hjá yfirvöldum, þrátt fyrir að lesa megi úr henni einhvers- konar þvingaðan fögnuð, gleði með ógnandi undiröldu. Það sem gerði gæfumuninn var að ekkert var sagt með beinum orðum eða með sviðsmynd eins og í óperunni, enda liggur merking hljóðfæra- tónlistar ekki alltaf á lausu og er að nokkru háð upplifun hlustand- ans. Yfirvöldin gátu því litið á sin- fóníuna sem afsökunarbeiðni og tónskáldinu var fyrirgefið. Sjost- akóvitsj var líka of mikilvægur merkisberi hámenningar í áróð- ursvél Sovétríkjanna, hann var því ekki sendur í fangabúðir eins og margir vina hans, heldur leyft að stunda list sína áfram. Hann þurfti bara að halda sig á mott- unni. Upplifunin á laugardaginn var ánægjuleg, enginn þvingaður fögnuður þar! Hljómsveit- armeðlimir voru frjálslega klædd- ir, í rauðu og svörtu, og gleðin skein úr andlitum þeirra. Þrátt fyrir einstaka, en fremur áberandi hnökra í strengjaleik og í horna- blæstri, var heildarmyndin sterk undir hnitmiðaðri stjórn Rumon Gamba. Auðvitað vantaði dálítið upp á að hljómsveitin næði að út- færa almennilega fínleg blæbrigði sem segja svo margt, og skipta höfuðmáli, en það má skrifa á reynsluleysi, fremur en skort á hæfileikum. Það sem á vantaði var líka að nokkru bætt upp með fít- onskrafti, og yfirleitt merkilega öruggu samspili. Útkoman var skemmtileg og gífurleg fagn- aðarlætin í lokin voru fyllilega verðskulduð. Óþvingaður fögnuður Háskólabíó Sinfóníutónleikar bbbmn Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands flutti fimmtu sinfóníu Sjostakóvitsj. Stjórnandi: Rumon Gamba. Laug- ardagur 25. september. JÓNAS SEN TÓNLIST Jennifer hefur alla tíð verið glæsileg trunta og góð með sig 31 »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.