Morgunblaðið - 30.09.2009, Page 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2009
TVEIR hafa tilkynnt framboð til
formennsku í Ungum jafn-
aðarmönnum, en Anna Pála Sverr-
isdóttir, núverandi formaður, gefur
ekki kost á sér áfram. Landsþing
UJ fer fram í Reykjavík um næstu
helgi.
Þau sem boðið hafa sig fram eru
Dagný Ósk Aradóttir Pind og Sig-
urvin Guðmundsson. Dagný er 24
ára meistaranemi í lögfræði við HÍ
og starfar í hlutastarfi á markaðs-
og samskiptasviði skólans.
Sigurvin Guðmundsson er 24 ára
gamall Bolvíkingur. Sigurvin segir
í tilkynningu að gildi formanns eigi
að snúast um málefni en ekki
menntun og fyrri störf. Hann vill
yngja upp í þingflokki Samfylking-
arinnar fyrir næstu kosningar.
Dagný Ósk og Sigurvin bjóða sig fram
til formanns Ungra jafnaðarmanna
Dagný Ósk
Aradóttir Pind
Sigurvin
Guðmundsson
Djúpivogur | Það hefur verið til siðs
um árabil að afhenda menning-
arverðlaun á aðalfundum Sambands
sveitarfélaga á Austurlandi. Menn-
ingarverðlaun SSA hafa fallið í skaut
einstaklinga sem skarað hafa þótt
fram úr með framlagi sínu til aust-
firskrar menningar, þá hafa sömu-
leiðis einstakir viðburðir og hátíðir á
svæðinu hlotið heiður þennan.
Á aðalfundi SSA sem haldinn var
að þessu sinni á Seyðisfirði var Hammond-hátíðin á Djúpavogi valin til menn-
ingarverðlauna fyrir árið 2009 og var Svavar Sigurðsson, forkólfur Ham-
mond-hátíðar og fyrrverandi tónskólastjóri á Djúpavogi, heiðraður sér-
staklega að þessu tilefni á hátíðardagskrá SSA síðastliðið föstudagskvöld.
Sagði Svavar í þakkarávarpi sínu að Hammond-hátíðin væri sannarlega
komin til að vera sem einn af helstu menningarviðburðum á Austurlandi og
það yrði mikið um dýrðir á Djúpavogi á næsta ári, en um er að ræða þriggja
daga tónlistarveislu. Hammond-hátíðin á Djúpavogi er fyrst og síðast hátíð
til heiðurs Hammond-orgelinu, en margir af helstu snillingum rokksögunnar
brúkuðu einmitt hljóðfæri þetta mjög á sínum tíma og gera enn.
Hammond-hátíðin hlaut verðlaunin
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Á MORGUN, fimmtudag, verða tvær
hraðamyndavélar teknar í notkun á
hringveginum milli Hveragerðis og
Selfoss. Jafnframt verður nýrri
myndavél bætt við í Hvalfjarð-
argöngunum. Uppsetning vélanna
er liður í umferðaröryggisáætlun og
er tilgangurinn að draga úr öku-
hraða og fækka slysum.
Um er að ræða stafræna mynda-
töku þar sem upplýsingar um hraða-
brot eru sendar samstundis til lög-
reglunnar. Ekki er tekin mynd nema
að um brot sé að ræða.
Hraðamyndavélar
á hringveginum
Mynd Myndavél hefur verið komið
fyrir milli Hveragerðis og Selfoss.
Á MORGUN fimmtudag, verða
styrktartónleikar Parkinson-
samtakanna á Íslandi haldnir í Frí-
kirkjunni í Reykjavík. Fram koma
m.a. Bjartmar Þórðarson, Björg
Þórhallsdóttir, Elísabet Waage, Ell-
en Kristjánsdóttir, Guðrún Gunn-
arsdóttir, Hjörleifur Valsson. Miða-
verð er 2.000 kr. og er selt inn við
innganginn frá kl. 19.30.
Styrktartónleikar
í Fríkirkjunni
FÉLAG eldri borgara í Hafnarfirði
hefur sent opið bréf til félagsmála-
ráðherra þar sem mótmælt er
breytingum á lögum um Trygg-
ingastofnun ríkisins sem tóku gildi
hinn 1. júlí sl. sem fólu í sér skerð-
ingu á grunnlífeyri.
„Sú ákvörðun ein er mikið áfall
fyrir okkur og er gjörsamlega óá-
sættanleg. Skorum við á félags-
málaráðherra að draga þessa
ákvörðun til baka án tafar og
standa þannig vörð um grunn-
hugsjónir almannatrygginga.“
Mótmæla skerðingu
FRJÁLSLYNDI flokkurinn skorar
á ríkisstjórnina að bregðast við
fjárhagsvanda heimilanna og minn-
ir á tillögur sínar um frystingarleið
þar sem greiðsla hefði miðast við
greiðslubyrði frá 1. janúar sl. Það
hefði létt greiðslubyrði og myndað
grunn til afskriftar höfuðstóls,
vaxta og gengishækkana lána.
Frjálslyndir álykta
STUTT
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 Re y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | s í m i : 5 6 8 6 8 8 0 | w w w. h e y r n a r t a e k n i . i s
Pantaðu tíma í fría
heyrnarmælingu í síma
568 6880
Allt frá árinu 2001 hefur Heyrnartækni boðið upp á mikið úrval vandaðra
heyrnartækja frá Oticon. Í dag er útlit heyrnartækja frá Oticon þannig að þau eru
nánast því ósýnileg bakvið eyrun og tæknin svo fullkomin að hún kemur notendum
nær eðlilegri heyrn en nokkrun tímann fyrr.
Heyrnartækni er leiðandi fyrirtæki í þjónustu við heyrnarskerta á landsbyggðinni.
Auk daglegrar þjónustu í Reykjavík þá bjóðum við reglulega upp á heyrnarmælingar
og heyrnartækjaþjónustu á 18 stöðum á landsbyggðinni.
Bjóðum upp margar gerðir heyrnartækja í ólíkum verðflokkum.
Heyrðu betur
með vönduðu
heyrnartæki
www.heyrnart ækni . is