Morgunblaðið - 30.09.2009, Side 12

Morgunblaðið - 30.09.2009, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2009 Eftir Bjarna Ólafsson og Magnús Halldórsson Eftir að ákveðið hafði veriðað ríkið myndi eignast 75prósenta eignarhlut íGlitni var athyglin öll á hinum bönkunum tveimur, Lands- banka og Kaupþingi. Aðstæður á mörkuðum versnuðu hröðum skref- um eftir því sem leið á vikuna. Gengi krónunnar lækkaði verulega dag eftir dag og alþjóðleg matsfyr- irtæki lækkuðu lánshæfismat ríkisins og bankanna. Stórir lánardrottnar bankanna gátu því innkallað lán eða lokað lána- línum án fyrirvara. Því mátti mjög lít- ið út af bregða til þess að allsherjar áhlaup yrði gert á fjármögnun bank- anna. Föstudaginn þriðja október leit um tíma út fyrir að einhverjir bankanna myndu ekki lifa af daginn, en eftir lokun markaða þann dag sló á áhyggjurnar, enda var þá ljóst að í versta falli væri hægt að nýta helgina til að reyna að bjarga því sem bjargað yrði. Trúnaðarbrestur Um nokkurt skeið hafði verið starf- rækt sérstök nefnd sem hafði það hlutverk að vinna að gerð neyð- aráætlunar ef alvarleg vandamál kæmu upp í bankakerfinu. Í nefndinni sátu fulltrúar forsætis- og fjármálaráðuneytis, Fjármálaeft- irlits og Seðlabanka. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins fundaði þessi nefnd þetta sama föstudags- kvöld, en verulegur ágreiningur var innan hennar um framhaldið. Snemma á laugardeginum var tekin ákvörðun í forsætisráðuneytinu um að ekki væri hægt að stóla á nefndina lengur. Í stað hennar var kallaður saman óformlegur starfshópur sér- fræðinga til þess að vinna neyð- aráætlun um uppskiptingu bankanna til hliðar við hina nefndina. Þennan starfshóp mynduðu að stærstum hluta sérfræðingar utan stjórnkerfisins. Með hjálp viðskiptaráðuneytisins tók starfshópur forsætisráðuneyt- isins sér stöðu í Fjármálaeftirlitinu og fékk sér til aðstoðar allt starfslið FME. Starfshópurinn vann allan laugardaginn og aðfaranótt sunnu- dags við að gera uppkast að neyð- arlögunum. „Töluverður trúnaðarbrestur virð- ist hafa ríkt milli aðila í forsætisráðu- neytinu og Seðlabankanum. Starfs- hópi forsætisráðuneytisins var sagt að vinna sjálfstætt og hafa engin samskipti við Seðlabankann,“ segir heimildarmaður Morgunblaðsins, sem sat fundi hópsins. Stór hluti þess sem síðar varð uppistaða neyðarlag- anna leit dagsins ljós þennan laug- ardag, t.d. sú hugmynd að Fjármála- eftirlitið tæki bankana yfir og þeir yrðu brotnir upp. Þannig væri unnt að láta stóran hluta bankakerfisins fara á hausinn án þess að ríkið tæki yfir skuldbind- ingar bankanna. Þessar hugmyndir voru svo kynntar fyrir ráðherrum fyrir hádegi á sunnudeginum. Á sama tíma var svipuð vinna í gangi í Seðla- bankanum, en hóparnir tveir áttu engin samskipti sín á milli. Hótanir um áhlaup á kerfið Á sunnudeginum kepptust stjórn- endur bankanna við að koma með til- lögur til stjórnvalda um hvernig þau ættu að bjarga bönkunum. Allar þessar tillögur gengu út á það sama. Ríkið átti að bjarga einum bankanna og láta hina tvo fjúka. Yfirmenn hvers banka vildu auðvit- að að sínum banka yrði bjargað með því að ríkið legði til gríðarlega háar fjárhæðir. Var í því sambandi rætt um lán að upphæð 500-1.000 milljarða króna. Hættan fyrir ríkissjóð var vitaskuld sú að ríkið myndi lána bönkunum þúsund milljarða og ár- angurinn yrði sá einn að fresta gjald- þroti um nokkra daga. Fleira flækti stöðuna. Þessa sömu helgi gerði Seðlabanki Evrópu veð- kall hjá Landsbankanum og Glitni. Veðkallið kom Landsbankanum sér- staklega illa þar sem það gat leitt til áhlaups á innstæðureikninga hans er- lendis. Var Seðlabanki Evrópu þarna í raun að hóta því að hann myndi setja af stað áhlaup á allt íslenska banka- kerfið. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins hringdi Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, í Geir H. Haarde forsætisráðherra seinnipart- inn á sunnudag. Mun Brown hafa greint Geir frá því að Seðlabanki Evrópu myndi draga veðköllin til baka. Ekki er ólíklegt að þetta hafi ráðið því að Geir sagði við fréttamenn undir miðnætti á sunnudagskvöld að vinna helgarinnar hefði gert það að verkum að ekki væri lengur þörf fyrir sérstakan aðgerðapakka, ummæli sem vöktu töluverða undrun eftir allt sem á undan hafði gengið. Ákveðið um miðja nótt Seinna sömu nótt breyttist staðan hins vegar í grundvallaratriðum. Um eittleytið aðfaranótt mánudags komu menn frá bandaríska bankanum JPMorgan Chase á fund ráðamanna, en JPMorgan hafði þá unnið með Seðlabankanum. „Ég veit ekki hvað kom fram á þeim fundi,“ segir heimildarmaður Morgunblaðsins. „En um fjögurleytið aðfaranótt mánudags var hringt í mig og mér sagt að farið yrði af stað með neyðarlögin strax á mánudaginn.“ Á laugardeginum 4. október setti FME sig í samband við Andra Árna- son hrl. með það í huga að aðstoða við gerð laganna. Hann var þá staddur erlendis og komst ekki strax til hjálp- ar. Vinnan hélt þó áfram. Á mánudeg- inum, 6. október, var orðið endanlega ljóst að Landsbankanum yrði ekki bjargað og að líkindum ekki Glitni heldur. Kaupþing banki var talinn standa betur að vígi, ekki síst eftir 500 millj- óna evra lán frá Seðlabankanum. Snemma dags á mánudeginum var Andri Árnason hrl. aftur kallaður til aðstoðar. Hann var þá kominn til landsins frá útlöndum. Geir H. Haarde forsætis- ráðherra undirbjó á sama tíma ávarp Neyðarlögin sett Stjórnvöld voru illa undirbúin fyrir algert kerfishrun hér á landi í fyrra sem sést á því að neyðarlögin svoköll- uðu voru að stærstum hluta samin á einni helgi. Lítið sem ekkert samráð var milli starfshóps forsætisráðu- neytis og annars samskonar hóps sem vann innan Seðlabankans. Bankarnir reyndu hvað þeir gátu að telja stjórnvöld á að koma þeim til bjargar, en kostnaður við það hefði hlaupið á allt að þúsund milljörðum króna. Ákvörðun Breta um að beita Íslendinga neyðarlögum og taka yfir rekstur dótturfélags Kaupþings í London var náðarhöggið fyrir þann banka. Fram að því voru menn vongóðir um að Kaupþing gæti lifað af en eftir að Bretar tóku yfir Kaupthing Singer & Friedlander hinn 8. október var leikurinn úti. Morgunblaðið/Frikki Hrun „ENGIN ábyrg ríkis- stjórn teflir í slíka tví- sýnu þótt bankakerfið eigi í hlut. Íslenska þjóðin og hagsmunir hennar ganga framar öllum öðrum hagsmunum,“ sagði Geir H. Haarde í sjónvarpsávarpi til íslensku þjóðarinnar á degi neyðarlaganna. Íslendingar voru harmi slegnir. Geir reyndi að stappa stálinu í landsmenn og sagði landið vel geta komist út úr ógöngunum, en þegar hann í lokin bað Guð að blessa Ísland var ekki laust við að sumir yrðu jafnvel enn órólegri en þeir voru fyrir. Lokaorðin: Guð blessi Ísland Geir H. Haarde FÖSTUDAGINN 3. október varð útflæði af reikningum ís- lensku bankanna mikið, eink- um hjá Landsbankanum. Í há- degisfréttum Ríkisútvarpsins þennan dag sagði Gylfi Magn- ússon hagfræðingur, sem síð- ar varð viðskiptaráðherra, að bankarnir væru allir þrír að komast í greiðsluþrot. Orð Gylfa ollu miklu fjaðrafoki innan bankanna og stjórnsýsl- unnar, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Bæði Sig- urður Einarsson, stjórn- arformaður Kaupþings, og Davíð Oddsson, seðla- bankastjóri, komu fram í við- tölum á eftir Gylfa og sögðu stöðuna viðkvæma. Eftir að orð Gylfa féllu 20-faldaðist út- flæði af reikningum miðað við venjulegt meðaltal. Útflæðið 20-faldaðist EKKI voru allir sem hlustuðu á tillögur bankanna sannfærðir. Sagan segir að þegar Björgólfur Thor talaði fyrir tillögu Lands- bankamanna hafi Sigurjón Árnason setið við hlið hans og virst ekki sérlega sannfærður um ágæti þess sem Björgúlfur hélt fram. Þegar fundinum lauk á Árni Mathiesen að hafa komið að máli við Sigurjón og spurt hann hvort þetta myndi halda. Þá á Björgólfur að hafa gripið um handlegginn á Sig- urjóni, dregið hann út úr fundarherberginu og skellt hurðinni á Árna. Dró Sigurjón úr herberginu Björgólfur Thor Björgólfsson NEYÐARLÖGIN voru lögð fram á Alþingi um kvöldið mánudaginn 6. október, en all- an þann dag var Héraðsdómur Reykjavíkur opinn. Höfðu ráða- og embættismenn af því töluverðar áhyggjur að ein- hver kröfuhafi bankanna myndi ganga í dómshúsið og krefjast þess að þeir yrðu teknir til gjaldþrotaskipta áð- ur en neyðarlögin tækju gildi. Hefði það gerst hefði staða bankanna breyst í grundvall- aratriðum og lagaleg áhrif neyðarlaganna verið óviss. Höfðu áhyggjur af héraðsdómi Helgina 3.-5. október fór fram vinna í höf- uðstöðvum Fjármálaeftirlits og í Seðlabank- anum um hvernig finna mætti lausn á vanda bankakerfisins. Afrakstur þeirrar vinnu voru neyðarlögin svokölluðu. Voru þau unnin í mikl- um flýti og ber vinnan þess merki að stjórnvöld voru illa undirbúin fyrir kerfishrunið, sem þessa helgi blasti við. Hvað? Útibússtjórar Landsbankans fengu lítinn stuðn- ing frá höfuðstöðvum dagana um og eftir hrun, enda var allt á öðrum endanum í bankanum. Tóku útibússtjórar bankans á höfuðborgarsvæð- inu sig saman að eigin frumkvæði og ræddu leið- ir til að styðja við starfsmenn, sem voru undir gríðarlegu álagi þessa daga. Voru sálfræðingar og prestar fengnir til að ræða við starfsmenn. Hver? Viðbrögð breskra stjórnvalda við setningu neyð- arlaga gerðu slæma stöðu enn verri. Frystu þau eignir Landsbankans og íslenskra stjórnvalda í Bretlandi. Aðgerðir þeirra gerðu svo endanlega út um vonir manna um að Kaupþing myndi lifa af. Var dótturfélag bankans, Kaupthing Singer & Friedlander, tekið yfir af breska fjármálaeft- irlitinu og innstæður færðar í annan banka. Hvernig? Í neyðarlögunum var m.a. að finna heimild til handa ríkissjóði til að stofna nýtt fjármálafyrirtæki eða yf- irtaka starfandi fjármálafyrirtæki. Hins vegar eru það einkum tvö ákvæði í neyðarlögunum sem skipt hafa máli undanfarið ár. Annars veg- ar heimild Fjármálaeftirlits til að taka yfir vald hluthafafundar eða fundar stofnfjáreigenda í því skyni að taka ákvarðanir um nauðsynlegar aðgerð- ir, m.a. taka yfir eignir, réttindi og skyldur fjármálafyrirtækis í heild eða að hluta. Þessu ákvæði hefur verið beitt á Landsbanka, Glitni, Kaupþing, Straum, SPRON og Sparisjóðabank- ann. Þá var röð kröfuhafa í þrotabú fjár- málafyrirtækis breytt þannig að inn- stæður í lánastofnunum væru for- gangskröfur. Þetta ákvæði hefur sætt gagnrýni erlendra kröfuhafa. Neyðarlögin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.