Morgunblaðið - 30.09.2009, Síða 22

Morgunblaðið - 30.09.2009, Síða 22
22 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2009 Þorgrímur Jónsson ✝ Þorgrímur Jóns-son, tannlæknir andaðist á St. Jós- efsspítala laugardag- inn 5. september. Útför Þorgríms fór fram í kyrrþey 17. september. Meira: mbl.is/minningar Stefán Egilsson ✝ Stefán Egilssonfæddist 4. mars 1918. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi 17. sept- ember síðastliðinn. Útför Stefáns fór fram frá Keflavík- urkirkju 25. september sl. Meira: mbl.is/minningar Sigurður Snorri Þór Karlsson ✝ Sigurður SnorriÞór Karlsson fæddist 11. ágúst 1945 að Hofstöðum í Stafholtstungum. Hann lést á lungna- deild Landspítalans 10. september síðast- liðinn eftir erfið veikindi. Útför Sigurðar Snorra Þórs Karlssonar var gerð frá Selfosskirkju, laugardaginn 19. sept- ember sl. Meira: mbl.is/minningar Sigrid Toft ✝ Sigrid Luise Sol-veig Elisabet Toft fæddist í Reykjavík 12. desember 1924. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Austur- lands á Seyðisfirði þriðjudaginn 15. sept- ember sl. Útför Sigrid fór fram frá Egilsstaða- kirkju 25. september sl. Meira: mbl.is/minningar Minningar á mbl.is Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Guðrún, takk fyrir allt sem þú varst mér og mínu fólki. Blessuð sé minning þín. Þín tengdadóttir, Guðrún. Elsku amma, núna hefur þú kvatt okkur. Þegar ég hugsa um þig þá kom fyrst upp í hugann lopa- peysurnar þínar, kökuveislurnar og spilamennskan. Þegar mamma og pabbi komu með okkur systk- inin í heimsókn til þín og afa var alltaf tekið í spil og var þá spilaður kani. Við krakkarnir fengum alltaf að spila með fullorðna fólkinu. Það var alltaf fjölmenni í kaffi á sunnu- dögum hjá þér og afa. Þú varst allt- af búin að baka heil ósköp af kök- um, kleinum og pönnukökum. Þetta var stór hluti af sunnudeg- inum að fara í sunnudagskaffi til þín og afa. Aldrei var langt í prjónana hjá þér og þú prjónaðir handa mér Guðrún Guðmundsdóttir ✝ Guðrún Guð-mundsdóttir fæddist í Breiðamýr- arholti 22. apríl 1916. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 17. sept- ember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogskirkju 29. september. lopapeysur og ullar- sokka. Ég veit fyrir víst að þú munt fylgj- ast með prjónaskapn- um hjá mér, því það var nú eitt sem þú kunnir manna best. Ég skildi aldrei hvernig þú gast verið svona fljót að klára heila peysu og peys- urnar þínar voru allar svo fallegar og vel gerðar. Þú prjónaðir peysu á Ása til að nota á sjónum fyrir 16 árum og er hann enn að nota hana og hún verður eigulegri með hverju árinu sem líður. Elsku amma, ég veit að afi hefur tekið vel á móti þér og í sameiningu munuð þið fylgjast með mér, Ása og krökkunum. Minningin um þig mun lifa áfram um aldur og ævi. Þín sonardóttir, Anna María. Elsku amma mín, ég kveð þig í dag með söknuði. Þú varst alvöru amma, sem prjónaði, bakaði kökur, kleinur og pönnukökur og alltaf tókstu vel á móti okkur. Að prjóna lærði ég heilmikið af þér, þar sem ég sat og horfði á þig prjóna lopa- peysur og sjálf prjónaði ég nokkr- ar. Þú prjónaðir heil ósköpin af lopapeysum, sokkum og vettlingum og alveg fram á það síðasta. Man ég eftir mörgum skemmti- legum tímum hjá þér og afa þar sem oft hittist fjölskyldan, spilaði kana og hafði gaman. Ég man fyrst eftir mér hjá ykkur í Safamýri, síð- an í Furugerði og svo í Seljahlíð. Eftir að þú fluttist á Hrafnistu fannst þér leiðinlegt að geta ekki bakað pönnukökur handa okkur þegar við komum í heimsókn, en í staðinn áttir þú alltaf nammi í skál og urðum við auðvitað að fá okkur nokkra mola. Ég vil þakka þér amma mín fyrir öll þín góðu ár í lífi mínu, en nú ertu komin til hans afa og líður vonandi vel og ef ég þekki þig rétt ertu með lopapeysu á prjónunum. Þín sonardóttir og alnafna, Guðrún Guðmundsdóttir. Elsku amma, nú er komið að kveðjustund. Hlýir straumar fara um okkur er við hugsum til þín. Þegar við lítum til baka eru sunnu- dagsgöngutúrar til þín í Hjallasel- inu ofarlega í huga. Þar var æv- inlega kökuhlaðborð með bestu pönnukökum í heimi sem þýddi að aldrei fórum við svöng frá þér. Þú hugsaðir bæði um að okkur liði vel og einnig fuglunum sem komu í garðinn til þín. Oft voru spilin tekin fram og þá sátum við á stofugólfinu hjá þér og spiluðum tímunum sam- an. Þegar þú fluttir á Hrafnistu var ánægjulegt að vita af ykkur systr- unum saman og þegar við komum í heimsókn sast þú oft með nágrönn- unum í kaffi á ganginum. Það má segja að lopapeysurnar hafi stækk- að með okkur því þú prjónaðir þær á okkur eftir þörfum sem og lopa- sokka og -vettlinga sem við fengum á hverjum vetri. Flíkurnar nýtast okkur vel. Við viljum þakka þér fyrir allt og sérstaklega fyrir að vera svona góð amma. Ég bið Guð að gæta mín, góða anda að hugga mig. Sama ósk er eins til þín: Almættið það sjái um þig. (Leifur Eiríksson) Minning þín varðveitist í hjört- um okkar. Eysteinn, Kristján og Ína Björk. Elskuleg amma okkar, Guðrún Guðmundsdóttir, er látin. Það er sérstakt til þess að hugsa að hún verði ekki til staðar áfram í lífi okk- ar. Hugurinn leitar til ánægjulegra heimsókna til ömmu Guðrúnar og afa Kristófers í Furugerðið og síð- ar í Seljahverfið þar sem tekið var á móti ömmubörnum með kostum og kynjum. Eldhúsborðið svignaði undan kræsingum og alltaf passaði amma að enginn færi svangur heim, jafn- vel hin síðari ár á Hrafnistu þar sem hún gaukaði sælgætismolum að börnum sínum, barnabörnum og barnabarnabörnum. Fjölmennt var iðulega hjá ömmu og afa um helgar og glatt á hjalla. Við minnumst gleðistunda við leik með frændsystkinum og síðar þeg- ar til vits og ára var komið hress- andi umræðna um þjóðmál. Amma lagði kaffið og bar kræsingar á borð en gaf sér tíma til að líta við hjá barnabörnunum og kíkja á leik þeirra eða þá til að læða að vel völdum orðum í umræðuna. Amma fylgdist vel með öllum sínum af- komendum sem hlaupa nú á mörg- um tugum. Hún fékk fregnir af sín- um stóra hópi frá eigin börnum og síðar barnabörnunum þegar þau komu í heimsókn með sín börn til langömmu. Amma var svo sannar- lega rík og heimilisveggirnir þaktir myndum af hennar fólki. Amma sá einnig til þess að vinum og vandamönnum yrði ekki kalt. Hún var einkar lagin með prjónana og hafa prjónaflíkur hennar hlýjað mörgum í gengum tíðina bæði hér á landi sem og erlendis. Góðar og þykkar, handprjónaðar lopapeysur fylgdu okkur báðum í framhalds- nám til Englands og héldu á okkur hita á köldum vetrarkvöldum. Amma var iðin við kolann og gladdi ættingja og vini með handverki allt til síðasta dags. Við hugsum um ömmu í hvert sinn sem við smeygj- um okkur í hlýju og notalegu lopa- peysurnar eða bregðum á hendur okkar hlýjum vettlingum sem hún færði okkur að gjöf. En umfram allt þökkum við allar góðar samverustundir með ömmu Guðrúnu og geymum minninguna um hana í hjörtum okkar. Guðjón og Þóra Helgabörn.                          ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, STEFÁN ODDUR MAGNÚSSON, áður til heimilis Álfalandi 4, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 1. október kl. 15.00. Áslaug Ásmundsdóttir, Ásmundur Stefánsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Þór Stefánsson, Hulda Ólafsdóttir, Ása Stefánsdóttir, Jens Kvist Christensen, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, bróðir, mágur, afi og langafi, SIGURÞÓR SIGURÐSSON, Skriðustekk 17, Reykjavík, lést á Landspítala Landakoti mánudaginn 21. september. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 2. október kl. 11.00. Hallveig Ólafsdóttir, Einar Sigurþórsson, Edda Runólfsdóttir, Kristín Sigurþórsdóttir, Pétur Einarsson, Sigríður Sigurþórsdóttir, Eyjólfur Steinn Ágústsson, Sólveig Sigurþórsdóttir, Eggert Elfar Jónsson, Birgir Sigurþórsson, Elva Björk Garðarsdóttir, Þór Sigurþórsson, Sigurður Gunnar Sigurðsson, Arndís Guðnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR BENEDIKTSSON frá Miðengi, Flókagötu 61, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 2. október kl. 13.00. Þórdís Skarphéðinsdóttir, Bjarni Guðmundsson, Inga K. Guðmundsdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Erlendur Ragnar Kristjánsson, Bára Guðnadóttir, Björn Antonsson, Helga Jakobs, Magnea Antonsdóttir, Sigurður Lyngdal, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir, tengda- faðir, afi, langafi og bróðir, HAUKUR HALLGRÍMSSON málmsuðukennari, Kleppsvegi 6, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju föstudaginn 2. október kl. 14.00. Pálína A. Lórenz., Guðleif Helgadóttir, Aðalheiður G. Hauksdóttir, Ágúst V. Árnason, Hallgrímur L. Hauksson, Ingveldur María Tryggvadóttir, Ása Hauksdóttir, Benóný Ægisson, barnabörn, barnabarnabörn og systkini. ✝ Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR ÖNNU MAGNÚSDÓTTUR, Ferjubakka 16, Reykjavík. Hafliði Pétursson, Arnar Hauksson, Vilhelmína Hauksdóttir, Þór Ragnarsson, Tómas Reynir Hauksson, Silja Ketonen, Haukur Baldvinsson, ömmubörn og langömmubarn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.