Morgunblaðið - 30.09.2009, Síða 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
9 1
5 3 8
4
6 5 7
8 9 4
7 1 2
5 6 1
1 8
9 4 3
8 2 7 9
2 5
1 8
7
6 3
7 9 8 1 4
6 1
4 9 6
2 5 3 4
7 4
5 8 1
3 4
5 4 1
9 8
2
8 2 6 9
7 5
4 6 8 7
6 9 7 5 2 8 3 4 1
1 2 3 6 4 9 7 5 8
4 8 5 7 3 1 6 2 9
8 4 2 3 6 5 9 1 7
5 1 9 2 8 7 4 6 3
7 3 6 1 9 4 5 8 2
9 6 4 8 1 3 2 7 5
2 5 1 9 7 6 8 3 4
3 7 8 4 5 2 1 9 6
9 2 1 4 5 7 8 3 6
4 3 8 2 1 6 9 5 7
6 7 5 3 8 9 2 4 1
5 1 6 9 2 8 3 7 4
2 8 7 5 4 3 6 1 9
3 4 9 7 6 1 5 2 8
8 5 2 6 7 4 1 9 3
1 9 4 8 3 2 7 6 5
7 6 3 1 9 5 4 8 2
1 4 9 2 3 7 6 8 5
5 3 7 8 4 6 2 9 1
2 8 6 1 9 5 4 3 7
3 9 5 7 2 1 8 4 6
4 6 8 3 5 9 7 1 2
7 2 1 4 6 8 3 5 9
6 1 3 9 7 4 5 2 8
9 5 4 6 8 2 1 7 3
8 7 2 5 1 3 9 6 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 30. september,
273. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Já, gæfa og náð fylgja
mér alla ævidaga mína, og í húsi
Drottins bý ég langa ævi. (Sálm. 23, 6.)
Það gerist ekki oft að útgáfa bókaog frumsýning kvikmynda helst
í hendur. Í þessari viku er hins vegar
frumsýnd myndin Stúlkan sem lék
sér að eldinum aðeins um tveimur
vikum eftir útkomu bókarinnar í ís-
lenskri þýðingu. Bækur Stiegs Lars-
sons um Lisbeth Salander og Mikael
Blomkvist hafa notið mikilla vin-
sælda og megi marka viðtökurnar,
sem fyrsta myndin í þríleiknum
fékk, má því búast við mikilli aðsókn
á mynd númer tvö. Þar er þráðurinn
tekinn upp þar sem frá var horfið og
verður úr fjölskyldumynd, en þó alls
ekki hefðbundin.
x x x
Víkverji átti þess kost að sjá for-sýningu á annarri myndinni og
varð ekki fyrir vonbrigðum, þótt hún
sé að mörgu leyti frábrugðin fyrstu
myndinni. Spennan er mikil og
áhorfandanum er haldið rækilega
við efnið. Greinilegt var að bíógestir
höfðu lesið heima og komu vel und-
irbúnir. Í hléi heyrðist fólk bera hin-
ar ýmsar persónur eins og þær birt-
ust í hugskoti þeirra við lestur
bókarinnar við persónurnar á hvíta
tjaldinu og virtist ekki alltaf vera
samræmi þar á milli. Í það minnsta
kvaðst einn hafa séð mun ófrýni-
legra varmenni fyrir sér við lest-
urinn heldur en síðan birtist á tjald-
inu. Einnig var rætt um ýmislegt,
sem sleppt hafði verið úr bókinni við
gerð myndarinnar, en flestir voru
þeirrar hyggju að það hefði verið
óhjákvæmilegt í þágu framvindu
myndarinnar.
x x x
Víkverji hefur oft gert óbeit ís-lenskra ökumanna á stefnu-
ljósum að umtalsefni. Finnst honum
hafa kveðið sérstaklega rammt að
þeim ósið að gefa ekki stefnuljós
undanfarna daga. Kannski halda
umræddir bílstjórar að ökumenn
annarra bifreiða séu gæddir miðils-
gáfu og geti lesið ferðaáætlanir
þeirra og séð fyrir hvert þeir ætla að
beygja. Þeim skal bent á að þetta er
misskilningur. Stefnuljós eru einfalt
tæki, sem er ætlað til að auðvelda og
einfalda akstur um borg og bý.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 smánarlegur,
8 sekkir, 9 vondur, 10
greinir, 11 heilsufar, 13
liggja í sæng, 15 brúnar,
18 spilið, 21 skynsemi,
22 kyrrsævi, 23 loftgat-
ið, 24 gætnar.
Lóðrétt | 2 þotið, 3 elli-
hrumleikinn, 4 í vafa, 5
fuglinn, 6 stutta leið, 7
baun, 12 ríkidæmi, 14
ólm, 15 elds, 16 bölva, 17
sáldur, 18 var skylt, 19
skjóða, 20 nálægð.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 skálm, 4 þefar, 7 grunn, 8 rellu, 9 nam, 11
auða, 13 anga, 14 gæran, 15 senn, 17 nota, 20 æki, 22
sýlar, 23 lúðan, 24 augun, 25 tærar.
Lóðrétt: 1 segja, 2 áburð, 3 menn, 4 þarm, 5 fælin, 6
rausa, 10 afrek, 12 agn, 13 ann, 15 sýsla, 16 nýleg, 18
orður, 19 annar, 20 æran, 21 illt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 Bb4+ 4. Rbd2
b6 5. e3 Bb7 6. Bd3 0-0 7. 0-0 d5 8. b3
Rbd7 9. Bb2 Re4 10. Dc2 f5 11. a3 Bd6
12. b4 c5 13. bxc5 bxc5 14. cxd5 Rxd2
15. Rxd2 Hc8 16. Db3 Bxd5 17. Bc4
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem Taflfélag Bolungarvíkur stóð fyrir
í Reykjavík fyrir skömmu og sem Út-
gáfufélagið Sögur styrkti. Daninn Ni-
kolai Skousen (2.286) hafði svart gegn
Svíanum Daniel Semcesen (2.465). 17.
… Bxh2+! 18. Kxh2 Dh4+ 19. Kg1
Bxg2! 20. f4 hvítur hefði einnig tapað
eftir 20. Kxg2 Dg4+ 21. Kh2 Hf6.
Framhaldið varð eftirfarandi: 20.
…Dg3 21. Hf2 Bh3+ 22. Kh1 Dxf2 23.
Hg1 Hf6 24. Bxe6+ Kh8 25. dxc5
Bg2+! og hvítur gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Afgerandi undanúrslit.
Norður
♠G10
♥D105
♦DG5
♣98542
Vestur Austur
♠K62 ♠97543
♥Á97432 ♥8
♦87 ♦1093
♣D3 ♣ÁG76
Suður
♠ÁD8
♥KG6
♦ÁK642
♣K10
Suður spilar 3G.
Undanúrslit HM voru mjög afger-
andi. Ítalir unnu Búlgara 237-132 og
Bandaríkjamenn lögðu Kínverja 224-
123. Yfir 100 stiga munur á báðum leikj-
um.
Nick Nickell stóð sig vel í þessu spili í
vörninni gegn 3G Lixins Yangs. Nickell
kom út með smátt hjarta, Yang tók
slaginn í borði og svínaði strax í spaða.
Sem Nickell dúkkaði hiklaust. Yang
svínaði aftur, en nú drap Nickell og spil-
aði enn spaða. Yang reyndi að bjarga
sér með því að stela hjartaslag, en Nic-
kell tók umsvifalaust á ásinn og skipti
yfir í lauf. Hinn nýi makker hans, Ralph
Katz, beið í austur með þrjá svarta
slagi: ♣Á og tvo fría spaða. Einn niður.
Auðvitað spilaði Yang ógætilega.
Hann átti að láta eina spaðasvíningu
duga og sækja þá níunda slaginn á
hjarta.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú finnur hjá sér sterka hvöt til
þess að komast eitthvað í burtu eða gera
eitthvað óvenjulegt í dag. Gömul við-
skiptatækifæri skila arði en ný tækifæri
láta á sér standa.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er ekki allt fengið með útlitinu.
Gættu þess að tala ekki stanslaust um
það við einhvern sem ekki getur sett sig
í þín spor.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Rómantískasta kvöldið sem þú
getur átt er heima fyrir, ekki úti á lífinu.
Nýjar hugmyndir vekja áhuga þinn jafn-
vel þótt þú sért ekki sammála þeim.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Viðræður við fjölskyldumeðlimi
verða einkar mikilvægar í dag. Besta
leiðin til þess að bæta samskiptin er að
breyta sjálfum sér.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert að ná betri tökum á þeirri
göfugu list að hlusta. Ef þú getur bland-
að saman sköpun og félagslegri um-
hyggju ertu í góðum málum. Kannski
kemstu á snoðir um eitthvað dýrmætt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú hefur einstakt tækifæri til að
bæta samskiptin við systkini þín á næstu
mánuðum. Vertu því alls ósmeykur.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Nýjar hliðar á vandasömu verkefni
krefjast allrar þinnar athygli og atorku.
Allt sem tengist peningum og vinnu er
hagstætt í dag.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þér er lagið að svipta hul-
unni af leyndardómum, ef þannig ber
undir, eða ná árangri í rannsóknum.
Frábært stuðið sem þú sérð fram á er
bæði mögulegt og löglegt.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ert með svo mörg járn í
eldinum að þér gefst enginn tími til þess
að staldra við og meta stöðuna. Sláðu á
létta strengi til að laga andrúmsloftið.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Tækifæri, sem þú hefur þegar
hafnað í vinnunni, munu líklega koma
upp að nýju. Samstarf gæti leitt til hinna
furðulegustu atvika.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Láttu einskis ófreistað til þess
að leiða sannleikann í ljós í máli, sem
snertir alla þér nákomna. Gefðu þér
tíma til þess að vega og meta því valið er
þitt.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Leiðin framundan virðist skýr í
þínum huga. Venjubundin hegðun á
heimili er sett úr skorðum í dag.
Stjörnuspá
30. september 1148
Hítardalsbrenna, bæjarbruni
á Mýrum. Þetta var mann-
skæðasti eldsvoði á Íslandi og
fórust meira en sjötíu manns,
meðal annars Magnús Ein-
arsson biskup.
30. september 1966
Sjónvarpið hóf útsendingar.
Dagskráin hófst með ávarpi
Vilhjálms Þ. Gíslasonar út-
varpsstjóra. Eftirvænting var
mikil og daginn eftir sagði
Morgunblaðið: „Auðar götur í
Reykjavík, bíóin og skemmti-
staðir hálftómir, erfitt að ná í
leigubíla.“ Fyrst í stað var
sjónvarpað tvo daga í viku,
tvær til þrjár klukkustundir í
einu. Starfsmenn voru um
þrjátíu.
30. september 1994
Ný brú yfir Kúðafljót í Vestur-
Skaftafellssýslu var formlega
opnuð. Hún er 302 metra löng.
Með nýjum vegi og brúnni
styttist hringvegurinn um 8
kílómetra.
30. september 2005
Norska söngkonan Sissel
Kyrkjebö hélt tónleika í Há-
skólabíói og söng sig inn í hug
og hjörtu Íslendinga, að sögn
Morgunblaðsins. Meðal annars
söng hún Á Sprengisandi og
Sofðu unga ástin mín.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Sigurður Sig-
urðarson dýra-
læknir, Suður-
engi 31, Selfossi,
verður sjötugur
2. október næst-
komandi. Sig-
urður og Ólöf
Erla bjóða vinum
og frændfólki í
afmælisfagnað í Þingborg í Flóa á
afmælisdaginn, 2. október.
70 ára
„ÉG ætla að taka mér frí í vinnunni, sem er reynd-
ar ekki gott að gera einmitt núna. En ég ætla að
fara í bústað í Skaftártungum,“ segir Kristján Er-
lendsson lyflæknir og ónæmisfræðingur. Kristján
starfar sem framkvæmdastjóri vísinda, mennta og
gæða á Landspítalanum, en einnig er hann vara-
forseti læknadeildar Háskóla Íslands. Meðfram
því er hann starfandi læknir og hittir sjúklinga á
göngudeild einu sinni í viku.
„Ég ráðgeri nú ekki að halda sérstaklega upp á
daginn, en við kíkjum kannski eitthvað saman um
helgina, fjölskyldan. Ég ætla að hafa mjög hægt
um mig,“ bætir Kristján, en hann hélt veglega upp á fimmtugs-
afmælið fyrir tíu árum.
Auk þess að sinna menntun heilbrigðisstéttanna er Kristján sífellt
að „vasast“ í stjórn fimleikahreyfingarinnar, eins og hann orðar það.
Er nú formaður Fimleikasambands Íslands en var áður formaður
Gerplu í ellefu ár. Hann á fimm börn ásamt eiginkonu sinni, Elísabetu
Baldvins, en þar af eru þrír synir hans fimleikamenn. Kristján segir
að synirnir hafi dregið sig út í fimleikaáhugann, en ekki öfugt. „Sjálf-
ur get ég ekki farið í kollhnís!“ onundur@mbl.is
Kristján Erlendsson er sextugur í dag
Synirnir sjá um kollhnísinn
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is