Morgunblaðið - 12.10.2009, Síða 1
M Á N U D A G U R 1 2. O K T Ó B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
277. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«NORÐURLANDAMEISTARAR GERPLU
Á LEIÐ TIL FINNLANDS
AÐ VERJA TITILINN
«ÚR STAFLANUM
Arnar rótar í stafla
nýrra íslenskra platna
Aron Kristjánsson, þjálfari Íslands-
meistaraliðs Hauka, var ánægður
með leik sinna manna gegn Wisla
Lock í Póllandi í EHF-keppninni í
handbolta.
ÍÞRÓTTIR
Fín úrslit hjá
Haukum
„Guð og dýrlingurinn Palermo
björguðu okkur,“ sagði Diego
Maradona, landsliðsþjálfari Arg-
entínu, eftir 2:1-sigur liðsins gegn
Perú í undankeppni HM.
Enn er HM-von
hjá Maradona
Aron Pálmarsson skoraði tvö glæsi-
leg mörk fyrir þýska meistaraliðið
Kiel í Meistaradeildinni gegn
Barcelona. Franski markvörðurinn
Omeyer sá um spænska liðið.
Aron skoraði tvö
gegn Börsungum
TÍU liggja með svínaflensu á Land-
spítalanum, þar af þrír á gjörgæslu-
deild. Að sögn Haraldar Briem sótt-
varnarlæknis bendir allt til þess að
flensan sé orðin mjög útbreidd á höf-
uðborgarsvæðinu.
„Við sjáum mikla fjölgun þeirra
sem eru með inflúensulík einkenni,“
segir Haraldur og bendir á að slík
tilfelli séu nú hátt á þriðja þúsund.
Tekur hann fram að þeir sem grein-
ist séu aðeins brot þeirra sem í
reynd sýkist. Miðað við þessar tölur
megi því áætla að í reynd hafi 30-60
þúsund landsmenn þegar smitast af
flensunni.
Samkvæmt upplýsingum frá Har-
aldi er von á fyrstu stóru sending-
unni af bóluefni gegn svínaflensunni
undir lok mánaðar. Að hans sögn
hefur hann beitt sér fyrir því að
hluta sendingarinnar verði flýtt
enda sé orðið aðkallandi að bólusetja
heilbrigðisstarfsfólk. silja@mbl.is
Þrír á gjörgæslu
Sóttvarnarlæknir telur orðið aðkallandi
að bólusetja heilbrigðisstarfsfólk
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
VIÐRÆÐUR standa yfir milli hollenska félagsins
ECA og ÍAV Þjónustu, dótturfélags Íslenskra að-
alverktaka, um að setja á stofn aðstöðu til að
geyma og þjónusta flugvélar og þyrlur, sem ríki í
Atlantshafsbandalaginu (NATO) munu geta tekið
á leigu fyrir æfingar. Þá er hugsanlegt að hér
verði sértækur flugskóli og þjálfunarmiðstöð.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins verður
nokkur fjöldi þyrlna, léttra flugvéla og herþotna
geymdur í stóra flugskýlinu á vellinum og verður
viðhaldi og viðgerðum á vélunum sinnt þar.
Heppileg aðstaða hér
Mun ætlunin vera sú að NATO-ríki geti fengið
vélarnar lánaðar til æfinga, en þær verða vopn-
lausar meðan þær eru hér á landi. Herma heim-
ildir að ekki verði hér aðeins geymdar vélar eins
og þær, sem notaðar eru af NATO-herjum, heldur
einnig vélar sem hugsanlegir óvinir geti haft undir
höndum, t.d. rússneskar orrustuþotur. Æfingarn-
ar munu fara fram annars staðar, en ekki er gert
ráð fyrir að þær fari fram hér. Þá verða hér einnig
geymdar björgunarflugvélar og -þyrlur.
Umfang starfseminnar getur orðið töluvert og
mun fjöldi nýrra starfa skapast hér á landi við
þetta, einkum fyrir flugvirkja, og er talið að þau
geti orðið á annað hundrað talsins. Þá er hugs-
anlegt að tækniþróun af einhverju tagi fari fram á
svæðinu.
ECA hefur verið að leita að aðstöðu fyrir þessa
þjónustu og hefur Kanada verið nefnt í því sam-
bandi. Ísland er hins vegar vel staðsett auk þess
sem á Keflavíkurflugvelli er þegar til staðar yf-
irgefin varnarstöð. Aðbúnaður er því hinn heppi-
legasti fyrir starfsemi sem þessa.
ECA hefur undanfarin ár rekið alþjóðlega
þyrluleigu og m.a. leigt NATO þyrlur, sem not-
aðar hafa verið í Afganistan. Fyrirtækið hefur
einnig séð um þjálfun herflugmanna fyrir ýmis
þjóðríki og er stefnt að því að halda þeirri starf-
semi áfram.
Þjónusta þotur og þyrlur
fyrir heri NATO-ríkjanna
Fjöldi nýrra starfa skapast á Keflavíkurflugvelli í samstarfi við hollenskt fyrirtæki
Þotur Ýmis starfsemi er fyrirhuguð hjá ECA.
Er fyrsta alvöru haustlægðin hafði gengið yfir landið um helgina birti víða
til og mannfólkið jafnt sem dýrin nutu sín í náttúrunni. Þessar gæsir flugu
tignarlegt lágflug yfir spegilslétta Reykjavíkurtjörn er ljósmyndari Morg-
unblaðsins átti þar leið um. Lendingunni var frestað um sinn.
Á TIGNARLEGU LÁGFLUGI YFIR TJÖRNINNI
Morgunblaðið/Ómar
Stutt er í að dómar falli í stærstu
málum umfangsmikilla kannabis-
ræktenda. Sé tekið mið af þeim
dómum sem nýlega hafa fallið í hér-
aði má ekki búast við þungri refs-
ingu. Fyrir helgi var maður dæmd-
ur í fjögurra mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir ræktun á 573
plöntum. Af þeim fjölda plantna má
ráða að talsvert magn fáist af mari-
júana, eða á annað hundrað kíló.
Stefán Eiriksson lögreglustjóri seg-
ir að horfa eigi til þess hvað mögu-
lega megi framleiða á þessum stöð-
um. »6
Vægir dómar í héraði yfir
kannabisræktendum
Græningjar á
Írlandi kusu um
helgina að styðja
viðreisnaráætl-
anir ríkisstjórn-
arinnar, sem þeir
hafa átt sæti í frá
þingkosning-
unum 2007.
Vinstri armur-
inn í flokknum hefur verið tregur
til að fallast á kostnaðarsamar
björgunaraðgerðir til handa fjár-
málalífinu og segir Conor Ryan,
blaðamaður hjá dagblaðinu Irish
Examiner, í viðtali við Morgun-
blaðið, að flokkurinn myndi aldrei
fallast á þessar aðgerðir ef hann
stæði utan ríkisstjórnarinnar. Með
því þurfi þeir að kyngja hugmynda-
fræði í skiptum fyrir völd. »12
Írskir græningjar leggja
hugsjónirnar til hliðar
FRAMLAG Reykjavíkurborgar
til 18 einkarekinna tónlistarskóla
verða skorin niður um 16%, sé tekið
mið af öllu skólaárinu. Almennt
rekstrarframlag til skólanna á
þessu ári er áætlað rúmar 800 millj-
ónir króna. Skólarnir hafa fengið
heimild til að stytta skólaárið um
allt að tvær vikur og munu starfs-
hlutföll kennara og laun lækka til
samræmis við það. Skólarnir hafa
þurft að grípa til ýmissa annarra
aðgerða. »14
Framlög til tónlistarskóla
skorin niður um 16%