Morgunblaðið - 12.10.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2009
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum 24. nóvember í 25 nætur
á frábæru tilboði. Í boði er m.a. frábært
stökktu tilboð þar sem þú bókar flugsæti
og gistingu og fjórum dögum fyrir brott-
för færðu að vita hvar þú gistir (stökktu
tilboð með „öllu inniföldu“ jafnframt í
boði). Einnig bjóðum við hið vinsæla
Jardin del Atlantico íbúðahótel með öllu
inniföldu á hreint ótrúlegum kjörum.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt
til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð frá kr. 99.900
Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi /
stúdíó / íbúð í 25 nætur. Stökktu
tilboð 24. nóvember. Aukalega m.v.
stökktu tilboð með „öllu inniföldu“
kr. 50.000. Aukalega m.v. 2 í íbúð á
Jardin del Atlantico með
„öllu inniföldu“ kr. 60.000.
Aðeins örfáar íbúðir í boði!
Kanarí
24. nóv. – 25 nætur
frá kr. 99.900
Frá kr. 149.900 – með „öllu inniföldu“
KÖRFUBOLTADAGURINN var haldinn hátíð-
legur í Smáralind um helgina á vegum KKÍ.
Nokkur þúsund manns lögðu leið sína í Vetr-
argarðinn og gátu tekið þátt í ýmsum skot-
leikjum og knattþrautum. Þannig var í fyrsta
sinn keppt í svonefndum fingraspuna, þ.e. að
halda körfubolta á lofti á puttanum einum sam-
an. Hér er sigurvegarinn, Snorri Vignisson, 12
ára, að sýna snilli sína í þeirri íþrótt.
Körfuboltadagurinn haldinn hátíðlegur í Smáralind
Morgunblaðið/Ómar
Fyrsti Íslandsmeistarinn í fingraspuna
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
MATVÆLAFRAMLEIÐANDINN Iðnmark,
sem m.a. framleiðir Stjörnupopp og Stjörnu-
snakk, er um þessar mundir að stíga sín fyrstu
skref í útflutningi, en fyrsti gámurinn verður
sendur til Færeyja á næstu dögum.
„Við höfum í gegnum tíðina fengið nokkrar
beiðnir um bragðprufur frá Danmörku, Nor-
egi og Færeyjum,“ segir Sigurjón Dagbjarts-
son, framkvæmdastjóri Iðnmarks. „Und-
irtektirnar núna frá Færeyjum voru mjög
góðar enda er samkeppnisstaða okkar tölu-
vert betri en áður. Gengið gerir það að
verkum að við getum betur att kappi við
framleiðendur frá öðrum löndum.“
Færeysk verslanakeðja, Samkaup, mun
selja vörur Iðnmarks í Færeyjum. „Keðj-
an er nokkurs konar kaupfélag og rekur
um þrjátíu verslanir. Haldnar verða vöru-
kynningar í þeim og erum við bjartsýn á að
vörum okkar verði vel tekið þar.“
Stærstur hluti sendingarinnar er Stjörnu ostapopp,
sem er söluhæsta vara fyrirtækisins
hér á landi. „Ostapopp hefur sérstöðu
að því leyti að vöruna framleiða fáir, ef
nokkrir, aðrir snakkframleiðendur á
Norðurlöndunum. Við fengum uppskrift-
ina upphaflega frá Bandaríkjunum en í
Evrópu þekkist aðallega salt eða sykrað
poppkorn.“
Gat ekki lagt pokann frá sér
Segir Sigurjón að miðað við viðbrögð
innkaupastjórans færeyska ætti osta-
poppið að höfða jafnmikið til Færeyinga
og Íslendinga. „Hann gat ekki hætt að
borða poppið meðan við ræddum saman
og fékk að lokum að taka nokkra poka
með sér heim.“ Gerir hann ráð fyrir því
að sendur verði gámur annan hvern
mánuð til Færeyja, en í hverjum gámi
komast fyrir 14.000 pokar af poppi og
snakki.
Mikil áhersla er lögð á gæði fram-
leiðslunnar, að sögn Sigurjóns. „Svo
dæmi sé tekið notum við aðeins sól-
blómaolíu þótt hún sé dýrari en aðrar
tegundir. Þýðir það að gæði vörunnar
eru meiri og hún hollari. Þannig er engin transfita í
vörunum okkar.“
Iðnmark sendir fyrsta
gáminn út á næstu dögum
Snakk Stjörnupoppið er
nú í boði fyrir frændur
vora í Færeyjum.
Stjörnupopp til Færeyja
„ÉG er bara að
benda á hið aug-
ljósa og átta mig
ekki á því hvers
hagur það sé að
tala ekki um
staðreyndir
málsins,“ segir
Svandís Svavars-
dóttir umhverfis-
ráðherra. Vísar
hún þar til um-
mæla sinna í viðtali við Fréttablaðið
sl. laugardag þar sem hún benti á
að endanleg fjármögnun Hverahlíð-
arvirkjunar lægi ekki fyrir og að
orkuöflun fyrir álver í Helguvík
væri enn óljós.
Í framhaldinu sendu forstjóri og
stjórnarformaður Orkuveitu
Reykjavíkur frá sér yfirlýsingu þar
sem þeir sögðu ótækt að búa við
það að „fulltrúi ríkisstjórnarinnar
leitist við að draga úr fjárhags-
legum trúverðugleika“ OR.
„Við verðum að geta talað um
stöðuna eins og hún er,“ segir
Svandís og bætir því við að sér þyki
viðbrögð forsvarsmanna OR ekki
hafa borið vott um að þeim væri
efst í huga að tryggja trúverðug-
leika fyrirtækisins heldur frekar að
menn væru lagðir upp í pólitískan
leiðangur. „Ég held að Orkuveitu-
menn verði að tala varlegar sjálfir
ef þeim er annt um orðspor, stöðu
og trúverðugleika fyrirtækisins,“
segir Svandís. silja@mbl.is
„Var bara að
benda á hið
augljósa“
Svandís
Svavarsdóttir
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
SIGURÐUR Einarsson, Hreiðar
Már Sigurðsson, Ólafur Ólafsson og
fleiri hafa réttarstöðu grunaðra
manna í rannsókn sérstaks saksókn-
ara á viðskiptum með hlutabréf í
Kaupþingi fyrir rúmu ári.
Frá þessu var greint í breska
blaðinu The Observer í gær, en
Morgunblaðið hafði áður sagt frá því
að mennirnir hefðu verið yfirheyrðir
af saksóknaraembættinu.
Rannsóknin snýr að kaupum Kat-
arbúans Mohammeds Bin Khalifa
Al-Thani á 5% hlut í Kaupþingi
skömmu fyrir fall bankans. Lánaði
Kaupþing Al-Thani fyrir hluta kaup-
verðsins, en verið er að rannsaka
hvort um sýndarviðskipti hafi verið
að ræða til að halda uppi verði á bréf-
um bankans.
Alls munu átta manns hafa stöðu
grunaðs manns samkvæmt frétt
breska blaðsins. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins er Halldór
Bjarkar Lúðvígsson með réttarstöðu
vitnis í málinu, en Halldór hefur um-
sjón með norrænum eignum bank-
ans fyrir kröfuhafa hans.
Í samtali við Morgunblaðið vildi
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur sak-
sóknari, ekki tjá sig um hverjir njóti
réttarstöðu grunaðs í málinu. „Við
höfum þá stefnu að gefa ekki upp
neinar upplýsingar um réttarstöðu
einstakra aðila því hún getur breyst
eftir því sem rannsókninni miðar
áfram,“ sagði Ólafur en rannsókn á
máli Al-Thani hefur staðið yfir um
nokkurt skeið og eru fleiri svipuð
mál tengd Kaupþingi til rannsóknar
hjá sérstökum saksóknara.
Sigurður og Hreiðar með
réttarstöðu grunaðra
Kaup Al-Thanis á hlutabréfum Kaupþings enn til rannsóknar
Morgunblaðið/Ómar
DÓMSMÁLARÁÐHERRA telur
vel koma til greina að rýmka heim-
ildir til að kveða til meðdómendur.
Hins vegar sé ekki hægt að fjölga
dómurum og öðru starfsfólki dóm-
stóla að óbreyttum fjárveitingum.
Í Morgunblaðinu í gær er haft eft-
ir Helga I. Jónssyni, dómstjóra í
Héraðsdómi Reykjavíkur og starf-
andi formanni dómstólaráðs, að bú-
ast megi við flóðbylgju mála í kjölfar
bankahrunsins. Hann hafi því sent
dómsmálaráðherra tillögu um að
fjölga héraðsdómurum og aðstoðar-
mönnum dómara tímabundið. Einnig
óskaði hann eftir rýmri heimildum til
að kveða sérfróða meðdómendur til
setu í dómi.
Ragna Árnadóttir dómsmálaráð-
herra segir erind-
ið til meðferðar í
ráðuneytinu.
Tekið hafi verið
tillit til dómstóla
og þeim gert að
hagræða um 5%
en krafan til
ráðuneytisins er
almennt 10%. „Ef
fjölga á dómurum
er ljóst að sú sparnaðarkrafa mun
ekki ganga eftir.“
Ragna segir að réttarfarsnefnd
ráðuneytisins muni skoða styrkingu
fyrirkomulags við að tilnefna með-
dómendur til setu í dómi, og jafnvel
að menn hlytu sérstaka viðurkenn-
ingu til þeirra starfa. andri@mbl.is
Ekki hægt að
fjölga dómurum
Réttarfarsnefnd skoðar önnur úrræði
Ragna Árnadóttir