Morgunblaðið - 12.10.2009, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.10.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2009 Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is HARÐI kjarninn vinstra megin í flokki græningja á Írlandi sleikir nú sárin eftir að hafa beðið ósigur á þingi flokksins um helgina. Græningjar, sem eru smáflokkur í írskum stjórnmálum, eru aðilar að stjórn Brians Cowens forsætisráð- herra og var þess því beðið með eftirvæntingu hvort þeir myndu styðja viðreisnaráætlun stjórnar- innar eða ganga gegn henni og þar með líklega þvinga fram kosningar. Meðal helstu viðbragða írsku stjórnarinnar við hruninu er stofnun sérstakrar fjármálastofnunar (NAMA) sem ætlað er að taka á sig slæm fasteignalán en fá í staðinn ríkistryggð skuldabréf. Markmiðið er að auka aðgengi atvinnulífsins að lánsfé og þar með stuðla að því að hjól þess fari að snúast á nýjan leik. Þúsunda milljarða inngrip Fram kemur á vef dagblaðsins Ir- ish Times að stofnunin muni kaupa lán tengd fasteignaviðskiptum fyrir um 54 milljarða evra, eða á um 23 milljarða evra undir markaðsvirði. Bönkunum verði gert að taka á sig mismuninn en upphæðirnar sem hér um ræðir jafngilda 14.216 og 9.970 milljörðum króna á núverandi gengi (fyrri talan er markaðsvirðið). Fasteignabólan reis óvíða hærra en á Írlandi og misbýður áðurnefndu flokksbroti í græningjaflokknum að ríkið skuli nú þurfa að hlaupa undir bagga með bönkum sem tóku vitandi vits þátt í að spenna upp fasteigna- verðið og hætta þar með á verðhrun síðar. Andstaðan við slíka björgun og inngrip ríkisvaldsins í björgunar- aðgerðir til handa glannalegum fjár- málastofnunum hefur reynst flokkn- um erfið, enda hugsjónirnar að veði. Raunsær meirihluti ræður för Aðspurður um spennuna innan græningja segir Conor Ryan, blaða- maður hjá Irish Examiner, í viðtali við Morgunblaðið að stilla megi mál- inu þannig upp að raunsær meiri- hluti innan flokksins hafi ákveðið að setja hugsjónir til hliðar. „Flokkurinn stendur veikum fót- um. Flokksmenn vita að ef gengið yrði til kosninga nú myndi flokk- urinn þurrkast út. Það er því kalt hagsmunamat sem ræður för. Undir venjulegum kringumstæðum myndi flokkurinn aldrei styðja þessar að- gerðir. Hann þarf að kyngja þeim og reynir því að hafa áhrif á hvar niður- skurðarhnífnum er beitt.“ – Hvernig myndirðu lýsa óánægju minnihlutans í flokknum? „Þetta er hugsjónafólk. Eindregn- ir umhverfisverndarsinnar og sá hluti flokksins sem er lengst til vinstri í efnahagsmálum. Það er því mjög kaldhæðnislegt að þessi sami hópur og hefur gert gróðaöflin að aðalandstæðingi sínum í stjórn- málum skuli nú, örlaganna vegna, þurfa að koma þeim til bjargar.“ Hugsjónum kyngt  Írskir græningjar takast á um viðbrögð við fjármálahruni  Flokksbrot vill ekki verja stórfé til að rétta bankakerfið af Óvinurinn? Græningjar, sem fengu 4,69% atkvæða í kosningunum 2007, eru nú í því kaldhæðnislega hlutverki að þurfa að styðja rándýra bankabjörgun. Græningjar á Írlandi hafa verið klofnir í afstöðunni til þess hvort styðja eigi umfangsmikið ríkis- inngrip til að koma hagkerfinu upp úr hjólfarinu. Um helgina ákvað meirihlutinn að gera það. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is ÓHÁÐIR eftirlitsaðilar saka Sam- einað Rússland, flokk Dmítrís Med- vedevs forseta, um að hafa brotið kosningalög í sveitarstjórnar- kosningunum í gær, þvert á loforð forsetans um lýðræðisumbætur. Að sögn Lílíja Shíbanóva, sem fer fyrir óháðu eftirlitsstofnuninni Gol- os, var margvíslegum brögðum beitt til að hindra frjálsar kosningar. Auglýsingaspjöld stjórnar- andstöðuflokka hafi víða verið bönn- uð og framboð þeirra lýst ógild. „Medvedev segir að við þurfum samkeppni og fjölflokkakerfi en raunin er alger andstaða þess,“ segir Shíbanóva um lýðræðishallann. Auglýsingabann á aðra flokka Sex flokkar buðu fram í sveitar- stjórnarkosningunum í Moskvu en aðeins Sameinað Rússland, flokkur Medvedevs og forvera hans, Vladím- írs Pútíns, sem margir vilja meina að haldi enn um stjórnartaumana, fékk að auglýsa á spjöldum í borginni. Þá er orðrómur um að þrýst hafi verið á verkamenn að kjósa „rétt“, það er að segja að greiða Sameinuðu Rúss- landi atkvæði sitt. Fjallað er um málið á vef banda- ríska dagblaðsins Washington Post en þar er vikið að nýlegri könnun stofnunarinnar Levada, þar sem 62% Moskvubúa kváðust líta svo á að kosningabaráttan væri sviðsettt. Valdhafarnir skömmtuðu sér sæti. „Þetta er allt ákveðið fyrirfram,“ hefur blaðið eftir kennaranum Jay Komisarzhevskaya, sem er 28 ára. „Ég hef ekki kosið í næstum 10 ár.“ Vændir um falsanir Mótframboðin í Moskvu fullyrða að frambjóðendum þeirra hafi verið meinað að bjóða sig fram til borgar- stjórnar með þeim fyrirslætti að undirskriftir þúsunda stuðnings- manna þeirra hefðu verið falsaðar. Talsmaður Medvedevs reyndi að þvo hendur leiðtogans af ásökunum og skellti skuldinni á Júrí Luzhkov, borgarstjóra Moskvu, og embættis- menn hans. Þeir hefðu ekki farið að fyrirmælum forsetans. Svikin umbótaloforð og brögð í tafli í kosningum Reuters Leðurklæddur Dmítrí Medvedev forseti greiðir atkvæði í Moskvu í gær. Sameinað Rússland kúgar mótframboð Í HNOTSKURN »Kosið var um borgar-stjóra, sveitarstjórnir og til héraðsþinga í 76 af 83 kjör- dæmum landsins. »Kosningarnar þóttu þvígóður mælikvarði á hvort Rússland hefði þokast í lýð- ræðisátt í tíð Medvedevs. Græningjar kusu um tvær viðreisnaráætl- anir í gær. Ann- ars vegar um almenna við- reisnaráætlun og svo um hvort stofna eigi stofnunina sem rætt er um hér til hliðar (NAMA). John Gorm- ley, leiðtogi flokksins, fagnaði út- komunni og lýsti henni sem mikl- um sigri. Alls greiddu um 84% fundarmanna atkvæði með viðreisnaráætluninni, en 66% at- kvæða þurfti fyrir samþykki. Flokksmenn veittu NAMA einnig eindregið brautargengi en and- stæðingar stofnunarinnar, sem þurftu að sama skapi 66% at- kvæða til að fá hana fellda, fengu aðeins 31% atkvæða í kjörinu. Munurinn var meiri en stjórn- málaskýrendur áttu von á og renn- ir það stoðum undir þá túlkun að flokkurinn hafi sammælst um að setja ýtrustu hugsjónir til hliðar til að tryggja áframhaldandi líf hinn- ar óvinsælu stjórnar Brians Co- wens forsætisráðherra. En stjórninni var jafnvel spáð falli ef Írar hefðu, þvert á útkom- una, fellt Lissabon-sáttmálann í atkvæðagreiðslu á dögunum. Mikill meirihluti styður björgunaraðgerðir John Gormley ÞAU eru orðin 82 árin sem sigurgyðjan hefur vakað yfir höfninni í Trieste á Ítalíu. Styttan, sem er úr kopar og stendur á háum vita, sigurvitanum (Faro della Vittoria), var reist til minningar um Ítali sem létu lífið í fyrri heimsstyrjöldinni en hún minnir óneitanlega á sigursúluna í Berlín. Siglingakappar víðsvegar um Evrópu sigla fleyjum sínum árlega til Trieste til að taka þátt í keppni um hver er fljótastur til Barcelona. Keppnin hóf göngu sína 1969 og er ein sú fjölmennasta í heimi með á þriðja þúsund þátttakenda. Hún fer fram annan sunnudaginn í október. Reuters MEÐ SIGURGYÐJU Í FÖR BARACK Obama Bandaríkja- forseti kveðst ekki verðugur þess að hljóta friðarverðlaun Nóbels í ár. Aðrir séu betur að þeim komnir. Forsetinn lýsti yfir þessari skoð- un sinni í bréfi til stuðningsmanna sinna skömmu eftir að verðlaunin lágu fyrir, en óhætt er að segja að útnefningin hafi komið sem þruma úr heiðskíru lofti. Ólíkir skoðanabræður Margir hægrisinnaðir álitsgjafar vestanhafs fóru hamförum í gagn- rýni sinni á útnefninguna um helgina og sakaði Bill Kristol, son- ur Irving, eins áhrifamesta stjórn- málaskýranda á hægri vængnum í Bandaríkjunum á síðustu öld, frið- arnefndina um Bandaríkjahatur. Kristol barst óvæntur liðsauki þegar Hugo Chavez, forseti Vene- súela, lýsti því yfir að Obama ætti vegtylluna ekki skilið. Þvert á að vera boðberi friðar haldi hann áfram á ófriðarbrautinni sem for- verinn, George W. Bush, markaði. Aðrir betur komnir að nóbelnum Barack Obama

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.