Morgunblaðið - 12.10.2009, Page 6

Morgunblaðið - 12.10.2009, Page 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2009 Afsláttur af fyrsta skipti  Stutt er í að dómar falli í stærstu málum umfangsmestu kannabisræktendanna  Sé tekið mið af dómaframkvæmd sleppa þeir með fingraáslátt og töpuð tæki FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl.is VÆGAN fékk hann dóm kannabis- ræktandinn sem staðinn var að verki með 573 kannabisplöntur í mars síð- astliðnum. Þó að óvarlegt sé að áætla hversu mikið magn af maríjúana hefði geta fengist af plöntunum má hæglega halda því fram að það sé á annað hundrað kíló. Í því ljósi er ágætt að líta á dóminn; fjögurra mán- aða skilborðsbundið fangelsi. Í sjálfu sér er dómurinn ekkert hneyksli, enda í góðu samræmi við dómaframkvæmd. Auk þess játaði maðurinn brot sitt skýlaus og átti ekki að baki sakarferil sem hafði áhrif á refsinguna. Þegar hins vegar er litið til þess að nýverið voru tveir karl- menn dæmdir í tíu og átta ára fang- elsi fyrir amfetamínframleiðslu vakna upp spurningar. „Ég hef verið þeirrar skoðunar að horfa eigi til þess hvað mögulega megi framleiða á þessum stöðum. Og það er ekki aðeins magnið sem gefur það til kynna heldur umbúnaðurinn í kringum ræktunina,“ segir Stefán Ei- ríksson, lögreglustjóri höfuðborg- arsvæðisins. „En það er ekki staðan eins og hún er í dag.“ Halda úti einyrkjum Af dómum yfir ræktendum má gefa sér að það sé því sem næst refsi- laust að leggja stund á þessa ábata- sömu en jafnframt ólöglegu iðju. Sér í lagi ef um fyrsta brot er að ræða. Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglu höfuðborg- arsvæðisins, tekur ekki jafn djúpt í árinni en leynir því ekki að menn geta sloppið ansi vel. Það sé þó eðlilegt að hreinn sakarferill hafi mikið vægi og sjálfsagt að menn fái tækifæri til betrunar. Karl Steinar segir talsvert mikið um það, í þeim málum sem upp hafa komið á árinu, að um sé að ræða einstaklinga sem ekki hafi brotið af sér áður. Það sé jafnvel herbragð af hálfu þeirra sem standa að baki að halda úti einyrkjum með hreint sak- arvottorð. Karl Steinar bendir þó á að dómar séu að fara falla í stærstu málunum og það verði að sjá til hvað kemur út úr þeim „og hvaða skilaboð koma frá dómstólum“. Fyrir utan refsingu ræktenda verður auðvitað einnig að líta til þess magns plantna – og þar af leiðandi fíkniefna – sem lögreglan leggur hald á og fargar. Með aðgerðum lögreglu tekst að afstýra því að efnin fari á markað. Og það er samfélaginu sann- arlega til heilla. Dómur féll fyrir helgi í máli kannabisræktanda. Sá var stór- tækur en var í héraði þó aðeins dæmdur í fjögurra mánaða skil- orðsbundið fangelsi. „ÞAÐ hefur ræst meira úr [at- vinnuhorfum starfsmanna fjár- málageirans] en við þorðum að vona,“ segir Frið- bert Traustason, formaður Sam- taka starfsmanna fjármálafyrir- tækja. Til marks um þetta nefnir hann að af þeim 1.500 starfsmönnum fjármálafyr- irtækja sem á tímabilinu frá apríl 2008 til júní 2009 misstu vinnuna hafi um 600 þeirra fundið önnur störf innan fjármálageirans, m.a. á vegum gömlu bankanna, og aðeins innan við 150 bankastarfsmenn séu á atvinnuleysisskrá samkvæmt upp- lýsingum frá Atvinnuleysistrygg- ingasjóði. „Ég held helst að atvinnu- markaðurinn hafi verið hálfsveltur. Bankarnir hafi tekið til sín svo mikið af fólki með góða menntun, s.s. verk- fræðinga, tölvunarfræðinga sem og vel menntaða viðskipta- og hagfræð- inga.“ Fjórir bankar auglýstu tíu störf laus til umsóknar í Morgunblaðinu í gær. Að sögn Friðberts eru bank- arnir augljóslega í mikilli sam- keppni um lögfræðinga auk þess sem þá vantar lánasérfræðinga. silja@mbl.is Ræst úr atvinnu- horfum Friðbert Traustason Bankar auglýsa störf ENN hefur ekki fengist niðurstaða um hvort krafa lífeyrissjóðsins Stapa í þrotabú Straums fjárfest- ingabanka verður tekin til greina. Vegna mistaka skilaði sjóðurinn ekki inn kröfu upp á fjóra milljarða króna fyrir auglýstan kröfulýsing- arfrest. Til að ná fram kröfunni þarf Stapi að óska eftir því við aðra kröfuhafa að þeir samþykki að taka kröfuna til greina. Upphaflega var gert ráð fyrir að það tæki tvær til þrjár vikur að fá niðurstöðu um málið, en nú er ljóst að það tekur mun lengri tíma að fá botn í það. Á heimasíðu sjóðsins kemur fram að líklega verði ekki ljóst hvernig mál- ið fer fyrr en í fyrsta lagi í nóv- ember. Verði krafa Stapa ekki tek- in til greina er líklegt að ávöxtun sjóðsins rýrni um 2-4%. Heildar- stærð lífeyrissjóðsins er um 100 milljarðar króna og sjóðsfélagar eru um 45-50 þúsund. egol@mbl.is Óljóst með kröfu Stapa Íslandsdeild Amnesty International efndi til kynningar í Smáralind um helgina á herferð samtakanna í að berjast gegn mannréttinda- brotum á fátækum í heiminum. „Krefjumst virð- ingar“ er yfirskrift herferðarinnar og af því til- efni var hreysi reist í Smáralind. Þar gátu gestir ritað nafn sitt á „hús undirskriftanna“ og meðal þeirra sem það gerðu voru stöllurnar Kolbrún María og Hugrún, báðar níu ára. Amnesty vakti athygli á mannréttindabrotum á fátækum Skrifað á hús undirskriftanna Morgunblaðið/Ómar ÁRNI Grétar Finns- son hrl. og fyrrverandi bæjarfulltrúi í Hafn- arfirði lést í gær á Borgarspítalanum, 75 ára að aldri. Hann fæddist 3. ágúst 1934, sonur Finns Árnason- ar, trésmíðameistara og bæjarverkstjóra á Akranesi, og Eyglóar Gamalíelsdóttur. Árni varð stúdent frá VÍ 1955 og lauk cand. juris-prófi frá HÍ 1961. Sama ár stofnaði Árni eigin lögfræðiskrifstofu í Hafn- arfirði og rak hana til ársins 2007. Hann var umsjónarmaður Sjóvá- tryggingafélags Íslands hf. í Hafn- arfirði 1962-89. Árni var alla tíð virk- ur í félagsstarfi. Hann var m.a. formaður Taflfélags Hafnarfjarðar, sat í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna 1957- 67 og í miðstjórn Sjálf- stæðisflokksins 1964- 67. Árni var varabæj- arfulltrúi í Hafnarfirði 1962-66 og bæjar- fulltrúi þar 1966-90. Árni sat í stjórn Lands- virkjunar 1965-2005, í blaðstjórn Hamars ára- tugum saman sem og í stjórn Sparisjóðs Hafn- arfjarðar. Árni var mikill ljóðaunnandi og liggja eftir hann fjórar ljóðabækur sem út komu á árunum 1982-2006. Eftirlifandi eiginkona Árna er Sigríður Olivers- dóttir. Þau eignuðust þrjú börn, Lovísu, Finn og Ingibjörgu. Andlát Árni Grétar Finnsson HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hef- ur dæmt karlmann á þrítugsaldri í þriggja mánaða fangelsi fyrir kyn- ferðisbrot gegn stúlku fæddri 1995. Honum var einnig gert að greiða henni 300 þúsund krónur í miska- bætur. Maðurinn var sakfelldur fyrir að strjúka á stúlkunni kviðinn innan klæða og tilraun til að losa um belti á buxum hennar. Jafnframt fyrir að hafa sett sig í samband við stúlkuna í gegnum msn-samskiptaforritið og hvatt hana með lostugum og ósið- legum hætti til að afklæðast og sýna sig fyrir honum fáklædd og nakin að hluta í vefmyndavél. Brotin áttu sér stað seint á árinu 2007 og vorið 2008. Maðurinn hélt því fram að hann hefði talið stúlk- una vera sextán ára. Í niðurstöðum dómsins segir hins vegar að honum hefði ekki getað dulist að stúlkan var barn að aldri. Hvatti unga stúlku til að afklæðast

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.