Morgunblaðið - 12.10.2009, Síða 9

Morgunblaðið - 12.10.2009, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2009 – meira fyrir áskrifendur Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Meðal efnis verður: Vetrarklæðnaður á börn og fullorðna. Góðir skór fyrir veturinn. Húfur, vettlingar, treflar, lopapeysur og fl. Snyrtivörur til að fyrirbyggja þurra húð. Flensuundirbúningur, lýsi, vítamín og fl. Ferðalög erlendis. Vetrarferðir innanlands. Bækur á köldum vetrardögum. Námskeið og tómstundir í vetur. Heitir pottar og sundlaugar góð afslöppun Bíllinn tekinn í gegn. Leikhús, tónleikar og ýmisleg afþreying. Útilýsingar – góð ljós í myrkrinu. Þjófavörn fyrir heimili og sumarbústaði. Mataruppskriftir. Ásamt fullt af öðru spennandi efni. Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16 mánudaginn 19. október. Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105, kata@mbl.is Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað Vertu viðbúinn vetrinum föstudaginn 23. október. Vertu viðbúinn vetrinum Ekki átt við LSR Vegna fréttar í blaðinu á laugardag um veðsetningu mannvirkja í Hafn- arfirði vill Hafnarfjarðarbær koma því á framfæri að fyrir mistök fór skammstöfun Lífeyrissjóðs starfs- manna ríkisins, LSR, inn í fund- argerð bæjarráðs um málið. Hið rétta er að bærinn fékk umrædd lán frá Lífeyrissjóði sveitarfélaga og Lífeyrissjóði starfsmanna Reykja- víkurborgar. Biðjast bæjaryfirvöld velvirðingar á þessum mistökum. Kosning í Stöfum Rétt er að árétta vegna fréttaskýr- ingar sem birtist í Morgunblaðinu mánudaginn 5. október sl. um kosn- ingu í stjórnir lífeyrissjóðanna, að sjóðsfélagar í lífeyrissjóðnum Stöf- um kjósa stjórnarmenn launþega á sérstökum kjörfundi sem haldinn er fyrir ársfund lífeyrissjóðsins. LEIÐRÉTT „VIÐ munum strax eftir helgi fara þess á leit við umrædda lífeyrissjóði að þeir fresti þessum endurreikn- ingum fram yfir dóm Hæstaréttar,“ segir Halldór Sævar Guðbergsson, formaður Öryrkjabandalags Ís- lands. Vísar hann þar til þess að rétt fyrir helgi sendu tíu lífeyrissjóðir um 1.900 örorkulífeyrisþegum bréf þess efnis að greiðslur til þeirra skerðist frá og með næstu mánaða- mótum. Þetta sé gert í samræmi við reglubundna tekjuathugun hjá ör- orkulífeyrisþegum samkvæmt sam- þykktum lífeyrissjóðanna frá árinu 2006, þar sem bætur almannatrygg- inga voru teknar inn í útreikninga lífeyrissjóðina varðandi frádrátt frá lífeyri. „Þetta er þannig spírall sem fer af stað í samspili milli Trygg- ingastofnunar og lífeyrissjóðanna. Þegar hækkar á öðrum staðnum þá lækkar á hinum, þannig að þessi tvö kerfi spila ekki nægilega vel sam- an.“ Að sögn Halldórs höfðaði ÖBÍ prófmál gegn Gildi lífeyrissjóði fyrir hönd lífeyrisþega sem lenti í sam- bærilegri tekjuathugun 2007. „Málið vannst í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna vanhæfis Baldurs Guðlaugs- sonar, ráðuneytisstjóra fjármála- ráðuneytis, til að veita samþykki fyrir breytingum á samþykktum líf- eyrissjóðanna, því hann sat sjálfur í stjórn eins lífeyrissjóðsins sem ósk- aði breytinga á sínum samþykkt- um,“ segir Halldór, en Gildi áfrýjaði málinu til Hæstaréttar sem taka mun málið á dagskrá í nóvember næstkomandi. silja@mbl.is ÖBÍ óskar eftir frestun á boðuðum skerðingum Vilja bíða niðurstöðu Hæstaréttar sem von er á í árslok Í HNOTSKURN »Örorkulífeyrisgreiðslur tilum 1.200 öryrkja munu lækka um 25-30% næstu mán- aðamót. »Hjá tæplega 700 öryrkjumfalla greiðslurnar alveg út. Hækkun verður hjá 200 ör- yrkjum. FRAMKVÆMDIR eru vel á áætlun við gerð brúar yfir Hvítá hjá Bræðratungu í Árnessýslu. Ræktunarsam- band Flóa og Skeiða er aðalverktaki við lagningu á nýj- um 8 km löngum vegi en um sjálfa brúarsmíðina sér JÁ-verk frá Selfossi. Brúin er með þeim lengri á land- inu, um 270 metrar, og mun tengja saman Bræðra- tunguhverfi og Flúðir. Umferð verður hleypt yfir brúna að ári og bundið slitlag lagt árið 2011. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundssson HVÍTÁRBRÚIN VEL Á ÁÆTLUN AÐALFUNDUR Framsóknar- félags Skagafjarðar undrast þær áherslur sem fram hafa komið í fjár- lagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er lúta að landsbyggðinni og sér- staklega að Norðurlandi vestra. Þetta kemur fram í ályktun frá fé- laginu. „Allir eru meðvitaðir um að það þarf að draga saman í ríkis- rekstri en fundurinn gerir þá kröfu að í því verkefni hafi ríkisstjórnin það að leiðarljósi að jafnræðis sé gætt milli landshluta og að sér- staklega sé horft til þess að stór svæði utan áhrifasvæðis höfuðborg- arinnar nutu að engu eða litlu leyti þess uppgangs sem var fyrir efna- hagshrunið,“ segir m.a. í ályktun framsóknarmanna. Jafnræðis sé gætt í landinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.