Morgunblaðið - 12.10.2009, Side 13

Morgunblaðið - 12.10.2009, Side 13
Daglegt líf 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2009 Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Við opnuðum þessa verslun rétt eftirhrunið í fyrra. Kreppan kom í raun íveg fyrir að við færum að flytja innvörur að utan eins og við ætluðum okkur, sem var augljóslega ekkert vit. En núna erum við dauðfegnir að við fórum ekki út í innflutning. Við snerum okkur alfarið að því að selja innlenda hönnun og það gengur mjög vel,“ segir Finnur Thorlacius, einn af þremur eigendum verslunarinnar Reykjavik Bags á Skólavörðustíg. Finnur og meðeigendur hans, Guðmundur Pálsson og Baldvin Berndsen, ákváðu strax í byrjun að stíla inn á erlenda ferðamenn og það hefur gengið eftir að þeir eru í miklum meirihluta viðskiptavina. „Um sjötíu prósent viðskiptavina okkar eru erlendir ferðamenn, en um jólin snerist þetta reyndar við, þá fjölgaði mikið í hópi íslenskra við- skiptavina. Nýliðið sumar var mjög gott, það var geysilegur fjöldi ferðamanna á ferð í bæn- um í allt sumar. Útlendingar eru mjög hrifnir af þeirri sérstöðu sem varan okkar hefur, við erum með óvenjuleg hráefni eins og fiskiroð og þess háttar. Við leggjum líka mikið upp úr því að vera með vandaða vöru,“ segir Finnur. Fjölskylda á bak við hvern hönnuð Hjá Reykjavik Bags er lögð áhersla á hvers konar töskur, eins og nafnið gefur til kynna, en þar fæst líka skart, fatnaður, húfur, belti og aðrir fylgihlutir. „Við seljum vörur frá 25 ís- lenskum hönnuðum, og þar af eru tíu þeirra að hanna töskur. Allt eru þetta konur, hver ann- arri frábærari. Á bak við alla þessa hönnuði eru fjölskyldur og við erum ánægðir með að skapa þeim atvinnu í því ástandi sem er núna. Í leiðinni drögum við gjaldeyri inn í landið, þannig að okkur finnst við vera að láta gott af okkur leiða. Við erum því mjög sáttir við þessa tilraun sem þetta var í upphafi, því hún hefur gengið upp. Þetta hefur vissulega þróast hjá okkur á þessu ári sem liðið er síðan við opn- uðum, sumir hönnuðir hafa dottið út og aðrir komið inn í staðinn. En það er mjög ánægju- legt að finna hversu mikill vöxtur hefur hlaup- ið í íslenska hönnun undanfarið og það er ein- staklega gaman að vinna í þessum bransa, skemmtilegt fólk og skemmtilegar vörur.“ Stækkun og netverslun Meðal þeirra hönnuða sem selja vörur í Reykjavik Bags eru Fjóla María og Sólveig eða SOLKA. „Mig langar að nefna sérstaklega hana Guðbjörgu Magnúsdóttir sem kallar sig NANA, en hún er á sjötugsaldri og við seljum mest frá henni. Svo er það hún Jója frá Ak- ureyri eða Soffía eins og hún heitir, en við er- um þeir einu sem seljum frá henni hér sunnan heiða og erum stoltir af því. Helena Sólbrá er líka mjög flott í húfum, stúkum og púðum. En þetta eru allt frábærar konur og ekki hægt að gera upp á milli þeirra á nokkurn hátt.“ Finnur segist hafa unnið meira og minna kauplaust að uppbyggingu fyrirtækisins, í þeirri von að það muni skila einhverju, sem þeir félagarnir eru reyndar sannfærðir um að verði. „Við erum í stækkunarhugleiðingum, er- um að leggja drög að vefverslun til að geta boðið upp á enn fleiri vörur en við höfum í búð- inni og tekið inn fleiri hönnuði. Kannski stækkum við verslunina sjálfa líka, þetta er allt í skoðun. Þetta er allt með svo jákvæðum formerkjum að ég á von á að þetta verði sífellt betra.“ Gaman að leggja sitt af mörkum Almennt bann hefur ríkt við inn- flutningi skriðdýra á borð við slöng- ur, skjaldbökur og eðlur frá því snemma á 9. áratug síðust aldar. Bannið byggðist upphaflega á alvar- legum sjúkdómstilfellum í fólki af völdum salmonellusmits sem rekja mátti með ótvíræðum hætti til þess- ara gæludýra. Árið 1983 kom upp al- varleg salmonellusýking í Reykjavík sem reyndist eiga uppruna í skjald- böku heimilisins. Í kjölfarið voru framkvæmdar rannsóknir sem sýndu mikla salmonellumengun í fiskabúrum og skjaldbökum gælu- dýraverslana á höfuðborgarsvæðinu og greindust salmonellusýklar í skjaldbökum á 30% af 183 heimilum víðsvegar á landinu. Vinsældir skriðdýra sem gælu- dýra koma í bylgjum og eykst þá þrýstingur fyrir innflutning og jafn- framt fer að bera á smygli slíkra dýra. Fyrir rúmum áratug var til- raun gerð til að slá á svartamark- aðsbrask með því að leyfa innflutn- ing á eðlum gegn framvísun á heilbrigðisvottorði frá þarlendum yfirvöldum þar sem staðfest var að dýrin væru laus við salmonellu. Eftir 3 vikur í sóttkví kom í ljós að öll sýni reyndust bullandi jákvæð gagnvart salmonellu. Þegar skriðdýr koma til kasta heilbrigðis- og lögregluyfirvalda er þeim fargað og sýni tekin til salmon- ellugreiningar. Nær undantekning- arlaust greinist ein eða fleiri salmon- ellutegund. Nýjasta dæmið er þegar lögreglan í Hafnarfirði gerði upp- tækan fjöldann allan af snákum, skordýrum og tarantula kóngulóm hinn 1. júlí sl. Snákarnir voru alls fimm af fjórum mismunandi teg- undum og við rannsókn kom í ljós að allir voru smitaðir af salmonellu. Öðru hvoru koma upp þær raddir hvort ekki beri að endurskoða af- stöðu yfirvalda. Reynsla nágranna- ríkja okkar er að þegar höftum á innflutningi hefur verið aflétt hefur fylgt mikil aukning salmonellu- tilfella í fólki sem rekja má til skrið- dýra. Því er til að svara að fylgst er með þróun þessara mála eftir bestu getu en eins og staðan er í dag væri óábyrgt að mæla með slíkum inn- flutningi, slíkt væri einnig stílbrot miðað við ábyrga stefnu Matvæla- stofnunar í baráttunni við salmon- ellu hér á landi. Gísli Jónsson, dýralæknir fisk- sjúkdóma hjá Matvælastofnun. Morgunblaðið/Golli Fagurgræn Bannað er að flytja skepnu sem þessa hingað til lands. Af hverju ríkir bann á snákum, eðlum og skjaldbökum? Heilbrigði og velferð dýra Hlíðasmára 14 sími 588 2122 www.eltak.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband líðas ára 14 Sí i 588 2122 .eltak.is Morgunblaðið/RAX Gengur vel Finnur kann vel við að vinna með íslenskum hönnuðum og er ánægður með fjöl- breyttar vörur. Hann segir erlenda ferðamenn mjög hrifna af sérstöðu íslenskrar hönnunar. Skraut um háls Hrafn- hildur sem afgreiðir í versluninni skellti þessu hálsskarti á sig en það er hannað af FRÍÐU og er úr þæfðri ull og silki. Engin eins Töskurnar eru eins misjafnar og þær eru margar og í öllum stærðum og gerð- um, sumar þeirra má jafnvel horfa í gegnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.