Morgunblaðið - 12.10.2009, Page 21

Morgunblaðið - 12.10.2009, Page 21
Dagbók 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2009 Sudoku Frumstig 9 2 5 8 9 1 6 5 3 2 5 7 4 1 8 3 3 2 6 5 7 4 6 1 8 2 5 7 3 2 5 6 1 4 1 2 9 8 7 3 6 1 8 7 5 4 3 8 7 4 8 2 5 3 9 9 4 1 3 2 7 1 8 2 6 8 2 5 5 9 7 8 6 3 7 4 1 5 2 9 7 5 1 9 3 2 6 4 8 2 4 9 8 6 5 1 3 7 3 9 4 1 8 6 7 5 2 6 8 7 2 5 9 4 1 3 5 1 2 3 7 4 8 9 6 1 7 8 5 2 3 9 6 4 4 2 5 6 9 7 3 8 1 9 3 6 4 1 8 2 7 5 2 6 8 7 9 1 4 5 3 3 4 9 5 6 8 2 7 1 1 7 5 2 4 3 8 6 9 5 3 4 9 7 6 1 2 8 8 1 6 3 2 4 5 9 7 9 2 7 1 8 5 3 4 6 6 5 2 8 1 7 9 3 4 7 9 1 4 3 2 6 8 5 4 8 3 6 5 9 7 1 2 5 8 4 3 9 2 7 1 6 2 7 1 4 8 6 3 5 9 6 3 9 7 1 5 2 8 4 9 5 3 2 6 8 1 4 7 4 2 8 1 7 3 6 9 5 7 1 6 9 5 4 8 3 2 3 9 2 8 4 7 5 6 1 1 6 7 5 3 9 4 2 8 8 4 5 6 2 1 9 7 3 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist töl- urnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 12. október, 285. dagur ársins 2009 En hjálparinn, andinn heilagi, sem faðirinn mun senda í mínu nafni, mun kenna yður allt og minna yður á allt það, sem ég hef sagt yður. (Jóh. 14, 25.) Sú ákvörðun norsku nób-elsverðlaunanefndarinnar að veita Barack Obama forseta frið- arverðlaunin í ár hefur vakið mikla furðu. Fréttamenn Fox News-sjónvarps- stöðvarinnar, sem Obama kaus að sniðganga í viðtalssyrpunni um heil- brigðismálin um daginn vegna fjand- skapar við stefnu hans, gerðu úr því frétt að skömmu eftir þakkarræðuna skyldi forsetinn sitja þriggja tíma fund um hvernig bæri að haga fram- haldi átaka í Afganistan. x x x Víkverji er ekki viss um að friðar-nefndin geri sér grein fyrir því að forsetinn stendur í stríðsrekstri. Líklega eru þeir orðnir aumir um bringspalirnar eftir að hafa barið sér svo lengi á brjóst fyrir glæsileg af- rek sín í Palestínu og á Srí Lanka. Tamílarnir sem lentu röngu meg- in víglínunnar í andarslitrum stríðs- ins og enduðu þar sem hundamatur í sprengjuregni stjórnarhersins hafa vafalaust fundið í því nokkra hugfró og eflaust smáhuggun að í nokkur þúsund kílómetra fjarlægð skyldi blaðamaður Verdens Gang leggja það á sig að þýða Reuters-frétt um örlög þeirra. Víkverji er ekki viss um að fréttin hafi fengið jafnmikið rými og nýj- asta uppfærslan á meiðslasögu John Arne Riise en er þó engu að síður eindregið þeirrar skoðunar að blaða- maðurinn hljóti að koma til greina næst þegar verðlaunin verða veitt. x x x Á fréttavef Morgunblaðsins umhelgina var sagt frá því að breska stórblaðið Times liti svo á að útnefningin væri svo hlægileg að hún gerði háðfugla verkefnalausa. Ónefndur bloggari gerði þessa at- hugasemd: „Yoko á auðvitað að fá friðarverð- launin. Eins og allir vita hefur upp- setning friðarsúlu í Viðey breytt öllu viðhorfi heimsins til styrjalda. Nafn Íslands hefur verið á allra vörum síðan súlan var sett upp […]“ víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 hreinlæti, 8 klasturs, 9 dútla, 10 spil, 11 rétti við, 13 nálægt, 15 fjalls, 18 mastur, 21 legil, 22 stjórna, 23 guð, 24 afreksverk. Lóðrétt | 2 fyrsta árs stúdent, 3 keðja, 4 bylgj- an, 5 bára, 6 þjálfar, 7 grasflötur, 12 ham- ingjusöm, 14 gubbi, 15 gömul, 16 slagbrandar, 17 hávaði, 18 mikli, 19 hrekk, 20 kvenmanns- nafn. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 spjör, 4 grund, 7 læpan, 8 ætlar, 9 dýr, 11 senn, 13 enda, 14 efist, 15 fant, 17 aumu, 20 æta, 22 næðið, 23 kodda, 24 tinið, 25 remma. Lóðrétt: 1 sults, 2 Japan, 3 rönd, 4 grær, 5 uglan, 6 dorga, 10 ýmist, 12 net, 13 eta, 15 fánýt, 16 náðin, 18 undum, 19 uxana, 20 æðið, 21 akir. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 e6 5. a3 Rf6 6. Rc3 a6 7. Bg5 Be7 8. f4 d6 9. Rxc6 bxc6 10. Bc4 Bb7 11. Df3 d5 12. O-O-O O-O 13. Bxf6 Bxf6 14. e5 Be7 15. g4 c5 16. Hhg1 Dc7 17. Bd3 c4 18. Bf1 Bc5 19. Hg3 d4 20. Re4 c3 21. Bg2 cxb2+ 22. Kxb2 Hfd8 23. De2 Bxe4 24. Bxe4 Hab8+ 25. Hb3 Da5 26. Ha1 Staðan kom upp í C-flokki Haust- móts Taflfélags Reykjavíkur sem stendur yfir þessa dagana. Dagur Kjartansson (1455) hafði svart gegn Guðmundi Kristni Lee (1496). 26… d3! 27. Bxd3 Bd4+ 28. Ka2 Hxb3 29. cxb3 Bxa1 30. Kxa1 Dxa3+ 31. Kb1 Dxb3+ 32. Kc1 Dxd3 33. Dxd3 og hvítur gafst upp um leið. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Strípun og innkast. Norður ♠K65 ♥D1083 ♦KG7 ♣Á42 Vestur Austur ♠74 ♠2 ♥5 ♥KG9764 ♦96543 ♦D1082 ♣KG963 ♣D10 Suður ♠ÁDG10983 ♥Á2 ♦Á ♣875 Suður spilar 6♠. Norður vekur á Standard-laufi og austur stekkur hindrandi í 2♥. En á suður bítur engin hindrun og hann stýr- ir sögnum vasklega í spaðaslemmu. Út- spilið kemur ekki á óvart – hjarta- fimma. Ekki þarf að kveljast lengi yfir fyrsta slagnum, en það getur tekið tíma að teikna upp lokastöðuna. Von sagnhafa liggur í því að austur sé með ♦D, en þá ætti að vera hægt að senda hann inn í lokin og fá sendingu upp í tígulgaff- alinn. Skiptinguna þarf þó að lesa. Suður tekur öll trompin og ♦Á. Í endastöðunni á blindur ♥D, ♦KG og ♣Á. Heima á sagnhafi hjartahund og þrjú lauf. Nú þarf að túlka afköstin. Valdi austur tígulinn ennþá er hann kominn niður á ♥K blankan og eitt lauf. Þá er laufið tekið af honum með ásnum og ♥D spilað. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Fátt jafnast á við samræður við þann sem margt veit, en ber um leið virðingu fyrir skoðunum annarra. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú vilt gera þér dagamun og þá er alltaf skemmtilegra að hafa fleiri með í för. Ýmislegt bendir til þess að gamall draumur þinn muni rætast. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Hætt er við að þú bíðir lægri hlut ef þú reynir að standa uppi í hárinu á þeim sem eru hærra settir. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það er hreint furðulegt hvað maður getur ef viljinn er fyrir hendi. Hvernig væri að velta fyrir sér aðferð- um til þess að bæta ónæmiskerfið? (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú hefur ekkert upp úr því að við- urkenna ekki valdsvið yfirmanna þinna. Sýndu drengskap og taktu forystuna fyrir félögum þínum. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Allt sem viðkemur fjármunum og reiðufé er í óvissu í dag. Að taka áhættu í einhverju sem viðkemur tjá- skiptum er snjallara en það kann að virðast í fyrstu. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þótt þér takist ekki að breyta skoðunum annarra er alveg öruggt að málflutningur þinn fellur í góðan jarð- veg. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það eru miklir umbreyt- ingatímar og þú færð tækifæri til að öðlast mikla reynslu ef þú heldur rétt á spilunum. Láttu neikvæðni annarra ekki draga úr þér. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Hættu að bíða eftir því að aðrir geri hlutina. Taktu þér tíma til þess að fara í gegnum málin og finna lausn á þeim. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þér hefur tekist með hug- kvæmni og lagni að koma ár þinni vel fyrir borð. Líttu á björtu hliðina á mál- unum og þá mun þér farast viðfangs- efnið vel úr hendi. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Nú verður ekki lengur hjá því komist að horfast í augu við stað- reyndir. En þolinmæðin þrautir vinnur allar og það mun sannast í þessu tilviki. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Nú er kominn tími til að fara út, hitta skemmtilegt fólk eða finna sér nýtt áhugamál. Hlátur læknar og það er kraftur í tárum. Stjörnuspá 12. október 1683 Sigurður Snorrason böðull fannst látinn í læk á Hvalfjarð- arströnd. Jón Hreggviðsson bóndi var grunaður um að hafa myrt Sigurð og var dæmdur fyrir það á Saurbæj- arþingi 5. nóvember. Jón komst af landi brott og var sýknaður í Hæstarétti árið 1715. Hann er ein lyk- ilpersónan í Íslandsklukkunni. 12. október 1905 Verzlunarskóli Reykjavíkur (nú Verzlunarskóli Íslands) tók til starfa. Honum var ætl- að að búa unga menn undir verslunar- og viðskiptastörf. Fyrsta veturinn voru 47 nem- endur í skólanum en nú eru þeir á annað þúsund. 12. október 1918 Katla gaus eftir 58 ára hlé. „Ægilegur gufustrókur teygði sig lengra og lengra upp að fjallabaki og loks hljóp jökull- inn með eldgangi miklum, vatnsflóði og jöklaburði fram yfir Mýrdalssand til sjávar,“ sagði í lýsingu Gísla Sveins- sonar sýslumanns. Gosið stóð í þrjár vikur. 12. október 1985 Vatnableikja, sú stærsta sem veiðst hafði hér á landi, fékkst í net í Skorradalsvatni í Borg- arfirði. Bleikjan vó 22 pund og var 87,5 sentímetra löng. 12. október 2000 Hæstiréttur sýknaði ríkissjóð af skaðabótakröfu Kios Briggs fyrir að hafa setið í gæslu- varðhaldi í 263 daga vegna gruns um smygl á fíkniefnum til landsins. Ári áður var Kio sýknaður í Hæstarétti af ákæru fyrir smyglið. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … HÚSVÍKINGURINN Arnar Guðmundsson, sem er 45 ára í dag, heldur upp á afmælið með Nor- egsferð síðar í mánuðinum. Þar ætlar hann með félögum sínum, sem allir eru vanar skyttur, að skjóta krónhirti. „Ég hlakka mikið til þessarar ferðar enda mikið í veiðiskap. Er svolítið í sjó- stangveiði og fer á gæs á haustin. Svo styttist í rjúpuna, þar sem ég fer gjarnan upp í Mývatns- sveit eða austur í Öxarfjörð.“ Arnar er kjötiðnaðarmaður og starfar sem verkstjóri pökkunar og lögunar í vinnslustöð Norðlenska á Húsavík. „Ég byrjaði í kjötiðninni árið 1981. Hef reyndar einnig farið til sjós og starfað í verslun en sný alltaf aftur í fagið,“ segir Arnar sem bætir við að skyldan kalli sig til starfa á afmælisdaginn eins og í annan tíma. Haustslátrun sauðfjár hjá Norðlenska standi nú sem hæst og í framhaldinu hefjist verkun á Húsavíkurhangikjötinu rómaða. Verkun á súrmetinu kemur í fram- haldinu. „Þetta er allt í fastri rútínu hér en starfið er eigi að síður afar fjölbreytt,“ segir Arnar. Hann er Þingeyingur og Strandamaður að ættum en innfæddur Húsvíkingur, kvæntur Guðrúnu Halldóru Jó- hannsdóttur og eiga þau tvær uppkomnar dætur. sbs@mbl.is Arnar Guðmundsson á Húsavík er 45 ára Krónhirtir og kjötiðn Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.