Morgunblaðið - 12.10.2009, Síða 23
GUÐBJÖRG Hlíf Pálsdóttir
myndhöggvari sýnir verk sín í
Listasal Saltfisksseturs. Guð-
björg á að baki danskennara-
nám við The Imperial Society
of Teachers of Dancing á Eng-
landi og nám við tækniteiknun
í Teiknaraskóla Reykjavíkur.
Þá nam hún einnig við Mynd-
listaskóla Reykjavíkur og
Myndlista- og handíðaskóla Ís-
lands, var þar í skúlptúrdeild.
Þetta er fimmta einkasýning Guðbjargar en hún
hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýninga. Guð-
björg hefur áður sýnt í Saltfiskssetrinu.
Sýningin stendur til 24. október og opið alla
daga frá kl. 11-18.
Myndlist
Sýnir öðru sinni
í Saltfiskssetri
Verk á sýningu
Guðbjargar.
Menning 23FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2009
Fyrst fannst mér ég
vera svolítil diskó-
barbie en svo fór þetta að
virka vel …27
»
ÓLAFUR Kjartan Sigurðarson
barítónsöngvari var mánudaginn sl.
útnefndur besti söngvarinn við óp-
eruna í Saarbrücken, Staatstheater í
Saarbrücken, en auk hans var leik-
arinn George Mitterstieler heiðr-
aður fyrir sín störf. Ólafur hefur ver-
ið fastráðinn í rúmt ár hjá óperunni.
Ólafur Kjartan er 41 árs gamall,
nam við Söngskólann í Reykjavík og
síðar Royal Academy of Music í
London og Royal Scottish Academy
of Music and Drama í Glasgow og
þaðan lauk hann mastersgráðu í óp-
erusöng sumarið 1998.
Ólafur var fastráðinn söngvari við
Íslensku óperuna 2001-2004 og með-
al hlutverka hans þar voru Scarpia,
Macbeth, Papageno, tveir Fígaróar
(Rossini og Mozart), Schaunard og
Tarquinius.
Ólafur Kjartan hefur sungið ærið
mörg óperuhlutverk að auki og má
þar nefna Escamillo í Carmen, Sulp-
ice í Dóttur herdeildarinnar, Bartolo
í Rakaranum frá Sevilla hjá British
Youth Opera og Garibaldo í Rodel-
inda hjá Glyndebourne Touring
Opera. Þess má einnig geta að Ólaf-
ur var útnefndur besti flytjandi árs-
ins hjá Opera Holland Park árið
2006 en hann vann stórsigra á því
óperusviði. Og nú bætist enn ein rós-
in í hnappagatið hjá honum.
Ólafur
heiðraður
Kjörinn besti
söngvari óperunn-
ar í Saarbrücken
Ólafur Kjartan Einhver besti barí-
tónsöngvari Íslendinga.
SJÓNVARPSDEILD Warner Brot-
hers hyggst blása lífi í góðkunningja
okkar Íslendinga úr sápuóperunni
Dallas. Reyndar
vinnur annað fyr-
irtæki einnig að
endurkomu Dall-
as en í formi
kvikmyndar,
New Regency,
sem heyrir undir
Twentieth Cent-
ury Fox.
Warner gæti
þó orðið fyrra til
að vinna úr sápunni góðu því til
stendur að gera framhaldshætti
Dallas fyrir sjónvarpsstöðina TNT.
Sú syrpa mun fjalla um afkvæmi
J.R. Ewing og eiginkonu hans Sue
Ellen, John Ross, og ættleiddan son
Bobby og Pam Ewing, Christopher.
Leikarar úr Dallas, þau Larry Hag-
man (J.R.), Linda Gray (Sue Ellen)
og Patrick Duffy (Bobby), munu
hafa ritað undir samninga um að
leika í þáttunum nýju ef af gerð
þeirra verður.
Fyrsta þáttaröð Dallas var sýnd
árið 1978 og sú síðasta árið 1991.
Þættirnir hafa verið þýddir á 67
tungumál og sýndir í yfir 90 löndum.
Ný kynslóð
í Dallas
Joðerr Larry
Hagman sem J.R.
KRISTÍN Dagmar Jóhann-
esdóttir og Klara Þórhalls-
dóttir fjalla um sjónlistahátíð-
ina Sequences í hádegis-
fyrirlestri Listaháskóla
Íslands í Laugarnesi í dag kl.
12.30. Sequences verður haldin
í fjórða sinn dagana 30. októ-
ber til 7. nóvember.
Á hátíðinni er lögð megin-
áhersla á tímatengda myndlist,
t.d. gjörningalist, myndbanda-
list, hljóðlist og samruna eða samvinnu við aðrar
listgreinar. Í ár verður megináhersla lögð á gjörn-
ingalist og sviðslistir. Í fyrirlestrinum verða
helstu dagskrárliðir hátíðarinnar kynntir og
fjallað um hugmyndina að baki Sequences.
Fyrirlestur
Hátíðin Sequences
kynnt í LHÍ
Pallíettuverk á
Sequences 2008.
RÍKHARÐUR Valtingojer og
Zdenek Patak opnuðu í fyrra-
dag sýningar á verkum sínum í
sýningarsal félagsins Íslensk
grafík í Hafnarhúsinu,
Tryggvagötu 17, hafnarmegin.
Ríkharður sýnir nýjar stein-
þrykksmyndir, litógrafíu, og
sýning Zdeneks, Steinn og
fjall, inniheldur stórar teikn-
ingar þar sem mótífið er lands-
lag. Báðir listamennirnir vinna
og búa á Stöðvarfirði en Ríkharður rekur þar
Grafíksetrið.
Sýningarsalur félagsins Íslensk grafík er opinn
f́rá fimmtudegi til sunnudags, kl. 14 - 18. Aðgang-
ur er ókeypis.
Myndlist
Steinþrykk, steinn
og fjall í Í.G.
Ríkharður vinnur
verk í stein.
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@mbl.is
LJÓÐVELDIÐ Ísland heitir ný ljóðabók eftir
Sindra Freysson. Undirtitill hennar er 65 ár í 66
erindum við þig. „Það má segja að þetta sé ljóða-
annáll,“ segir Sindri. „Ég yrki um hvert einasta
ár frá 1944 til 2009 og sæki innblástur í það sem
hæst bar á hverjum tíma. Ljóðveldið er í raun
nútímatilbrigði við Völuspá að því leyti að bókin
rekur sögu ákveðins heims frá tilurð hans til
Ragnaraka. Þetta er hröð, hrá og ómstríð bók og
vonandi líka hraðétin. Í henni er vaxandi þungi
og þegar nær dregur nútímanum, sérstaklega
eftir 2000 til núsins, þá tvíeflist þessi textafoss og
verður steraknúinn, eins og þegar Bruce Banner
breytist í Hulk og fer að rústa jeppum.“
Mikil rannsóknarvinna
Sindri segir þó nokkra rannsóknarvinnu liggja
að baki verkinu sem varð til upp úr hugleiðingum
hans um bankahrunið. „Strax eftir hrunið fór ég
að velta því fyrir mér hvernig ég gæti brugðist
við og komið öllu því sem var að gerjast innra
með mér í orð og skapað eitthvað sem væri
stærra og umfangsmeira en blaðagrein. Sam-
keppni um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guð-
mundssonar var auglýst í apríl og þá var ég bú-
inn að setja niður einhverja punkta. Ég hugsaði
með mér að í kreppu væri ekki slæm hugmynd
að leggja til atlögu við verðlaunafé. Ég settist
niður um mánaðamótin apríl-maí og byrjaði að
skrifa og vann rannsóknarvinnu jöfnum höndum.
Þegar skilafrestur í samkeppninni rann út 1. júní
átti ég eftir að skrifa um síðustu sjö árin, ár
einkavæðingar bankanna, græðgina og hrunið.
Það var ekki um annað að ræða en halda áfram
að skilgreina og skilja þessa 21. öld þannig að ég
lauk ekki við handritið fyrr en seinnipartinn í
júní. En þá var verkinu líka lokið. Ég hef varla
hnikað til einu orði eftir að ég kláraði það.“
Spegill fyrir þjóðina
Er byltingarhugsun í þessu verki?
„Í þessari bók set ég fram rammpólitíska
sögusýn sem ég held að stuði marga en aðrir
muni geta tekið heilshugar undir. Ég held að
þarna sé afhelgun lykilþáttur. Ég er að reyna að
knésetja þjóðrembu og alls kyns goðsagnir sem
við Íslendingar höfum samið um okkur sjálf sem
þjóð og einstaklinga. Við höfum haldið því fram
að við séum nokkurs konar ofurmenni sem séu
einstaklega hæf til að kenna öðrum þjóðum
hvernig ætti að stunda viðskipti. Við höfum látið
eins og við séum viti á norðurhjara fyrir heims-
byggðina. Það er vitanlega reginfirra. Dramb,
hroki og sjálfumgleði eru, auk græðginnar, á
meðal helstu orsaka þeirra hörmunga sem við
okkur blasa. Stóra spurningin er hins vegar
hvort þessir lestir séu sjúkdómur þjóðarinnar,
eða aðeins sjúkdómseinkenni sem eiga rætur að
rekja til miklu djúpstæðari og alvarlegri meina.
Jafnframt því að vera krónika reynir Ljóð-
veldið að bregða upp spegli fyrir þjóðina og jafn-
vel að krefja ákveðna einstaklinga um að axla
ábyrgð á gjörðum sínum. Það hefur raunar verið
makalaust að horfa á lygafimleika glæfrafurst-
anna eftir hrunið. Sjálfsréttlætingin er á svo háu
stigi að maður skynjar að hún er samgróin þeim,
hugsanlega sjálft bindiefnið. Þeir virðast óttast
að ef þeir gangist við einhverri ábyrgð hrynji öll
sjálfsmynd þeirra. Þá komi í ljós þrælskeikul
dvergmenni sem hafi staðið uppi á engu nema
stökkpalli hroka síns árum saman.
Ég held að við getum gefið upp alla von um að
þeir iðrist gjörða sinna í verki, því að önnur form
iðrunar eru yfirleitt einskis virði, og verðum þess
í stað að láta þá axla ábyrgðina með fulltingi lög-
gæslu og dómstóla. Sumpart er þó erfitt að álasa
górillum fyrir stjórnlausa fíkn í banana, en það
verður að gera miklu strangari kröfur til stjórn-
málamannanna sem hleyptu górillunum úr búri
sínu og leyfðu þeim að breyta öllu umhverfinu í
frumskóg. Ákveðnir pólitíkusar bera þyngstu
ábyrgðina á að hörmulega er komið fyrir landi og
þjóð og þeirra er ævarandi skömmin.“
Skert fullveldi
Á bókarkápu segir að þú bjóðir lesendum í
fleygiferð gegnum koldimm göngin frá upphafi
lýðveldisins til loka þess. Er komið að lokum lýð-
veldis á Íslandi?
„Nú er talað um nauðsyn þess að semja nýja
stjórnarskrá. Í lagalegu samhengi er það þannig
að hver ný stjórnarskrá getur af sér nýtt lýðveldi
eins og sjá má til dæmis ef við lítum til Frakka.
Þeir hafa stofnað fimm lýðveldi á rúmlega 200
árum, hvert og eitt í kjölfar dramatískra inn-
gripa í sögu þeirra. Ég held að það sé óhætt að
segja að Hrunið uppfylli það skilyrði að vera
dramatískt inngrip í sögu Íslands. Fullveldis-
afsal bíður okkar síðan með inngöngu í ESB, sem
hefur yfirþjóðlegt vald í mörgum mikilsverðum
málum. Að auki erum við í dag komin upp á náð
og miskunn lánardrottna okkar, og þá aðallega
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Bretlands, sem er
ríki sem þjáist af stórveldakomplexum án inni-
stæðu.
Hrunið og afleiðingar þess hafa skert fullveldi
okkar svo mjög að það er kannski í reynd aðeins í
orði kveðnu, nánast óskhyggja eða skáldskapur.
Lýðveldið frá 1944 heyrir nú sögunni til.“
Rammpólitísk sögusýn
Ný ljóðabók er komin út eftir Sindra Freysson Yrkir um árin frá
1944 til 2009 Veltir því fyrir sér hvort fullveldið sé óskhyggja
Morgunblaðið/Kristinn
Sindri Freysson „Ég er að reyna að knésetja þjóðrembu og alls kyns goðsagnir.“
SINDRI Freysson fæddist 23. júlí 1970. Hann nam heimspeki og bókmennta-
fræði við Háskóla Íslands. Sindri hóf ritstörf á unglingsaldri og birtust smásög-
ur og ljóð eftir hann í blöðum og tímaritum. Skáldsaga hans Augun í bænum
hlaut Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness 1998. Þá var ljóðabókin Harði
kjarninn (njósnir um eigið líf) tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna ár-
ið 2000. Ljóð Sindra hafa verið þýdd yfir á fjölda tungumála, m.a. ensku,
frönsku, þýsku, grísku og finnsku. Í ljóðabókinni (M)orð og myndir sem kom út
fyrir þremur árum fjallar Sindri um dauðann frá ýmsum hliðum. Til hliðar má
sjá mynd af bókinni Ljóðveldið Ísland en kápan sýnir íslenska fánann og er hún skreytt myndum af
viðburðum og táknum úr sögunni sem skáldið fjallar um.
Verðlaunahöfundurinn