Morgunblaðið - 12.10.2009, Side 29
Yfirlit yfir nýútkomnar íslenskar
plötur sem eiga það sameiginlegt að
standa utan við meginstrauminn.
Synir syndanna –
Hvernig eru himnar?
bbbnn
Hér höfum við
ellefu laga upp-
gjör við fíkniefna-
djöfulinn, takk
fyrir. Af þeim
sökum er yf-
irbragðið nokkuð
gráleitt og lögin eru leidd af mel-
ankólískum píanóleik og kassagít-
arstrokum. Að baki er auðheyr-
anlegur metnaður en söngurinn
dregur verkið nokkuð niður og
stundum eru textar fullbarnalegir.
Lagasmíðar eru melódískar, með
„hefðbundnu“ popprokkssniði en
halda flestallar glettilega vel sjó.
Koi – Sum of all thing
bbbmn
Talandi um metn-
að, þessi hlaðna
plata virðist hafa
dottið af himnum
ofan en að henni
stendur Kjartan
Orri Ingvason, og
útskýrir það nafnið. Tónlistin er
íburðarmikið, kántrískotið myrkra-
ballöðupopp sem kallar fram nöfn
eins og Neil Young, Nick Cave og
The Band. Strengir, blástur, stálgít-
arar og ýmislegt fleira byggir undir
volduga hljóðmynd. Veiki bletturinn
felst í söngnum og sum lögin fljóta
fulltilþrifalítið hjá en allt í allt er
þetta tilkomumikill frumburður.
Bjarni Þór – Ánþínlegt
bbmnn
Innihald þessarar plötu hins ágæta
söngvara Bjarna Þórs, sem er jafn-
vígur á popp og óperur, er um margt
jafn einkennilegt
og titillinn. Stíla-
flökt er mikið,
farið er úr ein-
földum og þekki-
legum ást-
arballöðum yfir í
reiðilegt hetjurokk þar sem útrás-
arvíkingum (nema hvað) er úthúðað.
„Dómsdagur“ er þannig úr sér geng-
ið testósterónrokk en strax á eftir
kemur hið undurfagra „Bæn“. Mis-
jafnt eins og gengur en ósvikin ein-
lægnin heillar engu að síður
Skelkur í bringu – Húðlitað klám
bbbnn
Undirmerki Kimi
Records, Brak,
hefur þann göf-
uga tilgang að
dæla út efni,
hratt og vel og
vera ekki með
pjatt eða pjátur. Þessi plata Skelks í
bringu smellpassar við þá hug-
myndafræði; reiðileysislegt, grall-
aralegt og lágfitlslegt pönkrokk með
súrrealískum, flippuðum textum.
Styrkjandi kæruleysi og fyrirlitning
gagnvart því sem má og ekki má eru
kostirnir hér og siglir þetta plötunni
farsællega í höfn.
Ljósvaki – Ljósvaki EP
bbbmn
Leifur Eiríksson
heillaði Músíktil-
raunagesti upp
úr skónum með
ofureinlægri
framgöngu þar
sem sungið var
um ást, frið og möguleika mann-
skepnunnar á að hefja sig upp úr
grámyglu hversdagsleikans. Raf-
popp Ljósvaka er alúðlegt í allri út-
færslu, nokkurs konar Sri-Chinmoy-
popp. „Scraping the Sky“ er smell-
urinn en „Englalagið“ er ekki síðra,
minnir á fallegustu lög Gil Scott-
Heron og Brian Jackson.
Gone Postal –
In the Depths of Despair
bbbmn
Gone Postal hefur
lengi verið nokk-
urs konar Motör-
head íslensku
dauðarokkssen-
unnar, kýs grúv
fremur en tækni-
æfingar. Hljómur plötunnar er stór-
góður og æði og ofsi ungviðisins lek-
ur hér af hverjum tón. Punktar frá
hinum og þessum dauðarokks-
hetjum er fléttað inn í einkar sann-
færandi keyrslu, og allar misfellur
eru jafnaðar út með tilfinnanlegri –
og vel rokkandi – ástríðu.
Hitakútur – Ástin míní
bnnnn
Hér höfum við venjubundið popp-
rokk sem hefur alveg furðulega lítið
við sig. Þegar platan er ca hálfnuð
klórar maður sér
í hausnum. Lögin
eru stirðbusaleg,
söngurinn frá-
hrindandi og
textarnir ófyndn-
ir með öllu. Það
eru stöku undantekningar („Lifa“,
„Gefið mig allan“) en í raun hefði
betur verið heima setið en af stað
farið, svei mér þá.
Eiki Einars –
… ég er með hugmynd!
bbbbn
Eiki þessi er
(var?) formaður
íslensks Bítla-
klúbbs en stígur
hér fram með
nokk kerskn-
islega og bara
býsna skemmtilega sólóplötu. Full-
komið dæmi um hversu gefandi það
getur verið að slægjast eftir gull-
molum í grasrótinni. Lögin fara
sniðuglega á svig við hefðbundna
dægurlagabyggingu, sækja grunn-
inn til gullaldar dægurlagarokksins,
sjöunda áratugarins, og halda þann-
ig athyglinni út í gegn. Bráðvel
heppnuð plata.
Grallarar „...reyðuleysilegt, grallaralegt og lágfitlslegt pönkrokk með súr-
realískum, flippuðum textum,“ segir m.a. um plötu Skelks í bringu.
Úr staflanum
Arnar Eggert Thoroddsen | arnart@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 2009
LEIKSTJÓRINN Bryan Singer seg-
ir ekki útilokað að hann leikstýri
enn einni kvikmyndinni um ofur-
hetjurnar X-Men. Singer hefur til
þessa gert tvær myndir um hetjurn-
ar, X-Men og X2: X-Men United en
afþakkaði boð um að leikstýra
þeirri þriðju, ákvað að leikstýra
heldur Superman Returns. Það var
Brett Ratner sem tók að sér að leik-
stýra þriðju myndinni, X-Men: The
Last Stand og Gavin Hood tók svo
við kyndlinum og gerði X-Men
Origins: Wolverine. Singer segist
afskaplega ánægður með leikarann
Hugh Jackman, sem leikið hefur
Wolverine í öllum myndunum. Þá
þykir Singer kvikmyndirnar um X-
mennina segja svo margt um eðli
mannsins, umburðarlyndi og for-
dóma. Singer hefur þó gert fleira
en hasarhetjumyndir, leikstýrði
The Usual Suspects fyrir einum 14
árum en hún þótti afbragðsgóð.
Reuters
Wolverine og Mystique Hugh Jackman og Rebecca Romjin-Stamos.
Fimmta kvikmyndin um
X-Men á teikniborðinu
EINN söngvara Boyzone, Stephen
Gately, er látinn, aðeins 33 ára að
aldri. Gately lést á Mallorca þar
sem hann var í fríi. Gately mun
hafa fengið sér nokkur glös af
áfengi áður en hann lést. Hann
lagðist til hvílu og lést í svefni.
Boyzone var afar vinsæl á ár-
unum 1994-2000, átti lög í fyrsta
sæti breskra vinsældalista sex sinn-
um á þeim tíma. Sveitin lagði upp
laupana árið 2000 þegar Ronan
Keating ákvað að hefja sólóferil.
Sveitin kom þó saman siíar við valin
tækifæri.
Reuters
Stephen Gatley Lést í svefni að því
er nýjustu fréttir herma.
Stephen
Gately látinn
AÐDÁENDUR knattspyrnugoðsins
David Beckham geta varpað önd-
inni léttar því ljóst er orðið að
kappinn hefur ekki sagt skilið við
nærfatabransann. Fréttir bárust
fyrir örfáum dögum af því að annað
knattspyrnugoð, Cristiano Ron-
aldo, hefði tekið að sér að sýna nær-
buxur fyrir tískurisann Armani og
þá leyst Beckham af sem nærfata-
fyrirsæta fyrirtækisins úr röðum
knattspyrnumanna. Beckham hefur
nú kunngert að hann ætli að ljá
nærfötum nafn sitt og leitar rétta
framleiðandans. Þykir líklegt að
Beckham-nærfatalínan líti dagsins
ljós næsta vor.
Reuters
Beckham Hefur áhuga á nærfötum.
Beckham í
brækurnar
FRÁ LEIK-
STJÓRA 40
YEAR OLD
VIRGIN OG
KNOCKED UP.
STÓRKOSTLEG
GRÍNMYND
MEÐ ÞEIM
ADAM
SANDLER, SETH
ROGEN OG
ERIC BANA.
BYGGÐ Á
SANNSÖGU-
LEGUM
ATBURÐUM
ÓHUGNALEG MYND
ÞAR SEM ÓÚTSKÝRÐIR
HLUTIR ÁTTU SÉR STAÐ Í
GÖMLU ÚTFARARHEIMILI
SUMA HLUTI ER EKKI
HÆGT AÐ ÚTSKÝRA
ATH. ALLS EKKI
FYRIR VIÐKVÆMA
Giacomo Puccini
TOSCA
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á WWW.OPERUBIO.IS
ENDURSÝND Á MIÐVIKUDAG KL. 18.30
ÖRFÁIR LAUSIR MIÐAR!
SÝND Í KRINGLUNNI
HHHH
HULDA GEIRSDÓTTIR, RÁS 2
FRÁ FRAMLEIÐANDANUM
PETER JACKSON
KEMUR EIN BESTA MYND
ÞESSA ÁRS!
SÝND Í KRINGLUNNI
A REACH FOR EXCELLENCE THAT TAKES
BIG RISKS.“
100/100 – SAN FRANCISCO CHRONICLE
„IT’S THE WORK OF A MAJOR TALENT.“
88/100 - ROLLING STONES.
„CAREFULLY WRITTEN DIALOGUE AND
CAREFULLY PLACED SUPPORTING PER-
FORMANCES --
AND IT’S ABOUT SOMETHING.“
88/100 – CHICAGO SUN-TIMES
BÍÓ GESTIR TJÁ SIG Á FACEBOOK
- Æðisleg!
- Algjört meistarverk!!
- Myndin er geeðveik! :D
- sá myndina þína í dag þú er idolið mitt sveppi
- Þetta er geðveik mynd!!!! Allir að fara á hana
- Langbesta myndin líka - Sveppi á erindi til okkar allra
- hún er geeeðveik
- Snillddddddd
- Besta fjölskyldumyndin síðan MEÐ ALLT Á HREINU
- Hún er jafn fyndin fyrir fullorðna!
- Strákurinn minn er enn með stjörnur í augunum
- Krakkarnir tala ekki um annað!
YFIR 20.000 GESTIR FYRSTU 2 VIKURNAR
VINSÆLASTA
MYNDIN AÐRA
VIKUNA Í RÖÐ
Á ÍSLANDI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA
/ SELFOSSI
FAME kl. 8 - 10:20 L
JENNIFER'S BODY kl. 8 16
DISTRICT 9 kl. 10:20 16
/ KEFLAVÍK
FAME kl. 8 - 10:20 L
ORPHAN kl. 8 - 10:30 16
/ AKUREYRI
kl. 6 L
kl. 8 - 10:20 L
kl. 5:40 12
kl. 8 L
kl. 10:20 12