Morgunblaðið - 18.10.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.10.2009, Blaðsíða 1
1 8. O K T Ó B E R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 283. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is BÍLAR»4 NÍÐ Á NETINU»8 Hávær umræða hefur verið undanfarið um aðgerðir gegn nafnlausu níði á net- inu. Menntamálaráðherra telur að um- ræðumenning geti breyst verði frum- varp um fjölmiðla að lögum. Í því er skerpt á ábyrgðarreglum vegna nafn- lausra ummæla á vefmiðlum. Lögregla fær af og til kærur vegna nafnlausra ærumeiðinga á netinu. Þau mál virðast hins vegar alltaf daga uppi í kerfinu. Eftirminnilegasta málið er án efa hið svonefnda Lúkasarmál. Í því sluppu hinir nafnlausu en hinir eiga enn á hættu að verða dregnir fyrir dóm. Umræðan um nafnleysið Bíllinn hefur lengi spilað stórt hlut- verk í lífi Banda- ríkjamanna og þar í landi varð bíllinn almenningsfarar- tæki mörgum ára- tugum fyrr en í öðr- um löndum. En ný könnun markaðs- rannsóknamanna á viðhorfum ungra Bandaríkjamanna bendir til þess að ástin á sjálfrennireiðinni sé að kulna. Hins veg- ar er ekkert lát á bílaáhuga Kínverja. Er bílaástin loks að bila? Á SAMA tíma og íslenskur almenningur horfði steini lostinn á fjármálakerfi þjóðarinnar hrynja, háði lítil fjölskylda stranga baráttu fyrir tilveru sinni á sjúkrahúsi í Frakklandi. Páll Guðmundsson og Auður Kjartansdóttir segja frá því hvernig tilviljanir réðu því að franskir læknar björguðu lífi sonar þeirra, Þorbergs Antons, sem fæddist tveimur mánuðum fyrir tímann með lífshættulegan ofvöxt á öðru lunganu. Í dag er hann hraustur strákur. | 12 Morgunblaðið/Kristinn Eitt ár frá kraftaverki FÁTT bendir til þess að bjart verði yfir bresku efnahagslífi á komandi miss- erum. Gordon Brown forsætis- ráðherra hefur ekki átt sjö dag- ana sæla í emb- ætti, óbeitin á honum og stjórn hans er raunar slík, að þorri manna virðist telja að stjórn íhaldsmanna verði a.m.k. ekki verri. Cameron varkár í tali David Cameron, formaður Íhalds- flokksins, hefur verið fremur varkár í tali, en þó boðaði hann það á lands- fundi Íhaldsflokksins í síðustu viku að stjórn hans myndi einkennast af aðhaldssemi. Þeim fyrirætlunum hefur ekki verið illa tekið, en á hinn bóginn er langur vegur frá að efna- hagstillögur íhaldsmanna hafi hrifið kjósendur með sér, um þær efast margir. Stóra spurningin er þó ekki aðeins sú hvort Cameron og hans knáu sveinar hafi lausnir á takteinum, heldur máske fremur hvort það verði ef til vill um seinan. | 18 Of seint fyrir lausnir? Áfram erfiðleikar í bresku efnahagslífi Aðhaldssemi Lyk- ilorð hjá Cameron. Miðherjinn litríki Martín Palermo hefur gengið í endurnýjun lífdaga að undanförnu, tæplega 36 ára. Fyrst skoraði hann með kollspyrnu af um fjörutíu metra færi í deildarleik með Boca Juniors og síðan skaut hann argentínska landsliðinu langleið- ina á heimsmeistaramótið í Suður- Afríku. Endurkoma „brjálæðings“ Holtagörðum Opið í dag frá kl. 10-18:30 Frábær opnunartilboð! HEILSUKODDAR Verð frá aðeins 6.900,- ALDARMINNING Agnar Klemens Jónsson GLÓSU- BÓKIN MANSTU EFTIR JOÐ ERR OG HINUM ÍSTOKKIÐ INN Í SÖGUBÆKURNAR DAME JUDI DENCH ÓSÁTT VIÐ UNGA LEIKARA SUNNUDAGUR FÓTMENNTIR»6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.