Morgunblaðið - 18.10.2009, Blaðsíða 38
38 Menning
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 2009
Fólk
ið, og urðu þeir að vonum ósáttir sem eytt höfðu
fúlgum fjár í spólurnar.
Haustið 1986 hóf Stöð 2 svo göngu sína en þá
hafði Sjónvarpið hætt sýningum á sápunni. Stöð
2 sá sér leik á borði og hóf sýningar á Dallas og
sýndi allt þar til seinustu þáttaröðinni lauk, að
undanskildu sumrinu 1989, í vetrarlok 1992. Ef-
laust sakna margir þáttanna en að sama skapi
eru margir sem dansa himinlifandi á gröf þeirra.
Olís reddar málunum
Í upphafi árs 1985 birtist í Morgunblaðinu
auglýsing um að þættina væri nú hægt að leigja
á myndbandsspólum á bensínstöðvum Olís og
flykktust aðdáendur að sjálfsögðuút á bens-
ínstöð og fylgdust áfram með Ewing-genginu
fram eftir ári. Þá ákvað Sjónvarpið að hefja sýn-
ingar á þáttunum að nýju, þar sem frá var horf-
HALLDÓR Gylfason leikari er einhver
mesti Dallas-aðdáandi landsins. Hvað
skyldi vera svona heillandi við Dallas?
Halldór svarar því.
„Þetta er bara einn af þessum hlutum
sem erfitt er að útskýra og henda reiður
á hvað það er, það er svo margt. Ætli
það séu ekki fyrst og fremst karakter-
arnir, ef maður á að nefna eitthvað eitt.
Karakterarnir eru svo kristaltærir og
skemmtilegir,“ segir Halldór.
J.R. er nú eitthvert skemmtilegasta
illmenni sjónvarpssögunnar...
„Já, einmitt, og frábærlega leikinn af
Larry Hagman en mesta illmennið í
Dallas er ekki hann heldur leynilöggan
sem hann notar sem heitir Harry
McSween. Lögga sem hann notar til að
planta eiturlyfjum hjá andstæðingum
sínum og svona.“
Samdi lag um Dallas
Halldór var á ellefta ári þegar sýn-
ingar á þáttunum hófust á Íslandi.
Hann segist hafa farið að fylgjast með
þáttunum 12-13 ára.
Varstu háður Dallas?
Halldóri líst ágætlega á þá hug-
mynd að framleiða nýja þætti undir
merkjum Dallas, með syni J.R. og
Bobby sem aðalpersónur, John Ross
og Christopher.
Finnst þér ekkert illa farið með
gömlu þættina að taka upp þráðinn
að nýju?
„Neineinei, það er allt í lagi. Klass-
íkerinn lifir alltaf, það má taka Róm-
eó og Júlíu og setja það upp á nýtt
alltaf,“ svarar Halldór. John Ross og
Christopher hafi ekki verið svo áber-
andi í Dallas en þó minnist hann at-
riðis þar sem strákarnir reyndu með
sér í kafsundi. John Ross vann
Christopher með því að svindla.
„Þannig að karaktereinkennin koma
strax í ljós, hann er sonur föður
síns,“ segir Halldór og hlær eins og
J.R.
„Já, já og vinahópur minn líka. Við vorum
þarna nokkrir strákar í hverfinu, svona tíu gæj-
ar sem horfðum alltaf á þetta og höfðum mikið
gaman af, spáðum og spekúleruðum í karakter-
ana, hvað myndi gerast næst og svo vorum við
að fabúlera alls konar rugl í kringum þetta.“
Hafði Dallas einhver áhrif á þig í leiklistinni
seinna meir?
„Ástæðan fyrir því að ég fór út í leiklist er
Dallas,“ svarar Halldór og
blaðamaður er ekki viss um
hvort honum er alvara.
Klassíkin lifir
Þú hefur verið dá-
lítið sorgmæddur
þegar Dallas lauk?
„Já, það var reið-
arslag, mikið áfall þegar
þetta hætti. Ég samdi
meira að segja lag um
Dallas í menntó. Það
hét „Dallas-lagið“,“
segir Halldór.
Lagið hefur
aldrei ratað á
plötu. Morgunblaðið/Sverrir
Dóri Gylfa Var alveg
óður í Dallas líkt og
vinirnir og samdi lag
um þættina.
„Í maga
mínum eins
og blys“
Pamela Victoria Principal.
HLJÓMSVEITIN Dúkkulísurnar
samdi smellinn „Pamela í Dallas“
um miðjan 9. áratuginn. Er það
magnað raunsæispönk og ógn-
vekjandi lýsing á vandræðum
óléttrar unglingsstúlku sem
dreymir um hið ljúfa líf Pamelu í
Dallas. Hér kemur texti lagsins:
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sýningum á sápuóperunni Dallas lauk hérá landi árið 1992, um ári eftir að þeimvar hætt í Bandaríkjunum. Dallas ereinhver vinsælasta sápuópera allra
tíma og engin furða að gullgrafarar í Hollywood
ætli nú að gera út á þær vinsældir, ef marka má
nýjustu fréttir, með því að framleiða framhald á
Dallas þar sem synir J.R. og Bobby Ewing
munu takast á, líkt og feður þeirra gerðu um
árabil. Sápuópera þessi naut gríðarlegra vin-
sælda á Íslandi sem og víðar og gerði fólk sér
meira segja ferð út á bensínstöðvar Olís um tíma
til að verða sér út um þættina á myndbands-
spólum.
1981-1992
Dallas hóf göngu sína í Sjónvarpinu 6. maí
1981 og munu þá fáir hafa verið á ferli utandyra,
slík var eftirvæntingin, enda hafði mikið verið
fjallað um ágæti þessara þátta í fjölmiðlum. Þá
vakti einnig athygli árvekni RÚV í þessu sam-
bandi, því sú ágæta stofnun þótti ekki hafa
fylgst vel með því sjónvarpsefni sem vinsælt var
erlendis. Sjónvarpið ætlaði í upphafi aðeins að
sýna 29 þætti en vinsældir þáttanna urðu slíkar
að á endanum sýndi RÚV um 120 þætti.
Ákveðið var að hætta sýningum á þáttunum
árið 1984 og voru Dallas-aðdáendur að vonum
ekki sáttir, eins og má sjá af skrifum í Velvak-
anda frá þeim tíma. Aðdáendur fóru jafnvel
hamförum í skrifum sínum um Dallas.
Manstu eftir ...
Ewing-bræður og frúr Bobby Ewing með eiginkonunni Pamelu og J.R. Ewing með Sue Ellen.
Í DALLAS segir af hinni vellauð-
ugu Ewing-fjölskyldu í Texas í
Bandaríkjunum og átökum henn-
ar. Fjölskyldan býr á búgarð-
inum Southfork og hlýtur að-
alpersóna þáttanna að teljast
John Ross Ewing (að öðrum
ólöstuðum) kallaður J.R., for-
stjóri fjölskyldufyrirtækisins sem
svífst einskis í viðskiptum og
svíkur þá sem næst honum
standa án þess að hika. Leikarinn
Larry Hagman túlkaði J.R. með
miklum tilþrifum í þáttunum.
Yngri bróðir J.R., Bobby, er
„góði gæinn“ í fjölskyldunni,
réttsýnn mjög og þarf ítrekað að
gæta þess að stóri bróðir fari
ekki yfir strikið. Faðir þeirra,
Jock Ewing, stofnandi fjölskyldu-
fyrirtækisins Ewing Oil, lét syni
að springa af forvitni. Eftir-
minnilegasti endirinn er án efa á
þættinum Who Shot J.R.? en
hann endaði á því að J.R. var
skotinn og fékk áhorfandinn ekki
að vita hver var að verki. Þá er
einnig eftirminnilegt að Bobby
var látinn deyja í einum þætt-
inum (leikarinn Patrick Duffy
vildi ekki vera í þáttunum lengur
en sneri aftur þegar honum var
boðin launahækkun) en vaknaði
síðar til lífsins. Áhorf á þættina
minnkaði með brotthvarfi Duffy
og því urðu framleiðendur að
lokka hann aftur í þá. Andlát
Bobby var útskýrt með þeim
hætti að eiginkonu hans hefði
dreymt það. Dallas endaði á því
að J.R. svipti sig lífi, eða svo var
áhorfendum talin trú um.
um Ungfrú Texas, en Bobby er
Pamelu Barnes, systur erki-
fjanda J.R. í olíubransanum, Cliff
Barnes.
Hver skaut J.R.?
Dallas hóf göngu sína í Banda-
ríkjunum árið 1978 og lauk árið
1991. Dallas er einhver vinsæl-
asta sjónvarpsþáttaröð sem sýnd
hefur verið í Bandaríkjunum og
hefur einnig notið mikilla vin-
sælda víða um heim. Saga þátt-
anna byggir öðru fremur á ráða-
bruggi og valdabaráttu, svikum
og framhjáhaldi. Þá gættu klókir
handritshöfundar þess að láta
hvern þátt enda með einhvers
konar ráðgátu (e. cliffhanger)
þannig að fólk gæti ekki beðið
eftir þeim næsta, væri hreinlega
sína um að stjórna fyrirtækinu
en eiginkona hans, Miss Ellie, sér
um heimilishaldið á Southfork og
stillir til friðar þegar þess gerist
þörf sem er býsna oft. J.R. er
kvæntur hinni drykkfelldu og
óhamingjusömu Sue Ellen, fyrr-
J.R. Var skotinn í einum þáttanna
eins og frægt er orðið.
Græðgi, svik og olía
McSween er mesta illmennið
Fimmtán ára kasólétt
það er fúlt og ógeðslegt
Ég vildi ég væri Pamela í Dallas
Þessi krakki hann er slys
í maga mínum eins og blys
Ég vildi ég væri Pamela í Dallas
En eiga óléttar
rétt eins og ég?
Með ermarnar uppbrettar
í uppvaskið fer
Fulla fíflið stakk svo af
hvað hann heitir hvað um það
Ég vildi ég væri Pamela í Dallas
Hróið fæddist þriðja des
mér fannst krakkinn ekkert spes
Ohh ef ég væri Pamela í Dallas
Gaf svo krakkann ansi heppin
en hún mamma fór á Kleppinn
Ég vildi ég væri Pamela í Dallas
Fimmtán ára kasólétt
það er fúlt og ógeðslegt
Ohh ef ég væri Pamela í Dallas
Ohh ef ég væri Pamela í Dallas
Ohh ef ég væri Pamela í Dallas…
ÚR Velvakanda í
Morgunblaðinu árið
1985. Fólk sá sig knúið
til að senda inn bréf
um Dallas og bréfin
tvö sem hér birtast
eru svör við bréfi
manns sem greinilega
átti myndbandstæki
og var ekki hrifinn af
Dallas, þótti þættirnir
hallærislegir. Deilur
um gæði einstaka
sjónvarpsþáttaraða
eru lítt áberandi í Vel-
vakanda í dag en
áhugaverðar eru þær.