Morgunblaðið - 18.10.2009, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.10.2009, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 2009 – meira fyrir áskrifendur Jólahlaðborð Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Meðal efnis verður : Jólahlaðborð á veitingahúsum. Hvað er annað í boði en jólahlaðborð. Jólahlaðborð heima skemmtilegar uppskriftir. Fallega skreytt jólahlaðborð. Tónleikar og aðrar uppákomur. Ásamt mörgu öðru spennandi efni. Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16.00 mánudaginn 26. október. Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105, kata@mbl.is Morgunblaðið gefur út glæsi- legt sérblað um jólahlaðborð 30. október. Fjöldinn allur af veitingahúsum bjóða upp á jólahlaðborð og sérrétti á aðventunni og mikið í boði fyrir þá sem vilja gera sér glaðan dag á þessum skemmtilega tíma ársins.             ! "#$%& %' ( )  %(*$( +  ,-( ./*0)+*(1 2$ ( *-$ ( *-  ( %! 1 1 *3 4 &*0,#% 5/( ( )  %(*$( 5 "%% (  $ ( + ) *-%' "#$%& 1 %$ $ "5 $,%' ) 6 7%#$ 8 $$-%! 5$ %$ ! $+ 6 9: ;;<<! %5%6 5$ % (=8>-1 $1 OPINBER stjórn- sýsla stendur frammi fyrir miklum áskor- unum. Tekjur ríkisins duga ekki lengur fyrir útgjöldum og leitað er logandi ljósi að leiðum til að brúa fjárlaga- gatið. Augljóst er að verkefnið er ekki einfalt og vanda þarf sérstak- lega vel til verka. Á sama tíma og nauðsyn- legt er að lækka ríkisút- gjöld og afla meiri tekna, verður að gæta þess að skammtíma- sjónarmið ráði ekki ferðinni. Það er til dæmis skammgóður vermir að draga úr kostnaði við forvarnir í heilbrigðismálum á þessu ári ef það veldur stórauknum kostnaði við meðhöndlun sjúk- dóma á næstu árum. Á sama hátt get- ur verið dýrt þegar upp er staðið að fresta eða falla frá verkefnum sem ljóst þykir að muni skila miklum ávinningi, t.d. fjárfesting í rafrænni stjórnsýslu eða framlög til nýsköp- unar. Hér gilda í raun svipuð lögmál og í almennum rekstri fyrirtækja, þótt vissulega séu markmið og for- sendur um margt ólíkar. Við skoðun á útgjöldum ríkisins er skynsamlegt að hafa tvær lykil- spurningar í huga. Fyrri spurningin snýst um tilganginn – í hvaða málefni og verkefni setjum við fjármuni rík- isins? Hin spurningin snýst um út- komuna – hvað fáum við fyrir pen- ingana? Ef fjármunum er ráðstafað til verkefna í þágu almennings og þau verkefni eru leyst á skilvirkan hátt er ráðstöfun fjármuna skynsamleg, ann- ars ekki. Þessa hugsun er best að út- skýra á myndrænan hátt (sjá mynd 1). Það ætti ekki að vera markmið í sjálfu sér að minnka ríkisútgjöld ef peningum ríkisins er beint í verðug og arðbær verkefni. Lykilatriðið er að tryggja skynsamlega forgangs- röðun og skilvirkni í öllu kerfinu og gæta þess að fjármunum landsmanna sé vel varið. Í dag er þannig augljóst að fjármálakerfið átti að fá meira að- hald frá hinu opinbera á sínum tíma. Niðurskurður á röngum stöðum í dag getur því hugsanlega leitt til marg- faldra útgjalda síðar. Fjölmörg dæmi eru til um verkefni sem hafa reynst of dýr og jafnvel óþörf. Eins má segja að kostnaður við svokölluð gæluverk- efni, sem og öll óskilvirkni og sóun, séu á engan hátt ásættanleg. Sem betur fer eru líka til fjölmörg dæmi hjá opinberum aðilum um markvissa og árangursríka vinnu sem hefur skilað betri rekstri og þjónustu. Umferðarstofa hefur til dæmis náð mjög góðum árangri á undanförnum árum og Ríkisskatt- stjóri hefur unnið markvisst að því að bæta ferli við skattskil og sparað þorra landsmanna þannig mikinn tíma og fyrirhöfn. Nú er áherslan á að lækka ríkisút- gjöld hratt en þá skapast veruleg hætta á að fá einfaldlega aðeins minna af því sama. Skynsamlegra er að horfa ekki eingöngu á kostnaðinn heldur leggja áherslu á betri ríkis- rekstur sem felur í sér heildrænni skoðun hluta; markvissa stefnumót- un, betri verkferli og skýrari ábyrgð og verkaskiptingu innan stjórnsýsl- unnar. Ákveða þarf hvaða verkefnum hið opinbera á að sinna og hvaða verkefni eru betur leyst af öðrum. Um leið er mikilvægt að skoða vel hverju má hætta að sinna og leggja af. Í sinni einföldustu mynd má skoða þetta sem tvo valkosti (sjá mynd 2). Án efa er leið B sú leið sem á að fara. Um það ættu allir að vera sam- Eftir Ingva Þór Elliðason » Á sama tíma og nauðsyn- legt er að lækka ríkisútgjöld og afla meiri tekna verður að gæta þess að skamm- tímasjónarmið ráði ekki för. Ingvi Þór Elliðason Niðurskurður eða mark- vissari nýting fjármuna? Mynd 1. JÓNAS H. Haralz er með orðsend- ingu í Morgunblaðinu 16. október, þar sem hann dregur í efa heilindi Nóbelsverðlaunahafans Joseph Stig- litz. Þótt ég sé ekki sammál öllum við- horfum Stiglitz, þá finnst mér Jónas gerast full djarfur í ummælum sínum. Jónas segir um Stiglitz: „Hér er því ekki á ferðinni óvilhallur fræði- maður. Það er illur leikur að hann skuli nú reyna að hafa afskipti af samvinnu Íslands við Alþjóðagjald- eyrissjóðinn.“ Jónas hefur ekki inni- stæðu fyrir svona dónalegum um- mælum, því að hann opinberar sjálfan sig sem ógagnrýninn stuðn- ingsmann Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (AGS). Joseph Stiglitz hefur árum saman gagnrýnt AGS og flestir telja að sú gagnrýni hafi verið verðskulduð. Hvernig dettur Jónasi í hug að halda því fram, að þar sem Stiglitz hefur gagnrýnt AGS í áratug eða lengur, þá verði hann vanhæfur til að fjalla um viðskipti Íslands við sjóðinn? Ætti hann ekki þvert á móti, að verða hæf- ari til að segja sannleikann um þessa alræmdu stofnun? Jónas H. Haralz ætti að temja sér meiri hógværð og ekki gera atlögu að heiðri viðurkennds fræðimanns. Ís- lendingar þurfa á ráðgjöf að halda í deilum við öflugar stofnanir sem stjórnað er af Evrópskum nýlendu- veldum. AGS og Evrópusambandið eru dæmi um slíkar stofnanir. Það er þakkarvert að viðurkenndir sérfræð- ingar á sviði hagfræði láta sig skipta örlög okkar þjóðar. Menn sem lítið já- kvætt hafa fram að færa, ættu að halda sig til hlés. LOFTUR ALTICE ÞORSTEINSSON, verkfræðingur og vísindakennari. Jónas Haralz sendir Stiglitz kveðju Frá Lofti Altice Þorsteinssyni BRÉF TIL BLAÐSINS UMRÆÐAN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.