Morgunblaðið - 18.10.2009, Side 5

Morgunblaðið - 18.10.2009, Side 5
islandsbanki@islandsbanki.is www.islandsbanki.is Sími 440 4000 Stórt skref í uppbyggingu Íslandsbanka Síðastliðinn fimmtudag var tilkynnt að kröfu- hafar Glitnis munu eignast 95% hlutafjár í Íslandsbanka og ríkið mun eiga 5%. Þessi niður- staða styrkir Íslandsbanka og treystir samstarf bankans við erlendar fjármálastofnanir. Hvaða þýðingu hefur þessi ákvörðun fyrir Íslandsbanka? Á undanförnum mánuðum hafa erlendir sér- fræðingar grandskoðað innviði bankans, stöðu hans og starfsemi. Meðal helstu ráðgjafa skila- nefndar og kröfuhafa í því ferli voru alþjóðlegi fjárfestingabankinn UBS og lögfræðifyrirtækið Morrison & Foerster. Eftir þessa áreiðanleika- könnun var það niðurstaða skilanefndar að eignast hlut í bankanum. Sú ákvörðun sýnir að skilanefndin metur rekstur bankans góðan og hefur trú á framtíð íslensks efnahagslífs. Hverju breytir þetta fyrir bankann? Sú traustsyfirlýsing sem í þessu felst er stórt skref í uppbyggingu bankans og styrkir hlutverk hans sem fjármálastofnunar fyrir einstaklinga og atvinnulífið. Hver verður aðkoma ríkisins að bankanum? Ríkið mun eiga 5% af hlutafé bankans og hafa einn fulltrúa í stjórn. Stjórnvöld munu setja fjár- málakerfinu reglur og halda uppi virku eftirliti með starfseminni. Ríkisvaldið hefur einnig ákveðið að hafa tiltekið fjármagn tiltækt til þess að styðja við bankana ef á þarf að halda. Hvaða áhrif hefur þetta á ríkissjóð? Kostnaður ríkisins vegna fjármögnunar bankans verður tæpum 37 milljörðum króna minni en áður var talið. Bætir breytt eignarhald aðgengi Íslandsbanka að erlendum lánamörkuðum? Það er von bankans að breytt eignarhald muni skapa aukið traust og bætt aðgengi að erlendum bönkum. Mun þessi breyting hafa áhrif á þjónustu við viðskiptavini? Nei. Engar breytingar eru fyrirhugaðar á þjónustu Íslandsbanka. Breytir nýtt eignarhald réttarstöðu viðskiptavina? Nei. Engin breyting verður á stöðu innlánseigenda og í samningnum við ríkið er tekið fram að bankinn mun njóta allra sömu réttinda og aðrar fjármála- stofnanir, óháð eignarhaldi. Hefur nýtt eignarhald áhrif á úrræði bankans fyrir viðskiptavini vegna greiðsluerfiðleika? Nei, viðskiptavinum munu áfram standa til boða öll þau úrræði sem nú eru í boði, jafnt úrræði ríkisins sem bankans. Það eru hagsmunir bankans og eigenda hans að hagur heimila og fyrirtækja í landinu vænkist og að endurreisn atvinnulífs gangi sem hraðast fyrir sig. Nýtt eignarhald Íslandsbanka er áfangasigur í uppbyggingu íslenska fjármálakerfisins. Nánari upplýsingar um breytt eignarhald er að finna á islandsbanki.is. Nýtt eignarhald 5% Íslenska ríkið 95% Erlendir og innlendir kröfuhafar Í hnotskurn Engin áhrif á þjónustu Fjármögnun traust Innstæður eru áfram tryggðar Mun bæta aðgengi að erlendum lánamörkuðum Traustsyfirlýsing 2 3 4 5 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.