Morgunblaðið - 18.10.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.10.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirVIKUSPEGILL MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 2009 Eftir Andra Karl andri@mbl.is S jaldan heyrist nefnt að stórmannleg séu víg úr launsátri. Þrátt fyrir það virðast æði margir hafa tekið sér hlut- verk eins konar net-skæruliða sem ráðast að nafngreindum einstaklingum úr þjóðlífinu með meiðandi hætti. Úrræði fórnar- lamba nafnlauss níðs er það eitt að kæra ummæl- in til lögreglu, en fleiri sitja heima en halda af stað, enda málin oft þung í rannsókn og árang- urinn ekki eftir erfiðinu. Með nýju frumvarpi menntamálaráðherra verður að einhverju leyti girt fyrir möguleika „ritsóða“ til að dyljast, alla vega á vettvangi fjölmiðla. Þó er það ætíð svo að ef viljinn er fyrir hendi er vegurinn auðfundinn. Samkvæmt því sem kemur fram í nýju frum- varpi til fjölmiðlalaga verður lögfest að ábyrgðar- menn vefmiðla beri ábyrgð á því efni sem þar birtist. Er þar þó eingöngu vísað til vefmiðla sem skilgreindir eru sem fjölmiðlar og þar undir eru því ekki svonefndar bloggsíður. Ábyrgðar- mönnum vefmiðla sem heimila nafnlaus ummæli við fréttir er þannig gert að ábyrgjast þau. Verði frumvarpið að lögum ættu brotaþolar því ekki að þurfa að kæra nafnlaus ummælin til lögreglu sem sér svo um rannsókn en höfða fremur einkarefsi- mál á hendur viðkomandi miðli. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, tel- ur að þetta verði jafnvel til þess að umræðu- menning á netinu breytist til batnaðar. „Ég reikna með því að miðlarnir muni í framhaldi gera kröfu um að þeir sem vilji skilja eftir um- mæli gefi upp rétt nafn. Enda á það að vera hin almenna regla.“ Fjölmiðlafrumvarpið verður kynnt þingflokk- unum eftir helgina og birt á vef menntamála- ráðuneytis í kjölfarið. Óskað verður eftir athuga- semdum en ráðherrann gengur út frá því það fái þinglega meðferð í næsta mánuði. Brot fullframið við birtingu? Varla er um svo róttæka lagabreytingu að ræða að nafnleysingjum verði úthýst af netinu. Enn verða til umræðuvefir þar sem menn dylgja um náungann og níða. Áfram verður því erfitt að ná til þeirra sem sem vega að æru manna í skjóli nafnleyndar, þó vettvangur þeirra þrengist. Nú þegar hefur verið afnuminn sá möguleiki að skrifa athugasemdir við greinar á afþreyingar- vefnum Vísir.is og á vef dagblaðsins DV þurfa menn að skrá sig í gegnum samskiptavefinn Facebook. Á fréttavef Morgunblaðsins var horfið frá því að nafnlausir bloggarar gætu skrifað um fréttir en tekin upp skráning tengd kennitölu. Á tenglasíðunni Eyjan.is er hins vegar taumur- inn laus og fá stjórnmálamenn og viðskiptafor- kólfar það oft óþvegið frá lesendum. Taka ber fram að ritstjórn Eyjunnar tekur út þau ummæli sem henni þykja óviðurkvæmileg og einnig önn- ur, ef um það er sérstaklega beðið. Aftur á móti benda lögfræðingar sem Morgunblaðið ræddi við á að áhöld eru um það hvort nóg sé gert, brotið geti að öllum líkindum talist fullframið um leið og viðkomandi ummæli birtast á vefnum. Ekki hefur reynt á það álitamál fyrir dómstólum. Að undanförnu hafa spjótin staðið á best kynnta bloggi Íslands, Silfri Egils Helgasonar. Egill hefur heimilað nafnlausar athugasemdir og má oft sjá í athugasemdakerfi hans frjóa umræðu um menn og málefni, en einnig skítkast og hreint og klárt níð. Egill ritstýrir reyndar umræðunni með því að fjarlægja ummæli sem að hans mati fara yfir strikið og tekur oft virkan þátt í henni sjálfur. Þó svo að fjölmiðlalögin, sett eins og þau birt- ast í frumvarpinu, muni ekki sem slík ná yfir bloggsíður sem Egils, gætu einstaklingar sem halda úti slíkum síðum og leyfa nafnlausar at- hugasemdir þurft að endurskoða það val. Þeir lögfræðingar sem rætt var við töldu víst að með lögjöfnun eða rýmkandi lögskýringu væri hægt að heimfæra sömu ákvæði laganna og eiga við um vefmiðla yfir á bloggsíður. Þar með væru þeir sem skráðir eru fyrir þeim ábyrgir fyrir því efni sem birtist í athugasemdakerfum. Vitanlega ber að taka fram að frumvarpið hef- ur ekki verið kynnt opinberlega og ákvæðin því ekki orðrétt birt lögfræðingunum. Nafnleysið á undanhaldi  Í frumvarpi um fjölmiðla eru ábyrgðarmenn vefmiðla gerðir ábyrgir fyrir nafnlausum ummælum  Ráðherra telur þetta verða til þess að umræðumenning á netinu breytist Úr almennum hegningarlögum: 234. gr. Hver, sem meiðir æru annars manns með móðgun í orðum eða athöfnum, og hver, sem ber slíkt út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að einu ári. [...] 235. gr. Ef maður dróttar að öðr- um manni einhverju því, sem verða myndi virðingu hans til hnekkis, eða ber slíka aðdróttun út, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að einu ári.[...] 242. gr. Hafi ærumeiðandi að- dróttun verið borin fram skriflega, en annaðhvort nafnlaust eða með rangri eða tilbúinni undirskrift, skal brotið sæta ákæru, ef sá krefst þess, sem misgert var við. [...] Mál út af öðrum brotum getur sá einn höfðað, sem misgert er við. Í kjölfar þess að Ísland fór á hliðina í efnahagslegum skilningi hófu bál- reiðir netverjar á loft sýndarhey- kvíslar sínar. Þeim er beint í allar áttir en helst að fígúrum úr fjár- málalífinu. Notuð eru öll tæki til að níða skóinn af nafntoguðum ein- staklingum og helst í skjóli nafn- leysis. Skilyrði þess að hægt sé að sækja mann til saka í meiðyrðamáli – vegna nafnlausra ummæla á netinu – er að saksóknari telji ummælin ærumeiðandi og viðkomandi finnist. Þó svo að IP-tala sé skráð er ekki öll sagan sögð. Meðal annars hafa komið upp mál þar sem fréttasendingar frétta- vefjar Morgunblaðsins eru notaðar í þeim tilgangi. Ekki eru gerðar kröfur um að fréttasendendur gefi deili á sér en með fréttunum er hægt að senda persónuleg skilaboð. Það er nærri ógerningur að rekja sendingarnar og ekki hefur reynt á hvar ábyrgð á þeim liggur. Hins veg- ar er í skoðun að setja hömlur á sendingarnar, s.s. með því að skráð- um notendum verði eingöngu heim- ilt að senda efni. Annað mál kom upp á hinu svo- nefnda Moggabloggi, blog.is. Þar ný- skráði sig inn einstaklingur undir kennitölu alþingismanns. Viðkom- andi stofnaði þó ekki bloggsíðu en skrifaði fjölmargar athugasemdir við færslur annarra. Málið var tekið mjög alvarlega og sent til lögreglu. Við rannsókn máls- ins kom í ljós að IP-töluna mátti rekja til veitingastaðar sem bauð gestum upp á nettengingu. Þar með var ómögulegt að finna hver stóð að baki og málið því látið niður falla. Lög og reglur Eftirminnilegt er hið svonefnda Lúkasarmál sem upp kom á því herrans ári 2007. Rétt rúmlega tvítugum pilti var þá hótað öllu illu á netinu en hann lá undir grun um að hafa misþyrmt til dauða hundinum Lúkasi – sem fannst á lífi stuttu eftir fjölmennar minn- ingarathafnir á Akureyri og í Reykjavík. Pilturinn kærði um hundrað manns fyrir meiðyrði, konur og karla á öllum aldri. Aðeins helm- ingur hópsins skrifaði undir nafni og voru því IP-tölur annarra kærð- ar til lögreglu. Lögreglunnar var að finna út hver stæði á bak við IP-tölurnar en eftir tveggja ára rannsókn var lögmanni piltsins, Erlendi Þór Gunnarssyni, tjáð að ekki væri til- efni til að fara lengra með málið. Þar með sluppu um fimmtíu ein- staklingar við ákæru. Erlendur er ekki sáttur við vinnubrögð lögreglu og telur rannsóknina raunar aldrei hafa hafist, enda ekki rætt við hann eða skjólstæðing hans. Þrátt fyrir þessar miklu tafir á málinu voru árar ekki lagðar í bát og hyggst pilturinn enn hreinsa nafn sitt fyrir dómi. Sátt hefur þó náðst í nokkrum málum, en þeir sem ekki hafa tekið í útrétta sáttahönd mega búast við máls- höfðun. Að sögn Erlendar Þórs verður fyrsta málið þingfest fyrir héraðs- dómi á næstu vikum. Lúkasarmálið fer senn fyrir dóm Meirapróf Upplýsingar og innritun í síma 567 0300, 894 2737 Næsta námskeið byrjar 21. október 2009

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.