Morgunblaðið - 18.10.2009, Page 22

Morgunblaðið - 18.10.2009, Page 22
22 Aldarminning MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 2009 Eftir Ólaf Egilsson Ö ld var í vikunni liðin frá fæðingu Agnars Klemensar Jóns- sonar – eins af mæt- ustu starfsmönnum Stjórnarráðs Íslands í allri sögu þess. – Agnar gegndi mjög mikilvægu hlutverki við meðferð utanríkismála þjóðarinnar í fjóra áratugi og var jafnframt mikilvirkur söguritari. Öll störf sín vann hann af framúrskar- andi trúmennsku, eljusemi og vand- virkni. Agnar var fæddur í Reykjavík hinn 13. október 1909 og lést þar á 75. aldursári hinn 14. febrúar 1984. Hann var sonur Klemensar Jóns- sonar sýslumanns, bæjarfógeta og al- þingismanns á Akureyri, síðar land- ritara og ráðherra í Reykjavík, og síðari konu hans, Önnu Maríu Schi- öth húsfreyju. Eftir lagapróf frá Háskóla Íslands árið 1933 vann Agnar fyrst stutta hríð í fjármálaráðuneytinu en 1. febr- úar 1934 gekk hann í dönsku utanrík- isþjónustuna sem annaðist þá sam- kvæmt Sambandslögum Íslands og Danmerkur frá 1918 framkvæmd ís- lenskra utanríkismála í umboði hins fullvalda íslenska ríkis. Var það að ráði mágs hans, Tryggva Þórhalls- sonar forsætisráðherra, sem sá fyrir sér þann tíma að þjóðin sæi sjálf að öllu leyti um þessi mikilsverðu mál og myndi þá þarfnast manna með þekk- ingu og reynslu af rekstri þeirra. Þegar hernám Danmerkur í síðari heimsstyrjöldinni leiddi til þess að Íslendingar tóku utanríkismálin al- farið í eigin hendur 10. apríl 1940, hafði Agnar verið við störf í danska sendiráðinu í Washington um 2ja ára skeið. Þótti honum sjálfsagt að ganga til liðs við nýstofnaða utanríkisþjón- ustu síns eigin lands. Tvö fyrstu árin starfaði Agnar við aðalræðisskrifstofu Íslands í New York en hún var fyrsta sendi- skrifstofan sem sett var á fót. Síðan varð frami hans skjótur. Hann var ráðinn deildarstjóri í utanríkisráðu- neytinu 1. október 1942, fyrstur til að bera það starfsheiti í Stjórnarráðinu, og falið að annast upplýsinga- og kynningarmál. Liðu svo ekki nema 16 mánuðir uns hann í janúarlok 1944 tók við starfi skrifstofustjóra, eins og ráðuneytisstjórar voru þá nefndir. Í mörg horn var að líta og má nærri geta að reynt hefur á hinn 34 ára gamla ráðuneytisstjóra. Framundan var stofnun lýðveldisins þá um sum- arið, þar sem samskipti við önnur ríki, heimsóknir háttsettra fulltrúa þeirra og ekki síst öflun viðurkenn- ingar ríkjanna á þessu mikilvæga skrefi í sjálfstæðisgöngu þjóð- arinnar, skipti land og þjóð afar miklu. En Agnar reyndist alla tíð þeim vanda vaxinn sem á hans herðar var lagður; kom sér vel gott upplag og menntun, og sú starfs- reynsla sem hann hafði öðlast í hinni gamalgrónu dönsku utanríkisþjón- ustu, bæði ráðuneyti og dönsku sendiráði, sem margt mátti af læra. Auk lýðveldisstofnunarinnar kom til kasta ráðuneytisins á þessu tímabili frekari uppbygging utanríkisþjón- ustunnar og ýmis mikilvæg mál sem miðuðu að því að styrkja lýðveldið í sessi, m.a. aðild að Sameinuðu þjóð- unum og fleiri milliríkjastofnunum, svo og ráðstafanir til að tryggja af- komu og öryggi þjóðarinnar til fram- búðar. Með samhentu starfi ráðherra og embættismanna var unnið að mót- un sjálfstæðrar utanríkisstefnu hins unga lýðveldis. Ríkti bæði þá og síðar af hálfu ríkisstjórna og ráðherra mik- ið traust í garð Agnars í því lykilhlut- verki sem hann var við undirbúning og framkvæmd margra þessara mála. Margvísleg nefndarstörf, félags- og trúnaðarstörf, sem Agnari voru falin yrði of langt upp að telja. En til að bregða upp mynd af vægi þeirra og fjölbreytni skal getið formennsku í Stúdentaráði Háskóla Íslands 1930- 31, setu í nefnd til að ákveða gerð skjaldarmerkis lýðveldisins 1944, rit- arastarfa í utanríkismálanefnd Al- þingis 1943-51 og 1961-69, for- mennsku Knattspyrnusambands Íslands frá stofnun 1947 til hausts ár- ið eftir, formennsku í samninga- nefndum um viðskiptamál við Fær- eyinga 1945, Breta 1948 og Dani 1949, svo og setu í fríverslunarnefnd til athugunar á markaðsmálum í Evr- ópu frá 1961 til 1963 er nefndin var lögð niður, í stjórn Sögufélags 1965- 69, orðunefnd Hinnar íslensku fálka- orðu 1968-69 og formennsku í nefnd til að endurskoða lögin um utanrík- isráðuneyti Íslands og fulltrúa þess erlendis 1968. Það er órækur vottur um fádæma elju Agnars og sagnfræðilegan áhuga, sem rekja má til Klemensar föður hans og föðurafans Jóns Borg- firðings Jónssonar bóksala og fræði- manns, að samhliða áðurnefndum störfum, sem oft urðu erilsöm, auðn- aðist honum að vinna þrekvirki á sviði söguritunar. Þar ber hæst rit- verkið „Stjórnarráð Íslands 1904- 1964“, tvö bindi mikil að vöxtum, sem hið gamalgróna Sögufélag gaf út 1969 og var þá stærsta rit sinnar teg- undar er félagið hafði gefið út á nær sjö áratuga ferli sínum. Ritið samdi Agnar að áeggjan dr. Bjarna Bene- diktssonar forsætisráðherra er þekkti vel hæfileika Agnars af löngu Mótaði utanríkisþjónustuna Ungur Agnar Kl. Jónsson á yngri árum. Með Franco Agnar Kl. Jónsson heilsar Francisco Franco við afhendingu trúnaðarbréfs sem sendiherra Íslands á Spáni 24. nóvember 1956. Spánn var lengi eitt mikilvægasta fiskkaupaland okkar. Á Ítalíu Agnar Kl. Jónsson ásamt Giuseppe Saragat, forseta Ítalíu við af- hendingu trúnaðarbréfs þar í landi öðru sinni hinn 1. febrúar 1970; var áður sendiherra þar árin 1956-1961, þá með búsetu í París en nú Ósló. Ráðuneytisstjórinn Agnar Kl. Jónsson ráðuneytisstjóri afhendir Ármanni Snævarr háskólarektor silf- urbakka frá Atlantshafsbandalaginu í þakkkarskyni fyrir afnot húsakynna H.Í. er utanríkisráðherra- fundur Atlantshafsríkjanna var haldinn hér á landi í fyrsta sinn árið 1968. Á myndinni er einnig Tómas Á. Tómasson deildarstjóri alþjóðadeildar utanríkisráðuneytisins sem stjórnaði undirbúningi fundarins. MERKUR FERILL AGNARS KL. JÓNSSONAR SENDIHERRA OG RÁÐUNEYTISSTJÓRA samstarfi þeirra. Einnig gaf Agnar þrívegis út Lögfræðingatal (1950, 1963 og 1976), en það hafði einnig gert faðir hans. Fylgir síðustu útgáf- unni ritgerð Agnars um þróun laga- náms allt frá 10. febrúar 1736, þegar opinbert próf við lagadeild Kaup- mannahafnarháskóla var með kon- unglegri tilskipun gert að skilyrði fyrir dómaraembætti eða málfærslu- mannssýslan, og fram til ársins 1975. Af öðrum ritstörfum Agnars er sér- stök ástæða til að geta ritgerðar hans um föður sinn í bókinni „Faðir minn“ sem út kom 1950 með þáttum um marga þjóðkunna menn ritaða ýmist af sonum eða dætrum þeirra. Ótal tímaritsgreinar, einkum um utanrík- isþjónustuna og efni tengd henni, liggja eftir Agnar. Öll eru skrif hans hin vönduðustu og heimildargildi þeirra mikið. Engan er fremur hægt að nefna föður íslensku utanríkisþjónustunnar en Agnar Kl. Jónsson, svo marg- háttað, langt og giftudrjúgt starf sem hann vann að alhliða uppbyggingu hennar og mótun. Hafa þó margir aðrir mætir menn einnig átt þar hlut að máli. Agnar hafði sem ráðuneyt- isstjóri góða yfirsýn yfir starfsemina, fékk til sín samrit allra bréfa sem send voru út í nafni ráðuneytisins, og lét sig allt skipta sem gat orðið henni til eflingar. Honum var mikið í mun að fylgt væri í hvívetna þeim hefðum og venjum í milliríkjasamskiptum sem myndast hafa í tímans rás og þjóna þeim tilgangi að greiða fyrir árangri og forða misskilningi milli þjóða sem búa við ólíka menningu. En árvekni hans laut líka að þáttum eins og skjalasafni ráðuneytisins sem undir handarjaðri hans og góðra skjalavarða fékk á sig orð í Stjórn- arráðinu fyrir að vera öðrum skjala- söfnum skipulegra og traustara; voru þess jafnvel dæmi að fljótlegra þætti að leita þangað en í eigin ranni, ef hafa þurfti upp á skjali sem átti að vera til á báðum stöðum. Þá er vert að nefna að aðhald í fjármálum utan- ríkisþjónustunnar var Agnari tamt, enda mála sannast að í þann taum er meira haldið en ókunnugir láta stundum í veðri vaka. Er þeim er

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.