Morgunblaðið - 18.10.2009, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 18.10.2009, Qupperneq 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 2009 ✝ Halldóra Sig-urlaug Jónsdóttir fæddist í Þverárdal í Bólstaðarhlíð- arhreppi, Austur- Húnavatnssýslu, 11. mars 1921. Hún and- aðist á Heilbrigð- isstofnun Siglu- fjarðar föstudaginn 25. september 2009. Foreldrar Hall- dóru voru Jón Björnsson bóndi á Heiði, f. á Ytri- Löngumýri í Blöndu- dal, Austur-Húnavatnssýslu 17. júlí 1891, d. 27. júlí 1983, og Fin- ney Reginbaldsdóttir húsfreyja, f. á Látrum í Aðalvík, Norður- Ísafjarðarsýslu 22. júní 1897, d. 7. desember 1988. Systir Halldóru er Sigríður Jóhanna Jóhannsdóttir, f. 28. apríl 1923. Kjörforeldrar Sig- ríðar Jóhönnu voru Jóhann Ein- arsson, f. 22. desember 1885, d. 9. apríl 1973 og Sigríður Þórunn Sig- urðardóttir, f. 22.desember 1885, d. 1. júlí 1974. Þann 24. ágúst 1946 giftist Hall- dóra, á Hólum í Hjaltadal, Jóhann- esi Þórðarsyni yfirlögregluþjóni, f. á Siglufirði 29. september 1919. hjúkrunarfræðingur, f. 11. maí 1957, maður hennar er Ólafur Kristinn Ólafs viðskiptafræðingur, f. 11. maí 1957. Dætur þeirra eru: a) Halldóra Sigurlaug, f. 23. júní 1985 og b) Magnea Jónína, f. 14. nóvember 1989. Halldóra ólst upp í Skagafirði. Fram til 5 ára aldurs bjó hún á Sjávarborg í Borgarsveit og til 15 ára aldurs á Heiði í Gönguskörð- um er hún flutti til Sauðárkróks. Hún hóf skólagöngu sína í far- skólum til skiptis á bæjunum Heiði og Veðramóti og útskrifaðist gagnfræðingur frá Sauðárkróki. Hún stundaði síðan nám í hús- mæðradeild Kvennaskólans í Reykjavík. Halldóra fór þá til starfa á Sjúkrahúsi Siglufjarðar. Á Siglufirði kynntist hún eftirlif- andi eiginmanni sínum Jóhannesi Þórðarsyni og bjuggu þau þar eft- ir það. Halldóra vann meðal ann- ars við verslunarstörf, síld- arsöltun og ræstingar. Halldóra starfaði mikið að félagsmálum og lét til sín taka í mörgum fé- lagasamtökum, meðal annars í Slysavarnafélaginu, Rauða kross- inum, Krabbameinsfélaginu, Hjartavernd og Framsókn- arflokknum. Í mörgum félögunum á Siglufirði var hún formaður um langt skeið. Hún starfaði jafn- framt í nefndum á vegum Siglu- fjarðarbæjar. Útför Halldóru fór fram í kyrr- þey frá Siglufjarðarkirkju 17. október 2009. Foreldrar Jóhann- esar voru Þórður Guðni Jóhannesson, f. á Sævarlandi, Lax- árdal ytri, Skaga- firði, 13. júlí 1890, d. 15. mars 1978, og Þórunn Ólafsdóttir, f. í Reykjavík 14. apríl 1884, d. 28. nóv- ember 1972. Börn Halldóru og Jóhannesar eru: 1) Jón Finnur raf- iðnfræðingur, f. 24. september 1951, d. 28. maí 2003. Fyrri kona hans er Guðrún Helga Hjartardóttur, f. 25. desember 1961. Þau skildu. Seinni kona hans er Ólafía Margrét Guð- mundsdóttir ljósmóðir, f. 28. mars 1955. Dóttir þeirra er Margrét Finney, f. 12. desember 1997. Syn- ir Jóns Finns eru: a) Jóhannes Már, f. 30. september 1974, móðir hans er Þóra Hansdóttir, f. 26.júlí 1954. Kona hans er Halldóra Íris Sigurgeirsdóttir, f. 14. desember 1972. Dóttir þeirra er Eydís Ósk, f. 10. mars 1999. b) Kjartan Orri, f. 20. júní 1978, móðir hans er Þor- gerður Heiðrún Hlöðversdóttir, f. 3. ágúst 1955. 2) Soffía Guðbjörg Halldóra fluttist ung til Siglu- fjarðar þar sem hún fann sinn lífs- förunaut Jóhannes Þórðarson. Þar bjuggu þau sér einstaklega fagurt heimili, sem margir eiga minningar um að hafa notið gestrisni og átt notalegar stundir. Þau eignuðust börnin sín tvö og komu þeim báðum til mennta. Ég kynnist Halldóru þegar við fórum að vinna saman í fé- lagsmálum, hún var gjaldkeri í stjórn Framsóknarfélags Siglufjarð- ar meðan ég var formaður í rúma þrjá áratugi. Við áttum mjög gott samstarf. Elja hennar og dugnaður var mikill og er best lýst með orðum eins kunningja míns í öðrum flokki þegar hann sagði „Mikið öfunda ég þig að hafa hana Halldóru með ykk- ur“. Það var eftir því tekið í Siglufirði þegar hún tók til hendinni og lagði málum lið. Hún hafði orðið fyrir því á besta aldri að fá krabbamein sem hún læknaðist af, þá snéri hún sér af al- vöru að störfum á félagsmálasviði. Þegar hún tók við formennsku í Krabbameinsfélagi Siglufjarðar fékk hún mig til þess að vera með sér í stjórn félagsins í mörg ár. Var það mér lærdómsríkt að vinna með henni. Félagið var ekki fjársterkt, en hún var fundvís á einstaklinga, sem áttu um sárt að binda, og veitti þeim stuðning. Þátttaka í hóprann- sóknum vegna krabbameinsleitar á Siglufirði var með hæstu mætingu yfir landið í mörg skipti. Það var mikið að þakka hennar dugnaði og árvekni. Halldóra var valin af bæjarstjórn Siglufjarðar í bygginganefnd Dval- arheimilis aldraða á Siglufirði. Störf hennar við það verkefni ber að þakka. Þetta hús er Siglufirði til mikils sóma og er öldruðum skjól í ellinni. Hún sat í félagsmálanefnd fyrir Framsóknarflokkinn og skilaði þar starfi sem ástæða er að þakka fyrir. Halldóra var ein af stofnendum LFK 1981 og var í fyrstu stjórn samtakanna. Þegar við hættum útgerð Tog- skips hf. 1982 falaðist Halldóra eftir húsnæði sem fyrirtækið átti og var ekki í notkun. Skemmst er frá því að segja að Slysavarnafélaginu var gef- ið húsið en Halldóra var þá formað- ur Slysavarnadeildarinnar Varnar. Það liðu ekki mörg ár þar til húsið hafði verið innréttað með góðum fundarsal á efri hæð og aðstöðu fyrir félagsstarfsemi Björgunarsveitar- innar Stráka á neðri hæð hússins. Svipaða sögu er að segja um starfsemi Rauða krossins á Siglu- firði þar sem hún tók við for- mennsku og kom upp félagsheimili á Aðalgötu 23. Í fjölda ára stóð hún ásamt Jóhannesi fyrir fatasöfnun ásamt öðrum störfum fyrir samtök- in. Halldóra var heiðruð fyrir sín fórnfúsu félagsmálastörf. Henni var veitt hin íslenska Fálkaorða og heiðruð af Slysavarnafélagi Íslands, Krabbameinsfélagi Íslands og Rauða krossinum. Verk sín vann hún með dyggum stuðningi Jóhannesar. Þau hjón voru mjög samrýmd og oftast nefnd í sömu andrá þegar um var rætt. Á þessari stundu er mér efst í huga þakklæti til Halldóru sem ég var svo heppinn að kynnast og fá að vinna með til fjölda ára, það starf var bæði þroskandi og mannbæt- andi. Aðstandendum hennar sendum við Auður innilegar samúðarkveðj- ur. Sverrir Sveinsson. Á æskuheimili mínu á Siglufirði voru Halldóra og Jóhannes yfirleitt nefnd í sömu andrá. Þau voru bæði mjög ræktarsöm og miklir vinir vina sinna. Góðar minningar eru tengdar heimsóknum þessara heiðurshjóna til okkar á Hlíðarveginum og það var alltaf tekið vel á móti okkur þeg- ar við komum á Hverfisgötuna. Halldóra hafði ákveðnar skoðanir á umræðuefnum líðandi stundar, var vel að sér um menn og málefni og hafði alltaf eitthvað til málanna að leggja. Hún var mikill félagsmála- frömuður, tók virkan þátt í stjórn- málastarfi og var formaður í mörg- um líknarfélögum. En fyrst og fremst bar hún hag Siglufjarðar fyr- ir brjósti og beitti sér í ýmsum fram- faramálum bæjarins. Missir Jóhann- esar, Soffíu, tengdabarna og barnabarna er mikill. Blessuð sé minning Halldóru Sigurlaugar Jóns- dóttur. Jónas Ragnarsson. Halldóra Sigurlaug Jónsdóttir ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÁRNI GRÉTAR FINNSSON hæstaréttarlögmaður, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnudaginn 11. október. Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðviku- daginn 21. október kl. 15.00. Sigríður Oliversdóttir, Lovísa Árnadóttir, Viðar Pétursson, Finnur Árnason, Anna María Urbancic, Ingibjörg Árnadóttir, Jónas Þór Guðmundsson, Sigríður Erla, Pétur, Davíð, Finnur Árni, Árni Grétar, Ebba Katrín, Oliver Páll, Viktor Pétur, Guðmundur Már, Lovísa Margrét og Stefán Árni. ✝ Okkar ástkæri ZAKARÍAS HÓLM HJARTARSON fv. deildarstjóri Tollgæslunnar í Keflavík, Grænumörk 2, Selfossi, andaðist fimmtudaginn 15. október. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 23. október kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. Fyrir hönd aðstandenda, Margrét Jónsdóttir. ✝ Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi, BERGÞÓR KJARTAN AUÐUNSSON, lést á lungnadeild Landspítalans þriðjudaginn 13. október. Jarðsungið verður frá Guðríðarkirkju fimmtudaginn 22. október kl. 13.00. Jarðsett verður í Grafarkirkju- garði í Skaftártungu föstudaginn 23. október. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Gísli Kjartansson, Erla Fanney Ívarsdóttir, Jóhannes Kjartansson, Lilja Hjelm, Auðunn Kjartansson, Grétar Kjartansson, Steinunn Þorsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, systir og amma, SUSIE BACHMANN, Depluhólum 10, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 4. október. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 19. október kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Samband íslenskra kristniboðsfélaga og Styrktarsjóð Susie Rutar. Páll Friðriksson, Stefán Jóhann Pálsson, Kristín Lilliendahl, Regína Gréta Pálsdóttir, Einar Sveinn Hálfdánarson, Páll Heimir Pálsson, Bryndís Skaftadóttir, Gréta Bachmann, Magnús Kristinsson og barnabörn. ✝ Ástkær dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir ELÍN SVERRISDÓTTIR, Boras, Svíþjóð, lést á heimili sínu miðvikudaginn 14. október. Ingibjörg Marteinsdóttir, Sverrir Þór Hilmarsson, Hálfdán Þór Hilmarsson, Ann, Hilmar Þór Hilmarsson, Anna, Halldór Þór Hilmarsson, Karin, Erlendur Þór Hilmarsson, Michelle, barnabörn, systkini og aðrir ástvinir.                          ✝ Elskulegur faðir minn, bróðir okkar og mágur, GUÐJÓN SIGURÐSSON, Eskihlíð 26, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 6. október, verður jarðsunginn frá Garðakirkju Álftanesi mánudaginn 19. október kl.13.00. Anna Björg Guðjónsdóttir, Rafn Sigurðsson, Guðrún Nielsen, Jónfríður Sigurðardóttir, Ólafur Nielsen, Guðmunda Lilja Sigvaldadóttir, Helga Nielsen og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.