Morgunblaðið - 18.10.2009, Blaðsíða 31
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 2009
✝ Sesselja GuðrúnJóna Halldórs-
dóttir fæddist 25. júlí
1940 á Ísafirði. Hún
lést 5. október sl. á
Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri. Faðir:
Halldór Jónmundsson
yfirlögregluþjónn, f.
20. okt. 1907, d. 16.
september 1987. Hall-
dór var sonur Jón-
mundar Halldórs-
sonar, prests á Stað í
Grunnavík, og Guð-
rúnar Jónsdóttur.
Móðir: Ingibjörg Einarsdóttir f. 21.
júlí 1913, d. 13. febrúar 1988. Hún
var dóttir Einars Benjamínssonar
skipstjóra og Hermaníu Brynjólfs-
dóttur. Systkini Sesselju eru: Guð-
mundur Einar Ingi, f. 30. sept-
ember 1934, kvæntur Dómhildi
Gottliebsdóttur. Hermanía Kristín,
f. 16. júlí 1949, gift Theodór Rich-
ard Theodórssyni. Ásta Sigurbjörg,
f. 26. nóvember 1952, gift Ásgeiri
Ásgeirssyni.
1994, Hreiðar Elís, f. 17. febrúar
2001, og Jakob Elí, f. 19. október
2007.
Sesselja ólst upp á Ísafirði og
lauk þaðan gagnfræðaprófi. Hún
var á Landbúnaðarháskólanum í
Osby í Svíþjóð sumarið 1957. Sess-
elja hóf nám við Hjúkrunarskóla Ís-
lands árið 1958 og lauk þaðan prófi
í mars 1962. Hún lagði stund á
framhaldsnám í skurðstofuhjúkrun
við Landspítalann. Sesselja starfaði
víða sem skurðstofuhjúkrunarfræð-
ingur bæði á Íslandi og í Dan-
mörku. Á árunum 1972-1977 starf-
aði Sesselja á Heilsugæslustöðinni í
Ólafsvík.
Sesselja var mikil hannyrðakona
og saumaði mikið út. Hún hafði
einnig mjög gaman af dansi og
fjörugri tónlist. Sesselja var mikill
sólardýrkandi og notaði hvert tæki-
færi sem gafst til að njóta sólar
hvort heldur sem var á Íslandi eða í
sólarlöndum. Aðeins 44 ára gömul
greindist Sesselja með Parkinsons-
veiki og var það mikið áfall því hún
varð fljótlega að hætta störfum. Við
tók hörð barátta við þennan illvíga
sjúkdóm. Sesselja dvaldi síðustu ár-
in á hjúkrunarheimilinu Sundabúð
á Vopnafirði og naut þar mjög
góðrar aðhlynningar.
Útför Sesselju fór fram í kyrrþey.
Meira: mbl.is/minningar
Eiginmaður Sess-
elju er Tomas Enok
Thomsen pípulagn-
ingameistari, f. 27.
febrúar 1940 á Siglu-
firði. Þau voru gefin
saman í Dómkirkj-
unni 27. nóvember
1965. Foreldrar Tom-
asar voru Anna Krist-
ín Halldórsdóttir f.
1908, d. 1998, og
Tomas Thomsen f.
1901, d. 1970. Sesselja
og Tomas eiga tvær
dætur: 1) Halldóru, f.
19. júní 1967 í Reykjavík. Halldóra
er gift Úlfari Trausta Þórðarsyni, f.
8. febrúar 1972, og eiga þau þrjú
börn: Jófríði, f. 29. nóvember 2001,
og Kristínu Matthildi og Tomas
Viðar, fædd 4. júní 2004. 2) Kristínu
Valborgu, f. 30. apríl 1973 í Reykja-
vík. Eiginmaður Kristínar er Þór-
arinn Kristján Hreiðarsson, f. 1. júlí
1965, og eiga þau fjögur börn: Matt-
hías Enok, f. 6. september 1992,
Sesselju Sveinbjörgu, f. 16. febrúar
„Líf okkar er ófullgerð hljómkviða.“
(Úr ljóði Jóh. úr Kötlum)
Það er liðlega hálf öld síðan við
Lella hittumst fyrst, sem var á
danskri grund. Báðar þangað komn-
ar til að læra betur tungumálið fyrir
nám í Hjúkrunarskóla Íslands en
þar voru þá allar kennslubækur á
dönsku. Þarna hófst vinátta sem
stóð æ síðan. Ári síðar mættum við í
hópi fimmtán ungra stúlkna og eins
ungs manns í Hjúkrunarskóla Ís-
lands með þann ásetning að gera
hjúkrun að lífsstarfi okkar. Þetta
var sundurleitur hópur hvers ein-
staklingar komu víða að, austan,
vestan, norðan og sunnan, öll full
eftirvæntingar. Nýtt tímabil hófst,
svo margt að upplifa, framandi og
forvitnilegt umhverfi sjúkrahúsa,
nýjar víddir lífsins, sem oft gengu
nærri óreyndum sálum og þá var
gott að hitta félagana og ræða málin.
Sundurleiti hópurinn þjappaðist
saman og böndin sem þarna voru
bundin halda enn. Námstíminn leið
hratt og vel. Eftir útskrift dreifðist
hópurinn út um land og til útlanda,
við Lella héldum einnig hvor sína
leið, samband okkar allra minnkaði
um árabil meðan við vorum að fóta
okkur í lífinu. En vináttan var til
staðar og fljót að taka við sér þegar
við endurnýjuðum samfundi.
Lella var námshestur mikill, eftir
grunnnámið valdi hún sérnám í
skurðhjúkrun og vann á þeim vett-
vangi nánast allan sinn starfstíma.
Þar nýttust hæfileikar hennar og
nákvæmni vel.
Í blóma lífs hennar dró stórt ský
fyrir sólu er hún greindist með
Parkinson-veiki, sem á skömmum
tíma gerði henni ókleift að vinna við
sitt fag og smám saman dró úr lík-
amlegum styrk og stjórn á hreyf-
ingum. En í veikindunum óx hennar
persónuleiki og maður skynjaði hug-
rekki, einurð og vilja til að halda
áfram, taka þátt í lífinu af fremsta
megni, ávallt dyggilega studd af eig-
inmanni og dætrum. Hún handskrif-
aði jólakveðjur og sendibréf þar til
fyrir örfáum árum og lagði sig fram
um að hitta okkur gömlu skólafélag-
ana, kom um langan veg til sam-
funda með Enok sinn undir stýri.
Um tíma bjó fjölskylda Lellu á
Jótlandi þá fórum við skólasystur
hennar í ferð til Kaupmannahafnar,
hún kom í hópinn og með okkur
gekk hún um Íslendingaslóðir, sem
var okkur nánast óskiljanlegt að hún
gæti. Seinna héldum við upp á 40
ára útskriftarafmæli í Stykkishólmi
þar sem hún bjó þá. Við áttum mjög
góða stund á heimili þeirra hjóna.
Lella fór með okkur í gönguferð um
bæinn og fólkið sem varð á vegi okk-
ar heilsaði henni með miklum virkt-
um og í bókasafninu virtist hún eiga
sitt annað heimili, enda mikill bóka-
ormur.
Undanfarin ár dvaldi Lella á
Sundabúðum í Vopnafirði og leið þar
vel, sagði allt starfsfólk vera sér
gott. Sorgin á sér mörg andlit, við
dauða Lellu var það mildi svipurinn
sem hún sýndi. Nú sé ég Lellu mína
ganga létta í spori með gleði í svip
og þannig ætla ég að muna hana.
Enok, Halldóra, Kristín og ykkar
fjölskyldur, einlægar samúðarkveðj-
ur flyt ég ykkur frá skólasystkinum
Lellu úr Hjúkrunarskóla Íslands en
í umboði þeirra eru þessi kveðjuorð
skrifuð.
Sigríður Antonsdóttir.
Sesselja Guðrún Jóna
Halldórsdóttir
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
sonur og afi,
PÉTUR BJÖRNSSON,
Vesturgötu 158,
Akranesi,
lést mánudaginn 12. október.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn
22. október kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans
er bent á reikning í Landsbankanum á Akranesi, 0186-05-068900,
kt. 110856-2459.
Ásdís Gunnarsdóttir,
Gylfi Pétursson, Selma M. Arnardóttir,
Gunnar Örn Pétursson, Jóhanna Bjarnarson,
Bjarki Þór Pétursson,
Sigurður Ásbjörn Pétursson, Sólrún Perla Garðarsdóttir,
Sigríður Pétursdóttir
og afabörn.
✝
Kær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐNÝ ERLA JÓNSDÓTTIR,
Hjarðarhlíð 5,
Egilsstöðum,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfara-
nótt miðvikudagsins 14. október, verður jarðsungin
frá Árbæjarkirkju fimmtudaginn 22. október
kl. 11.00.
Völundur Jóhannesson,
Anna Ósk Völundardóttir, Tryggvi Ólafsson,
Harpa Völundardóttir, Kristján Guðmundsson,
Bjarni Óskar og Matja Dise, Guðný Vala, Eyrún Anna,
Elín Lára og Ívar,
Ólafur Gunnar og Völundur Ingi,
Sigrún Björg, Ásgeir Örn og Ólöf Harpa.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
RÓSA GEIRÞRÚÐUR HALLDÓRSDÓTTIR,
Rjúpufelli 31,
Reykjavík,
sem lést á Landspítala Landakoti þriðjudaginn
13. október, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 23. október kl. 15.00.
Rósa Sigríður Sigurðardóttir,
Þorleifur Már Sigurðsson
Dóra Guðný Sigurðardóttir, Jón Harry Óskarsson,
Elmar Örn Sigurðsson, Tinna Sigurðsson,
Kristján Guðni Sigurðsson,
Heimir V. Pálmason,
Emil Thorarensen,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Elskulegur bróðir okkar og frændi,
GUNNAR H. ÓLAFSSON
fyrrv. skipherra,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn
11. október.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
20. október kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Slysavarnar-
félag Íslands.
Gyða Ólafsdóttir,
Ásta Ólafsdóttir Beck,
systkinabörn
og aðrir aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar,
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SONJU JÓHÖNNU KRISTJÁNSDÓTTUR,
Hrauntungu 99,
Kópavogi.
Svavar Benediktsson,
Díana Jóhanna Svavarsdóttir, Guðmundur Þorkell Eyjólfsson,
Þorvaldur Svavarsson, Sigrún Erla Gísladóttir,
Kristján Jónas Svavarsson, Edda Dan Róbertsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengda-
móður og ömmu,
GUÐRÍÐAR HANNIBALSDÓTTUR,
Gvendargeisla 92,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki kvenna-
deildar Landspítalans við Hringbraut.
Óli Th. Hermannsson,
Gunnar Þór Hilmarsson, Brenda Sjoberg,
Ágústa Óladóttir, Páll Bryngeirsson,
Bjarkar Þór Ólason, Olga Hrönn Olgeirsdóttir,
Hrund Ýr Óladóttir, Sigurður Árni Magnússon
og barnabörn.