Morgunblaðið - 27.10.2009, Side 1
„ÞESSU miðar ágætlega og það stendur til að há-
skólinn hefji starfsemi sína strax eftir áramótin,“
segir Brynjar Brjánsson, byggingastjóri hjá Ís-
taki, sem hefur yfirumsjón með framkvæmdum
við nýtt húsnæði Háskólans í Reykjavík. Verkið
er afhent í tveimur áföngum, sá fyrri um áramót
en sá seinni næsta sumar. Fyrri áfanginn er þegar
orðinn fokheldur og er unnið að innréttingum en
háskólafólk er þegar tekið að koma sér fyrir í
hluta rýmisins.
Torgið sem hér er verið að glerja tilheyrir
seinni áfanga hússins og er jafnframt aðalanddyri
háskólans sem tengir álmur hússins saman.
„Framkvæmdir hófust í janúar 2008 og á þessu
ári hafa unnið hér á milli 200 og 300 manns,“ segir
Brynjar. Verkefninu hefur seinkað nokkuð frá
upphaflegu plani þar sem til stóð að taka háskóla-
húsnæðið í notkun í haust. Brynjar segir að þjóð-
félagsástandið hafi sett nokkurt strik í reikning-
inn en tvær álmur voru settar á bið auk þess sem
nokkuð þungt hafi verið um efnisaðdrætti.
„Það er ekkert efni til á lager í landinu svo vinn-
an hefur orðið tímafrekari, en annars hefur þetta
gengið prýðilega,“ segir Brynjar. jmv@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Torgið mun tengja álmur HR
„ÞAÐ liggur fyr-
ir að viðhorfið
hefur ekkert
breyst í þessum
viðræðum sem
hafa staðið yfir í
nokkrar vikur.
Menn hafa ekk-
ert nálgast í efn-
inu,“ sagði Gylfi
Arnbjörnsson,
forseti ASÍ, eftir
viðræður gærkvöldsins um stöðug-
leikasáttmálann. „Það er alveg ljóst
að það, sem ríkisstjórnin er að spila
út í þessari meintu yfirlýsingu, telj-
um við ekki vera þann grunn sem
við getum byggt þetta samstarf á,“
segir Gylfi.
Engin niðurstaða hafði því náðst
eftir að fundað hafði verið í allan
gærdag og ríkisstjórnin sent frá sér
a.m.k. þrenn drög að yfirlýsingu,
sem átti að framlengja líf stöðug-
leikasáttmálans.
Svipað hljóð var í Vilhjálmi Egils-
syni, framkvæmdastjóra Samtaka
atvinnulífsins. Hann sagði að ekki
hefði gengið nógu hratt og ekki í
rétta átt að ná niðurstöðu. Hjá SA
verður fundað í dag um það hvort
framlengja eigi kjarasamninga við
ASÍ. Gylfi segir ekki útilokað að
kjarasamningar verði framlengdir
þótt stöðugleikasáttmálinn renni út
í sandinn. Það þurfi einfaldlega að
koma í ljós. Í drögum að yfirlýs-
ingu, sem ríkisstjórnin sendi frá sér
í gær, voru ekki stigin stór skref til
móts við kröfur aðila vinnumark-
aðarins. | 4
Stöðugleika-
sáttmálinn
úr sögunni?
Gylfi
Arnbjörnsson
Gylfi: Höfum ekkert
nálgast niðurstöðu
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
HAGVAXTARFYRIRVARA sem
Alþingi setti við Icesave-samninga
hefur verið breytt í nýju sam-
komulagi ríkisins við Breta og Hol-
lendinga. Þessi breyting getur haft
í för með sér umtalsvert meiri
greiðslubyrði en Alþingi hafði gert
ráð fyrir.
Breytingin kann að virka lítil við
fyrstu sýn, en getur verið afdrifa-
rík. Áður var gert ráð fyrir að upp-
söfnuð greiðslubyrði Trygginga-
sjóðs innstæðueigenda tæki mið af
uppsöfnuðum hagvexti á samnings-
tímanum. Nú er hins vegar miðað
við að greiðslubyrði hvers árs eftir
2015 taki mið af þessum uppsafn-
aða hagvexti.
Þegar hugsanleg greiðslubyrði
hvers árs er reiknuð er annars veg-
ar skoðuð landsframleiðsla árið
2008 og hins vegar landsframleiðsla
á greiðslutíma hverju sinni. Mis-
munurinn ræður því hve háa fjár-
hæð Íslendingar þurfa að greiða.
Í þjóðhagsspá fjármálaráðuneyt-
isins er gert ráð fyrir því að upp-
safnaður hagvöxtur árin 2009-2015
verði á bilinu 8-14%.
Ef menn gefa sér að bjartsýnis-
spáin rætist og uppsafnaður hag-
vöxtur til ársins 2015 verði 14%, en
hagvöxtur verði hins vegar enginn
næstu fimm árin á eftir, breytir
það engu um útreiknaða greiðslu-
byrði, heldur mun hún ávallt taka
mið af þessum 14% mun sem er á
landsframleiðslu árið 2008 og þeirri
landsframleiðslu sem er á hverjum
greiðsludegi fyrir sig eftir árið
2015.
Fyrirvarinn, sem Alþingi hafði
áður sett í lög, fól í sér að tekið var
tillit til hugsanlegra stöðnunar-
tímabila. Nú er staðan hins vegar
sú að svo lengi sem einhver upp-
safnaður hagvöxtur er fyrir hendi
gætu Íslendingar þurft að greiða af
láninu.
Er miðað við landsframleiðslu
umreiknaða í evrur og pund. Styrk-
ist krónan á samningstímanum
eykst umreiknuð landsframleiðsla
Íslands og þar með greiðslubyrðin.
Íslendingar | 12
Breyttur hagvaxtarfyrirvari
getur valdið hærri greiðslum
Fyrirvarar í nýja samkomulaginu halda síður en fyrirvarar Alþingis
» Greiðslubyrði miðast við uppsafnaðan hagvöxt
» Lítið tillit tekið til stöðnunartímabila
Morgunblaðið/Ómar
Þ R I Ð J U D A G U R 2 7. O K T Ó B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
291. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«LÉTTARILÖG
MEIRI LÉTTLEIKI YFIR
ÚTFÖRUM EN ÁÐUR
«FÍNAFÞREYING
BRIDGET ÍSLANDS
VEL HEPPNUÐ
ÚTGÁFUFYRIRTÆKIÐ Frjáls
miðlun ehf., sem hefur meðal ann-
ars unnið mörg verkefni fyrir
Kópavogsbæ og eigendur þess, hef-
ur ákveðið að höfða mál og krefjast
bóta fyrir það tjón sem það telur
að bæjarfulltrúarnir í Kópavogi,
þau Guðríður Arnardóttir Samfylk-
ingu, Ólafur Þór Gunnarsson VG
og Hafsteinn Karlsson Samfylk-
ingu, hafi valdið með ummælum
sínum um fyrirtækið og aðstand-
endur þess.
Þórarinn V. Þórarinsson, lögmað-
ur stefnenda, segir að þeir hafi
þurft að sitja undir stanslausu
regni af dylgjum og meiðyrðum
nokkurra bæjarfulltrúa.
Miskabótakrafan nemur samtals
11,4 milljónum auk vaxta og
dráttarvaxta. Þess er líka krafist að
stefndu verði dæmd til að greiða
málskostnað og greiða eina milljón
kr. til að kosta birtingu dóms í dag-
blöðum. Ennfremur er farið fram á
að ákveðin ummæli í fjölmiðlum
verði dæmd dauð og ómerk. | 6
Höfða mál
gegn bæjar-
fulltrúum