Morgunblaðið - 27.10.2009, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 27.10.2009, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn JóhannBjörnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Í LIÐINNI viku greindust 1.640 manns hérlendis með A(H1N1)- inflúensu eða svínainflúensu en 1.677 í vikunni þar á undan. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir að tal- an geti enn hækkað þar sem tilkynn- ingar séu enn að berast en engu að síður geti þetta verið vísbending um að toppnum verði fljótlega náð. Átta á gjörgæslu Um miðjan dag í gær voru 26 sjúk- lingar með flensu á Landspítalanum, þar af sjö á gjörgæslu. Fjölgað hafði um tvo með flensu á almennri deild en fækkað um einn á gjörgæslu frá því á sunnudag. Á Sjúkrahúsinu á Akureyri voru þrír með flensu, þar af lá einn á gjörgæslu. Haraldur bendir á að fjöldi sjúk- linga með flensu á spítölum virðist vera í jafnvægi og það viti á gott. Bóluefni hafi borist í minni skömmt- um en vonast hafi verið til en á móti komi að ekki þurfi að bólusetja hvern einstakling nema einu sinni og ætla megi að hægt verði að byrja að bólu- setja almenning í lok nóvember. Nóg af öndunarvélum Ólafur Baldursson, framkvæmda- stjóri lækninga á Landspítalanum, segir að vel gangi að eiga við flens- una. Nokkrir sjúklingar fái mjög slæma lífshættulega lungnabólgu og fari í ástand sem nefnist öndunarbil- un, en þá berst súrefni ekki til líf- færa án aðstoðar öndunarvéla. Þeir sem séu á gjörgæslu séu í þessu ástandi en spítalinn eigi 30 góðar öndunarvélar og sé í viðbragðsstöðu um að útvega fleiri verði ástæða til þess. Auk þess sé lögð áhersla á að reyna að draga úr alvarleika veikind- anna með fyrirbyggjandi aðgerðum til þess að fækka þeim sem fara hugsanlega í öndunarbilun. Þegar lungun eru full af bólgu og vökva þarf oft að snúa mönnum á grúfu til þess að opna neðsta hluta lungnanna betur eftir að þeir hafa verið í öndunarvél í ákveðinn tíma. Ólafur bendir á að mjög mikið um- stang sé í kringum einn svona sjúk- ling og því séu margir starfsmenn bundnir við þessa vinnu en það hafi ekki bitnað á öðrum nauðsynlegum verkum. Hins vegar megi segja að þegar slysaalda ríði yfir á sama tíma séu gjörgæslurnar við þolmörk. „Sem betur fer hefur þetta verið inn- an þeirra marka og við ráðum vel við þetta,“ segir hann. Flensan talin innan þolmarka  Jafnvægi í fjölda sjúklinga vísbending um að toppnum verði fljótlega náð  Allir sjúklingar á gjörgæslu- deild með öndunarbilun  Landspítalinn á 30 góðar öndunarvélar og er í viðbragðsstöðu þurfi fleiri Morgunblaðið/Ómar Fámenni Flensan fer ekki í manngreinarálit en ekki var að sjá að hún fjölg- aði sjúklingum á Heilsugæslunni Hvammi í Kópavogi í gær. VASKIR menn vinna nú hörðum höndum við að breyta Vesturgötunni, á milli Aðalstrætis og Grófarinnar, í vistgötu en auk þess verður þess- um kafla götunnar breytt í einstefnugötu til norðurs. Vistgata þýðir að gangandi og hjólandi vegfarendur fá forgang auk þess sem skapa á vistlega stemningu með gróðurbeðum. Búist er við að breytingunum verði lokið 10. nóvember næstkomandi. VESTURGÖTU BREYTT Í VISTGÖTU Morgunblaðið/Ómar Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is FORYSTUSVEIT lífeyrissjóðanna fundaði í gær með fulltrúum Landspítala og heilbrigðis- og fjármálaráðu- neyta þar sem rætt var um hugsanlega þátttöku sjóð- anna í byggingu nýs hátæknispítala. Aðgerðahópur lífeyrissjóðanna, alls um fimmtíu manns, sat fundinn. „Núna erum við að leggja drög að viljayfirlýsingu um að við lánum fjármuni til byggingar sjúkrahúss. Við nálgumst verkefnið með jákvæðum huga en höfum þó ekki gefið neitt formlega út. Ég vona samt að svo geti orðið innan tíðar, en vissulega tekur þetta nokkurn tíma, svo sem að fara með málið í gegnum hið fé- lagslega bakland sjóðanna,“ sagði Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, í sam- tali við Morgunblaðið. Björn Zoëga, forstjóri Landspít- alans, og Ingólfur Þórisson kynntu sjúkrahúsverkefnið og helstu útlínur þess fyrir lífeyrissjóðafólki í gær. Þar kom fram að sparnaðurinn af því að flytja alla starfsemi sjúkrahússins á einn stað, það er á Hringbraut, gæti numið alls nítján milljörðum króna á fjörutíu árum. Stofnun framtakssjóðs er annað stórverkefni sem nú er unnið að á vettvangi lífeyrissjóða. Þess er vænst að sjóðurinn verði kominn á fót eftir einn til tvo mán- uði, en honum er ætlað að auðvelda fyrirtækjum sem eru í kröggum en eiga sér þó framtíðarvon að komast yfir erfiðasta hjallann. Þar er einkum horft til fyr- irtækja sem eru gjaldeyrissparandi og -aflandi. Leggja drög að yfirlýs- ingu um nýtt sjúkrahús Forysta lífeyrissjóðanna fundaði með Landspítalamönnum Hrafn Magnússon ÍSLENDINGAR taka ekki þátt í samningafundi um makrílveiðar, sem hófst í gær í Cork á Írlandi. Formaður norsku sendi- nefndarinnar, Johan Williams úr sjávar- útvegsráðu- neyti Noregs, segir að Ísland verði að fara að haga sér sem „alvörustrandríki“ áður en því verði boðið að samningaborðinu. Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, segir að Íslandi hafi ekki verið boðið sem fullgildu strandríki til fundarins. „Þeir hafa haldið okkur frá samn- ingaborðinu árum saman. Lengst af héldu þeir því fram að það væri ekki makríll hérna. Við yrðum að sýna fram á það. Það getum við ekki gert nema veiða makríl. Þá erum við gagnrýndir fyrir það,“ sagði Friðrik. Makrílgengd á Íslandsmiðum hef- ur aukist gríðarlega undanfarin ár. Í fyrra voru veidd hér 112.000 tonn af makríl, mest í júlí og ágúst. Enn meiri makríll kom hingað í sumar. Hinn 8. júlí sl. var búið að veiða yfir 90.000 tonn og þá voru veiðarnar takmarkaðar mjög. Makríll var ein- ungis veiddur sem meðafli með norsk-íslenskri síld eftir það. Ekki boðið að makríl- borðinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.