Morgunblaðið - 27.10.2009, Page 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
Í VIÐRÆÐUM um stöðugleika-
sáttmálann á milli aðila vinnumark-
aðarins og stjórnvalda í gær mætt-
ust stálin stinn. Þegar funda-
höldum lauk á tólfta tímanum í
gærkvöldi hafði engin niðurstaða
náðst og að vonum var vonbrigða-
tónn í viðmælendum Morgun-
blaðsins.
Hugmyndir gengu á milli full-
trúa vinnumarkaðarins og stjórn-
valda í gær um áframhaldandi sam-
starf innan vébanda sáttmálans, en
hægt gekk.
Ríkisstjórnin sendi snemma
dags drög að yfirlýsingu, þar sem
reynt var að koma til móts við kröf-
ur SA og ASÍ, sem hafðar hafa ver-
ið uppi að undanförnu. Ekki var
þar að sjá neinar framréttar sátta-
hendur í stærstu málunum. „Nei,
þess vegna erum við nú að senda
þessar tillögur til þeirra til baka,“
sagði Vilhjálmur Egilsson þegar
tal náðist af honum.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
hefur til dæmis talað um meiri að-
komu stéttarfélaga að atvinnuleys-
istryggingakerfinu og Vilhjálmur
Egilsson, framkvæmdastjóri SA,
hefur krafist afturköllunar á
áformum um fyrningarleið í sjávar-
útvegi, orku- og auðlindaskatta og
á ákvörðun umhverfisráðherra um
Suðvesturlínur.
Í drögunum sem ríkisstjórnin af-
henti SA og ASÍ í gær og voru svo
unnin áfram fram eftir kvöldi er
ekki seilst mjög langt.
Um orku- og auðlindaskattana
segir þar að haft verði samráð við
fyrirtæki og samtök þeirra um end-
anlega útfærslu skattanna sem
snúa að þeim. „Sérstaklega verði
skoðað í þessu sambandi hvort
mögulegt sé að útfæra slíka gjald-
töku án þess að hún virki hamlandi
gegn nýjum fjárfestingum í at-
vinnuskapandi verkefnum,“ sagði
þar.
Um fyrningarleiðina í sjávar-
útvegi sagði að vinnunni yrði hrað-
að svo sem mögulegt væri til að
eyða óvissu. „Stefnt er að því að
þeirri vinnu ljúki fyrir 1. febrúar
2010,“ sagði þar. Samtök atvinnu-
lífsins höfðu krafist þess að þau
áform yrðu tekin aftur hið snar-
asta.
Um stóriðjuna og það ákvæði
stöðugleikasáttmálans sem mikill
styr hefur staðið um, að engar
hindranir skuli vera af hálfu stjórn-
valda eftir 1. nóvember, sagði að
stjórnvöld myndu hraða úrvinnslu
mála sem tengjast framkvæmdum
„eftir því sem efni máls og lög-
bundnir lágmarkstímafrestir
leyfa“.
Helst var að vel væri tekið í þá
hugmynd að stéttarfélög hefðu
meira að segja um rekstur atvinnu-
leysistryggingakerfisins. Ekki
yrðu þó gerðar breytingar á núver-
andi kerfi nema sýnt yrði að fyrir
þeim væru gild rök.
Í dag taka Samtök atvinnulífsins
afstöðu til þess á fundi sínum hvort
framlengja skuli kjarasamninga
við ASÍ eða ekki. Fari svo að það
verði ekki gert verða þeir lausir frá
og með 1. nóvember og hvert og
eitt stéttarfélag þarf að nýju að
taka ákvörðun um hvort forysta
ASÍ skuli aftur fá umboð til að
semja fyrir þeirra hönd. Gæti þá
farið svo að hvert stéttarfélag yrði
sjálfu sér næst og kjarabaráttan
færi mjög harðnandi á ný.
Morgunblaðið/Heiddi
Fundur Eftir fundi gærkvöldsins varð niðurstaðan sú að ekki væri grundvöllur fyrir áframhaldandi þátttöku SA og ASÍ í stöðugleikasáttmálanum.
Stöðugleikinn er í hnút
Tillögur stjórnvalda um úrbætur á stöðugleikasáttmálanum gengu ekki langt
Ekki bakkað með helstu deiluefnin, skatta, fyrningarleið og umhverfismál
VESTURBYGGÐ og Tálknafjarð-
arhreppur standa fyrir smölun á
útigangsfé á Tálkna í dag en talið
er að milli fimm-
tán og tuttugu
kindur séu á
svæðinu. Síðasta
stóra smölun af
þessu tagi fór
fram fyrir nokkr-
um árum en allt-
af eru einhverjar
kindur á svæð-
inu. Farið verður
með þær kindur sem reynast vera
eigendalausar í sláturhús.
„Samkvæmt lögum ber hverju
sveitarfélagi að standa fjallskil, þ.e
að öllum kindum á svæðinu sé
smalað og þær ekki skildar eftir á
vergangi,“ segir Ragnar Jörunds-
son, bæjarstjóri Vesturbyggðar.
„Við viljum framfylgja reglum
um að lönd séu smöluð og eins
verður þetta gert út frá
dýraverndunarsjónamiðum, við vilj-
um ekki að kindurnar séu þarna á
hryggnum í alls kyns veðrum, að
drepast úr hor eða hrynja fram af
klettum.“
Smölun á
útigangsfé
í Tálkna
Síðasta stóra smöl-
unin í nokkur ár
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær fjóra karlmenn á þrí-
tugsaldri í fangelsi fyrir að brjótast
inn á heimili úrsmiðs við Barða-
strönd á Seltjarnarnesi hinn 25.
maí síðastliðinn.
Húsráðandi kom að þjófunum og
réðust þeir þá á hann, börðu hann
og bundu og rændu síðan úrum,
úrkeðjum og fleiri munum. Menn-
irnir tveir, sem brutust inn í húsið,
fengu eins og tveggja ára fangels-
isdóm, sá sem skipulagði ránið
hlaut 20 mánaða fangelsisdóm.
Fjórði maðurinn, sem ók ræningj-
unum til og frá Barðaströnd, hlaut
þriggja mánaða skilorðsbundinn
dóm.
Mennirnir voru jafnframt dæmd-
ir til að greiða húsráðandanum
800.000 krónur í miskabætur.
Dæmdir fyr-
ir innbrot á
Barðaströnd
TÖLUVERÐ hætta skapaðist á seðlaskorti hjá Seðla-
banka Íslands í septemberlok í fyrra, það er í aðdraganda
bankahrunsins. Til þess kom þó ekki að seðlar gengju til
þurrðar, þrátt fyrir meira en tvöföldun seðlamagns í um-
ferð en grípa þurfti til öryggisbirgða sem voru eldri út-
gáfur af seðlum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Seðla-
bankans um fjármálastöðugleika.
Í kjölfar þess að Glitnir hafði leitað ásjár Seðlabankans
og ríkisvaldsins bar nokkuð á beinhörðum peningaúttekt-
um úr bönkum. Á fimm viðskiptadögum jókst seðlamagn í
umferð um 53% og nam 20,5 milljörðum í lok föstudagsins
3. október. Úttektir einstakra aðila námu í mörgum til-
vikum tugum og hundruðum milljóna króna, sem leiddi til
þess að grípa þurfti til varaforða.
Helgina 4. og 5. október voru í undirbúningi aðgerðir
sem fólu í sér speglun á öllum innlánum íslenskra banka
yfir til Seðlabankans. Ef þessi leið hefði verið virkjuð,
hefði verið unnt að flytja með rafrænum hætti hluta af inn-
lánum einstakra fjármálafyrirtækja til Seðlabankans. Slík
aðgerð hefði haft í för með sér aukna tiltrú innstæðueig-
enda þar sem lánin hefðu öðlast ríkisábyrgð. Ekki kom
hins vegar til þess að grípa þyrfti til þessa, þar sem stjórn-
völd gáfu út yfirlýsingu um að engin hætta væri á að inn-
stæðueigendur töpuðu fjármunum sínum, auk þess sem
kveðið var á um slíkt í neyðarlögunum. sbs@mbl.is
Dæmi um að fólk tæki
út hundruð milljóna
Morgunblaðið/Golli.
Í gærdag höfðu allir aðilar stöðugleikasáttmálans,
aðrir en SA og ASÍ, svarað tillögu ríkisstjórnarinnar
og lýst sig viljuga til að halda áfram að vinna að
framgangi sáttmálans. Það er að segja Bandalag
háskólamanna, Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja, Kennarasamband Íslands og Samtök starfs-
manna fjármálafyrirtækja og Samband íslenskra
sveitarfélaga.
„Það hvort kjarasamningum á almennum vinnu-
markaði verður sagt upp er síðan annað mál, en þá
verða SA og ASÍ að ákveða hvað þau ætla að gera,“
sagði Eiríkur Jónsson, formaður KÍ, í gær. Sá mögu-
leiki væri fyrir hendi að stöðugleikasáttmálinn héldi áfram án þeirra
aðildar. Eiríkur benti líka á að launþegar í KÍ og BHM væru með lausa
samninga, en þeir vildu vinna að stöðugleikasáttmálanum engu að
síður. „Það er mín bjargfasta trú, að ef menn ætla að fara hver út í sitt
horn núna, þá fyrst fari vandamálin að gera vart við sig,“ sagði Eiríkur.
Hættulegt að fara hver í sitt horn núna
Eiríkur
Jónsson