Morgunblaðið - 27.10.2009, Side 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2009
BEINAR uppsagnir á Land-
spítalanum gætu orðið 70 til 100
að sögn Björns Zoëga, forstjóra
sjúkrahússins. Í pistli sem hann
ritar á vefsíðu Landspítalans kem-
ur fram að Björn telur að sparn-
aðaraðgerðir sem hófust í sept-
ember sl. muni skila rúmlega 1,5
milljörðum í sparnaði og aðrar að-
gerðir nærri 1,7 milljörðum til við-
bótar.
Alls mun þetta leiða til fækk-
unar sem nemur 170-200 störfum.
„Fyrsta skoðun okkar á fjárhags-
áætlun næsta árs sýnir að þær að-
gerðir sem við hófum nú í sept-
ember síðastliðnum munu skila
okkur rúmlega 1,5 milljörðum í
sparnaði. Frekari breytingar í
þjónustu og samdráttur, m.a. í
sumarafleysingum, yfirvinnu, lok-
un ákveðinna deilda og breytingar
á störfum munu skila okkur ná-
lægt 1,7 milljörðum til viðbótar.
Við höldum að þetta muni leiða
til fækkunar sem nemur 170-200
störfum en vonum að ekki þurfi
að segja upp öllum þessum fjölda.
Með því að nýta okkur starfs-
mannaveltu spítalans ættu beinar
uppsagnir að verða færri, eða á
bilinu 70-100. Vinna við útfærslu á
þessum tillögum stendur enn,“
segir hann.
Björn segir að framkvæmda-
stjórn Landspítalans vinni nú að
áætlun um reksturinn miðað við
fyrirliggjandi fjárlög. Í þeirri
vinnu er hugað að verkefni spít-
alans í heild en ekki hver áhrifin
verða á mismunandi stéttir.
Í pistlinum þakkar Björn einnig
starfsfólki Landspítalans fyrir frá-
bæra framgöngu í flensu-
faraldrinum.
70 til 100 uppsagnir á Landspítala?
„MEÐ hagræð-
ingaraðgerðum
síðustu ára hefur
verið sópað út í
hvert einasta
horn. Nú verður
hins vegar ekki
lengra gengið og
frekari niður-
skurður á fram-
lögum til stofn-
unarinnar mun
ekki eiga sér stað öðruvísi en með
uppsögnum starfsfólks,“ segir Ein-
ar Óli Fossdal, formaður starfs-
mannafélags Heilbrigðisstofnunar-
innar á Blönduósi.
Félagið sendi frá sér ályktun í
gær þar sem niðurskurði á fram-
lögum til stofnunarinnar er harð-
lega mótmælt, enda sé hann meiri
en annars staðar. Á þessu ári hafi
framlög til HSB verið skert um 45
milljónir króna og á næsta ári séu
áform um að niðurskurðurinn verði
56 milljónir eða rúmlega 20% á
tveimur árum.
Um 40 sjúkrarúm eru í Heilbrigð-
isstofnuninni á Blönduósi, þar á
meðal allmörg langlegupláss. Telur
Einar Óli að nær væri að efla þann
þátt starfseminnar fremur en
byggja hjúkrunarheimili annars
staðar eins og er áformað. Hjá HSB
starfa á milli 70 og 80 manns.
sbs@mbl.is
Mótmæla
niðurskurði á
Blönduósi
Óánægja með niður-
skurð á Blönduósi.
TOLLSTJÓRI
hefur lagt hald á
margfalt meira
af kannabis-
fræjum í tollpósti
á þessu ári en
undanfarin ár. Á
áttunda tug mála
þar sem reynt
hefur verið að
smygla kannabisfræjum hafa kom-
ið upp á árinu. Í póstsendingum
hafa fundist samtals 1221 fræ. Inn-
flutningur hráefna sem unnt er að
vinna úr eða breyta í ávana- og
fíkniefni er bannaður á Íslandi. Öll
mál af þessum toga eru send lög-
reglu til frekari málsmeðferðar.
Reyna að flytja inn
kannabisfræ
IÐNAÐARRÁÐHERRA hefur skip-
að ráðgjafahóp til að fara yfir til-
lögur Landsnets um leiðir til að
bæta raforkuöryggi á Vest-
fjörðum. Hópnum er jafnframt fal-
ið að leggja mat á það til hvaða
aðgerða þurfi að grípa til að bæta
samkeppnisstöðu Vestfjarða m.t.t.
til möguleika á svæðinu til at-
vinnuuppbyggingar í orkufrekum
iðnaði. Guðni A. Jóhannesson
orkumálastjóri fer fyrir hópnum
en auk hans eiga þar sæti þau
Matthildur Helgadóttir, fram-
kvæmdastjóri Snerpu á Ísafirði, og
Þorgeir Pálsson, framkvæmda-
stjóri Atvinnuþróunarfélags Vest-
fjarða. Hópnum er falið að skila
ráðherra greinargerð fyrir lok
ársins.
Bæta raforkuöryggi
á Vestfjörðum
UNGUR maður, sem vann tæpar 25
milljónir króna í lottóinu á laug-
ardag, ætlar að hætta í vinnunni
sem hann stundar nú og einbeita
sér að tónlist.
Samkvæmt upplýsingum frá Ís-
lenskri getspá keypti maðurinn 10
raða sjálfvalsmiða með jóker á N1
Gagnvegi síðastliðinn föstudag.
Ekki aðeins hafði hann haft allar
fimm tölurnar réttar í lottóinu og
unnið þar með 24.742.400 krónur
heldur var hann einnig með fjórar
réttar tölur í jókernum og bættust
þar 100 þúsund krónur við vinn-
ingsupphæðina.
Ungur maður vann
25 milljónir í lottói
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Patti Húsgögn
Landsins mesta úrval af sófasettum
íslen
sk fr
amle
iðsla
SWS-8851 3+1+1
Boston-lux NICE
man-8356 3+1+1
Roma boston-lux
Tungusófar
Sófasett
Stakir sófar
Hornsófar
íslen
sk fr
amle
iðsla
íslen
sk fr
amle
iðsla
íslen
sk fr
amle
iðsla
Bonn
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
SWS horn
149.900 k
r
149.900 k
r
verð áð
ur 399.9
00 kr
P-8185
269.900 k
r
verð áð
ur 319.9
00 kr
íslen
sk fr
amle
iðsla
299.900 k
r
íslen
sk fr
amle
iðsla
verð áð
ur 469.0
00 kr
man-87-leður bogasófi