Morgunblaðið - 27.10.2009, Side 8

Morgunblaðið - 27.10.2009, Side 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2009 HJÚKRUNARRÁÐ Landspítalans skorar á stjórnvöld að standa vörð um heilbrigðiskerfið og var- ar við þeim afleiðingum sem stór- felldur niðurskurður á Landspít- ala getur haft. Þegar litið er til þess að spítalanum er gert að lækka rekstrarkostnað um 6% milli ára og að rekstrarhalli síð- asta árs var 3% er ljóst að segja verður upp starfsfólki og loka deildum með tilheyrandi áhrifum á þá bráða- og grunnþjónustu sem spítalinn veitir sjúklingum á landsvísu. Hjúkrunarráð bendir sérstaklega á að verði hjúkr- unarfræðingum fækkað geti það ógnað öryggi sjúklinga. Niðurskurður ógn- ar öryggi sjúklinga KJÖRDÆMISÞING framsókn- armanna í Suðvesturkjördæmi gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega fyrir að standa ekki fastar á samn- ingum um Icesave. Þrátt fyrir við- vörunarorð lætur ríkisstjórnin við- gangast að þjóðin sé niðurlægð enn og aftur í samskiptum við önnur ríki og alþjóðastofnanir. Þjóðin niðurlægð HIÐ íslenska tófuvinafélag krefst þess að í öllum aðildarríkjum Evr- ópusambandsins verði komið upp sérstökum tófugörðum þar sem ís- lenska fjallarefnum gefst tækifæri til að kynbæta hina hnignandi stofna Evrópurefsins. Einnig legg- ur félagið áherslu á að dýrbítum úr íslenska refastofninum verði gefinn kostur á að þjóna eðli sínu í Bret- landi og Hollandi. Þá krefst félagið þess að skuggabaldrar tilheyri ís- lensku þjóðinni en skoffín megi flytja til Brussel óheft til hagsbóta fyrir gjörvallt Evrópusambandið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tófur og ESB ABC barnahjálp mun setja af stað undirbúnings- og þjálfunarskóla fyrir þá sem hafa áhuga á starfi ABC barnahjálpar og hjálparstarfi almennt. Skólinn er ætlaður ein- staklingum 18 ára og eldri. Kennt verður frá kl. 9-13 virka daga í 15 vikur auk einnar helgarferðar út úr bænum. Skólinn verður settur af stað þann 9. nóvember og þurfa þátttakendur að skrá sig fyrir þann tíma. Skráningargjald fyrir nám- skeiðið er 20.000 krónur en 10 létt- ar veitingar og matur og gisting í helgarferðinni er innifalið. Morgunblaðið/Golli ABC Forsetinn hefur stutt ABC. Undirbúningsskóli fyrir hjálparstarf Í fyrradag hófu fulltrúar 13 ís- lenskra ferðaþjónustufyrirtækja markaðsátak í Þýskalandi. M.a. munu þeir sækja kaupstefnu í Frankfurt með 50 aðilum frá þýskum ferðaskrifstofum. Þá fara þeir til Berlínar þar sem þeir hitta aðra 50 sem starfa við ferðaþjón- ustu. Markaðsátak FRÉTTASKÝRING Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is FISKIFRÆÐINGAR telja að hrygningarstofn íslensku sumar- gotssíldarinnar þurfi að vera 300 þúsund tonn til að óhætt sé að gera tillögur um veiðar. Verði hins vegar vart sýkingar í stofninum í þeim leið- angri sem nú stendur yfir þarf að taka tillit til þess áður en veiðiráð- gjöf er gefin út. Í fyrravetur voru veidd um 152 þús- und tonn af íslensku sumargotssíld- inni. Verðmæti upp úr sjó var um 3,9 milljarðar og útflutningsverðmætið sex til átta milljarðar króna. Síldin skiptir því miklu máli fyrir fólk og fyrirtæki víða um land. Meðan óvissa er um síldina hafa einhver skip svip- ast um eftir gulldeplu án teljandi ár- angurs. Sýking er talin hafa drepið um 32% stofnsins í fyrravetur. Niðurstöður leiðangurs í júlí í sumar bentu síðan til að 30,5% hrygningarstofnsins væru sýkt og ekki voru þá vísbend- ingar um að sýkingin væri á undan- haldi. Talið er að hrygningarstofninn hafi verið um 344 þúsund tonn í sum- ar og því er ljóst að ekki má mikið út af bregða svo sýkingin ein og sér minnki ekki stærð hrygningar- stofnsins sumarið 2010 niður fyrir 300 þúsund tonn. Sýni rannsökuð Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofna hjá Hafrannsóknastofn- un, sagði í gær að byrjað væri að rannsaka sýni frá veiðiskipum, sem síðustu daga hafa kortlagt útbreiðslu síldarinnar og tekið sýni til að meta hlutfall sýkingar. Hann sagði að nið- urstöður myndu ekki liggja fyrir fyrr en síðari hluta vikunnar og þá fyrst yrði hægt að taka afstöðu til veiða. Á heimasíðu Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði kemur fram að Hoffell landaði um helgina um 160 tonnum af síld sem fékkst í Breiðamerkur- dýpi. Síldin er frekar smá og finnst vottur af sýkingu í henni, segir á heimasíðunni. Morgunblaðið/Ómar Mikið í húfi Agnar Már Sigurðsson, rannsóknarmaður hjá Hafrannsóknastofnun, rannsakar síldarsýni, en niðurstöður eiga að liggja fyrir síðar í vikunni. Mikið veltur á hlutfalli sýkingar  Útflutningsverðmæti sumargotssíldarinnar 6-8 milljarðar á síðustu vertíð  Hrygningarstofn þarf að vera 300 þúsund tonn svo ráðgjöf verði gefin um veiðar Hjörtu Greina má sýkinguna snemma sem hvíta bletti í hjarta og nýrum. Mikil óvissa ríkir um síldarvertíð- ina í haust og vetur vegna sýk- ingar. Hvort yfirleitt verður leyft að veiða síld í haust ætti að koma í ljós fyrir vikulok. Sýkingar af völdum Ichthyo-phonus varð vart í íslensku sum- argotssíldinni í lok nóvember, en þessi sýking hefur fundist í ýms- um tegundum sjávarfiska. Nýleg- ar rannsóknir sýna að Icht- hyophonus er einfrumungur eða svipudýr. Greina má sýkinguna snemma sem hvíta bletti í hjarta og nýrum en síðar kemur sýk- ingin fram í holdi og sést gjarnan sem blóðugt hold, segir m.a. á heimasíðu Hafró. Í síld veldur sýkingin dauða en dánartíðni af völdum Ichthyo- phonus-sýkingar virðist mjög misjöfn eftir fisktegundum. Í norsk-íslenska síldarstofninum kom upp sýking af völdum Icht- hyophonus um 1991-1992, en slík sýking mun ekki hafa verið þekkt fyrr í þeim stofni. Um svipað leyti var faraldur í síldarstofnum í Norðursjó. Svo virðist sem þessir faraldrar hafi staðið í um tvö ár. Síldarleitin sem nú stendur yfir er samvinnuverkefni Hafrann- sóknastofnunar og hagsmuna- aðila. Leitarsvæðið er umfangs- mikið eða frá Langanesi, suður og vestur um og norður fyrir Vestfirði. Sníkjudýr í fiskum Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is HVALFJARÐARGÖNGIN verða lokuð næstu þrjár nætur og voru einnig lokuð nú í nótt. Lokað verður fyrir umferð á miðnætti og ekki opn- að aftur fyrr en klukkan sex á morgnana. Til að koma í veg fyrir all- an misskilning verður lokað aðfara- nótt, miðvikudags, fimmtudags og föstudags í þessari viku, en eftir það verða göngin opin á nóttunni eins og venjulega. Að sögn Gylfa Þórðarsonar, for- stjóra Spalar, kemur lokunin til vegna reglubundinna viðgerða sem fara fram tvisvar á ári, einu sinni að hausti og einu sinni að vori. Ýmislegt verður lagað í þetta skiptið, meðal annars farið yfir ljósin í göngunum og skipt um bolta sem halda uppi einangrunardúk á gangaveggnum þar sem vatn seytlar fram. Einnig á að fræsa rifflur í malbikið á milli akreinanna, líkt og gert hefur verið á veginum á Kjalarnesi. Það kemur í veg fyrir að ökumenn gleymi sér og aki yfir á vitlausan vegar- helming, þar sem mikill hristingur og hávaði verður þegar ekið er á rifflurnar. Hvalfjarðargöng lokuð á nóttunni Morgunblaðið/Sverrir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.