Morgunblaðið - 27.10.2009, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2009
Eftir Ólaf Bernódusson
Skagaströnd | Sú hefð hefur skap-
ast í kringum starfsemi Nes-
listamiðstöðvar á Skagaströnd að
einu sinni í mánuði halda lista-
mennirnir, sem þar dvelja, svokall-
að „opið hús“. Allir eru velkomnir á
opið hús en þar sýna listamennirnir
hluta afraksturs dvalar sinnar á
Skagaströnd. Listamennirnir lífga
óneitanlega upp á bæjarbraginn og
því eru opnu húsin vinsæl meðal
bæjarbúa og eru þau vel sótt.
Að undanförnu hafa tveir lista-
menn unnið verkefni með 4. og 5.
bekk í Höfðaskóla um fiðrildi.
Kveikjan að verkefninu mun hafa
verið sú að þeim fannst vanta lit-
skrúðug fiðrildi á Íslandi og því
þyrfti að búa þau til. Á síðasta opna
húsi voru meðal annars sýnd fiðr-
ildin sem krakkarnir unnu undir
handleiðslu listamannanna tveggja.
Mátti ekki á milli sjá hvorir væru
ánægðari með samvinnuna hákóla-
menntuðu erlendu listamennirnir
eða krakkarnir úr grunnskólanum.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Opið hús í Nes-listamiðstöð
EFTIR er að sprengja 151 metra í
Bolungarvíkurgöngum áður en
slegið verður í gegn. Samtals er því
búið að sprengja 5.005 metra eða
97% af heildarlengd ganganna, að
því er fram kemur á fréttavefnum
bb.is.
Gröftur Bolungarvíkurganga
gekk misjafnlega í síðustu viku. Frá
Hnífsdal voru sprengdir 56 metrar
og er heildarlengdin þeim megin
orðin 2.632 metrar.
Frá Bolungarvík voru einungis
sprengdir 16 metrar og er heildar-
lengdin þeim megin orðin 2.373
metrar.
Búið er að grafa
rúma 5 kílómetra
GRUNUR kviknaði í gær um að
svínaflensa væri búin að stinga sér
niður í svínum hér á landi. Verið er
að rannsaka hjá Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins á Keldum hvort um
smit sé að ræða. Engin hætta er á
að smit berist úr svínakjöti í mann-
fólk.
,,Við höfum haft af þessu nokkrar
áhyggjur og því hvöttum við til þess
að starfsfólk svínabúa væri sprautað
gegn svínaflensunni en því miður
hefur það ekki gengið upp alls stað-
ar,“ sagði Haraldur Briem sótt-
varnalæknir. Ef um smit er að ræða
verður reynt að halda því innan við-
komandi bús en svín spjara sig yfir-
leitt nokkuð vel í flensunni segir
Haraldur og veikjast ekki illa. Dæmi
eru um að svín hafi veikst af flens-
unni erlendis og eru þau mun lík-
legri til þess en annar búfénaður
þótt einnig séu til nokkur dæmi um
að kalkúnar hafi fengið veiruna.
,,Við leggjum hins vegar áherslu á
að það er engin hætta á því að fólk
veikist af svínaflensunni með því að
borða svínakjöt. Það getur hins veg-
ar smitast af henni ef það er í ná-
grenni við veikt svín, ef þau hnerra
eða hósta. Svínin eru um margt lík
mannfólkinu,“ sagði Haraldur.
Það kemur í ljós í dag hvort svínin
eru sýkt af svínaflensu en Haraldur
telur fremur líklegt að um smit sé að
ræða.
Óttast að svín séu
sýkt af svínaflensu
Stórfréttir
í tölvupósti Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Úrval af leggings
Kjóll kr. 10.900
Litir: svart, fjólublátt, blágrænt
Opið: má-fö. 12-18,
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Flottur
fatnaður
frá
Str. 38-54
Álfhólsvegi 67, 200 Kópavogi, sími 554 5820.
Opið kl. 16-18 þri., mið., fim.
Silfurhúðum
gamla muni
Sundföt í úrvali
Hæðasmára 4 • 201 Kópavogur
Sími 555 7355 • www.selena.is
Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard.
Bjóðum 10%
kynningarafslátt
og kaupauka
Kringlan, sími 533 4533
Smáralind, sími 554 3960
LA PRAIRIE HELPS YOU
FIGHT AGING - AND WIN
Vertu velkomin
á La Prairie
kynningu
í HYGEU
Smáralind
á morgun,
miðvikudaginn
28. okt.,
kl. 13–17
LAGERSALA
Grensásvegi 8 - 108 Reykjavík
Allar upplýsingar í síma 517-2040
Mikið úrval af ódýrum skóm á alla fjölskylduna
Opið virka daga 12:00 - 18:00 - laugardaga 12:00 - 16:00
HÉRAÐSDÓMUR Austurlands hef-
ur dæmt karlmann á þrítugsaldri í
9 mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir að stela bifreið og aka henni,
ölvaður og próflaus á Egilsstöðum.
Maðurinn hefur sjö sinnum áður
verið dæmdur fyrir svipuð brot en
hann hefur aldrei fengið ökurétt-
indi.
Maðurinn var einnig dæmdur
fyrir að brjótast inn í skemmtistað
á Egilsstöðum í félagi við annan
mann og stela þar sjö flöskum af
áfengi.
Margdæmdur fyrir
ölvunarakstur