Morgunblaðið - 27.10.2009, Page 15

Morgunblaðið - 27.10.2009, Page 15
Daglegt líf 15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2009 Dagurinn er heldur betur farinn að styttast. Það er farið að skyggja kl. 6 á kvöldin. Á ferða- mannastað eins og Stykkishólmur er verður mikil breyting á bæjarbragnum þegar vetur leggst að. Íbúar orlofshúsa sjást sjaldnar og ferðamenn komnir til síns heima. Ró færist yf- ir og sumum finnst hún stundum of mikil. Góð- ar samgöngur gera okkur auðvelt að ferðast og það eru ekki nema tæplega tveggja tíma ferð til höfuðborgarinnar. Lífið gengur þó sinn vanagang og flestir hafa nóg fyrir stafni.    Hólmarar búa við fjölbreyttari atvinnumögu- leika en mörg önnur samfélög af svipaðri stærð. Það er mikils virði. Opinber störf eru veigamikill þáttur í atvinnu bæjarbúa. Í þeirri grein starfa 22% vinnandi fólks sem er það sama hlutfall og starfar við fiskveiðar og vinnslu. Þessar tvær atvinnugreinar eru því sterk- ustu undirstöður atvinnulífsins hér í bæ. Þeg- ar við blasir niðurskurður í rekstri ríkissjóðs vekur það ugg í huga heimafólks. Nið- urskurður í störfum hefur mikil áhrif, hvert starf er mjög mikilvægt, ekki síst í litlum sam- félögum.    Heyrst hefur að starfsemi rannsóknarnefndar sjóslysa verði flutt frá Stykkishólmi til Reykjavíkur. Til stendur að sameina í eina stofnun rannsóknarnefndir sjóslysa, umferð- arslysa og flugslysa. Það eru mjög sérhæfð störf sem unnin eru hjá hverri nefnd. Störfin sem unnin eru hér er hægt að vinna hér áfram þó af sameiningu verði, aðeins þarf viljann. Það er engin hagræðing að flytja þessi störf til höfuðborgarinnar. Þau eru samfélag- inu hér mikilvæg og það er leitt til þess að vita ef ríkisvaldið verður þar í fararbroddi og notar til þess mjög vinsælt orð þessa dagana sem er „hagræðing“.    Sauðkindin er mörgum kær í Hólminum. Síð- ustu ár hefur fjölgað mjög þeim einstaklingum sem verja sínum tómstundum í að stússast við sauðfé. Það eru um 30 einstaklingar sem eiga kindur og er fjárstofninn um 300 kindur. Flestir sem bætast í hóp tómstundabænda eru ungt fólk. Sveitarfélagið hefur komið til móts við óskir þess og skipulagt svæði þar sem það getur haft aðstöðu fyrir skepnur sínar. Í bygg- ingu eru nú 3 fjárhús. Um næstu helgi boða sauðfjárbændur í Hólminum til Hrútaþings þar sem afurðir sauðkindarinnar verða á matseðlinum. Bænd- ur munu eflaust metast á um ræktun og hver eigi besta hrútinn og þar sýnist sitt hverjum. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Vinátta Brauðið hjá Benedikt Frímannssyni. STYKKISHÓLMUR Gunnlaugur Árnason fréttaritari „Flosi er allur,“ skrifar Friðrik Steingrímsson í Mývatnssveit. Þar er skarð fyrir skildi í sveit hagyrð- inga því Flosi ýmist stýrði hagyrð- ingakvöldum eða tróð upp sjálfur. Friðrik yrkir: Fölnar rós og bliknar bleik boðar hinsta kallið. Flosi hefur lokið leik lífsins tjald er fallið. Eyvindur P. Eiríksson, Sand- smork, rifjar upp minningar um bernskuslóðirnar í Hlöðuvík á Hornströndum, en hann orti eitt sinn á siglingu fyrir Kögurinn snemma sumars og sá inn til vík- urinnar: Enn mig dreymir æskuvík, aldrei gleymd í sinni. Æviheimur, engu lík. Eilíf geymd í minni. Kveð ég lotinn Kögurinn, krappabrotin lægir. Báran vota veltist inn, vindaþotur hægir. Bjartar hlíðar birtir mér, björg og víðar strendur, ósinn stríða og æðarsker, engi og þýðar lendur. Enn að Búðum brekku geng bratt af súðum plasta. Streitu rúður rétti úr keng, raunum prúður kasta. Fer þar veislan fágætleg fram og beislar mína svengd, og neyslan nógsamleg. Næturgeislar skína. Það fylgir sögunni að Búðir hét bærinn í Hlöðuvík, „nú grónar tóft- ir einar.“ VÍSNAHORN pebl@mbl.is Af Flosa og Hlöðuvík LYKILLINN að hamingjusömu hjónabandi er að maðurinn sé a.m.k. fimm árum eldri en konan og að hún sé með meiri menntun en hann. Lík- legra er að hjónaband slíkra para endist lengi, einkum ef hvorugt hjónanna var fráskilið þegar hjóna- bandið hófst. Þetta er niðurstaða rannsóknar fræðimanna við Bath-háskólann í Bretlandi og skýrt er frá henni European Journal of Operational Research. Rannsóknin byggist á við- tölum við 1.500 pör, sem voru gift eða í sambúð, og fimm árum síðar var rætt við 1.000 þeirra til að kanna hvort samband þeirra hefði enst. Í þeim tilvikum þar sem konan var minnst fimm árum eldri en karlmað- urinn var þrisvar sinnum líklegra að þau hefðu slitið sambandinu en ef þau væru jafnaldrar. Ef maðurinn var eldri en konan var hins vegar mun líklegra að sambandið stæði enn. Ef konan var menntaðri en maðurinn jók það líkurnar á ham- ingjusömu hjónabandi. Aldursmun- ur farsælli? Vegaaðstoð Sjóvá er í boði á höfuðborgarsvæðinu, Selfossi, Akureyri, Egilsstöðum, í Reykjanesbæ, Borgarnesi og Hveragerði. Nánar á sjova.is. VEGAAÐSTOÐ SJÓVÁ Ókeypis þjónusta fyrir viðskiptavini í Stofni Bensínlaus? Straumlaus? Sprungið dekk? Tjónaskýrsla? „Vegaaðstoð Sjóvá? Ég er alveg rafmagnslaus. Bobbinn fékk sér Candyfloss.” H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 0 9 - 1 7 8 2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.