Morgunblaðið - 27.10.2009, Side 28

Morgunblaðið - 27.10.2009, Side 28
28 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2009 GOSPELKVÖLD TIL STYRKTAR HJÁLPARSTARFI KIRKJUNNAR Í HAFNARFJARÐARKIRKJU ÞRIÐJUDAGINN 27. OKTÓBER Nú nálgast mánaðarmótin hröðum skrefum. Reynslan sýnir að þá fjölgar þeim sem þurfa á hjálp og stuðningi að halda hér á landi vegna mataleysis og í raun bjargarleysis. Aldrei hafa fleiri þegið stuðning hjá Hjálparstarfi kirkjunnar en undanfarið ár og búast má við að þeim fjölgi enn frekar þegar nær dregur jólum. Hjálparstarfið þarf á öllum þeim stuðningi að halda sem hægt er að veita. Af því tilefni verður haldið gospelkvöld í Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 27. október næstkomandi. Hefst dagskráin kl. 20.00. Edgar Smári og hljómsveit leika og syngja gospellög en sr.þórhallur Heimisson sóknar- prestur flytur hugleiðingu um fátæktina í landinu um þessar mundir og afleiðingar hennar. Tekið verður á móti framlögum til styrktar Hjálparstarfi kirkjunnar.  Ástardrykkurinn var frumsýndur í Íslensku óperunni á sunnudags- kvöldið. Mikið var um dýrðir, eins og við mátti búast, og óperuunnendur fjölmenntu. Óperusöngvarar voru ekki bara áberandi á sviðinu heldur mátti til að mynda sjá tenórana Kristján Jóhannsson, Jóhann Frið- geir Valdimarsson og Gissur Pál Gissurarson úti í sal. Gestir voru spenntir að heyra í tenór og sópran, hinum ungu söng- stjörnum Garðari Thór Cortes og Dísellu Lárusdóttur, og fengu þau klapp eftir fyrstu partana þar sem reyndi verulega á þau. Íslenskir áhorfendur eru oft varkárir og virt- ust hikandi við húrrahrópin í fyrsta þætti en þá var gott að hafa vanan mann í salnum. Þegar Ágúst Ólafs- son átti sína fyrstu innkomu sem liðsforingi og söng með glæsibrag, hrópaði Kristján BRAVO! hátt og snjallt. Og þá tók salurinn undir. Óperustjörnur bæði á sviðinu og úti í sal Fólk HINAR svonefndu Frostrósir munu koma fram á jólatónleikum víða um land í ár sem fyrr, en fyrstu Frostrósatónleikarnir voru haldnir árið 2002 í Hallgrímskirkju. Frostrósirnar munu syngja fögur lög í Ólafsvík, Vestmannaeyjum, á Eskifirði, Egilsstöðum, Ísafirði og Sauðárkróki dagana 1.-9. desember. Rósirnar eru þau Margrét Eir, Hera Björk, Guðrún Gunnarsdóttir og Friðrik Ómar en auk þeirra syngja tenórarnir Jóhann Friðgeir og Garðar Thór Cortes jólalög. Þeim til fulltingis verður svo 30 manna Stórhljómsveit Frostrósa, Karlakórinn Fóstbræður, Vox feminae, Gosp- elraddir Domus Vox, Stúlknakór Reykjavíkur og Íslenski gospelkórinn. Tónlistarstjóri er Karl O. Olgeirsson og stjórnandi hljómsveitar er Árni Harðarson. Þeir eru sjálfsagt fáir, ef nokkrir, sem ekki komast í jólaskap við flutning þessa fríða hóps á sígildum jólalögum. Auk fyrr- nefndra landsbyggðartónleika verða haldnir stór-jólatónleikar í Laugardalshöllinni 12. des- ember og einnig í Höllinni á Akureyri 6. des. Miðasala hefst 3. nóvember kl. 10 á midi.is og á afgreiðslustöðum Íslandspósts á tónleikastöðum. Frostrósa-hugmyndin hefur náð út fyrir land- steinana því árið 2007 voru haldnir alþjóðlegir Frostroses-tónleikar með evrópskum dívum í yf- ir 20 löndum og fjórum heimsálfum. Sama ár fóru Frostrósirnar í fyrsta sinn í tónleikaferð um landið. Frostrósatónleikarnir hafa verið þeir mest sóttu á landinu sl. tvö ár, að því er fram kemur á vefsíðu Frostrósa, frostrosir.is. Frostrósir koma landsmönnum í jólaskap Baksviðs 2008 Dísella, Eyvör, Guðrún og Hera.  Samkvæmt tölvupósti frá út- varpsstöðinni Kananum sem Einar Bárðarson rekur mun stöðin vera sú fyrsta á Íslandi til þess að bjóða upp á sk. þriðja stigs RDS- kynningar í útvarpi, Radio Data Service. Þriðja stigs RDS felur í sér að nafn stöðvarinnar sést í út- varpstækjum í bifreiðum. En bíddu við, nöfn allra stöðvanna sjást í slíkum tækjum, ekki satt? Jú, mikið rétt, Kaninn segir nokkrar útvarpsstöðvar á Íslandi bjóða upp á annars stigs RDS- þjónustu, þ.e. sendi út nafn stöðv- arinnar, tíðni og jafnvel slagorð. En Kaninn gerir betur og bætir við þessar upplýsingar nöfn á lög- um og flytjendum sem leikin eru hverju sinni. Nú þurfa bílstjórar og farþegar ekki lengur að geta sér til um nöfn laga og flytjenda og mun tæknin nýtast vel í kynn- ingu á nýrri tónlist, t.d. íslenskri. Einar kann þetta enda oft nefndur umboðsmaður Íslands. Kaninn fyrstur með þriðja stigs RDS ÞAÐ verður vægast sagt margt gjörninga í boði á sjónlistahátíðinni Sequences sem hefst 30. október. Hér verður stiklað á stóru en les- endur eru hvattir til að kynna sér dagskrána á sequences.is. Á opn- unardaginn verður boðið upp á gjörning hinnar sænsku Anitu Wernstrom, „Imagined Death“, og gjörning Pernille Leggat Ramfelt frá Noregi, „Day for Night“, í Lost Horse-galleríinu sem er á bak við Hans Petersen í Bankastræti. Klukkan átta verður opnunar- athöfn í Hafnarhúsinu, fluttur gjörningur heiðurslistamanns há- tíðarinnar, Magnúsar Pálssonar, „Taðskegglingar“, kl. 20.30. Í Hugmyndahúsi við Mýrargötu (Sequences er þar með skrifstofu) flytur Sigurður Guðjónsson gjörn- ing kl. 21.30 og kl. 22 hefst gjörn- ingapartí í sama húsi. Sumir gjörn- inga hátíðarinnar verða í gangi alla vikuna og má þar nefna verk Snorra og Ásmundar Ásmundssona sem fjallað er um hér fyrir ofan. Björk Viggósdóttir listakona býður upp á áhættugjörning í samstarfi við Sigríði Soffíu Níelsdóttur dans- ara og verður hann framinn í Lista- safni Íslands. Hópur frá Finnlandi, Oblivia, mun sýna verkið „Enter- tainment Island II“ í Iðnó tvisvar yf- ir hátíðina en hann skipa fimm listamenn úr ólíkum greinum. Prinz Gholam nefnist þýskt dúó sem sýnir allsérstaka, dansvæna gjörninga með drama-ívafi í hinu nýja Sjó- minjasafni úti á Granda. Spartacus Chetwynd nefnist bresk listakona sem kemur til landsins með fimm manna fylgdarliði og býður upp á fyrirlestur og tvo gjörninga. Loka- hóf hátíðarinnar verður haldið í Norræna húsinu 7. nóv. og mun danski listamaðurinn Sören Dahl- gård bjóða upp á tilkomumikinn gjörning og einnig mun Hollending- urinn Maurice Block fremja sinn þriðja gjörning í húsinu. Þá verða sýndar gjörningatengdar hreyfi- myndir í Regnboganum. Gjörningar hér og þar Sequences býður til gjörningaveislu í Reykjavík Magnús Pálsson myndlistarmaður. Sigríður Soffía Níelsdóttir. Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „EINS og þú veist þá kemur rjóm- inn af ungu kynslóðinni saman í Menntaskólanum í Reykjavík, þetta eru okkar björtustu vonir,“ segir Ásmundur Ásmundsson myndlistarmaður, spurður að því hvað hann sé að bralla í MR. Ég var einmitt í MR þannig að þú sérð það nú … „Já, ég get ímyndað mér að mjög margir sem starfa hjá Morgunblað- inu hafi einmitt farið í gegnum þann skóla, til dæmis Davíð Odds- son. Heyrðu, talaðu við Snorra, ég er nefnilega að keyra,“ bætir Ás- mundur við og réttir bróður sínum símann. Snorri heldur áfram þar sem frá var horfið: „Hvað viltu vita?“ Þið eruð að fara að kenna MR- ingum myndlist og það tengist sjónlistahátíðinni Sequences … „Þetta tengist Sequences en þetta hefur nú alltaf verið svolítill draumur hjá okkur, að kenna í þessum skóla, því langafi okkar, Ólafur Dan Daníelsson, stofnaði stærðfræðideildina í Mennta- skólanum. Við erum af svo mikilli stærðfræðingafjölskyldu og notum stærðfræðina svolítið meira sjón- rænt og okkur langaði svolítið að miðla þessu til nemendanna,“ svar- ar Snorri. „Þannig að við erum svo- lítið montnir af því að fá að kenna í þessum skóla því þetta er yfirleitt, eins og Ási sagði, rjóminn af fólki sem kemur til með að hafa eitthvað um landið að segja.“ Farið yfir mörk Þannig að þið ætlið að reyna að gera framtíðarstjórnendur landsins listrænni í hugsun? „Já, hafa jákvæð áhrif á það, þannig að það verði ekki of ein- strengingslegt og fordómafullt.“ Er þetta námskeið í gjörn- ingalist? „Ég myndi nú ekki segja að þetta væri námskeið í gjörn- ingalist,“ svarar Snorri. „Ég er alltaf voða feiminn við að nota orð- ið gjörningalist, í rauninni má segja að það sé gjörningur í öllu sem ég geri, ég er opinberlega gjörninga- listamaður.“ Snorri segir þá bræð- ur fara með nemendur í svolítið ferðalag vítt og breitt og yfir ákveðin mörk sem þeim hafi verið sett, m.a. í náminu. MR-ingar komi til með að sjá hlutina frá öðru sjón- arhorni, heiminn í nýju ljósi. Snorri og Ásmundur fóru í MR í gær að hitta nemendur og velja á nám- skeiðið. Færri komast að en vildu og ásóknin var mikil, að sögn Snorra. Á lokadegi Sequences, 7. nóvember, verða bræðurnir með vinnusmiðju í skólanum og nem- endur sýna afrakstur námsins. Sá listræni gjörningur fer að öllum líkindum fram í hinum virðulega hátíðarsal skólans. „Þetta á örugg- lega eftir að gjörbreyta viðhorfum nemenda,“ segir Snorri að lokum. Morgunblaðið/Kristinn Snorri og Ásmundur Hittu nemendur Menntaskólans í Reykjavík í gær og völdu á myndlistarnámskeið sitt. Myndlist fyrir rjómann  Myndlistarbræðurnir Ásmundur og Snorri Ásmundssynir taka valda nem- endur Menntaskólans í Reykjavík í læri  Afrakstur sýndur á Sequences

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.