Morgunblaðið - 04.11.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn
Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór
Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÞÝSKIR fjölmiðlar birtu í gær frétt-
ir um að hrunið á þýskum fast-
eignamörkuðum hefði bitnað á fjölda
leikmanna í þýskum handbolta, þar
á meðal nokkrum Íslendingum.
Nefnir dagblaðið Hamburger
Abendblatt þrjá með nafni, þá Loga
Geirsson hjá Lemgo, Einar Hólm-
geirsson hjá Großwallstadt og Alex-
ander Peterson hjá Flensburg.
Á fréttavefnum handball-
world.com segir að orðrómur um
fasteignaviðskipti handboltaleik-
mannanna hafi gengið síðustu vikur.
Í Hamburger Morgenpost segir
að leikmaðurinn Hans Lindberg,
sem er af íslenskum ættum og lyk-
ilmaður í danska landsliðinu, hafi
sett 750 þúsund evrur í fimm íbúðir,
sem hann hafi aldrei séð auk þess
sem hann hafi engin gögn fengið í
hendur um þær. Í fyrirsögn er spurt
hvort Lindberg, sem leikur hjá
Hamburger Sportverein, hafi verið
plataður og haft eftir ónafn-
greindum heimildarmanni að óttast
sé að leikmönnunum hafi verið seld-
ar fasteignir í niðurníðslu.
Teflt á tæpasta vað
Í dagblaðinu Bild segir að leik-
mennirnir hafi teflt á tæpasta vað í
fjárfestingum sínum. Þar segir að
leikmennirnir hafi verið um 30 tals-
ins og verið í viðskiptum við Bene-
dict Capital.
Hamburger Abendblatt segir að
leikmennirnir hafi verið um 50.
„Enn hefur ekki verið skorið úr um
það hvort þessi viðskipti séu hafin
yfir allan grun, eða hvort eitthvað sé
athugavert við þau,“ segir í blaðinu.
Flestir leikmannanna eru hjá
Flensburg. Viðskiptin komu í ljós í
sumar þegar fara átti fram á að leik-
menn féllust á að laun þeirra lækk-
uðu. Kváðust þá nokkrir leikmenn
ekki geta það vegna afborgana af
fasteignunum.
Einn viðmælandi Bild segir að
leikmennirnir séu 25 og 27 ára og
hafi ekki yfirsýn til að átta sig á slík-
um viðskiptum. Munu nokkrir leik-
menn hyggja á málaferli á hendur
Benedict Capital. Björn H. Scholz,
sem sá um viðskiptin, svarar í
blaðinu og segir að enginn hafi
„haldið vélbyssu að hnakkanum á
þeim“ þegar gengið var frá lán-
unum. kbl@mbl.is
Íslenskir handboltaleikmenn
plataðir í fasteignabraski?
MÖRGUM finnst nóg um hvað sumir kaupmenn
eru fljótir að setja upp jólaskreytingar, löngu
fyrir jól. Fáir amast þó við hinum sígildu jóla-
stjörnum, sem eru reyndar einhver öruggasti
fyrirboði þess að jólin nálgast.
Fyrstu jólastjörnurnar komu á markað síðast-
liðna helgi. Hér vökvar Jóhanna Hilmarsdóttir,
starfsmaður í Garðheimum, fyrstu sendinguna
sem þar var boðið upp á.
JÓLASTJÖRNURNAR KOMNAR Á MARKAÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„EINS og útlitið er núna má reikna
með að þessi fyrsta hrina svínaflensu-
faraldursins nái að sýkja 30% þjóð-
arinnar, þ.e. um 100 þúsund manns.
Þá eru 200 þúsund manns eftir sem
ekki hafa fengið hana og það þýðir að
flensan hefur enn nóg fóður og því
gæti hún komið aftur seinna í vetur
eða næsta vetur,“ segir Þórólfur
Guðnason, yfirlæknir á sóttvarnasviði
Landlæknisembættisins. „Sökum
þessa er mjög mikilvægt að ná að
bólusetja sem flesta eins hratt og
kostur er til þess að hindra að veiran
nái sér á strik aftur. Því hún skal nokk
ná sér á strik aftur fyrr eða síðar.
Þannig að þó að fólk haldi að það hafi
sloppið við flensuna núna þá er það
ekki laust allra mála. Flensan nær
fólki fyrr eða síðar.“
Að sögn Þórólfs er ráðgert að fyrir
mánaðarlok hafi um 100 þúsund
skammtar bóluefnis borist til lands-
ins, 100 þúsund til viðbótar berist fyr-
ir áramót og restin í ársbyrjun.
Að sögn Þórólfs er nú unnið að því
að bólusetja forgangshópa, en hann
bindur vonir við að hægt verði að
byrja að bjóða almenningi bólusetn-
ingu upp úr miðjum þessum mánuði.
Þórólfur minnir á að almenningur
eigi að snúa sér til heilsugæslunnar í
sínu hverfi eða umdæmi en ekki síns
heimilislæknis. Bendir hann á að
bóluefninu verði dreift til heilsu-
gæslustöðva í samræmi við íbúafjölda
í hverju hverfi fyrir sig. Tekur hann
fram að reynt verði eftir fremsta
megni að tryggja samræmda þjón-
ustu milli stöðva og svipaðan biðtíma
eftir bólusetningu. Stefni í að mun-
urinn milli heilsugæslustöðva verði
meira en sem nemi einhverjum dög-
um þá verði dreifing bóluefnisins end-
urskoðuð. silja@mbl.is
Bólusetja þarf sem flesta
eins hratt og kostur er
Morgunblaðið/Ómar
30% þjóðarinnar
sýkt í fyrstu hrinu
ELDRI maður sem varð fyrir bif-
reið á Reykjanesbraut á móts við
Smáralind um kl. 13 í gær liggur al-
varlega slasaður á gjörgæslu Land-
spítalans í Fossvogi. Hann var í að-
gerð á níunda tímanum í gærkvöldi
og í lífshættu, að mati læknis.
Lögreglan þurfti að loka akbraut-
inni sem liggur til suðurs og beina
umferð inn á eystri akbrautina. Um-
ferð var hins vegar hleypt á síðari
hluta dags. sbs@mbl.is
Í lífshættu
eftir slys
Reykjanesbraut Ekið var á mann-
inn á móts við Smáralindina.
„Þetta er
nokkuð sem
verður að
tækla,“ seg-
ir Einar
Hólmgeirs-
son. Hann
segist í raun
ekki vita
meira um
málið en það
sem fram
hefur komið í þýskum fjöl-
miðlum. Hann kvaðst að öðru
leyti ekki vilja tjá sig um málið.
Verður að tækla
Einar
Hólmgeirsson
Lin Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is
Rýmum fyrir nýjum vörum
25%
afsláttur
af allri vöru
FARIÐ var í nítján húsleitir á veg-
um efnahagsbrotadeildar ríkislög-
reglustjóra í gær. Skattrannsókn-
arstjóri hefur
kært til deild-
arinnar fjórtán
mál þar sem er-
lend greiðslukort
voru notuð hér-
lendis en skuld-
færð erlendis,
einkum í Lúx-
emborg. Með því
komast viðkom-
endur hjá því að
greiða skatta af
tekjum sínum.
Gerð var húsleit á fjórtán heim-
ilum og í skrifstofum fimm einka-
hlutafélaga, tengdra þeim, til að afla
gagna um hvaðan féð til greiðslu
greiðslukortareikninganna kom og
lagt var hald á bæði tölvur og papp-
írsgögn. Aðallega var leitað í húsum
á höfuðborgarsvæðinu en í einu til-
viki á Ísafirði.
Um 50 manns tóku þátt í aðgerð-
um, að sögn Helga Magnúsar Gunn-
arssonar, saksóknara efnahags-
brotadeildar ríkislögreglustjóra.
Helgi Magnús segir að þar sem
skattrannsóknarstjóri hafi kært hús-
leitarmálin til efnahagsbrotadeild-
arinnar séu þau nú á forræði hennar
en unnið verði að þeim í samstarfi
við skattinn. sigrunrosa@mbl.is
Nítján
húsleitir
Kortin athuguð
Kort Greiðslukort-
in eru í athugun.