Morgunblaðið - 04.11.2009, Blaðsíða 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
5 2
6 9
8 1
7 2
6 5
3 6 4 7
4 2 8 3
8 9 6
7 1
1 6
8 5 9
1 4 2
9 5 4
2
5 8 3
3 7
4 9 2 7
6 9
9 6 4
2 8 7
8 3 6 9
6 9 7
7 6 1
2 3 4
8
7 8 2 1
4 6 9 1 8 5 7 3 2
2 5 7 4 6 3 1 8 9
8 1 3 9 2 7 4 5 6
7 9 4 6 5 2 3 1 8
3 2 5 7 1 8 6 9 4
1 8 6 3 4 9 5 2 7
9 3 1 8 7 4 2 6 5
5 7 8 2 3 6 9 4 1
6 4 2 5 9 1 8 7 3
2 7 8 6 3 5 1 9 4
1 5 4 9 2 7 3 6 8
6 3 9 8 1 4 7 5 2
4 1 2 3 9 8 6 7 5
7 8 3 4 5 6 2 1 9
9 6 5 2 7 1 4 8 3
3 2 6 1 8 9 5 4 7
8 4 7 5 6 3 9 2 1
5 9 1 7 4 2 8 3 6
1 8 5 9 2 7 3 6 4
2 6 4 8 3 1 7 5 9
7 3 9 4 6 5 8 1 2
9 7 3 5 1 8 4 2 6
8 1 6 2 9 4 5 7 3
4 5 2 3 7 6 9 8 1
5 2 8 6 4 9 1 3 7
3 4 7 1 5 2 6 9 8
6 9 1 7 8 3 2 4 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist töl-
urnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 4. nóvember,
308. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Hann stendur mér við
hlið til þess að veita mér lið og vernd.
(Daníel 11,1.)
Þriðja serían um þremenninganaGeorg, Ólaf Ragnar og Daníel
hefur verið hin mesta skemmtun.
Georg hefur aldrei verið jafn óþol-
andi, Ólafur Ragnar jafn skynlaus á
umhverfi sitt og Daníel jafn staðráð-
inn í að taka sér ekki tak og í nýju
þáttaröðinni. En skemmtigildi þátt-
anna er einnig fólgið í nokkrum nýj-
um persónum, sem kynntar hafa
verið til leiks. Björn Thors hefur
slegið í gegn í hlutverki Kenneths
Mána Johnsons eða Ketils Mána Ás-
laugarsonar í Fangavaktinni á Stöð
2. Að öðrum ólöstuðum fer hann á
kostum í hlutverki lesblinda fangans
með athyglisbrestinn, sem hinn
meinfýsni og yfirgengilegi Georg
Bjarnfreðarson gerir að fórnarlambi
sínu. Á köflum á áhorfandinn bágt
með að afbera það hvernig smám
saman er sótt að hinum varnarlausa
og ólánsama Katli og hann sviptur
nafni og þjóðerni án þess að hann fái
rönd við reist. Björn hefur um nokk-
urt skeið blómstrað á leiksviðinu, nú
síðast í hlutverki glímukappans
Schmitz í Brennuvörgum Max
Frisch. Hafi Björn ekki verið búinn
að stimpla sig rækilega inn, hefur
hann gert það núna.
x x x
Ólafur Darri Ólafsson er eft-irminnilegur í hlutverki helj-
armennisins, sem skýtur öllum skelk
í bringu á Litla-Hrauni nema hinum
síbernska Ólafi Ragnari. Persónan,
sem Ólafur Darri leikur, minnir
óneitanlega á indíánaforingjann í
kvikmyndinni Gaukshreiðrinu eftir
Milos Formann, þótt einnig komi
Lennie Small úr sögunni Mýs og
menn eftir John Steinbeck upp í
hugann. Til að hnykkja á þessari
tengingu var bein tilvitnun í Gauks-
hreiðrið í einum Fangavaktarþætt-
inum. Þá réttir Ólafur Ragnar ris-
anum tyggjóplötu. Hann tekur við
tyggjóinu, les á umbúðirnar og seg-
ir: „Juicy Fruit.“ Í kvikmyndinni
gerist svipað atvik, Jack Nicholson
réttir Will Simpson í hlutverki ind-
íánaforingjans tyggjóplötu. „Juicy
Fruit,“ segir indíánaforinginn og
Nicholson áttar sig á að hann hefur
verið að þykjast vera mállaus.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 talar fátt, 4
sjaldgæf, 7 dáin, 8 tryllt-
ar, 9 skepna, 11 sjá eftir,
13 vaxa, 14 sárið, 15
sorg, 17 sund, 20 bók-
stafur, 22 meðalið, 23
baunin, 24 áma, 25
skjóða.
Lóðrétt | : 1 valur, 2
vinnur, 3 geð, 4 í fjósi, 5
hremmir, 6 kaka, 10
rotnunarlyktin, 12 ve-
sæl, 13 sendimær Friggj-
ar, 15 trútt, 16 glufan, 18
sett, 19 rás, 20 skriðdýr,
21 klæðleysi.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 litarhátt, 8 fljót, 9 kofan, 10 rok, 11 sunna, 13
agnar, 15 hregg, 18 strók, 21 rík, 22 lygna, 23 akkur, 24
landskunn.
Lóðrétt: 2 iðjan, 3 aftra, 4 hakka, 5 tófan, 6 ofns, 7 knár,
12 nóg, 14 get, 15 hæla, 16 eigra, 17 grand, 18 skark, 19
rokan, 20 kort.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. g3 Bg7 4. Bg2 d5
5. O-O O-O 6. Rbd2 c5 7. c3 cxd4 8.
cxd4 Rc6 9. Rb3 Db6 10. Re5 a5 11.
Rxc6 bxc6 12. e3 Rd7 13. a4 Ba6 14.
He1 e6 15. Dc2 Hfd8 16. Rd2 c5 17. e4
cxd4 18. exd5 e5 19. Dc6 Da7 20. d6
Hdc8 21. Dd5 Hab8 22. Bh3 Hc5 23.
Da2 Hc2 24. Da3 f5 25. Bf1 e4 26. Bb5
d3 27. Db3+ Kh8 28. Df7 Bxb5 29.
axb5 Hf8 30. b6 Db7 31. De6 Rxb6 32.
Hxa5 Dc6 33. Rb3
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í
Ohrid í Makedóníu. Bandaríski stór-
meistarinn Gata Kamsky (2692) hafði
svart gegn Vanco Stamenkov (2344).
33… Hxc1! 34. Hxc1 Dxc1+! 35. Rxc1
d2 og hvítur gafst upp enda liðstap
óumflýjanlegt.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sambandsleysi.
Norður
♠1032
♥KDG108
♦4
♣ÁG104
Vestur Austur
♠54 ♠ÁDG9876
♥64 ♥Á93
♦1098 ♦52
♣KD7653 ♣9
Suður
♠K
♥752
♦ÁKDG763
♣82
Suður spilar 5♦.
Sagnir taka skamma stund: Suður
vekur á 1♦, norður svarar með 1♥ og
austur stekkur í 4♠. Suður lýkur svo um-
ræðunni með 5♦. Útspilið er ♣K. Er ein-
hver von?
Þrír tapslagir blasa við, en með ná-
kvæmum handtökum getur sagnhafi
nýtt sér sambandsleysið í vörninni. Eftir
aftrompun er hjarta spilað á blindan,
sem austur verður að sjálfsögðu að gefa.
Nú þarf að leika millileik, spila spaða til
að rjúfa varnarsambandið í þeim lit.
Austur drepur og spilar væntanlega
spaða um hæl. Suður trompar og snýr
aftur að hjartanu, sem austur verður enn
að dúkka. Sambandið í hjarta er þar með
rofið og tímabært að spila laufi til vest-
urs!
Sérkennilegt spil. Upphaflega hugðist
sagnhafi henda laufi í hjarta, en útkoman
verður sú að hann hendir hjarta í lauf.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ert í stuði til þess að leika þér
en álagið í vinnunni fer hins vegar vax-
andi. Reyndu að finna þér fótfestu í líf-
inu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það leiðir ekki til neins að ætla að
keyra skoðanir sínar ofan í aðra. Þú ert
ekki ein/n um að vera í þeirri stöðu að
fólk sé ekki á sama máli og þú.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Vertu óhræddur við að viðra
hugmyndir þínar því það gæti borgað
sig. Spjallaðu við vin, syngdu lag eða
gerðu eitthvað skapandi.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú átt bágt með að einbeita þér
að starfinu þar sem áhyggjur af einka-
málum dreifa athyglinni. Taktu hlutina í
þínar hendur og tryggðu afkomu þína.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Nú er komið að þér að hlaða batt-
eríin og endurnýja sig. Þú ert í þeirri
stöðu að geta tekið skref fram á við í
sambandi sem skiptir máli.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Leyfðu hlutunum að þróast af
sjálfu sér og reyndu ekki að hraða at-
burðarásinni, hversu mjög sem þig þó
langar til þess.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Nú kemst þú ekki lengur hjá því að
koma skikki á hlutina. En það getur
aldrei verið bara á annan veginn; sá, sem
þiggur verður að vera tilbúinn að gefa af
sér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú lætur sem þú eigir erfitt
með að taka ákvörðun í veigamiklu máli.
Varastu flókinn málatilbúnað því einfald-
leikinn er oftast bestur.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er eins og áhyggjurnar
hrannist upp með þér. Láttu ekki hug-
fallast því á endanum stendur þú með
pálmann í höndunum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Láttu engan komast í þína
hluti, nema þú hafir áður gengið úr
skugga um að þú getir treyst viðkom-
andi. Einn er sá sem alltaf hjálpar.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Kauphugleiðingar þínar eða
áætlanir um hvernig verja á tilteknum
fjármunum verða ekki að veruleika
vegna einhverra eða einhvers.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Láttu það eftir þér að hrinda
draumum þínum í framkvæmd þótt það
kosti einhverjar fórnir. Leitaðu aðstoðar
ef þér finnst þú ekki ráða við hlutina.
Stjörnuspá
4. nóvember 1959
Fyrsti þáttur framhalds-
leikritsins „Umhverfis jörðina
á 80 dögum,“ eftir sögu Jules
Verne, var á dagskrá Útvarps-
ins. Það varð mjög vinsælt.
4. nóvember 1965
Skriður og vatnavextir lokuðu
vegum á Vesturlandi og Vest-
fjörðum, hús skemmdust og
rafmagnsstaurar brotnuðu.
„Urðu stórspjöll á vegum,“
sagði í Veðráttunni.
4. nóvember 1969
Strætisvagnar skullu saman á
Skúlagötu í Reykjavík. Fimm-
tán farþegar slösuðust og báð-
ir bílstjórarnir. Þetta voru
Vogar hraðferð og Kleppur
hraðferð. Eldur kom upp í öðr-
um vagninum við áreksturinn.
4. nóvember 1996
Þyrlur lentu í fyrsta sinn á
fjalli sem myndaðist ofan í
ísgjá við eldgos hjá Bárðar-
bungu á Vatnajökli. Ómar
Ragnarsson steig fyrstur fæti
á hið nýja land.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Karólína Jack, Brynhildur Vala
Björnsdóttir og Sóley Bjarkardóttir
héldu tombólu fyrir utan Nóatún í
Austurver og gáfu ágóðann, 13.975
kr. til Rauða kross Íslands.
Hlutavelta
„ÆTLI þetta verði ekki hefðbundinn dagur með
vinnu,“ segir Jóhann Ólafur Halldórsson, blaðamað-
ur sem starfar sem almannatengill hjá Athygli á Ak-
ureyri, þegar hann er inntur eftir því hvað hann ætli
að gera á afmælinu. Segir hann líklegt að hann fari
kannski aðeins fyrr heim úr vinnunni og bjóði vinum
og ættingjum í kvöldkaffi.
Spurður um eftirminnileg afmæli segist Jóhann
Ólafur helst muna eftir góðum afmælisdögum úr
bernsku sinni þegar hann bjó á Jarðbrú í Svarf-
aðardalnum. „Það var nú oft meira viðhaft þegar
maður var krakki. Þá komu vinir og bekkjarfélagar
manns í afmælisveisluna og það er eins og mig minni að oftar en ekki
hafi verið kominn vetur, ólíkt eilífa haustinu sem nú er.“
Einnig nefnir Jóhann Ólafur fertugsafmæli sitt þegar hann tók sig til
og eldaði tvo dýrindis saltfisksrétti og færði vinnufélögum í næstu skrif-
stofu í hádegisverð. „Þetta uppátæki varð þess valdandi að þessir ágætu
vinir mínir fengu matarást – eða öllu heldur saltifiskást – á mér og eru
þegar búnir að hringja og minna mig á að ég eigi „stórafmæli“ í ár. Það
lætur nærri að þau fylgist betur með afmælisdögum mínum en ég sjálf-
ur! Þetta bendir til þess að saltfiskurinn hafi verið ætur.“ silja@mbl.is
Jóhann Ólafur Halldórsson blaðamaður 45 ára
Bauð í saltfiskveislu
Nýirborgarar
Reykjavík Vala Fanney
fæddist 10. september kl.
18.33. Hún vó 3.355 g og
var 49 cm löng. Foreldrar
hennar eru Lóa Sigríður
Ólafsdóttir og Tryggvi
Knut Farestveit.
Reykjavík Emma Sigrún
fæddist 25. júlí kl. 22.23.
Hún vó 1.750 g og var 42
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Hafdís Priscilla
Hanssen og Jón Baldur
Baldursson.
Reykjavík Baldvin Týr
Sifjarson fæddist 23. sept-
ember kl. 17.28. Hann vó
4.495 g og var 52 cm lang-
ur. Móðir hans er Sif
Hauksdóttir.
Gréta Toredóttir og Viktoría
Kjartansdóttir heldu tombólu í
Austurveri og söfnuðu 18.665 krón-
um sem þær gáfu Rauða krossi Ís-
lands.