Morgunblaðið - 04.11.2009, Qupperneq 23
Minningar 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Hundagallerí auglýsir
kíktu á heimasíðu okkar:
www.dalsmynni.is
Sími 566 8417,
bjóðum visa og euro raðgreiðslur.Gisting
Sumarhús til leigu miðsvæðis á
Akureyri- Þrjú svefnherbergi (78 fm).
Rúm fyrir sjö. Verönd og heitur pottur.
Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net-
samband. Uppl. á www.saeluhus.is
eða í 618-2800.
AKUREYRI
Sumarhús (140 fm) til leigu við
Akureyri. 4 svefnherb. + svefnloft, 2
baðherb, rúm fyrir 11 manns, verönd
og heitur pottur, glæsilegt útsýni yfir
Akureyri. www.orlofshus.is eða
Leó, sími 897 5300.
Heimilistæki
Vantar þvottavél
Vantar þvottavél, þarf ekki að vera
nýleg. Einar, 695-2413.
Hljóðfæri
Dúndurtilboð!!!!
Kassagítarar: 1/4 stærð kr
10.900. pakkinn með poka,
strengjasett og stilliflautu. 4/4
stærð 15.900.- Rafmagnsgítar-
pakkar frá kr. 39.900. Þjóðlaga-
gítarpakkar frá 19.900.-
Hljómborð frá kr. 8.900.-
Trommusett kr. 79.900.- með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125.
www.gitarinn.is0
Atvinnuhúsnæði
Skrifstofuhúsnæði í miðbæ
Reykjavíkur - Óska eftir litlu skrif-
stofuhúsnæði í miðbæ Reykjavíkur.
Einar, sími: 695-2413.
Tómstundir
Öflugir fjarstýrðir bensínbílar
í miklu úrvali
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is.
Skemmtanir
Jólasveinaþjónusta Skyrgáms
- með stóra hjartað!
Förum að koma til byggða, viltu að
við komum við hjá þér? 20% rennur
til Hjálparstarfs kirkjunnar. Uppl. og
pantanir á skyrgamur@skyrgamur.is
og skyrgamur.is
Til sölu
Klakavél til sölu
Framleiðir 40 kg á sólarhring og er
með 20 l biðu. Þriggja ára en svo gott
sem ónotuð. Verð aðeins 100.000 kr.
Upplýsingar í gsm 893-1500.
Ískuldi kælitækjaþjónusta.
Frystiklefi, 11,8 rúmmetrar, 2,3 x 2,3
x 2,3 m, 10 cm veggjaþykkt. Hefur
verið notaður í tæplega eitt ár. Verð
500.000 kr. Uppl. í gsm 893 1500
Ískuldi kælitækjaþjónusta.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Þjónusta
Skilríkjam. Barna- og fjölskyldu-
myndat. Ljósmyndastofa Gunnars
Ingimarssonar Suðurveri - Stigahlíð
45 - S. 553 4852.
Ýmislegt
TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ
meðan birgðir endast!
Létt fyllt korselett á kr. 3.500,-
buxur á kr. 1.000,-"
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Glæsilegir dömuskór úr leðri,
fóðraðir með flís. Stærðir: 36 -42.
Verð: 17.500,-
Þægilegir dómuskór úr leðri,
skinnfóðraðir.
Stærðir: 36 - 42.
Verð: 14.685,-
Þægilegir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir og á lágum og
stöðugum hæl. Góður sóli. Margar
gerðir. Stærðir: 36 - 42.
Verð: 14.685,-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
FREEMANS-LISTINN
Kjóll/toppur, verð aðeins kr. 4.185.-
til í svörtu, dökkbleiku, gráu, fjólubláu
og grænbláu. Pantaðu í síma 565-
3900 eða www.freemans.is
Bílaþjónusta
Hjólbarðar
Umfelgun tilboð, 13” kr. 3900,
14” og 15 “ kr. 4900, 16” 5900. 15%
afsláttur af Matador og Insa Turbo
dekkjum. Gildir miðvikud. 4.11.2009
gegn framvísunar auglýsingar.
Kaldasel ehf.
hjólbarðaverkstæði, Dalvegi 16b,
Kópavogi. S. 544 4333.
Ökukennsla
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Mótorhjól
Óska eftir Kawasaki KLE 500
eða KLX 650
Óska eftir Kawasaki ferðahjóli eða
sambærilegu. Lítið ekið. Hafðu sam-
band við Jón í síma 825 6431.
Húsviðhald
Skipti um rennur og bárujárn
á þökum, einnig smávægilegar
múrviðgerðir og ýmislegt fl.
Þjónum landsbyggðinni einnig.
Upplýsingar í síma 659-3598.
Sisal teppi
Strönd ehf. Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík. s. 533 5800,
www.strond.is
Það er með sárum
trega sem við starfs-
menn Ásbjörns Ólafssonar ehf.
kveðjum Lollý. Auk þess að vera eig-
andi fyrirtækisins var hún líka okkar
sameiningartákn. Lollý var gift Birni
Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra
fyrirtækisins, en hann lést árið 1996.
Hún hafði áhuga á öllu sem tengdist
fyrirtækinu og sérstaklega var henni
umhugað um starfsmennina og fjöl-
skyldur þeirra. Þó svo að heilsa henn-
ar hafi ekki alltaf verið upp á það
besta fylgdist hún vel með öllu og lét
sig aldrei vanta hvort sem um var að
ræða ferðalög til útlanda, árshátíðir
eða aðrar skemmtanir.
Lollý varð svo lánsöm að endur-
nýja kynni sín við Kidda æskuvin
sinn úr Húnavatnssýslunni og í
Köldukinn hjá honum átti hún sitt
annað heimili. Lollý leið alltaf vel fyr-
ir norðan en þegar hún var í bænum
kíkti hún iðulega í hádegismat til
okkar glæsileg að vanda með bros á
vör. Þannig gat hún fylgst með gangi
fyrirtækisins og ekki síst átt sam-
verustund með okkur starfsfólkinu.
Lollý og hennar fjölskylda hafa alltaf
verið höfðingjar heim að sækja og
Ólafía Ásbjarnardóttir
(Lollý)
✝ Ólafía Ásbjarn-ardóttir (Lollý)
fæddist á Kag-
aðarhóli í Austur-
Húnavatnssýslu 28.
júlí 1935. Hún lést á
St. Jósefsspítalanum í
Hafnarfirði 24. októ-
ber sl. og fór útför
hennar fram frá
Langholtskirkju 30.
október.
Meira: mbl.is/minningar
höfum við starfsfólkið
notið góðs af því. Við
höfum farið saman í
margar ferðir og með-
al annars var ein af
þeim farin í tilefni af
100 ára afmæli Ás-
björns Ólafssonar, föð-
ur hennar. Þá bauð
fjölskyldan öllu starfs-
fólkinu ásamt mökum í
dagsferð norður í
Köldukinn og þar var
slegið upp mikilli
veislu og hvergi til
sparað frekar en fyrri
daginn.
Við sem vinnum hjá Ásbirni Ólafs-
syni ehf. erum svo heppin að finnast
við vera hluti af fjölskyldunni en ekki
bara starfsmenn. Þegar við minn-
umst hennar þá er það sem glæsi-
legrar konu sem mátti ekkert aumt
sjá og kvartaði aldrei þrátt fyrir að
vera sárkvalin. Lollý hafði óbilandi
áhuga og trú á lífinu og kenndi okkur
að þakka fyrir það sem við höfum.
Starfsfólk Ásbjörns Ólafssonar
ehf. vottar fjölskyldu og ættingjum
Lollýjar innilega samúð. Minning um
góða konu lifir.
Fyrir hönd starfsfólks Ásbjörns
Ólafssonar ehf.,
Lára Benediktsdóttir.
Þegar ég hugsa um Lollý frænku
kemur fyrst í hugann ótrúleg lífs-
orka, eldmóður, hjálpsemi og hvað
hún var gjafmild. Lífsvilji hennar og
jákvæðni komu berlega í ljós í bar-
áttu hennar við þann illvíga sjúkdóm
sem krabbinn getur verið. Ekkert
annað kom til greina hjá henni en að
halda ótrauð áfram. Hún hafði alltaf
eitthvað að lifa fyrir og hlakka til. Hún
hafði engan tíma til að „standa í þessu
veseni“ eins og hún sagði sjálf.
Lollý og fjölskylda komu yfirleitt
norður á hverju sumri. Ég hlakkaði
mikið til þegar þau voru væntanleg.
Það var gaman að hitta frændfólkið og
Lollý fylgdi einstakur léttleiki og lífs-
gleði. Auk þess kom hún alltaf fær-
andi hendi, með ýmislegt matarkyns
og gjafir handa okkur systkinunum.
Lollý var sérstaklega flink að velja
eitthvað sem mig langaði mikið í og
var jafnvel búið að langa í lengi.
Það var alltaf einstök stund þegar
jólapakkinn frá Lollý og fjölskyldu
kom. Að jafnaði var það stór pappa-
kassi sem var opnaður þegar hann
kom í hús, pakkarnir teknir upp úr og
farið með þá upp á loft þar sem þeir
biðu þess að verða settir undir jóla-
tréð á aðfangadag. Lollý sendi líka
hverju okkar systkinanna stóran
nammipoka og svo kom prins póló
kassi. Hann var opnaður á aðfanga-
dagskvöld þegar búið var að taka upp
pakkana. Prins póló og mjólkurglas
var yfirleitt það síðasta sem við feng-
um áður en við fórum að sofa.
Það var bæði spennandi og gaman
að koma í heimsókn til Lollýjar og
Bjössa í Reykjavík. Þau áttu einstak-
lega fallegt heimili, mikið af skemmti-
legum munum og málverkum. Það var
líka alltaf svo mikið um að vera hjá
fjölskyldunni. Lollý töfraði fram mikl-
ar og flottar veislur án minnstu fyr-
irhafnar að því er virtist og var líklega
ein af mínum fyrstu fyrirmyndum í
áhuga mínum á matargerð sem kvikn-
aði snemma. Lollý bauð til dæmis upp
á alvöru súkkulaðisósu og loftkökur
með ísnum. Þetta fannst mér mikið
lostæti.
Ég man eftir að hafa oft heyrt sem
krakki að Lollý væri eiginlega systir
pabba. Svo kom að því að ég áttaði
mig á að í raun og veru voru þau
systrabörn. Þá varð ég sem snöggvast
hálfsvekkt og fannst Lollý ekki eins
mikið skyld mér og ég gjarnan vildi að
þessi frænka mín væri.
Ég er þakklát fyrir að hafa átt Lollý
frænku, minning hennar mun lifa með
okkur. Elsku frændfólk; Óli, Ásta, Ási,
Guðmundur, Gunnlaugur og fjölskyld-
ur, Kristófer og fjölskylda ég og fjöl-
skylda mín vottum ykkur öllum sam-
úð okkar.
Berghildur Ásdís Stefánsdóttir.
Einstök frænka hefur kvatt eftir
nokkurra ára baráttu við illvígan sjúk-
dóm, krabbamein. Það sem fyrst kem-
ur í hugann þegar ég hugsa um Lollý
er einstök lífsgleði. Hún smitaði henni
ríkulega til annarra alla tíð. Henni
fylgdi alltaf hressilegur blær þegar
hún birtist í eldhúsinu á Kagaðarhóli
frá því ég, sem barn, man fyrst eftir
henni og þar til ég hitti hana þar síð-
ast í sumar. Þrátt fyrir að ég vissi að
Lollý var oft sárlasin í seinni tíð
merkti ég það aldrei þegar ég hitti
hana og fannst hún aldrei veik. Hún
bar sig þannig. Hún var alltaf hress,
hafði einhverjar góðar fréttir að færa
af sinni stórfjölskyldu eða af einhverj-
um spennandi atburðum sem voru
framundan í lífi hennar. Lollý frænka
fæddist á Kagaðarhóli, mínum upp-
vaxtarstað, og ólst að hluta til upp þar
með föður mínum. Þau voru systra-
börn. Það var á sumrin sem Lollý var
sem barn mörg sumur á Kagaðarhóli
því hún var mikil sveitamanneskja.
Hún hafði yndi af skepnum og sam-
vistum við þær og þá ekki hvað síst
hrossum. Hún og föðuramma mín
heitin, Guðrún, sem ég heiti í höfuðið
á, voru góðar vinkonur. Þær nutu þess
að ríða út saman. Lollý sagði mér frá
því hvað henni þótti gaman að ríða
milli bæja með Nunnu eins og hún
kallaði hana. Þær fóru til dæmis ríð-
andi yfir að Orrastöðum og niður á
Blönduós. Eina sem mér leiddist,
sagði Lollý, var að bíða eftir ömmu
þinni þegar hún talaði við kerlingarn-
ar. „Ég þurfti oft að bíða lengi því
amma þín þurfti að tala svo mikið.“
Og svo hló Lollý sínum glaðlega
hlátri.
Ég fór að velta því fyrir mér að ég
hef ekki oft haft tækifæri til að tala
mikið við Lollý þegar ég hef hitt hana
á Kagaðarhóli. Ástæðan er einföld,
hún og mamma töluðu svo mikið
saman. Það var best að reyna ekkert
að komast að. En það var gott hvað
þær voru góðar vinkonur og náðu vel
saman. Það gerðist þó einu sinni í
sumar að ég átti sennilega mitt
lengsta samtal við Lollý. Ég var
stödd á Kagaðarhóli og hún hringir.
Ég svara því mamma var einhvers
staðar úti. Við Lollý förum að spjalla.
Hún var þá stödd á Sankti Jósefsspít-
ala til að fá sína reglulegu blóð- og
lyfjagjöf. Þá þurfti hún að liggja þar í
nokkra daga og gjöfin látin renna í
hana í æð. Hún sagði mér að þetta
ætti nú ekki vel við sig að liggja
svona aðgerðalaus dögum saman.
Hún notaði því meðal annars tímann
til að hafa samband við fólk í símann,
bæði að sinna vinum og fjölskyldu og
svo að skipuleggja það sem var fram-
undan. Í miðju símtali biður hún mig
að hinkra því það sé að koma hjúkr-
unarkona inn til sín sem hún þurfi að
eiga orð við. Ég heyri þá í gegnum
símann að Lollý segir við hana: „Má
þetta ekki renna svolítið hraðar, bara
pínulítið hraðar?“ Þetta finnst mér
lýsa henni vel. Það var svo mikill hug-
ur og kraftur í henni til að lifa lífinu
og njóta þess. Það var alltaf eitthvað
framundan sem hún stefndi á.
Það er gott að minnast Lollýjar
frænku og missir fjölskyldunnar er
mikill. Við fjölskylda mín vottum
ykkur dýpstu samúð, elsku Ási, Ásta,
Guðmundur.
Gunnlaugur, Óli, Kristófer
og fjölskyldur.
Fleiri minningargreinar um Ólaf-
íu Ásbjarnardóttur (Lollý) bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.