Morgunblaðið - 04.11.2009, Qupperneq 29
Rokkarar
heiðraðir
RONNIE Wood, gítarleikari Roll-
ing Stones, var á meðal verðlauna-
hafa á Classic Rock-verðlaunahá-
tíðinni sem fór fram í London í
fyrradag.
Wood, sem var verðlaunaður fyr-
ir framlag sitt til rokktónlistar, seg-
ir að þetta sé í fyrsta sinn sem hann
hljóti viðurkenningu sem þessa.
„Þetta hefur mikla þýðingu fyrir
mig,“ sagði hann og bætti við: „Það
var kominn tími til. Ég hef aldrei
hlotið verðlaun sem eru bara handa
mér.“
Meðal annarra stjarna á hátíðinni
voru gítarleikararnir Slash, sem
var í Guns N’ Roses, og Joe Perry
úr Aerosmith.
Þá var John heitinn Bonham,
trommuleikari Led Zeppelin, Gin-
ger Baker, sem lamdi húðir í
Cream, og Iggy Pop heiðraðir, en
Pop var útnefndur lifandi goðsögn.
Nýjasta breiðskífa AC/DC, Black
Ice, var valin plata ársins að mati
lesenda tímaritsins Classic Rock.
Platan fór beint á toppinn í 29 lönd-
um.
Iron Maiden var valin hljómsveit
ársins. Liðsmenn hennar greindu
frá því að þeir væru byrjaðir að
vinna að 15. hljóðversskífu sveit-
arinnar. Iggy Pop Sjarmerandi rokkari.
Wood Með taktana á hreinu.
Reuters
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2009
Þrír gaurar, sem eru sam-an í skóla og búa viðólíkar fjölskyldu-aðstæður, eru að ljúka tí-
unda bekk og hyggjast fagna því
með fyrsta fylliríinu. Búið er að
útvega bjór og bríser og allt klárt
en svo skipast veður í lofti. Þvílík
vika er mjög týpísk, raunsæisleg
unglingasaga úr samtímanum;
gelgjulegir strákar spjalla á Face-
book í sveittum fótboltaskóm, fúl-
ir kennarar hafa gert þeim lífið
leitt, foreldrarnir eru doldið af-
skiptasamir en svo koma sætar
stelpur sem hanga í Smáralindinni
og eru alveg til í að verða kær-
ustur.
„Það er undarlegt að vakna með
fleiri tonn af bólum framan í sér
þegar maður sofnaði kvöldið áður
með í mesta lagi tvær eða þrjár.
„Djöfulsins fokking shit“. Ég
stend ber að ofan og skoða ljót-
asta andlit í heimi með fáránleg-
asta fjölda af bólum sem gosið
hafa upp á einni nóttu. „Eru þetta
morgunbænirnar?“ Það hefði engu
breytt þó að það hefði ekki fylgt
nein rödd með þessum orðum – ég
hefði samt vitað hver væri að tala.
Svona talar bara mamma og þá er
ég ekki bara að meina hér á heim-
ilinu – nei, ég er að tala um ver-
öldina.“ (79) Sögumaðurinn Geiri
er skynsamur strákur sem þolir
ekki ambögur á íslensku máli
(„það var sagt mér …“), á ágæta
foreldra, lítinn bróður og stór-
skemmtilega eldri systur sem
finnst hún bera nokkra ábyrgð á
bróður sínum og framtíð hans.
Unglingslegt talmálið, slettur og
frasar, virka ágætlega og staf-
setningin á sms-unum er hrikaleg.
Stemningin er sú að börn eru
besta fólk en áfengi hið mesta böl.
Húmorinn er léttur og tekið á
unglingaflækjunum af skilningi og
samúð. Bókin hlaut „íslensku
barnabókaverðlaunin“ sem Vaka-
Helgafell efnir til á hverju ári,
skipuð er dómnefnd og valið úr
innsendum handritum. Þetta er
hressileg saga og hefðbundin,
auðlesin og stundum fyndin og
persónurnar eru geðþekkar. Því-
lík vika er ekki framúrstefnuleg
eða sérlega metnaðarfull en hún
er söluvæn og boðskapurinn skýr
og sannarlega góður til síns
brúks.
Bríser og bömmer
Unglingabók
Þvílík vika
bbmnn
Eftir Guðmund Brynjólfsson.
Vaka Helgafell 2009. 134 bls.
STEINUNN INGA
ÓTTARSDÓTTIR
BÆKUR
Þvílík vika Unglingabók eftir
Guðmund Brynjólfsson.
Miðasala í Háskólabíói » Sími 545 2500 » www.sinfonia.is
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Á morgun kl. 19.30 » Ásdís og Eldfuglinn
Stjórnandi: Rumon Gamba
Einleikari: Ásdís Valdimarsdóttir
Michael Tippett: Fantasía um stef eftir Corelli
William Walton: Víólukonsert
Ígor Stravinskíj: Eldfuglinn
Munið Vinafélagskynninguna í Neskirkju.
Súpa og spjall Árna Heimis Ingólfssonar um verkin á
tónleikunum á Kaffitorginu í Neskirkju kl. 18.00. Allir
velkomnir.
Fös. 06.11. kl. 21.00 » Heyrðu mig nú! Eldfuglinn
Stjórnandi: Rumon Gamba
Ígor Stravinskíj: Eldfuglinn
Klukkutíma langir tónleikar fyrir ungt fólk. Stutt
kynning á undan og opið hús á eftir.
Verð aðeins 1500 kr.
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Fjölskyldan, nýjar aukas. í sölu í dag
Fjölskyldan - ágúst í Osagesýslu (Stóra sviðið)
Fös 6/11 kl. 19:00 4.K Sun 22/11 kl. 19:00 10.K Fim 10/12 kl. 19:00 aukas.
Sun 8/11 kl. 19:00 5.K Mið 25/11 kl. 19:00 aukas Fös 11/12 kl. 19:00 14.K
Fim 12/11 kl. 19:00 6.K Fim 26/11 kl. 19:00 11.K Sun 13/12 kl. 19:00
Fös 13/11 kl. 19:00 7.K Fös 27/11 kl. 19:00 12.K Fös 18/12 kl. 19:00 aukas.
Sun 15/11 kl. 19:00 8.K Sun 29/11 kl. 19:00 Aukas. Lau 19/12 kl. 19:00
Mið 18/11 kl. 19:00 Aukas Lau 5/12 kl. 19:00 13.k Þri 29/12 kl. 19:00
Fös 20/11 kl. 19:00 9.K Sun 6/12 kl. 19:00 aukas. Mið 30/12 kl. 19:00
Sýningin er þrír þættir, hver 1 klst að lengd. Hlé eftir 1. og 2. þátt.
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Fim 5/11 kl. 20:00 Aukas Lau 21/11 kl. 19:00 Aukas. Lau 5/12 kl. 14:00
Lau 7/11 kl. 14:00 Sun 22/11 kl. 14:00 Sun 13/12 kl. 14:00
Lau 14/11 kl. 14:00 Lau 28/11 kl. 14:00 Aukas Sun 27/12 kl. 14:00
Sun 15/11 kl. 14:00 Aukas Sun 29/11 kl. 14:00 Aukas Sun 27/12 kl. 19:00
Nýjar aukasýningar í sölu. Tryggðu þér miða strax
Harry og Heimir (Litla sviðið)
Fim 5/11 kl. 20:00 31.K Fös 27/11 kl. 19:00 41.K Lau 19/12 kl. 16:00
Lau 7/11 kl. 19:00 32.K Fös 27/11 kl. 22:00 42.K Sun 27/12 kl. 22:00
Lau 7/11 kl. 22:00 33.K Þri 1/12 kl. 20:00 43.K Mán 28/12 kl. 19:00
Sun 8/11 kl. 20:30 34.K Fös 4/12 kl. 19:00 44.K Fös 8/1 kl. 19:00
Fös 13/11 kl. 19:00 35.K Fös 4/12 kl. 22:00 45.K Fös 8/1 kl. 22:00
Fös 13/11 kl. 22:00 36.K Lau 12/12 kl. 19:00 46.K Fös 15/1 kl. 19:00
Lau 14/11 kl. 19:00 37.K Lau 12/12 kl. 22:00 47.K Lau 16/1 kl. 19:00
Lau 14/11 kl. 22:00 38.K Sun 13/12 kl. 20:00 48.K Lau 16/1 kl. 22:00
Sun 22/11 kl. 20:30 39.K Fös 18/12 kl. 19:00 49.K Sun 17/1 kl. 20:00
Fim 26/11 kl. 20:00 40.K Fös 18/12 kl. 22:00 50.K Fim 21/1 kl. 20:00
Sala hafin á sýningar í janúar
Djúpið (Litla svið/Nýja svið)
Fös 6/11 kl. 20:00 Aukas Lau 14/11 kl. 20:00 Aukas Mið 25/11 kl. 19:00 Aukas
Lau 7/11 kl. 20:00 Aukas Sun 15/11 kl. 20:00 Mið 25/11 kl. 21:00
Fös 13/11 kl. 20:00 Aukas Þri 24/11 kl. 20:00 Aukas
Síðustu sýningar! Sýningartími: 1 klst, ekkert hlé.
Bláa gullið (Litla svið)
Lau 7/11 kl. 14:00 Lau 21/11 kl. 15:00
Sun 15/11 kl. 14:00 Lau 28/11 kl. 15:00
Uppsetning Opið út í samstarfi við Borgarleikhúsið.
Dauðasyndirnar (Litla sviðið)
Fös 6/11 kl. 20:00 Lau 14/11 kl. 15:00 Fim 3/12 kl. 20:00 síðasta
sýn
Sun 8/11 kl. 14:00 Sun 22/11 kl. 14:00
Fim 12/11 kl. 20:00 Mið 2/12 kl. 20:00
Síðustu sýningar. 20% afsláttur til Vísa kreditkorthafa
Sannleikurinn (Stóra sviðið)
Lau 21/11 kl. 22:30 Aukas. Lau 12/12 kl. 19:00 Aukas.
Fös 4/12 kl. 22:30 Aukas. Lau 12/12 kl. 22:00 Aukas.
ATH ! SÍÐUSTU SÝNINGAR
Við borgum ekki (Stóra svið)
Lau 7/11 kl. 20:00 Lau 14/11 kl. 22:00
Lau 14/11 kl. 19:00 Fim 19/11 kl. 20:00
Uppsetning Nýja Íslands.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS
Kardemommubærinn (Stóra sviðið)
Sun 8/11 kl. 14:00 Sun 15/11 kl. 14:00 Sun 22/11 kl. 14:00
Sun 8/11 kl. 17:00 Sun 15/11 kl. 17:00 Sun 22/11 kl. 17:00
Þri 10/11 kl. 18:00 Aukas. Þri 17/11 kl. 18:00 Aukas. Sun 29/11 kl. 17:00
Mið 11/11 kl. 18:00 Aukas. Mið 18/11 kl. 18:00 Aukas.
Sýningum lýkur 29. nóvember
Frida ... viva la vida (None)
Lau 7/11 kl. 20:00 Lau 14/11 kl. 16:00 Aukas. Lau 14/11 kl. 20:00
Síðasta sýning 14. nóvember!
Brennuvargarnir (Stóra sviðið)
Fim 5/11 kl. 20:00 6. K Fös 13/11 kl. 20:00 Fös 27/11 kl. 20:00
Fös 6/11 kl. 20:00 7. K Fös 20/11 kl. 20:00 Lau 28/11 kl. 20:00
Fim 12/11 kl. 20:00 8. K Lau 21/11 kl. 20:00
Nýjar sýningar í nóvember komnar í sölu!
Utan gátta (Kassinn)
Lau 7/11 kl. 17:00 aukas. Mið 11/11 kl. 20:00 aukas. Lau 14/11 kl. 20:00 aukas.
Lau 7/11 kl. 20:00 aukas. Lau 14/11 kl. 17:00 aukas. Fim 19/11 kl. 20:00 aukas.
Missið ekki af þessari - allra síðustu sýningar!
Völva (Kassinn)
Fim 5/11 kl. 20:00 Fös 6/11 kl. 20:00 Fim 12/11 kl. 20:00
Aðeins sýnt í nóvember!
Oliver! (Stóra sviðið)
Lau 26/12 kl. 20:00 Frums. Lau 2/1 kl. 16:00 Aukas. Lau 9/1 kl. 20:00 7. K
Sun 27/12 kl. 16:00 Aukas. Lau 2/1 kl. 20:00 5. K Sun 10/1 kl. 16:00 Aukas.
Sun 27/12 kl. 20:00 2. K Sun 3/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 10/1 kl. 20:00 8. K
Þri 29/12 kl. 20:00 3. K Sun 3/1 kl. 20:00 6. K
Mið 30/12 kl. 20:00 4. K Lau 9/1 kl. 16:00 Aukas.
Miðasala hafin!
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Lau 7/11 kl. 13:30 Sun 8/11 kl. 15:00 Sun 15/11 kl. 13:30
Lau 7/11 kl. 15:00 Lau 14/11 kl. 13:30 Sun 15/11 kl. 15:00
Sun 8/11 kl. 13:30 Lau 14/11 kl. 15:00
Miðaverð aðeins 1500 kr.
Leitin að jólunum (Leikhúsloftið)
Lau 28/11 kl. 11:00 Lau 5/12 kl. 14:30 Sun 13/12 kl. 13:00
Lau 28/11 kl. 13:00 Sun 6/12 kl. 11:00 Sun 13/12 kl. 14:30
Lau 28/11 kl. 14:30 100.sýn. Sun 6/12 kl. 13:00 Lau 19/12 kl. 11:00
Sun 29/11 kl. 11:00 Sun 6/12 kl. 14:30 Lau 19/12 kl. 13:00
Sun 29/11 kl. 13:00 Lau 12/12 kl. 11:00 Lau 19/12 kl. 14:30
Sun 29/11 kl. 14:30 Lau 12/12 kl. 13:00 Sun 20/12 kl. 11:00
Lau 5/12 kl. 11:00 Lau 12/12 kl. 14:30 Sun 20/12 kl. 13:00
Lau 5/12 kl. 13:00 Sun 13/12 kl. 11:00 Sun 20/12 kl. 14:30
Miðasala hafin - tryggið ykkur sæti!
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
Lilja (Rýmið)
Fim 5/11 kl. 20:00 Aukas Sun 8/11 kl. 20:00 Aukas Lau 14/11 kl. 20:00 Aukas
Fös 6/11 kl. 20:00 Aukas Fim 12/11 kl. 20:00 Aukas Sun 15/11 kl. 20:00 Aukas
Lau 7/11 kl. 20:00 Aukas Fös 13/11 kl. 20:00 Aukas Fös 20/11 kl. 20:00 Aukas
Ósóttar pantanir seldar daglega
K=Kort Aukas.= Ný sýning Fors.=Forsýning Frums.= Frumsýning
KVIKMYNDIN Paranormal Acti-
vity verður frumsýnd í dag og er sú
ekki fyrir viðkvæma, bönnuð börn-
um innan 16 ára.
Myndin segir í stuttu máli af ungu
pari sem flytur inn í hús eitt í út-
hverfi, vitandi að þar er reimt, að
einkennilegir atburðir eiga sér þar
stað. Fljótlega fer margt einkenni-
legt að gerast um miðja nótt, jafn-
vel eitthvað djöfullegt á ferli.
Myndin er í tekin svipuðum stíl og
Blair Witch Project, sögupersón-
urnar sjálfar með myndatökuvélar
þannig að áhorfandinn sér atburði
með þeirra augum og eftirlits-
myndavélar í húsinu skipa einnig
stórt hlutverk. Fyrir vikið eykst til-
finning áhorfandans fyrir því að
sagan sé raunveruleg, að raunveru-
legir atburðir eigi sér stað.
Með aðalhlutverk í myndinni fara
Katie Featherston, Micah Sloat,
Mark Friedrichs, Amber Arm-
strong og Ashley Palmer.
Handritshöfundur og leikstjóri er
Oren Peli.
Erlendir dómar:
Imdb: 7,3/10
Metacritic: 68/100
Variety: 80/100
The New York Times: 50/100
Time: 80/100
Smeyk Aðalleikkona Paranormal
Activity, Katie Featherston.
Margt
leynist í
myrkrinu
FRUMSÝNING»