Morgunblaðið - 04.11.2009, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2009
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
Fyrir tveimur áratugum eða svo varð ákveðinendurnýjun í íslensku tónlistarlífi og framkomu hljómsveitir og tónlistarmenn sem áttueftir að láta verulega að sér kveða á næstu ár-
um. Ein af þeim hljómsveitum var Todmobile, og þó að
hún hafi ekki lifað ýkja lengi hafa liðsmenn hennar verið
áberandi, aukinheldur sem áhrifa sveitarinnar gætir enn.
Todmobile kemur saman að nýju í kvöld í Íslensku óper-
unni til að fagna tuttugu ára afmæli sínu.
Todmobile fagnar nú tuttugu ára afmælinu, en reyndar
er tuttugu og eitt ár síðan hún lét fyrst í sér heyra, en það
var með laginu „Sameiginlegt“ á safnplötunni Frostlög-
um sem kom út í byrjun desember 1988.
Þó ýmsir hafi komið við sögu sveitarinnar var kjarni
hennar lengst af Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Andrea
Gylfadóttir og Eyþór Arnalds. Öll höfðu þá starfað í tón-
list áður, Andrea var í Grafík, Þorvaldur Bjarni í Pax
Vobis og Eyþór í Tappa tíkarrass. Todmobile varð síðan
til þegar þeir Þorvaldur Bjarni og Eyþór kynntust í tón-
smíðanámi og fengu Andreu til að flytja með sér skóla-
verkefni. Eitt leiddi af öðru; „Sameiginlegt“ kom út
haustið 1988 og fyrsta breiðskífan, Betra en nokkuð ann-
að, kom svo út haustið eftir.
Það er óhætt að segja að það hafi kveðið við nýjan
hljóm í tónlist Todmobile. Tónlistin var í senn íburðar-
meiri og dramatískari en menn áttu að venjast á þessum
árum (og eiga reyndar enn), tónleikar sveitarinnar voru
mikið sjónarspil og myndböndin sem hún gerði við lög sín
tóku flestu öðru fram sem þá hafði sést, bæði hvað varð-
aði úrvinnslu og á stundum tækni.
Það verður að teljast vel viðeigandi að Todmobile troði
upp í Óperunni, enda var það einskonar heimavöllur
hennar og þar hélt hún jafnan útgáfutónleika sína. Mörg-
um er það eflaust minnisstæð sú naumhyggjulega kynn-
ing sem tónleikarnir fengu; svart/hvít veggspjöld þar sem
aðeins stóð nafn sveitarinnar, tónleikastaður og síðan
dagsetning. Óhætt er að segja að það hafi svínvirkað því
ævinlega var uppselt á Óperutónleika Todmobile og iðu-
lega urðu margir frá að hverfa.
Eins og getið er þá kom fyrsta plata sveitarinnar,
Betra en nokkuð annað, út 1989. Platan Todmobile kom
út 1990 og síðan Ópera 1991, en í kjölfar hennar hélt
sveitin í tónleikaferð hringinn í kringum landið og var
ekkert til sparað að gera þá tónleika sem glæsilegasta.
Tónleikaskífan 2603 kom út 1992, en hún var hljóðrituð í
Óperunni, nema hvað.
1993 kom út síðasta Todmobile-platan í bili, Spillt, en
Eyþór, sem stofnað hafði hljómsveina Bong með Móeiði
Júníusdóttur heitmey sinni, var þá eiginlega hættur í sveit-
inni og kemur lítið við sögu á plötunni. Á gamlársdag 1993
var Todmobile svo lögð á hilluna og þau Þorvaldur Bjarni
og Andrea stofnuðu hljómsveitina Tweety.
Bong og Tweety sendi bráðar frá sér breiðskífur 1994,
Tweety Bít og Bong Release. Todmobile-samstarfið togaði
þó enn í þau Þorvald Bjarna og Andreu og 1996 tóku þau
upp þráðinn að nýju, endurreistu Todmobile með nýjum
mannskap að hluta og tóku upp plötuna Perlur og svín sem
kom út þá um haustið. Fjórum árum síðar kom út tvöföld
safnplata með nýjum lögum.
Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt tónleikaröð haustið 2003
með poppsveitum og eðlilega gráupplagt að fá Todmobile í
það samstarf. Þá gekk Eyþór til liðs við sveitina að nýju, en
tónleikarnir komu út 2004 undir nafninu Sinfónía. Fyrsta
Todmobile-platan með upprunalegri þrenningu, Ópus 6,
kom svo út 2006.
Af ofangreindu má sjá að Todmobile hefir eiginlega
aldrei hætt, bara tekið sér frí öðru hvoru, en gott yfirlit yfir
sögu sveitarinnar í tónum og myndum fæst á safndisknum
þrefalda Spiladós sem kemur út á morgun, en á honum eru
33 lög og að auki 19 tónlistarmyndbönd og tónleikabrot á
DVD. Ekki er ljóst hvort afmælistónleikarnir og safnplat-
an séu vísbending um það að sveitin sé að vinna að nýju
efni; við lifum í voninni.
Eins og getið er þá er uppselt á afmælistónleika Todmo-
bile í Óperunni í kvöld, en örvæntið ekki: Það verða aðrir
tónleikar á sama stað eftir tvær vikur; 18. nóvember nk.
Til hamingju Todmobile!
1992 Frá tónleikum í mars.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
2006 Todmobile í nóvember 2006, myndin tekin í tilefni af útgáfutónleikum vegna plötunnar Ópus 6.
1990 Takið eftir tískunni.
Óperan Á tónleikum í Íslensku óperunni 1992.
» Það verður aðteljast vel við-
eigandi að Todmo-
bile troði upp í Óp-
erunni, enda var
það einskonar
heimavöllur hennar
og þar hélt hún
jafnan útgáfu-
tónleika sína
88/100 CHICAGO SUN-TIMES,
ROGER EBERT
EKKI
ER ALLT
SEM
SÝNIST!
MÖGNUÐ SPENNU-
MYND SEM FÆR
HÁRIN TIL AÐ RÍSA
88/100 CHICAGO SUN-TIMES,
ROGER EBERT
STRANGLEGA BÖNNUÐ BÖRNUM
“MORE SHOCKING THAN ‘THE SIXTH SENSE.’”
– PAUL CHRISTENSEN, MOVIEWEB.COM
“NOT SINCE ‘FATAL ATTRACTION’ HAS A MOVIE
DELIVERED SUCH SURPRISING MOMENTS.”
– MARK S. ALLEN, CBS-TV
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
HVAÐ GÆTI
MÖGULEGA
FARIÐ
ÚRSKEIÐIS?
SPRENGHLÆGILEG GAMANMYND
MEÐ FRÁBÆRUM LEIKURUM
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
4 PÖR FARA SAMAN Í
FERÐALAG TIL HITABELTISEYJU
BÍÓ GESTIR TJÁ SIG Á FACEBOOK
- Æðisleg!
- Algjört meistarverk!!
- Myndin er geeðveik! :D
- sá myndina þína í dag þú er idolið mitt sveppi
- Þetta er geðveik mynd!!!! Allir að fara á hana
- Langbesta myndin líka - Sveppi á erindi til okkar allra
- hún er geeeðveik
- Snillddddddd
YFIR 30.000 GESTIR
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
Frá leikstjóra Ocean‘s
myndanna, S. Soderbergh kemur
stórkostleg mynd með snilldar húmor
Byggð á sannsögulegum atburðum
Matt Damon er stórkostlegur
sem Uppljóstrarinn!
HHHH
„AS SODERBERGH LOVINGLY PEELS AWAY VEIL
AFTER VEIL OF DECEPTION, THE FILM DEVELOPS
INTO AN UNEXPECTED HUMAN COMEDY.“
CHICAGO SUN-TIMES ROGER EBERT
HHHH
"HILARIOUS,GRIPPING AND RIDICULOUSLY ENTER-
TAINING.ONE OF THE YEAR’S BEST FILMS.”
STEPHEN REBELLO, PLAYBOY
“MATT DAMON IS A JOY TO WATCH.”
TOM CARSON, GQ
“CLEVER,ORIGINAL AND VERY FUNNY.”
LEONARD MALTIN, ENTERTAINMENT TONIGHT
HHH
„THERE IS DEVILISH FUN IN THIS LOOK INTO
1990S WHITE-COLLAR CRIME. BUT THE JOKES ARE
THE KIND YOU CHOKE ON.“
ROLLING STONES
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
/ KRINGLUNNI
THE INFORMANT kl. 8:10 - 10:30 L
TOY STORY 1 m. ísl. tali kl. 6:153D L 3D-DIGITAL
COUPLES RETREAT kl. 8:10D - 10:30D 12 DIGITAL
SKELLIBJALLA OG TÝNDI FJÁRSJ. m. ísl. tali kl. 6:15D L DIGITAL
ORPHAN kl. 10:30 16
SURROGATES Síðustu sýningar kl. 8:30 12
UPP (UP) m. ísl. tali kl. 6:15 L
/ ÁLFABAKKA
THE INFORMANT kl. 5:50 - 8 - 10:20 L FAME kl. 5:50 - 8 L
THE INFORMANT kl. 8 - 10:20 LÚXUS VIP ORPHAN kl. 10:20 16
TOY STORY 1 m. ísl. tali kl. 63D 16 3D-DIGITAL SURROGATES Síðustu sýningar kl. 8 12
COUPLES RETREAT kl. 5:50 - 8 - 10:20 12 ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN AÐ VILLA kl. 6D L
GAMER kl. 8 - 10:20 16 FUNNY PEOPLE Síðustu sýningar kl. 10 12
GAMER kl. 6 LÚXUS VIP
COUPLESRETREAT
ORPHAN
Reykjavík
Sími 588 9090
Síðumúla 21 • 108 Reykjavík
www.eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali
Einbýlishús í Þingholtunum óskast
– góðar greiðslur í boði
Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega
300-400 fm einbýlishús í Þingholtunum.
Góðar greiðslur í boði.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson
löggiltur fasteignasali í síma 861-8514