Norðurland


Norðurland - 27.04.1979, Blaðsíða 3

Norðurland - 27.04.1979, Blaðsíða 3
1. Maí: Grcenland verður yyLand fólksins“ Þann 1. maí, á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins, tek- ur við heimastjórn í Kalaatdlít-núnaat („Land fólksins“) - eins og íbúar Grænlands kalla landið sitt. Það var í byrjun þessa áratugs að nokkrir ungir Grænlending- ar settu heimastjórnarmálið á dagskrá og á tilltölulega stutt- um tíma hafa stefnumál þeirra náð fram að ganga. Hversu takmörkuð og um- deild heimastjórnin kann að vera markar hún þó tímamót í sögu allrar Inúít-þjóðarinnar. Þar sem u.þ.b. helmingur allrar Inúít-þjóðarinnar býr á Græn- landi er það örlagaríkt hversu vel tekst til á Grænlandi á kom- andi árum. Allir Islendingar, og þó sér í lagi framfarasinnað fólk hér á landi, hlýtur að fylgjast vel með framvindu mála hjá næsta ná- granna okkar og styðja við bak- komið á 1. maí næstkommandi með sérstakri lagasetningu danska þjóðþingsins ekki ósvip- að því er gerðist hér á landi með stöðulögunum árið 1871 og heimastjóminni 1903 og hjá Færeyingum 1948. Hérerumað ræða einhliða danska lagasetn- ingu sem danska þjóðþingið í raun og veru getur numið úr gildi hvenær sem er þar sem stjórnarskrá landsins hefur ekki verið breytt í samræmi við lög þessi og Danmörk ekki gerð að sambandsríki. Eftir gildistöku heimastjórn- arinnar munu Grænlendingar eftir sem áður senda tvo fulltrúa á danska þjóðþingið. Danska ríkið mun hafa sérstakan full- ið á þeim sem hyggjast byggja upp hið nýja grænlenska þjóðfé- lag. Hér á eftir skal stuttlega lýst nokkrum atriðum varðandi heimastjórn Kaiaatdlít-núnaat og sagt nánar frá stefnumálum tveggja vinstriflokka á Græn- landi, þ.e.a.s. stærsta stjórn- málaflokks landsins, Síúmút (heitið merkir „áfram“, 46,2% atkvæða við nýafstaðna kosn- ingar og 13 fulltma af 21 á landsþinginu) og Inúít Ataqatí- gíít (sem táknar „samfylking", 4,4% atkvæða og engan fulltrúa á landsþinginu). Fyrir siða sakir skal þess getið að til eru tveir aðrir stjórnmála- flokkar á Grænlandi. Mið- eða hægriflokkinn Atassút (41,8% atvæða, 8 menn á þinginu) kennir sig við hefðbundna sósíal- demokratíska stefnu, en slíkt er, eins og allir vita, mjög svo teygjanlegt hugtak. Atassút er í stórum dráttum fylgjandi hæg- fara umbótastefnu innan nú- verandi þjóðskipulags og þeirr- ar takmörkuðu heimastjórnar sem nú tekur gildi. Flokkurinn er sambandssinnaður hvort heldur varðar danska ríkið, Efnahagsbandalag Evrópu eða NATO. Fjórði stjórnmálaflokkurinn, Súlissartíút Partiat, sem tók þátt í kosningunum í byrjun aprílmánaðar, (5,5% atkv. og engan mann kjörinn), varstofn- aður rétt fyrir kosningar. Flokk urinn var stofnaður af græn- lenska Alþýðusambandinu eftir miklar deilur. Takmarkaða heimastjórnin Hinni takmörkuðu heima- stjórn Kalaatdlít-núnaat verður trúa í Kalaatdlít-núnaat, svo- kaljaðan „rigsombudsmand". A Grænlandi mun starfa svo- kallað landsþing með 21 fulltrúa og skipar landsþingið lands- stjórn 4-5 manna. Er nú augljóst að Súúmút mun einn flokka fara með landsstjórnina á grundvelli hreins meirihluta síns á þinginu. Eftirfarandi málefni munu á næstu fimm árum flytjast frá danska ríkinu til grænlensku heimastjórnarinnar: Starfsemi Konunglegu Grænlandsversl- unarinnar, sem spannar t.d. millilandasiglingar, útgerð, frystihúsrekstur, hverskonar inn- og útflutning, heildsölu- og smásöluverslun, skólamál, vinnu- og félagsmál, verk- menntun og menntun kennara og félagsfræðinga ýmiskonar, kirkjumál, útvarp og sjónvarp, bókasöfn og tómstundastarf- semi. Danir munu áfram einir fara með allt sem varðar utanríkis-, öryggis- og varnarmál Kalaatd- lít-núnaat ásamt lög- og dóm- gæslu. Það á að heita að danska rík- ið og grænlenska heimastjórnin hafi í sameiningu umráð yfir auðlindum Kalaatdlít-núnaat. Að vísu má þetta teljast spor í rétta átt miðað við það sem hingað til hefur verið, þar sem danska ríkið hefur verið skil- greint sem eini eigandi á auð- lindum Grænlands. Segja máað þetta hafi verið umdeildasta at- riðið í samningunum um heima- stjórn. Nýja ákvæðið er mála- miðlun, sem danska ríkisstjórn- in (þá sósíaldemókratar) með Anker Jorgensen í broddi fylk- ingar neyddist til að fallast á, þegar leit út fyrir að slitna mundi upp úr samningunum. Ef það hefði gerst er ekki ólíklegt að þróunin í átt til sjálfstæðis á Grænlandi hefði getað orðið enn örari en danska íhaldið, Efna- hagsbandalag Evrópu, NATO, Bandaríkin og fjölþjóða auð- hringar hefðu getað gert sér í hugarlund. Eitt er þó víst að ekkert af þessum ákvæðum munu standa óbreytt til eilífðar! Þeim má breyta eins og öllum mannanna verícum - það sem ræður úrslií- um og hraða þjóðfélagsbreyt- inganna er að sjálfsögðu styrkur vinsti vængs grænlenskra stjóm- mála. Síúmút Síúmút var stofnaðsem stjórn málahreyfing árið 1975 af mönnum eins og Moses Olsen, Lars Emil Johansen og Odaq Olsen. Samtökunum varbreyttí stjórnmálaflokk í júlí 1977 og átti 7 af 17 fulltrúum í gamla landsráðinu grænlenska, þ.e. a.s. héraðsstjórnin fyrir „amtið Grænland“, sem einungis hefði ráðgefandi stöðu gagnvart dönsku rikisstjórninni. Síúmút var um s.l. áramót með flokks- deildir á 28 stöðum og yfir 800 félaga. Eftir nýafstaðnar kosningar til nýja landsþingsins, sem eftir 1. maí þessa árs mun fara með heimastjórn Grænlands, hafa þeir 13 af 21 fulltrúum á þing- inu. Þessi hreini meirihluti þýð- ir, að þeir muni einir skipa fyrstu grænlensku landsstjórn- ina. Síúmút félagar eru samþykkir heimstjórninni, en líta á hana sem áfanga að auknu sjálfstæði. Auka skal stoðugt ábyrgð Grænlendinga í öllum málum, Framhald á bls. 10. Siminn er 81333 UOWIUINN SIÐUMTTLA 6 SIMI 81333 P.S SUNNUDAGSBLAÐIÐ er stórglæsilegt. Umboðsmenn Þjóðviljans á Norðurlandi eystra: Akureyri: Haraldur Bogason, Norðurgötu 36, sími 96-24079. Dalvík: Guðný Ásólfsdóttir, Heimavistinni, sími 96-61384. Húsavík: Björgvin Árnason, Baughóli 15, sími 96-41267. Ólafsfjörður: Agnar Víglundsson, Kirkjuvegi 18, sími 96-62297. Raufarhöfn: Sigurveig Björnsdóttir, Ásgarði 5, sími 96-51194. NORÐURLAND - 3

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.