Norðurland - 27.04.1979, Side 4

Norðurland - 27.04.1979, Side 4
Helgi Guðmundsson form. Trésmiðafélags Akureyrar er besta vörnin Undanfarið ár hefur verið næsta viðburðaríkt að því er varðar baráttustöðu verkalýðs- hreyfingarinnar. Niðurstaða kosninganna á sl. ári var rök- rétt framhald þeirra stétta- átaka sem átt höfðu sér stað í þjóðfélaginu mánuðina á und- an. Myndun þeirrar ríkisstjórn- ar sem enn situr, þó með harm- kvælum hafi verið undanfarnar vikur, var einnig í fullu og eðli- legu framhaldi af þeim stétta- átökum. Til valda var komin ríkis- stjórn rækilega studd af verka- lýðshreyfingunni með þann einstæða starfsgrundvöll að hafa þegar á fyrstu mánuðum sínum fengið fyrirheit um að hún gæti reiknað með vinnu- friði næsta árið. Verkalýðs- hreyfingin ætlaði að fella sig við óbreyttan kaupmátt launa næsta árið. Sólstöðusamning- arnir skyldu gilda til ársloka 1979. Sókn Nú virðist meiga reikna með að ríkisstjórnin hafi komið sér saman um skaplegan starfsfrið næstu vikurnar að minnsta kosti, þótt óneitanlega liggi í loftinu að ekki hafi rimman um kjaraskerðinguna verið til lykta leidd. Eigi Alþýðubandalagið að geta með sæmilegri reisn rök- stutt langa setu sína í þejrri ríkisstjórn sem þegar hefur að nokkru vikið sér undan því að standa við samkomulag um óbreytta kjarasamninga allt þetta ár, hefur þar að auki keypt aðild sína að ríkisstjórn- inni því verði að láta flest ógert í hermálinu, þá þarf árangur- inn af starfi flokksins í félags- og menningarmálum að verða slíkur að sköpum skipti til margra næstu ára. Þannig verða félagsleg rétt- indamál, margvísleg, bætt að- staða verkafólks og samtaka þeirra, sókn í menningarmál- um og umskipti í menntunar- málum einkum með tilliti til fullorðinna ekki minna virði þegar frá líður en einhver krónutöluhækkun launa. I þeirri umræðu sem átt hefur sér stað undanfarna mánuði um nauðsyn þess að ríkisstjórnin sitji vegna þessað hún eigi svo mörgu af góðum verkum lokið hefur allt of lítið farið fyrir hugmyndum um hver þessi góðu verk eigi að vera. Það er mikil nauðsyn að gera sér grein fyrir hvort þessii menn fái í öðrum málaflokk- um svo mikinn ávinning að menn leggi hefðbundna kjara- baráttu á hilluna um sinn. Innan tíðar munu opinberir starfsmenn ganga til atkvæða um það hvort þeir vilji heldur þrjú prósent launahækkun en aukinn verkfallsrétt. Það væri merkilegskammsýni ef niður- staða þeirra atkvæðagreiðslu yrði sú að verkfallsréttinum yrði hafnað fyrir 3% launa- hækkun. Er vert að minna á, í því sambandi að nær allar félagslegar umbætur, að ekki sé minnst á launamál, sem orð- ið hafa í landinu, eru tilkom- nar fyrir tilstuðlan verkalýðs- hreyfingarinnar og vegna full- vissunnar um það afl sem sam- tök launafólksbúa yfir í krafti verkfallsréttarins. Urtölu- menn meðal opinberra starfs- manna geta vafalítið bent á að launamálum þeirra sé ekki verr komið en annars verka- fólks þrátt fyrir engan eða mjög takmarkaðan samnings og verkfallsrétt um árabil. Þetta er vissulega rétt að nokkru, en það skulu þeir góðu menn muna að staða opinberra starfsmanna er ekki síst til kominn vegna samnings og verkfallsréttar félaganna í Alþýðusambandinu. Undan- farna áratugi hefur launa og réttindamálum þeirra verið að mestu leyti skipað með tilliti til þess hver varáranguralmennu verkalýðsfélaganna í landinu í stéttabaráttunni. Það tók verkalýðshreyfing- una mörg ár og harða og langvinna baráttu að knýja fram þau mannréttindi sem samnings og verkfallsréttur felur í sér. Það væri sérstætt verðmætamat ef opinberir starfsmenn virtu ekki þann rétt meir en 3% launahækkun. Gildismat breytist að sjálf- sögðu með árunum. Með hverri breytingu, sem verður til batnaðar á félagslegri stöðu verkafólks, breytist fljótlega gildismatið þannig að hin áunnu réttindi verða sjálfsögð og það svo mjög, að fjölda mörgum dettur ekki annað í hug, en að hið nýja ástand sé fullkomlega sjálfsagt tilkomið án nokkurar baráttu. Það hafi alltaf verið svona og engum muni nokkru sinni detta í hug að breyta því. Þetta sjónarmið er ákaflega varasamt og ekki í neinu samræmi við talandi reynslu undangenginna ára. I því sambandi er vert að minna enn einu sinni á að hægri stjórnin, sem hrökklaðist frá völdum í fyrra vor, hafði á prjónunum áform um mjög skerta starfs- aðstöðu verkalýðssamtak- anna. Tillögur hennnar um nýja vinnulöggjöf beindust allar í þá átt að takmarka baráttugetu samtaka launa- fólks. Kosningaósigur hennar kom í veg fyrir þau áform og mörg fleiri sem afturhaldið í landinu hefur haft á sínum óskalista um margra ára skeið. Ihaldið hefur lengi klæjað í fingurgómana eftir ráðherra- yfirráðum yfir menntamálum og útvarpi. Þröngsýni og menningarleg nesjamennska að viðbættu því að hafa áhuga á að takmarka sem mest starfsaðstöðu vinstri sinna í fjölmiðlum og menntakerfi er einkenni á stefnu Sjálfstæðis- flokksins í menningarmálum. En varnarsigur í framan- greindum málum er ekki nóg. Sókn fram á við er eina vörnin þegar til lengdar lætur og það er hlutverk Alþýðubandalags- ins að leiða hana og fylgja henni eftir. hágé. Sjö stelpur Þessi fríði og föngulegi hópur vann að byggingu Svæðisíþróttahússins sl. sumar. Arsþing IBA Höfundur: Erik Thorstensson (dulnefni) Leikstjóri: Viðar Eggertsson Leikmynd: Leikhópurinn. Leikklúbburinn Saga frum- sýndi „Sjö stelpur“ sl. þriðju- dagskvöld. Klúbburinn var upp haflega á vegum Æskulýðsráðs Akureyrar, en starfar nú innan vébanda Bandalags íslenskra leikfélaga. í honum eru aðallega nemendur framhaldsskóla bæjarins. „Sjö stelpur" er 4. verkefni Sögu og hentar flokk- num ágætlega, þar sem inntak (leiksins hlýtur að höfða til þessa aldurshópss, þótt efnið eigi ekki síður erindi til þeirra eldri. Leik- ritið gerist á sænsku upptöku- heimili fyrir svonefndar vand- ræðastúlkur. í verkinu tekst vel að lýsa vanlíðan stelpnanna, óöryggi þeirra, vanmáttar- kennd, taugaveiklun og ein- manaleik. Oryggisleysið brýst fram í æðisköstum, ruddaskap, sljóleika, grimmd og eiturlyfja neyslu. Reynt er að skyggnast í bakgrunn stelpnanna og leyta ástæðna fyrir stöðu þeirra. Gerir höfundur þar persónum sínum afar misjöfn skil. Finnst mér helsti veikleiki verksins reyndar felast í of lítilli natni við leitun orsaka þessa bágborna ástands. Sem leikhúsverk stendur það nokkuð vel fyrir sínu, atburðarás lífleg, flestar persónur áhugaverðar og ger- andi talsverð með hinu talaða orði. Sýningin ber þess að sjálf- sögðu merki að hér er á ferðinni fólk með litla leikreynslu. Það kemur helst niður á óskýrri framsögn á köflum, of miklum hraða og æsingi, sem leikendur ráða ekki allskostar við. Eintöl og fámennar senur eru áberandi betri en hópsenurnar. Margt er þó prýðisvel gert, sérstaklega þar sem reynir á einlægni per- sónanna þegar þær Iýsa draum- um sínum og tilfinningum. Leikstjórinn Viðar Eggertsson, hefur greinilega unnið verk sitt af natni og skapað skilning og samúð leikendanna með per- sónum sínum. Leikmynd er smekkleg og þjónar verkinu vel. Hafi þetta unga leiklistarfólk þökk fyrir framlag sitt. Vonandi heldur starfið áfram að blóm- stra. káó. íþróttabandalag Akureyrar hélt sitt 34. ársþing að Jaðri dagana 22. mars og 3.ja. apríl s.l. Rétt til setu á þinginu höfðu 60 fulltrúar frá 19 aðildarfélögum. ísak Guðmann bauð fundarmenn vel- komna, sérstaklega fulltrúa frá íþróttafélaginu EIK þ.e. íþrótta- félagi þroskaheftra en þeir sátu þing I.B.A. í fyrsta sinn. Aðurnefndur formaður hafði áður tilkynnt að hann gæfi ekki kost á sér til endurkjörs en hann hafðigegnt formennsku i Í.B.A. í 12 ár. Stungið var upp á Knúti Otterstedt og var hann sam- þykktur með lófaklappú Knút- ur er einnig formaður Iþrótta- ráðs bæjarins. Fráfarandi for- manni voru þökkuð vel unnin störf í þágu bandalagsins og formenn K.A. og Þórs færðu honum gjafir í þakklætisskyni. Auk Knúts skipa stjórn Í.B.A. þeir Gunnar Kárason fulltrúi K.A. og Þröstur Guðjónsson frá Þór og voru þeir báðir í gömlu stjórninni. Margar merkar tillögur voru bornar fram á þinginu. Þar var samþykkt m.a. tillaga varðandi niðurfellingu á tollum og vöru- gjaldi af íþróttatækjum, vélum og búnaði til viðhalds og byggingu íþróttamannvirkja. Þá lýsti þingið fyllsta stuðningi við framkomna þingsályktunar- tillögu flutta af Lúðvik Jósefs- syni, Einari Ágústssyni, Árna Gunnarssyni og Ellert Schram. Ársþingið fól stjórn banda- lagsins að skipa nefnd til þess að vinna að því að kosinn verði íþróttamaður ársins á Akureyri ár hvert. Síðast en ekki síst er að geta tillögu þar sem þingið hvetur bæjarstjórn til þess að gerð áætlun um framkvæmdir við Svæðisíþróttahúsið 1979 standist og heimili lántökur svo því markmiði verði náð. Hinn nýi formaður banda- lagsins Knútur Otterstedt boð- hjá bandalaginu, Til stórvið- fyrir skömmu. Við það tækifæri færði hann fyrirrénnara sínum Isak Guðmann viðurkenningu frá I.B.A. fyrir gott starf í þágu bandalagsins. Á þessum fyrsta fundi kom fram aðgróskumikið og blómlegt starf er framundan hjá bandalaginu. Til sórvið- burða telst vetraríþróttahátíð sem haldið verður í lok febrúar á næsta ári. Hátið þessi er í nánum tengslum við íþróttahá- tíðina í R.vík. seinna á sama ári. Síðast var haldið íþróttahátíð 1970 og hyggst Í.S.Í. leggja á nýjan leik í þetta stórvirki. EB r > Sendum félögum okkar og verkafólki um land allt baráttukveðjur 1. maí. Verkalýðsfélag Raufarhafnar Sendum félögum okkar og verkafólki um land allt baráttukveðjur 1. maí. Verkalýðsfélag Norðfirðinga 4 - NORÐURLAND

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.