Norðurland - 27.04.1979, Síða 12

Norðurland - 27.04.1979, Síða 12
NORÐURLAND Fðstudagur 27. apríl 1979 MÁLGAGN SÓSÍALISTA í NORÐURLANDSKJÖR- D/F.MI EYSTRA GERIST ÁSKRIFENDUR - Stminn er 2-18-75 - AUGLYSIÐ I NORÐ'URLANDI - Síminn er 2-18-75 - 1. maí-hátíðahöld verkalýðsfélaganna á Akureyri KRÖFUGANGA BARNASAMKOMA í Siálfstæðishúsinu kl. 15.00. Safnast verður saman við Verkalýðshúsið kl. 13.30. ÚTIFUNDUR á Ráðhústorgi að aflokinni kröfugöngu. Dagskrá: 1. maí-ávarp verkalýðsfélaganna á Akureyri flytur Jökull Guömundsson. Ræðumenn verða: Karl Steinar Guönason, form. Verkalf. Keflavíkur. Svavar Gestson, viðskiptaráðherra. Upplestur: Ljóð verkalýðsins (Viöar Eggertsson). Fundarstjóri Jökull Guðmundsson, vélvirki, formaður 1. maí-nefndar. Lúðrasveit Akureyrar leikur fyrir göngunni og á fundin- um. Stjórnandi Stefán Bergþórsson. Fjölmennið til hátiðahaldanna. Berið merki dagsins. Skemmtiatriði og dans. Aðgöngumiðar verða seldir í Verkalýðshúsinu frá kl. 10 f.h. og við innganginn. HÁTÍÐARSÝNING Leikfélags Akureyrar á Sjálf- stæðu fólki kl. 20.30 1. maí. DANSLEIKUR verður einnig á vegum 1. maí-nefndar mánudaginn 30. apríl. í Sjálfstæðishúsinu. Dansað til 2. Hljómsveit hússins leikur. Miðasala við innganginn. Væntanlegir matargestir hafi samband við yfirþjón frá kl. 3. Kvennadeild Einingar verður með opið hús og kaffi- sölu að loknum útifundi í Alþýðuhúsinu. Gleðilega hátíð 1. mai. 1. maí-nefnd verkalýðsfélaganna. Brynjólfur Gíslason og Guðrún Helgadottir 1 hlutverkum sinum í Svefnlausa Brúðgumanum, sem Leikfélag Þórshafnar hefur verið að sýna. Svefnlaus Þórshöfn 24/4 Varðskip losaði mb. Fald úr ísnum í fyrradag, - báturinn er nú á leið til Norð- fjarðar. Varðskipsmenn könnuðu skemmdir á skipinu, en þær reyndust sem betur fer vera minni en haldið var í fyrstu. Bátarnir tveir, sem enn eru fastir á Krossa- víkinni eiga ekki annars úrkosta en bíða. Skipverjar eru að vonum orðnir leiðir á að vera þarna. Varðskip hefur haldið sig í nám- unda við bátana. „Svefnlausi brúðguminn1 var sýndur hér þrisvar sinnum. brúðgumi Alls sáu um 300 manns leikinn. Ekki eru fyrirhugaðar fleiri sýn- ingar. Þistlarnir þe. íbúar í Þistil- firði hafa verið að æfa leikritið Skjaldhamra heima á bæjunum undanfarið en eru nú komnir með sitt hafurtask til Þórshafn- ar og æfa af kappi. Þeir munu frumsýna um næstu ’helgi. Atvinnuástand er slæmt hér nú, - ekki einu sinni hægt að stunda grásleppuveiðar. Arnþór. 0PID HÚS - 1. MAÍ í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18. Dagskrá: 1. Orn Arason leikur á gítar. 2. „Menning hvunndagsins" dagskrá í tali og tónum. Samantekt úr ritverkum seinni ára. Kaffiveitingar. Húsið opnað eftir útifund verkalýðsfélaganna. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Alþýðubándalagið Akureyri. Alþýðubandalagið á Akureyri sendir alþýðu landsins baráttukveðjur. Félagar! Fjölmennum í kröfugönguna 1. maí. Hittumst síðan í oþnu húsi. f' 1 .... Sendum íslenskri cdþýðu baráttukveðjur í tilefni dagsins. Kjördæmisráð Norðurland Alþýðubandalagsins Undirbúningur að félagsheimili Verkalýðsfélögin á Akureyri hafa sett á laggirnar 12 manna nefnd til að vinna að sameigin- legri byggingu félagsheimiiis. Nefndinni er ætlað að ná sem víð- tækastri samstöðu á milli verka- lýðsfélaganna á svæðinu og bæj- arfélagsins. Félagsmiðstöð þessi hefur lengi verið á óskalista margra félaga, því sameiginleg félags- aðstaða er ekki fyrir hendi. Á þessari teikningu af miðbæjar- skipulaginu sést S-húsið merkt með x við Ráðhústorg. Þegar eru uppi hugmyndir um staðsetningu félagsheimilisins. Það yrði samkvæmt þeim í hjarta bæjarins, - við Ráðhús- torgið. Samkv. skipulaginu er gert ráð fyrir stórhýsi við sunn- anvert torgið, - svokölluðu S-húsi, sem þykir næsta freist- andi fyrir félagsheimili verka- lýðsfélaganna. „Farfuglar“ á skak Hrísey 24/4 Nautgripirnir í einangrunarstöðinni þrífast vel. Á tímabilinu frá 1. jan. til 1. apríl hafa gripirnir 24 þyngst um 1707 kg- Stærsti netabáturinn héðan fór vestur á Rif. Þá stóð til að venju að fara héðan á grásleppu til Flateyjar á Skjálfanda, en hefur ekki verið hægt vegna íss. Algengt er að menn komi hing; að á sumrin og geri út á skak. I fyrra voru t.d. 6 trillur gerðar út af aðkomumönnum héðan. Þeir eru að byrja að láta sjá sig - ein- hver skýrði þá „farfuglana“. Mikill fjöldi skakbáta er gerður út héðan á sumrin. Guðjón. Vonandi aðeins byrjunin: Yfirvinnuþak Undanfarin ár hefur yfirvinna fólks oft verið óhóflega mikil. Nokkrar umræður hafa farið fram í þjóðfélaginu um nauðsyn þess að stemma stigu við þessari þróun. Ekki hefur þess þó orðið vart að þetta ástand hafi vakið sérstaka athygli almennt í röðum forustumanna verkalýðshreyf- ingarinnar t.d. framkvæmda- stjórnar A.S.Í. Á 8. þingi Málm- og skipa- smiðasambands íslands sem haldið var 5.-7. maí 1978 var þó ályktað að draga bæri úr yfir- vinnu félagsmanna M.S.Í., og athugað yrði hvort eðlilegt væri að setja takmarkanir í lög félag- anna. Hjá Sveinafélagi járniðnað- armanna Akureyri hefur mikið verið rætt um þessa hluti að undanförnu. Félagsmönnum er ljóst að mjög villandi umræður eiga sér stað í þjóðfélaginu um laun málmiðnaðarmanna. Þar er í flestum tilvikum talað um árslaun, sem í nokkrum tilvik- um eru all há, en byggjast alls ekki upp á háu tímakaupi, heldur á mjög löngum vinnu- tíma. Sem dæmi má nefna að tíma- kaup sveina á fyrsta ári að loknu sveinsprófi er í dag kr. 1.05l.-í dagvinnu. Þá má einnig í þessu sambandi nefna að ekki er óal- gengt að félagsmenn Sveinafé- lagsins hafi unnið á milli 1000 og 1500 stundir umfram dag- vinnutíma, á árinu 1978. Öllum má því ljóst vera að þetta er ekki æskilegt ástand til frambúðar, með tilliti til vinnu- álags á viðkomandi menn og fjölskyldulífs þeirra. Á fundi sem haldinn var í Sveinafélagi járniðnaðarmanna á Akureyri 17. apríl 1979varþví ákveðið að setja þak á yfirvinnu- tíma félagsmanna sem er tæpar 700 stundir umfram dagvinnu á tímabilinu frá 1. maí til aðal- fundar ársins 1980. Sá fundur skal síðan fjalla um reynslu þá sem fengist hefur af þessari ákvörðun, og taka síðan ákvörðun um næsta stig í mál- inu. Ljóst má vera að þörf er á ný- skipan þessara mála og breytt- um hugsunarhætti. Leikhúsráðið nýja Bæjarstjórn hefur skipað fulltrúa sinn í leikhúsráðið nýja Valgarð Baldvinsson bæjarritara og varamann hans Hrein Pálsson bæjar- lögmann. Aðrir í leikhús- ráði eru: Guðmundur Magnússon Þórey Aðalsteinsdóttir Viðar Eggertsson Svanhildur Jóhannesdóttir Sigurveig Jónsdóttir • • Orskot á Skessunef í framtíðinni ætti Akur- eyringum að ganga þrauta- lausar að komast uppá brekkubrún úr miðbænum en hingað til. Bæjarstj. hef- ur ákveðið, að sú kvöð fylgi húsnæði því sem á að rísa á milli Útvegsbankans og Amaro, að þar verði lyfta til að flytja fólk frá Hafnar- stræti upp á brekkubrún- ina, sem heitir Skessunef. Þetta kom fram við af- greiðslu miðbæjarskipu- lagsins í bæjarstjórn sl. þriðjudag. Biðskýli Bæjarstj. hefur samþykkt heimild til strætisvagna- nefndar um að láta byggja biðskýli. í ljós hefur komið, að eftir tilkomu nýja leiða- kerfisins hefur notkun strætisvagnanna aukist verulega. Verið er að leita fyrir um kaup á nýjum strætisvagni. Þá er verið að ganga frá gerð veggspjalda með leiðakerfmu. Pennavinur Blaðinu hefur borist beiðni um pennavin frá Afríku- landinu Chana. Hann bið- ur um pennavini af báðum kynjum á öllum aldri. Áhugamál hans eru, að spila á spil, skipti á póst- kortum og íþróttir. Nafn og heimilisfang: Samuel Cobbina c/o Miss Hannah Cobbina, Johova Withness P.O.Box 468 Sekondi Chana. Fjölskyldu- samkoma og bingó verður í Dynheimum, laug- ardaginn 28. apríl kl. 14.00. Dagskrá: Söngur: ítalski söngvarinn Reinard Geifl- er, gítarleikur: Örn Arnar- son, leikþáttur í léttum dúr, danssýning: íslandsmeist- ari í diskódansi, Jón Ragn- ars. Trúðar koma í heim- sókn. Kynnir verður Birgir Marinósson og verður hann með ýmislegt í poka- horninu. Að lokum verður spilað bingó. Allur ágóði rennur i hússjóð. Komið og styrkið gott málefni! Geðverndarfélag Akureyrar Ferðafélagið Kaidbakur. Göngu- eða skíðaferð laugard. 28. apríl kl. 1 e.h. Þátttaka tilkynn- ist kl. 6-7. Sími 22720. Súlur. Gönguferð þriðjud. 1. maí kl. 10 f.h. Þátttaka tilkynnist kl. 6-7 mánudag. Sími 22720.

x

Norðurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.