Organistablaðið - 01.11.1969, Blaðsíða 12

Organistablaðið - 01.11.1969, Blaðsíða 12
fagnaðar í héraðinu. — Þá hefur Bjarni einnig glætt tónlist og koraið allmörgum í nána snertingu viS hana ó þann hátt að kenna þeim að leika á hljóðfæri. Bjarni Bjarnason var kvæntur Helgu (f. 5. maí 1878, d. 3. ágúst 1948) Hannesdóttur frá Deildartungu, frá- hærri hæfileikakonu, sem unni listum af alhug og studdi mann sinn í mikil- vægu menningarstarfi með róð og dáð. Þ. Kr. Frá aðalfundi F.Í.O. Útdráttur úr fundargerð aðalfundar. Aðalfundur í’.Í.O. var haldinn 1. sept. í Domus Medica. Formaður skýrði frá því að illa liti út með styrkveitingar vegna Norræna kirkjutónlistarmótsins. Tillögur félagsins um að kirkjumála- ráðherra setti lög um organleikara væru í athugun og virtist því máli miða eitthvað. Guðmundur Gilsson, formaður launa- nefndar, skýrði frá samningum um launamál við Reykjavíkurprófastsdæmi og var áréttuð uppsögn samninga við prófastsdæmið. Gunnar Sigurgeirsson, formaður rit- nefndar Organistahlaðsins sagði frá fjórhagshorfum hlaðsins og virðist fjárhagurinn ekki valda teljandi ó- hyggjum. Stjórnarkjör fór fram og voru kjörnir Póll Kr. Pálsson formaöur, Gústaf Jóhannesson gjaldkeri og Ragn- ar Björnsson ritari. Jón G. Þórarins- son haðst undan endurkosningu. Formaður skýrði fró breytingu á tíma listahátíðar í Reykjavík. Mundi hátíðinni seinka og yrði eftir 20. júní næsta ár. Lagði formaður til, að Nor- ræna kirkjutónlistarmótið hæfist 20. júní og félli þá mótið inn í tima tón- listarhátíðarinnar. Var það samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Frá ritara. Tónleikahald í Reykjavík og nágrenni. Engir tónleikar hafa verið ó veg- um kirkjunnar á liðnu sumri, og verð- ur þessi pistill því heldur efnislítill* að þessu sinni. Þó langar mig til að geta tónleika, sem haldnir voru í Austurbæjarbíói í sumar, en þar var að verki útvarpskór Þórshafnar i Fær- eyjum. Kórinn flutti tóniist af ýmsu tagi og kom flutningur kórsins, á hin- um ýmsu verkefnum, mér satt að segja á óvart. Kórinn var skipaöur börnum og fullorðnum og langt var frá, að mikið væri um úrvals raddir í röðum hans. En meðferð kórsins á verkefn- unum var honum og Færeyjum til sóma, bæði þegar hann söng sín eig- in þjóðdanskvæöi og krefjandi Madrigalatóniist miðalda. Er hugsan- legt að við getum lært fleira af Fær- eyingum en þorskveiöar. R. B. Úr bæ og byggð. Kirkjukórasamband Austurlands minntist 25 ára starfsafmælis síns 28. júní sl. með samsöng i félagsheimil- inu Valaskjálf að Egilsstöðum. Aðal- söngstjórar mótsins voru: Kristján Gissurarson, Eiðum og form. kirkju- kórasamhands Austurlands, Jón Mýr- dal, organisti í Neskaupstað. Flutt voru 25 sönglög eftir innlenda og erlenda höfunda og auk þess flutti 12 ORGANISTABLADIÐ

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.