Organistablaðið - 01.12.1970, Page 9
ÁSKELLSNORRASON
tónskáld
Áskell Snorrason, lónskáld lézt
hinn 4. des. 1970 daginn fyrir
afmælisdag sinn, en 'hann var
fæddur 5. des. 1888 á Öndólfs-
stöðum í Reykjadal í Suður-Þing-
eyjarsýslu. Foreldrar hans voru
Snorri „Tónsson og Aðalhjörg
Jónasdóttir.
Áskell stundað'i lengst af
kennslustörf. Frá 1919 til 1962
kenndi Áskell söng í skólum á
Akureyri og stjórnaði kórum. -
Árið 1929 varð hann aðal-
stofnandi Karlakórs Akureyrar
og stjórnaði honum til ársins 1942 og náði miklum og góðum árangri.
Árið 1951 ferðaðist Áskell til Sovétríkjanna og skrifaði ferða-
sögu um |)á för. Hann skrifaði margar greinar i blöð og límarit um
tónlist.
Eftir að Áskell flutti til Reykjavíkur kenndi hann við Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar.
Áskell nam tónfræði hjá Sigfúsi Einarssyni og Kurt Haeser. Hann
samdi mörg tónverk (á annað hundrað) ibæði fyrir hljóðfæri (orgel
og j)íanó) og söng (einsöng og kór). Þekktustu lög hans munu vera
„Atburð sé ég anda mínum nær“ (Hallgr. Pétursson eftir M. Joch.)
°g „Yfir 'hlíðum aftanblíða bvílir“, (Sunnudagskvöld efiir Huldu).
en flest af tónverkum bans eru óprentuð.
Áskell var kvæntur Guðrúnu Kristjánsdóttur frá Birningsstöðum í
Ljósavatnssikarði. Hún lézt 12. nóv. s.l. þremur vikum fyrr en mað-
ur hennar.
ORGANISTABLAÐIÐ 9