Organistablaðið - 01.12.1970, Side 11
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
lœknir
F. 16/9 1870. D. 6/11 1927.
Hanu var fæddur í Sýrnesi í
Reykjadal. Foreldrar hans voru
Kristján síðar 'bóndi í Álftagerði
við Mývatn, Jónsson og kona
lians Kristbjörg Finnbogadóttir
bónda i Skáney í Borgarfirði,
Guðmundssonar.
Kristján varð stúdent 2. júlí
1890, cand med. frá Kaupmanna-
bafnarháskóla í jan. 1897. Fram-
haldsnám á fæðingarstofnun í
Kaupmannahöfn nóv.—des. 1898.
Árið 1921 og 1922 dvaldi hann í
Kaupm.höfn og Frakklandi á
námsstyrk. Var skipaður héraðslæknir á Seyðisfirði 23. maí 1900 og
andaðist ]jar 6. nóv. 1927. Hann átti sæti í skólanefnd, niðurjöfnun-
arnefnd og iniirg ár í bæjarstjórn Seyðisfjarðar. Brezkur varakon-
súll frá 11. júní 1914. Gæzlustjóri útibús íslandsbanka á Seyðis-
firði. Heiðursfélagi verzlunarmannafélags Seyðisfjarðar.
Kristján var giftur Kristínu Þórarinsdóttur, Guðmundssonar kaup-
ttianns og fransks ræðismanns á Seyðisfirði. Eignuðust þau 4 svni,
sem allir eru á lífi.
Fyrsta lag Kristjáns var: Til fánans við kvæði Einars Benediktsson-
ar, gefið út á póstkort 1907. Yfir kaldan eyðisand, kvæði Kristján
Jónsson, upphaflega fyrir karlakór, kom út í ísl. söngvasafni (fjár-
lógunum); einnig Hafaldan háa, í öðru hefti söngvasafnsins. Þá er:
Snemma lóan litla í — (Jónas Hallgrímsson), kom út í Æskunni fyrir
Ulrt það bil 20 árum. Þá hafa aðeins varðveitzt nokkur lög, sem
skrifuð hafa verið upp eftir minni af syni lians, Þórarni, því allt
•nnbú Kristjáns brann árið 1900 og hirti 'hann ekki um að endurrita
lögin — þótti lítið til þeirra koirta.
Lögin eru þessi Jón flak (ísl. þjóðvísa), Helvíti (Jónas Hallgríms-
Sou), Veðurvísur (Jónas Hallgrímsson).
ORGANISTABLAÐIÐ 11