Organistablaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 13
Þá sungu kirkjukórarnir auk þess sem Rut Magnúsdóttir á Eyrarbakka lék
tvo sálmaforleiki eftir sjálfa sig og síðar á tónleikunum var flutt lag eftir Stein-
dór Zóphan íasson af honum sjálfum á orgel og Jóhanni Stefánssyni trompet-
leikara. Haukur Guðlaugsson lék á píanó tilbrigði Guðmundar Gilssonar yfir
lag úrTöfraflautu Mozarts.
Margir fleiri komu fram á þessum velheppnuðu tónleikum, s.s. Glúmur
Gylfason Selfossorganisti og Ölfusorganistarnir Ari Agnarsson og Robert
Darling, en þeir vinna nú í sameiningu að æfa kór úr Þorlákshöfn, Ölfusi og
Hverageröi til ísraelsfarar nú um jólin.
Einsöngvararnir Gunnar E. Þórðarson og Hulda Guðrún Geirsdóttirsungu
með kórunum. María Eðvaldsdóttir, sem tekið hefur við organistastarfi við
Hraungerðiskirkju, lék undir með sínu kór.
Auk áðurtalinna tónlistarmanna komu fram sem stjórnendur Ólafur Sigur-
jónsson, Guðrún Sigríður Friðbjörnsdóttir og Jón Vigfússon.
Fyrsta kirkjiililjórnsveitin hérlendis
Stofnuð hefur verið Kammersveit Háteigskirkju. Er hún skipuð 9 strengja-
leikurum, flestum úr sinfoníuhljómsveitinni, en stjórnandi er dr. Orthulf
Prunner organleikari kirkjunnar. Hljómsveitin æfir vikulega og mun koma
fram a.m.k. 5 sinnum á ári. Að sögn dr. Prunners verða þar á meðal tvennir
tónleikar með verkefnum, sem hæfa helgum stað um jólin og vorkomu, en
þrisvar verður leikið við athafnir í kirkjunni, og þá flutt úrvals verk kirkjutónlist-
ar.
Hljómsveitin tekur einnig að sér að leika annars staðar, enda mun hún eiga
æfð verk á takteinum sem henta öllum kirkjulegum athöfnum. Hinar reglu-
bundu æfingar tryggja tengsl tónlistarmanna við kirkjuna og skapa þá tilfinn-
ingu fyrir sérstöðu tónlistarflutnings í kirkju sem er nauðsynleg í kirkjutónlist
segir dr. Othulf Prunner.
Kirkjan greiðiræfingastyrki, styður við nótnakaup og kynningu. En greiðsl-
ur vegna flutnings tónverka verða skv. taxta F.Í.H.
Nýir organistar
Þröstur Eiríksson hefur verið ráðinn organisti að Garðakirkju á Álftanesi.
Þar er nú heil staða. Þarog á Bessastöðum spilaði áður Þorvaldur Björnsson,
en hann spilar nú áfram á Bessastöðum.
í Hjallaprestakalli hinu nýja í Kópavogi hefurveriðráðinntilorganistastarfa
Friðrik Vignir Stefánsson. Friðrik lauk kantcrsprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunn-
ar vorið 1987.
ORGANISTABLAÐIÐ 13