Morgunblaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.11.2009, Blaðsíða 6
Morgunblaðið/Kristinn SVONEFND luktarganga fór fram í Hafnarfirði á laugardaginn. Börn fóru þá í skrúðgöngu í fylgd leikara og hljóðfæraleikara og sýndu lukt- ir sem þau höfðu föndrað. Algengt er að farið sé í slíkar göngur í Þýskalandi, Austurríki og Sviss til minningar um Martein biskup frá Tours. LUKTARGANGA Í HAFNARFIRÐI 6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2009 www.noatun.is PLOKKFISKUR KR./KG959 VERÐ FRÁBÆRT Ódýrt og gott á mánudegi F ÚRFISKBOR ÐI ÚR FISKBORÐI ERSKIR Í FISKI 26% afsláttur 1298 Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is FRAKKARNIR tveir sem snúið var við við komuna hingað til lands þann 10. nóvember eru taldir hafa ætlað að staldra hér stutt við og svíkja fé af fólki með vélabrögðum. Guðmundur Baldursson, lögreglufulltrúi á Suðurnesjum, segir menn sífellt reyna nýjar leiðir í svikum af þessu tagi en þau eru gjarna kennd við Nígeríu í daglegu tali. Frakkarnir höfðu meðferðis mikið magn hvítra papp- írsseðla, sömu stærðar og peningaseðlar. Bendir það til þess að þeir hafi ætlað sér að narra fólk til að halda að þarna væru á ferð- inni dulbúnir peningaseðlar. Guðmundur seg- ir að eitt af nýrri afbrigðum nígerísku svika- myllnanna felist í að segja auða pappírsseðla með vatnsmerki vera peningaseðla sem þurfi að verka á vissan hátt svo seðillinn taki á sig sína réttu mynd. „Þeir setja þá í umslag úr álpappír og sprauta „töfravökva“ í það, setja það í frysti og taka svo eftir einhvern tíma út. Þá eru þeir orðnir að peningaseðlum,“ segir Guð- mundur. Er þessari sýningu ætlað að sann- færa mögulega kaupendur. Þarna mun þó ekki vera á ferðinni svarti galdur eða efna- fræðiundur heldur er einfaldlega annað um- slag í frystinum, fullt af peningum. „Töfra- vökvinn“ ku vera lítið annað en vatnslausn en ásamt hinum auðu seðlum er hann falur auð- trúa fólki sem maka vill krókinn. „Þessu fylgir svo saga sem er oftast nær eitthvað á þá leið að Bandaríkjamenn hafi ætlað að senda milljóna dollara aðstoð til Afr- íkuríkja en til að hægt væri að flytja þetta á öruggan hátt hafi þurft að hreinsa allt af seðl- unum,“ segir Guðmundur. „Ef fólk fellur svo fyrir þessu og kaupir kannski ferðatösku af seðlunum þjóta svikararnir bara út á flug- völl.“ Með Nígeríusvindl á prjónunum  Ævintýralega langsótt söluræða um dulbúna peningaseðla og töfravökva til að svíkja fé af auðtrúa fólki  Útlendingastofnun vísaði mönnunum frá Svart fé Ekki er allt sem sýnist. ÍSLENSK stjórnvöld voru hvött til að draga umsóknina um aðild að Evrópusambandinu til baka á aðal- fundi Heimssýnar sem haldinn var í gær. Ásmundur Einar Daðason al- þingismaður var kjörinn formaður samtakanna og leysir Ragnar Arn- alds af hólmi. „Það er alveg ljóst að á bak við þessa umsókn er mjög veikt pólitískt umboð,“ sagði Ásmundur í samtali við Morgunblaðið og bætti við að umboðið væri nánast bundið við einn stjórnmálaflokk. „Auk þess tel ég að menn geri sér ekki fulla grein fyrir þeim skilyrðum sem fylgja aðildar- umsókninni, því samkvæmt nefndar- áliti utanríkismálanefndar Alþingis eru gríðarmikil skilyrði sem fylgja þessari umsókn.“ Ásmundur segir að félagafjöldinn í Heimssýn hafi margfaldast á einu ári. „Aðildarfélög hafa verið stofnuð um allt land og á fundum þeirra hef- ur verið húsfyllir. Við ætlum að halda þessu starfi áfram og þétta raðirnar, berjast hvarvetna gegn að- ild að ESB.“ Hvött til að draga umsókn um aðild að ESB til baka Ásmundur Einar Daðason nýr for- maður Heimssýnar Morgunblaðið/Kristinn Nýr formaður Ásmundur Einar Daðason (til vinstri) var kjörinn formaður Heimssýnar á aðalfundi samtakanna í sal Þjóðminjasafnsins í gær. FYRIR um tveimur árum tókst svikurum að blekkja Íslendinga með svokölluðu „svörtu- seðlasvindli“. Það felst í því að færðir eru fram bunkar af pappír, sömu stærðar og peningaseðlar, í bland við alvöru pen- ingaseðla sem hafa verið litaðir biksvartir. Svindlararnir sýna síðan væntanlegum fórnarlömbum hvernig megi hreinsa svarta litinn af en velja auðvitað aðeins raunveru- lega seðla í sýnikennsluna. Síðan er fórn- arlömbunum talin trú um að þau geti þveg- ið afganginn af „seðlunum“ með sama hætti. Gangi svikamyllan upp eru svindl- ararnir á bak og burt þegar kaupandinn áttar sig á að ekki er um peninga að ræða. „Þeir voru gripnir hérna í flugstöðinni, á hlaupum með fulla vasa af peningum,“ segir Guðmundur um málið sem kom upp hér. Kveður hann fjárhæðina í því máli hafa hlaupið á milljónum. Mál af þessu tagi koma upp öðru hverju. Seðlasvindl hefur virkað hér „VIÐ viljum sr. Óskar áfram í Sel- fossprestakalli“ er yfirskrift áskor- unar sem íbúar safna stuðningi við á Selfossi. Er þess krafist að nýr sókn- arprestur verði valinn í almennum prestskosningum. Undirskriftalistar liggja frammi á bensínstöðvum og á Facebook- vefnum höfðu 880 lýst yfir stuðningi við málið í gærkvöldi. Kirkjuþing ákvað að sameina Hraungerðis- og Selfossprestaköll. Það þýðir að sr. Kristinn Ág. Frið- finnsson, prestur í Hraungerðis- prestakalli, verður sóknarprestur í sameinuðu prestakalli en auglýst verður eftir öðrum presti með hon- um. Séra Óskar H. Óskarsson sem leyst hefur af í sókninni hefur lýst því yfir að hann muni ekki sækja um prestsembættið heldur hverfa til sinna fyrri starfa sem prestur við Akureyrarkirkju. Með þessa þróun er hópur íbúa óánægður. Krefjast kosninga á Selfossi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.